Morgunblaðið - 25.08.1998, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 25.08.1998, Qupperneq 10
10 ÞRIÐ JUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Launavísitala opinberra starfsmanna hefur hækkað meira en á almennum markaði Fjögurra prósentu- stiga munur á fimmtán mánuðum Vísitölur neysluverðs og launa Kaupmáttur launa hefur vaxið hröðum skrefum síðustu misserin og ekki er útlit fyrir annað en að framhald verði á þeirri þróun næstu mánuðina. I samantekt Hjálmars Jónssonar kemur þó fram að blikur kunni að vera á lofti. LAUNAVÍSITALA hefur hækkað um 14% undanfarið tæpt hálft ann- að ár eða frá því hafist var handa um gerð heildarkjarasamninga á vinnumarkaði í fyrravor. Á sama tímabili hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,4% og þegar litið er auk þess til skattalækkana ríkis- stjómarinnar um síðustu áramót um 1,9 prósentustig lætur nærri að kaupmáttur launa hafi aukist al- mennt um 12-13% á þessu tímabili samkvæmt þessum mælingum. Launahækkanimar era nokkuð mismunandi eftir einstaka stéttum, eins og gengur og nokkru munar á launaþróun á almennum markaði annars vegar og hjá opinberum að- ilum hins vegar. Þannig mælir launavísitala Hagstofunnar 12% hækkun frá fyrsta ársfjórðungi 1997 til annars ársfjórðungs í ár á almennum markaði, en 16% hækk- un hjá opinberam starfsmönnum og bankamönnum á sama tímabili. Munurinn er 4 prósentustig og era þó ekki komin inn áhrif vegna samninga við hjúkranarfræðinga um mitt þetta ár í kjölfar uppsagna þeirra eða áhrif vegna ákvarðana kjaranefndar að undanfómu, svo dæmi séu tekin. 2,4% hækkun vísitölu neysluverðs Þessi launaþróun og kaupmáttar- aukning era verulega umfram það sem reiknað var með við gerð kjara- samninganna í fyrravor, en þá töldu margir að farið væri fram á ystu nöf í launahækkunum og lengra en samræmdist stöðugleika í efnahags- lífinu til lengri tíma. Launakostnað- arauki vegna kjarasamninganna var talinn nema um 6-7% að meðaltali á síðasta ári og til viðbótar hækkuðu laun um 4% um síðustu áramót. Verðlagsáhrif kjarasamninganna hafa hins vegar orðið miklu minni en reiknað var með við gerð þeirra og enn sem komið er hefur vísitala neysluverðs einungis hækkað um 2,4% frá gerð kjarasamninga og nánast staðið í stað allt þetta ár. Þar veldur mestu verðhjöðnun síðustu tveggja mánaða, en hún hefur kom- ið mjög á óvart og er ekki í takti við þær spár sem gerðar höfðu verið um þróun verðlags á þessu ári. Rekstrarafkoman lakari í ár en í fyrra Ýmsar og misvísandi skýringar era nefndar í þessum efnum, auk þess sem menn era ekki sammála um þá þróun sem vænta megi, einkum þegar lengra er litið fram í tímann. Sumir segja að möguleikar efnahagslífsins á framleiðniaukn- ingu hafi verið stórlega vanmetnir og þróunin síðustu mánuðina sýni það, auk þess sem milliuppgjör fyr- irtækja sem birst hafa að undan- fórnu sýni yfirleitt vel viðunandi afkomu fyrirtækja og að launa- hækkanirnar hafi ekki verið teknar af hagnaði þeirra. Efnahagslífið hafi verið í stakk búið til að mæta þessum kostnaðarhækkunum án þess að velta þeim út í verðlagið. Margvíslegar breytingar á efna- hagsumgerðinni síðasta áratuginn, eins og hvað varðar opnun fjár- magnsmarkaða, aðildina að Evr- ópska efnahagssvæðinu og fieira séu að skila sér í auknum mæli inn í íslenskt efnahagslíf. Þessar breyt- ingar hafi skilað sér í virki-i sam- keppni á markaði hér innanlands sem haldi aftur af hækkunum. Launavísitala helstu launþegahópa Arsfjórðungsleg, 1. ársfjórðungur 1990 = 100 ■ l Þarallaun áalm. markadi