Morgunblaðið - 25.08.1998, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 25.08.1998, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 190. TBL. 86. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Jeltsín biður þjóð sína um stuðning við ríkisstjórnarskipti Hvergi hvikað frá efnahagsumbótum Moskvu. Reuters. BORIS Jeltsín Rússlandsforseti bað í gær þjóð sína um stuðning eft- ir að hafa rekið forsætisráðherrann Sergej Kíríjenkó og skipað Viktor Tsjemomyrdín aftur í embættið. Háttsettur embættismaður í Kreml sagði að efnahagsumbætur, sem vestrænir lánardrottnar hafa náið eftirlit með myndu halda áfram eins og ekkert hefði í skorizt, en lík- legt væri að „talsverðar breytingar" yrðu á því hvernig þeim væri hrint í framkvæmd. Jeltsín skipaði Kíríjenkó og ríkis- stjórn hans að taka pokann sinn á sunnudaginn, eftir fjóra mánuði við stjórnvölinn. í gær bað hann þingið að staðfesta Tsjernómyrdín sem forsætisráðherra í því skyni að reyna að endurvekja stöðugleika á fjármálamörkuðum Rússlands eftir miklar sveiflur og hremmingar á undanförnum mánuðum. „Meginmarkmiðið er að leyfa engin skref afturábak, að viðhalda stöðugleika. Núna þurfum við á þekktum þungavigtarmönnum að halda. Ég álít reynslu og vægi Tsjernómyrdíns skipta sköpum," sagði Jeltsín í sjónvarpsávarpi í gærmorgun. „Ég bið þingmenn, héraðsleiðtoga og alla borgara Rússlands að sýna mér skilning og að styðja ákvörðun mína. Aðstæður dagsins í dag eru ekki tíminn fyrir langar umræður,“ sagði hann. Samsijórn með stjórnarandstöðu? Tsjernomyrdín hóf viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar og virtist opinn fyrir því að koma til móts við kröfur stjómarandstöð- unnar um að sem flest stjórnmálaöfl fengju aðild að stjóminni. Þrátt fyr- ir áeggjan Tsjemómyrdíns til ráð- herra Kíríjenkó-stjórnarinnar um að þeir sætu áfram fyrst um sinn tilkynnti Borís Nemtsov, einn helzti frammámaður frjálslyndra, að hann hefði sagt af sér ráðherraembætti. Lét hann svo um mælt að eins og ástandið væri í Rússlandi núna væri of erfltt að hrinda nokkram umbót- um í framkvæmd. Annar nafntogaður umbótasinni, Anatolíj Tsjúbajs, spáði því að á næstu vikum gæti Rússland þurft að ganga í gegn um meiri hættur á efnahagssviðinu en það hefði þurft að reyna hingað til. „Örlög landsins ráðast af því hvort hinni nýju ríkisstjórn takist að yfirstíga þessar hættur,“ sagði Tsjúbajs, sem stýrir alþjóðlegum skuldasamningum Rússa. Umheimurinn tók þessum nýj- ustu tíðindum af stjómmálasviðinu í Rússlandi með tiltölulegu jafnaðar- Litlar líkur sagðar á vopnahléi í Kongó Angóla sendir Kabila liðsauka Reuters AFGANSKIR karlar, stuðningsmenn talebana, flykktust út á götur Kabúl-borgar í gær til þess að mótmæla flugskeytaárás Bandaríkjanna á meintar bækistöðvar hryðjuverkamanna í Khost í Afganistan. Samtök Arabaríkja álykta um árásir Bandaríkjamanna SÞ rannsaki vettvang Goma, Kinshasa. Reuters. UPPREISNARMENN er berjast gegn áframhaldandi forráðum Laurents Kabilas, forseta Lýðveldis- ins Kongós (áður Zaire), sögðu í gær að litlar líkur væru á vopnahléi „svo lengi sem Angóla og Zimbabve halda áfram að styrkja heri sína í landinu," að því er Bizima Karaha, leiðtogi upp- reisnarmanna, tjáði Reuters í gær. Ríkisstjórn Angóla staðfesti í op- inberri tilkynningu í gær að hún hefði sent Kabila liðsauka í barátt- unni við uppreisnarmenn. Aður Einrækta hundinn Lundúnum. Reuters. AUÐKÝFINGUR frá Texas hefur samið við líffræðirannsóknastofu, sem sérhæfir sig í einræktun (klónun), um að hundurinn hans verði einræktaður gegn fimm milljóna dollara greiðslu, um 360 millj. kr. Frá þessu var greint í fréttaþættinum Newsnight á BBC í gær. Rannsóknastofan, sem er við A&M-háskóIann í Texas, hefur þegar fengið nokkrar frumur úr hundinum, sem heitir Moliy og er kynblendingur úr collie og scháf- er-hundi. Hafa vísindamennirnir tvö ár til að búa til tvífara hunds- ins. Haft var eftir forstöðumanni rannsóknastofunnar, Mark West- husin, að búast mætti við því að fleiri auðmenn, sem þætti vænt um gæludýrin sín, myndu vilja fara að dæmi hins hundelska Texasbúa. höfðu íbúar í angólsku hólmlendunni Cabinda greint frá því að lest skrið- dreka, brynvagna og þéttsetinna herflutningabíla hefði farið yflr landamærin til Kongó í gær. Angólska liðsaukanum var ætlað að koma aftan að hersveitum upp- reisnarmanna. Um svipað leyti hófst stórskotaliðsorrusta skammt