Morgunblaðið - 25.08.1998, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998
H
MORGUNBLAÐIÐ
>
Eldur í gömlu húsi á Isafírði
Reykskynjari
vakti hjón með
tvö börn
SÍÐLA aðfaranætur sunnudagsins
kom upp eldur í húsinu Aðalstræti
32 á ísafirði, sem er meira en ald-
argamalt timburhús með nýlegri
álklæðningu. í húsinu eru fjórar
íbúðir og voru tvær þeirra mann-
lausar. Eldurinn kom upp í mann-
lausri íbúð á neðri hæð en reyk-
skynjari í íbúðinni þar fyrir ofan
vakti fjölskylduna sem þar bjó.
íbúi í annarri íbúð á neðri hæð
varð einskis var og trúði ekki að
eldur væri í húsinu og þurfti lög-
reglan að fara með hann út ásamt
hundi hans.
Harðræði í fangelsi
í Króatíu
Á efri hæðinni bjuggu Jovan
Popovic, 33 ára, og Zeljka kona
hans, 28 ára, ásamt tveimur dætr-
um, sex og þriggja ára. Er þau
vöknuðu var mikill reykur í íbúð-
inni og stigagangurinn fullur af
reyk, þannig að ekki mátti tæpara
standa að þau kæmust út á nær-
klæðunum með börnin.
Popovic-fjölskyldan kom til ísa-
fjarðar í fyrri flóttamannahópnum
frá Júgóslavíu árið 1996 og varð
fyrst þeirra fjölskyldna til þess að
festa kaup á eigin húsnæði. Jovan
Popovic sætti á sínum tíma miklu
harðræði í fangelsi í Króatíu og
hefur ekki náð sér enn, en hann
vinnur nú í Skipasmíðastöðinni á
ísafirði.
Eldurinn mun hafa komið upp í
kæliskáp eða lögnum á bak við
hann. Það bjargaði miklu, að allir
gluggar voru lokaðir þannig að
eldurinn fékk litla næringu og veð-
ur var mjög stillt. Ibúðin þar sem
eldurinn kom upp er ónýt og íbúð
Popovic-fjölskyldunnar mikið
skemmd.
LANDIÐ
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson.
JOVAN og Zeljka Popovica
ásamt dætrunum Milanka og
Jovana, sem eru þriggja og sex
ára. Á innfelldu myndinni eru
hjónin í eldhúsi íbúðar sinnar,
en talsverðar reykskemmdir
urðu þar. Tveimur árum áður
en fjölskyldan kom til Islands
bjargaðist hún úr eldsvoða og
missti heimili sitt, þegar hús
þeirra varð fyrir sprengjuárás.
i
I
'
í
c
(
I
i
i
Sjóstangamenn
komu með hnúfu-
bak að landi
fundu hnúfubakinn þar sem þeir
voru að leika sér á sjóstanga-
veiðum. Hvalurinn var greini-
lega nýlega dauður því hann
var alveg óskemmdur og engin
lykt komin af honum. Dýrið sem
var karlkyns og um 8 metra
langt er greinilega ungt því full-
orðin dýr verða allt að 17-19
metra löng.
Birgir Stefánsson og Drop-
laug Olafsdóttir, starfsmenn
Hafrannsóknarstofnunar, komu
síðan og létu draga hnúfubak-
inn upp í fjöru þar sem þau tóku
sýni úr honum og mældu hann í
bak og fyrir. Voru þau ánægð
með sýnin sem þau náðu vegna
þess hve nýdauður hnúfubakur-
inn var. Ekki vildu þau segja
neitt um dánarorsök en sögðu
þó að það fyrsta sem þeim dytti
alltaf í hug væri að siglt hefði
verið á það. Þau telja að dýrið
hafl ekki verið eldra en ársgam-
alt þegar það dó og jafnvel að
það hafí enn verið á spena hjá
móður sinni. Töldu þau þennan
livalreka mjög merkilegan þar
sem þetta er einungis í annað
sinn sem Hafrannsókn fær svo
marktæk sýni úr hnúfubak við
fsland.
Fnykurinn fældi
forvitna frá
Margir Iögðu leið sína á
bryggjuna og í fjöruna til að
skoða hnúfubakinn og fylgjast
með þegar þau Birgir og Drop-
laug voru að taka sýnin, meðal
annars úr maga dýrsins. Flestir
færðu sig þó frá eftir að kviður-
inn var opnaður því þá gaus upp
mikill fnykur af gasi sem hafði
safnast í kviðarholið. Sumir þeir
eldri töldu þó að þetta væri ekki
verra en að keyra Hvalfjörðinn í
gamla daga þegar hvalstöðin
var upp á sitt besta.
Að sögn kunnugra hefði vel
mátt hirða spik og kjöt af hnúfu-
baknum en það var ekki gert
þar sem enginn veit hvers vegna
hann dó.
Skagaströnd. Morgunbladid.
HNÚFUBAKUR fannst á reki á
Húnafíóa skammt fyrir norðan
Skagaströnd að kvöldi 21. ágúst.
Var hvalurinn dreginn til hafnar
á Skagaströnd og þar var hann
skoðaður af starfsfólki Hafrann-
sóknarstofnunar. Starfsmenn
Hafrannsóknastofnunar tóku
sýni úr dýrinu og eru þau talin
hin merkustu enda aðeins í ann-
að sinn sem stofnunin fær sýni
úr hnúfubak.
Það voru þrír menn á trill-
unni Benni Olafs HUIO sem
Skráning í síma 511-1600
ii
WIGUUSTINN
LEIGUMIÐLUN
Skipholti 50B. ■ 105 Reykjavtk
Skráðu húsnæðið þitt hjá Leigulistanum þér að kostnaðarlausu. Með
aðeins einu símtali er húsnæðið þitt komið á skrá hjá okkur og þar með
ert þú komin(n) ( samband við fjölda leigjenda. Skráðu íbúðina núna
áður en hún losnar og komdu I veg fyrir að hún standi auð og arðlaus.
í
ú
I
f
Í
i
M
€
i
(
i
i
í
I
I
í