l II-----1----1-----1----------1-----1 I II 11998 Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar- framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands Islands, sagði að í þessu samhengi yrðu menn að hafa hug- fast að á þessum umrædda tíma féllu til tvær háar launahækkanir á tólf mánaða tímabili. Almennt talað þætti ekki gott að hækka laun mik- ið meira en 3-4% á hverju ári og samningsaðilar hefðu verið sam- mála um að það væri samrýman- legt vextinum í efnahagslífinu. Aðspurður hvort þróunin undan- farið sýndi ekki að samningsaðilar hefðu vanmetið möguleika efna- hagslífsins til framleiðniaukningar, sagði Hannes, að það sem væri að koma virkilega á óvart væri verð- lagsþróunin á sama tíma og kostn- aður væri að aukast jafnmikið og raun bæri vitni. Verðlagsþróunin hlyti að þýða þegar þessi bylgja hnigi, sem hefði borið okkur uppi að undanförnu, yrði samkeppnis- staða fyrirtækjanna erfiðari en ella og hagnaðurinn minni, því óneitan- lega væri hlutur launanna í verð- mætasköpuninni að aukast. Hannes sagði aðspurður að stór hluti þess hagnaðar sem milliupp- gjör fyrirtækja hefðu sýnt að und- anfórnu væri til kominn vegna fjár- magnsliða. Mörg hver nytu fýrir- tækin góðs af hækkandi gengi krónunnar og arðs af hlutabréfa- eign, en sjálf rekstrarafkoman hlyti að vera lakari í ár en í fytTa. Doktorspróf í hagfræði •MAGNÚS Harðarson hag- fræðingúr lauk hinn 25. maí sl. doktorsprófi í hagfræði frá Yale háskólanum í Bandaríkjun- um. I ritgerð Magnúsar er leitað skýr- inga á því hvers vegna árstíðasveiflur framleiðslu í iðnaði era eins stórar og raun ber vitni. Þær virðast stangast á við hina hefðbundnu forsendu hagfræðinnar að framleiðslu- kostnaður sé stighækkandi. Þessari forsendu er einnig oft hafnað í tölfræðilegum prófum. I ritgerðinni er sú tilgáta sett fram að ástæða þessa sé sí- breytileg samsetning framleiðsl- unnar. Tilgátunni er lýst í ein- fóldu fræðilegu líkani. Hún er studd með vísan í rannsókn sem höfundur gerði á ýmsum fyrir- tækjum í iðnaði. Áð auki er sýnt fram á að þegar breytingar verða á samsetningu framleiðsl- unnar þá sé hætt við að tölfræði- legt mat sem styðst við heildar- framleiðslutölur gefi til kynna að framleiðslukostnaður sé stig- lækkandi jafnvel þegar hann er í raun stighækkandi. Leiðbeinendur Magnúsar vora William C. Brainard og Truman Bewley, prófessorar í hagfræði við Yale háskólann. Magnús er fæddur hinn 14. febrúar 1966. Hann lauk stúd- ensprófi frá Verzlunarskóla íslands vorið 1985. Haustið 1986 hóf hann nám í hagfræði við Macalester College í Banda- ríkjunum og lauk þaðan B.A. prófi vorið 1988. Veturinn 1988- 1989 stundaði hann frekara nám við sama skóla, en haustið 1989 hóf hann framhaldsnám við Yale háskólann. Árin 1991-1993 annaðist hann aðstoðarkennslu við skólann. Magnús er sonur Steinunnar H. Yngvadóttur húsmóður og Harðar Einars- sonar hrl. Magnús rekur fyrirtækið Ekonimika ehf. - hagfræðiráð- gjöf ásamt Páli Harðarsyni. „En það er nánast einstakt, að það sé í einhverju þjóðfélagi hægt að hækka laun og launakostnað um á annan tug prósenta og fá nánast verðhjöðnun á sama tíma, „ sagði Hannes. Hann sagði að því kæmi það honum ekki á óvart þó einhverjar hækkanir ættu eftir að koma fram þó síðar yrði. Hins vegar valdi auk- in samkeppni og opnun markaða hér að verðmyndunin lúti öðram lögmálum en áður. Kostnaðarverð- bólga stjórni ekki lengur verðlags- þróuninni heldur verði verðmynd- unin meira á grandvelli markaðs- aðstæðna hverju sinni. Aðspurður um hvernig útlitið