Morgunblaðið - 04.07.1998, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Nafn Alfreðs
Elíassonar á
þotu Atlanta
BOEING 747 breiðþotu Atlanta
flugfélagsins verður á morgun gefíð
nafn Aifreðs Elíassonar, eins af
stofnendum Loftleiða. Er það sjötta
þota félagsins sem fær nafn ein-
hvers frumkvöðuls íslenskrar flug-
sögu.
Kristjana Milla Thorsteinsson,
ekkja Alfreðs Elíassonar, mun af-
hjúpa nafnið á þotunni við athöfn á
Keflavíkurflugvelli á morgun að við-
stöddum forráðamönnum og starfs-
mönnum Atlanta og fyrrverandi
starfsmönnum Loftleiða. Frá árinu
1993 hefur einni þotu Atlanta á ári
verið gefíð nafn einhvers frum-
kvöðuls úr íslenskri flugsögu. Nöfn-
__^ in sem þoturnar fimm bera eru
Agnar Kofoed-Hansen, Alexander
Jóhannesson, Karl Magnússon, Ulf-
ar Þórðarson og Þorsteinn E. Jóns-
son.
■ Atlanta boðið/4
----------------
800 lítrar
láku úr olíu-
Mb flutningabfl
ÁTTA hundruð lítrar af olíu láku
úr olíuflutningabfl frá Skeljungi á
vegarkaflanum frá Fellskoti að
Laugarási í Biskupstungum í gær.
Talsverð hálka myndaðist á vegin-
um og tilkynnti vegfarandi um
óhappið síðdegis í gær. Klukku-
stund síðar var farið að vinna að
því að hreinsa veginn og var starf-
inu lokið um klukkan 20. Olíufélag-
ið Skeljungur sá um hreinsunar-
starfið en að sögn lögreglunnar á
Selfossi er vegarkaflinn milli 15 og
20 km langur.
Orsök lekans var sú að slanga á
tengivagni fór í sundur. Haft var
samband við Hollustuvernd ríkis-
ins og Vegagerðina vegna málsins.
Morgunblaðið/Arnaldur
Klædd eftir veðri
REGNIÐ á suðvesturhorninu, sem
undanfarna daga hefur vökvað
þurran gróður og bætt í vatnslitl-
ar ár er senn á enda, að minnsta
kosti í bili.
Það ætti að gleðja marga, enda
nú að hefjast önnur mesta ferða-
helgi ársins. Veðurstofa íslands
spáir góðu veðri vestan- og sunn-
anlands í dag og á morgun. Norð-
anáttin færir Vestur- og Suður-
landi sólina en kælir Iandið að
norðanverðu. A Austurlandi verð-
ur skýjaö framan af deginum og
lítils háttar úrkoma. Spáin er
svipuð fyrir land allt á morgun.
Þessi kona, sem ljósmyndari
Morgunblaðsins rakst á í gær,
kann að klæða sig og sína eftir
veðri. Hún lét rigninguna ekki
aftra sér frá því að viðra hundana
sína, heldur klæddi þá í þar til
gerðar regnkápur, ef svo má
segja. Hún getur þó sleppt regn-
klæðunum um helgina, þar sem
sólin mun að öllum líkindum
verma íbúa Reykjavíkurborgar
með geislum sínum.
Sala á kjúklingum
jókst um 20%
á 12 mánuðum
SALA á kjúklingum hefur aukist um
20% á síðustu 12 mánuðum. Salan
síðustu mánuðina hefur verið enn
meiri og var sala á kjúklingum í maí
32,5% meiri en í maí í fyrra. Ástæð-
an fyrir þessari breytingu er stór-
aukin sala á ferskum kjúklingum,
auk þess sem verð hefur heldur
lækkað.
Sala á lambakjöti dróst saman um
3,8% á síðustu 12 mánuðum, en sala
á nautakjöti jókst hins vegar um
3,8%. Sala á lambakjöti í vor hefur
hins vegar verið allgóð. Salan síðustu
þrjá mánuðina var t.d. um 12,4%
meiri en í sömu mánuðum í fyrra.