sunnan við höfuðborgina Kinshasa. Sagði fréttaritari Reuters bardagann geisa um 30 km suður af borginni, en ekki var ljóst hvort uppreisnarmenn hefðu hafið árás eða um hefði verið að ræða gagnárás kongóskra og zimbabvískra hersveita er verja höf- uðborgina fyrir sókn uppreisnar- mannanna. Óttast að átökin breiðist út Kabila hefur sakað Rúanda og Úg- anda um að veita uppreisnarmönn- um, sem era af ættbálki tútsa, lið í baráttu þeirra við Kongóstjórn. Rík- in tvö neita því að herir þeirra séu innan landamæra Lýðveldisins Kongós, en segja jafnframt að af ör- yggisástæðum kunni þau að láta til sín taka ef Zimbabve og Angóla hætti ekki að veita stjórn Kabilas lið. Uppreisnin hófst í austurhluta landsins 2. ágúst sl. en breiddist fljótt út til vesturhlutans. A sunnu- daginn kváðust uppreisnarmenn hafa tekið þriðju stærstu borg lands- ins, Kisangani, en svo virtist sem stjórnarhernum hefði tekist að stöðva sókn uppreisnarmanna til Kinshasa. Styrjöldin í Kongó hefur leitt til spennu milli annarra Afríkuríkja og hefur Nelson Mandela, forseta Suð- ur-Afríku, og Robert Mugabe, for- seta Zimbabve, lent saman vegna þess. Kaíró, Quctta og Islamabad. Reuters. SAMTÖK Arabaríkjanna hvöttu ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í gær til að senda fulltrúa sína þegar til Súdan til að leita vísbendinga í rústum AI Shifa-verksmiðjunnar, sem Bandaríkjamenn skutu stýriflaugum á í síðustu viku, og sannreyna þannig staðhæfingar súdanskra stjórnvalda um að alls ekki hefði verið um framleiðslu á hráefni í efnavopn að ræða í verk- smiðjunni. Bandaríkjastjórn sagðist í gær mundu íhuga samstarf við formlega rannsóknarnefnd á vegum SÞ á árásinni á verksmiðjuna. Súdansstjórn kallaði sendiherra sinn í Lundúnum heim í gær vegna Reuters BORIS Jeltsín bað Rússa f sjón- varpsávarpi að sýna ákvörðun- um sfnum skilning. geði í gær. Stjórnmálaleiðtogar í Bandaríkjunum, Þýzkalandi og öðr- um helztu iðnríkjum heims lögðu áherzlu á nauðsyn áframhaldandi umbóta í Rússlandi til að ná stjórn á efnahagsöngþveitinu sem ríkir 1 landinu, en flestir virtust líta svo á að Tsjemómyrdín stæði fyrir stöð- ugleika, mitt í öngþveitinu. Skipun Tsjemómyrdíns gerði þó lítið til að bæta stöðu rúblunnar. Gengi hennar féll enn frekar í gær. ■ Skipan Tsjernómyrdíns/20 stuðnings stjórnvalda í Bretlandi við aðgerðir Bandaríkjamanna, auk þess að fara fram á það við Breta að þeir kölluðu sendiherra sinn heim frá Kartúm. I yfírlýsingu Samtaka Arabaríkja, sem komu saman til neyðarfundar í gær að ósk Súdana, sagði að þau teldu árásir Bandaríkjamanna á landsvæði Súdans árás á fullveldi ríkisins. Var lýst yfir fullum stuðn- ingi við súdönsk stjórnvöld. Mustafa Osman Ismail, utanríkis- ráðhema Súdans, sagði jafnframt er hann yfirgaf Bagdad, höfuðborg fraks, eftir fjögurra daga heimsókn, að súdönsk stjórnvöld gætu vel sætt Lockerbie-tilræðið Réttað skuli yfir sakborn- ingum í Haag New York. Reuters. BREZK og bandarísk stjórnvöld hafa náð samkomulagi um að leyfa að réttarhöld fari fram í Haag í Hollandi en að skozkum lögum yfir tveimur Líbýumönnum, sem grunað- ir era um aðild að sprengitilræðinu sem grandaði bandarískri Boeing 747-farþegaþotu yfir skozka bænum Lockerbie fyrir tæpum áratug. Kofi Annan, framkvæmdastjóra Samein- uðu þjóðanna, var í gær falið að fylgja málinu eftir og hann beðinn um að færa Líbýustjóm bréf og fylgiskjöl, sem kveða m.a. á um hvernig framsal hinna granuðu beint til Hollands gæti átt sér stað. Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, skoraði á Lí- býumenn að sættast á þessa lausn, en þarlend stjórnvöld hafa neitað að framselja sakborningana nema að því tilskildu að réttarhöldin færu fram á hlutlausu svæði. Samtals 270 manns létust - 259 um borð og 11 á jörðu niðri - þegar sprengja sprakk í flugvél Pan Am- flugfélagsins á leið frá Lundúnum til New York haustið 1988. sig við að Jimmy Caríer, fyrrver- andi forseti Bandaríkjanna, færi fyr- ir bandarískri rannsóknarnefnd. Stýriflaug finnst í Pakistan Stjórnvöld í Pakistan greindu frá því í gær að ein af bandarísku stýriflaugunum sem skotið var að Khost í Afganistan á fimmtudag hefði fundist í heilu lagi í afskekkt- um hluta Balúkistan-héraðs í suð- vestur-Pakistan og hyggjast Pakistanar leggja fram formleg mótmæli hjá SÞ vegna lofthelgis- brots. ■ Talebanar segja/22

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.