framundan sé segir Hannes, að fjárlög næsta árs verði kosninga- fjárlög, þ.e. fjármálastefna ríkisins verði aðhaldslítil á næsta ári. Til viðbótar sé skattastefnan til þess fallin að örva eftirspurnina. „Við eram með mikla kaupmáttaraukn- ingu og við eram með meiri umsvif í þjóðarbúskapnum en samrýmist stöðugleika til lengri tíma. Við er- um með geysilegan viðskiptahalla og mjög hátt vaxtastig. Þetta er ekki heppileg blanda. Við hefðum þurft að auka aðhaldið í ríkisfjár- málum frá því sem nú er, annað- hvort að hækka skatta eða draga útgjöld saman, en það sem er ger- ast er að skattar eru að lækka og útgjöldin að vaxa. Það hlýtur að leiða til áframhaldandi og kannski vaxandi spennu á vinnumarkaði með þeim afleiðingum að launa- hækkanir verði meiri en samrým- ist stöðugleika til langs tíma og verðbólguhættan getur farið vax- andi. Þó mælingarnar sýni að menn geti hallað sér aftur í stóln- um núna veldur þetta spennu sem hlýtur að brjótast út í einhverri verðbólguskriðu, þó síðar verði,“ sagði Hannes. Hann sagði að vegna þessa hefði VSÍ hvatt til þess að sölu ríkis- bankanna yrði flýtt til að auka þjóðhagslegan spamað og almenn- ingi yrði gefinn kostur á að eignast hlut í þeim með hagstæðum kjör- um og með afborgunarskilmálum og slá þannig á eftirspurnarþensl- una. Álagning hlýtur að hafa lækkað Friðrik Már Baldursson, for- stjóri Þjóðhagsstofnunar, sagði að ekki væri einfalt að skýra verðstöð- guleika undanfarinna mánuða í Ijósi þeirra kostnaðartilefna sem atvinnulífið hefði tekið á sig í kjarasamningum. Fram til síðasta vors hefði hækkað gengi krónunn- ar stuðlað að því að halda verðlags- hækkunum í skefjum. Innflutn- ingsverðlag hefði verið að þróast með hagstæðum hætti auk þess sem álagning sérstaklega á inn- fluttan varning hlyti að hafa lækk- að. Það gilti einnig um innlendar vörar síðustu mánuðina, en fram til síðasta vors hefði skipting Hag- stofunnar á milli innflutnings og innlends verðlags sýnt töluvert meiri breytingu á þeim hluta vísi- tölunnar heldur en á innfluttu vör- unum eða tólf mánaða hækkun á bilinu 4-5%. Samkeppni frá inn- flutningum sæi síðan til þess að innlendi varningurinn lækkaði, auk þess sem framleiðniaukning hér á landi væri töluvert mikil og meiri en í samkeppnislöndunum. Friðrik sagði að sú harða sam- keppni sem hér ríkti á markaði væri örugglega komin til að vera. Þá væri alveg ljóst að gengisstefn- an setti því ákveðin takmörk hvað gengi krónunnar gæti hækkað. Vonandi yrði síðan framhald á framleiðniaukningunni hér á landi, en það væri mjög erfitt að treysta á það. Framleiðni vinnuaflsins hefði aukist um 2,5-3,5% á ári hér á landi í samanburði við 1,5-2,0% í flestum nágrannalöndunum. Friðrik benti á að hluta skýring- arinnar á þessari þróun mætti leita í þeim breytingum sem gerðar hefðu verið á efnahagsumgjörðinni á liðnum áram og þeim framfara- sporam sem þá hefðu verið stigin. Eflaust værum við að uppskera nú í ríkari mæli ákvarðanir sem þá hefðu verið teknar hvað snerti opn- un hagskerfisins, aðildina að Evr- ópska efnahagssvæðinu og fleira, en allt stuðlaði þetta að auknu að- haldi í efnahagslífinu og virkari samkeppni. Bifhjólaslys í Hafnarfirði ÖKUMAÐUR bifhjóls lærbrotn- aði eftir árekstur við fólksbifreið á gatnamótum Fjarðarhrauns og Hólshrauns í Hafnarfirði í gær. Ökumaður bifreiðarinnar hugðist taka vinstribeygju þvert á akst- urstefnu bifhjólsins, en tók ekki eftir hjólinu fyrr en það skall á bifreiðinni með fyrrgreindum af- leiðingum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.