í fyrsta skipti í áratugi hefur sala
á svínakjöti dregist saman, en
ástæðan er fyrst og fremst sú að
framleiðsla á svínakjöti hefur minnk-
að. Sölusamdrátturinn frá áramótum
er 4%, en síðustu ár hefur sala á
svínakjöti aukist um u.þ.b. 10% á ári
að jafnaði. Verð lækkaði umtalsvert
1996 og í kjölfarið hættu nokkrir
svinabændur framleiðslu. Þrátt fyrir
minni framleiðslu á svínakjöti hefur
verð á því ekki hækkað.
Samtals hefur neysla á kjöti aukist
hér á landi um 1,4% á síðustu 12 mán-
uðum. Ef litið er til síðustu þriggja
mánaða er neysluaukningin 6,5%.
Kaup Myllunnar-Brauðs á Samsölubakaríi
Máli samkeppnis-
ráðs vísað frá
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef-
ur vísað frá máli samkeppnisráðs
þar sem krafa var gerð um að ógiltur
yrði úrskurður áfrýjunarnefndar
samkeppnismála um að fella úr gildi
fyrri ákvörðun samkeppnisráðs um
ógildingu yfirtöku Myllunnar-
Brauðs hf. á Samsölubakaríi.
Málinu var vísað frá á þeirri for-
sendu að samkeppnisráði væri sam-
kvæmt lögum ekki heimilt að vera
aðili máls með þeim hætti sem hér
um ræðir, enda hefði það ekki
lögvarða hagsmuni af því að fá um-
ræddan úrskurð áfrýjunarnefndar-
innar felldan úr gildi. Samkvæmt
samkeppnislögum væri hlutverki
samkeppnisráðs lokið þegar það
hefði tekið ákvörðun um tiltekið
málefni. Þeirri ákvörðun mætti
skjóta til áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála og yrði samkeppnisráð
að hlíta úrskurði hennar á sama
hátt og önnur lægra sett stjórnvöld
yrðu að hlíta ákvörðunum æðra
settra stjórnvalda.
■ Samkeppnisráð/16
--------♦“♦-♦------
Pottur gleymd-
ist á eldavél
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
kallað út í gærkvöld eftir að tilkynn-
ing barst um mikinn reyk í húsi á
Vatnsstíg 11.
Pottur hafði gleymst á eldavélar-
hellu með fyrrgreindum afleiðing-
um. Loftað var út úr húsinu og að
sögn slökkviliðsins hlaust ekkert
tjón af reyknum.
Hart var deilt um samfylkingartillögu aukalandsfundar Alþýðubandalagsins
Formaðurinn leg’g’iir til
sameiginlegt framboð
34 fulltrúar lög-öu fram gagntillögu
STRAX við upphaf aukalandsfund-
ar Alþýðubandalagsins á Hótel
Sögu í gær lagði Margrét
Frímannsdóttir, formaður flokks-
ins, fram tillögu um, að stefnt skyldi
að sameiginlegu framboði Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks, Samtaka
um kvennalista og annarra félags-
hyggjuafla í öllum kjördæmum
landsins í næstu alþingiskosningum.
Harðar deilur urðu um tillöguna við
umræður fulltrúa á aukalandsfund-
inum, sem stóðu yfir fram eftir
kvöldi.
" I gærkvöldi lögðu Steingrímur J.
Sigfússon og 33 aðrir fulltrúar á
fundinum fram tillögu um að for-
manni flokksins verði falið, í sam-
ráði við framkvæmdastjórn og þing-
flokk, að bjóða öðrum stjórnarand-
stöðuflokkum, óháðum samstarfsað-
ilum flokksins og öðrum þeim sem
vilji fylkja liði undir merkjum
vinstristefnu og félagshyggju til
viðræðna um gerð samstarfsáætl-
unar til fjögurra ára. „Áætlunin
skal meðal annars fela í sér bind-
andi yfirlýsingu um samstarf á
næsta kjörtímabili, hvort sem er í
stjórn eða stjórnarandstöðu, mál-
efnasamning og verkáætlun til
næstu fjögurra ára, ramma um
samstarf þingflokka á Alþingi og
viljayfirlýsingu um að þróa að öðru
leyti áfram samstarf viðkomandi að-
ila á næsta kjörtímabili."
Ragnar Arnalds alþingismaður
var meðal flutningsmanna tillög-
unnar og Ögmundur Jónasson þing-
maður lýsti einnig stuðningi við
hana.
„Alþýðubandalagið hyrfi
af sjónarsviðinu"
Hjörleifur Guttormsson sagði að
ákvörðun um sameiginlegt framboð
hefði í för með sér að Alþýðubanda-
lagið hyrfi af sjónarsviðinu sem
stjórnmálaafl. Gagnrýndi hann
samfylkingartillöguna harðlega og
sagðist ekki verða samferða hópi
sem felldi merkið fyrirfram.
Svavar Gestsson, þingflokksfor-
maður Alþýðubandalagsins, lýsti í
ræðu sinni þeirri skoðun að fresta
ætti ákvörðun um sameiginlegt
framboð og fela miðstjórn flokksins
endanlegt úrskurðarvald. Yrði
ákvörðun tekin strax væri hætta á
klofningi flokksins.
Persónuleg skoðun Svavars á
sameiginlegu framboði kom skýrt
fram. „Það væri betra fyrir málefni
og hugsjónir Alþýðubandalagsins
að láta reyna á styrk sinn í næstu
kosningum sem Álþýðubandalag í
málefnabandalagi við hina flokkana.
Margt bendir til þess að Alþýðu-
bandalagið fengi við þær aðstæður
verulegt fylgi; skoðanakannanir
hafa verið okkur hagstæðar að und-
anförnu," sagði Svavar í ræðunni.
Margi’ét vitnaði í ræðu sinni
óspart til sögulegra fordæma af
samfylkingu vinstrimanna og
minnti einnig á það að Alþýðu-
bandalagið hefði löngum hvatt til
samfylkingar félagshyggjuflokk-
anna en talað fyrir daufum eyi'um
þangað til fyrir fáeinum árum þegar
stefnubreyting varð í þessum mál-
um hjá Alþýðuflokki. „Lái mér hver
sem vill þótt ég undrist stundum
harðorðar yfirlýsingar einstakra
manna í minn gai-ð fyrir það eitt að
framfylgja yflrlýstri stefnu Alþýðu-
bandalagsins til margra ára,“ sagði
Margrét.
■ Gerir tillögu/11
■ Felurísér/11
■ Engar breytingar/11
Þrjú
óhöpp á
nýlögðum
vegarkafla
ÞRJÚ umferðaróhöpp urðu á
nýlögðum vegarkafla við
Lyngholt í Borgarfirði í gær. í
tveimur þeirra komu mótor-
hjól á leið á landsmót bifhjóla-
samtakanna Sniglanna við
sögu.
Stúlka sem var farþegi á
öðru mótorhjólinu slasaðist h't-
illega þegar hjólið rann til á
veginum og fór á hliðina en
ökumaður þess kvartaði undan
eymslum í úlnliðum, að sögn
lögreglunnar í Borgarnesi.
Hjólið er hins vegar mikið
skemmt og óökufært.
í hinu mótorhjólaslysinu var
einn maður á ferð og varð
óhappið með sama hætti og hið
fyrrnefnda. Ökumaður slasað-
ist ekki en hjólið rispaðist lítil-
lega.
Á sama stað hægði bíll á sér
í bílalest með þeim afleiðing-
um að bíll sem á eftir kom lenti
aftan á honum. Engin meiðsl
urðu á fólki í árekstrinum.