Morgunblaðið - 25.08.1998, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 41
MINNINGAR
STEFAN DARRI
FJELDSTED
+ Stefán Darri
Fjeldsted fædd-
ist 27. apríl 1998.
Hann lést vöggu-
dauða á heimili sínu
þann 17. ágúst síð-
astliöinn. Móðir hans
er Ingibjörg Alma
Fj. Júlíusdóttir, f.
13.10 1978, dóttir
Júiíusar Ólafssonar,
f. 21.9 1957 og Sæ-
mundu Fjeldsted
Númadóttur, f. 16.3
1961. Bróðir Stefáns
er Júlíus Örn fjeld-
sted, f. 2.2 1995.
Útför Stefáns Darra fer fram
frá Fossvogskapellu í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.00.
tíðinni". Það er ég viss
um. Þú hefur lokið þín-
um tOgangi í lífínu og
frænka veit að
englarnir passa þig.
Eg veit að þú hugs-
ar fallega og brosir til
okkar og hjálpar okk-
ur með öllum fallegu
minningunum um þig.
Elsku litla ljósið
mitt, ég veit að þú ert
hamingjusamur og ert
kominn á fallegan stað.
Það veitir mér huggun.
Þessi litli sálmur er
handa þér,
Elsku litli molinn hennar
langömmu sinnar. Litli sólargeisl-
inn sem gafst mér svo mikið með
þínu yndislega brosi og fallegu aug-
unum. Það er svo yndislegt að eiga
þessar fallegu minningar og stund-
irnar sem við áttum saman. Eg
mun geyma þær og varðveita í
hjarta mínu um ókomna tíð. Það
var dásamlegt að fá að vera með
þér og passa þig og halda þér í
faðmi mínum.
Elsku molinn minn, ég veit að
guð geymir þig og passar hjá sér.
Jesú bróðir besti,
bamavinur mesti.
Æ, breið þú blessun þína
á bamæskuna mína.
Eg elska þig allt til enda verald-
ar.
Þín langamma.
Til þín moli minn.
Til eru fræ, sem fengu þennan dóm:
aó falla í jörð, en verða aldrei blóm.
Eins eru skip, sem aldrei landi ná,
og iðgræn lönd, er sökkva í djúpin blá,
og von, sem heíúr vængi sína misst,
og varir, sem að aldrei geta kysst,
og elskendur, sem aldrei geta mæst,
og aldrei geta sumir draumar ræst.
Til eru ljóð, sem lifna og deyja í senn,
og litil böm, sem aldi-ei verða menn.
Þakka þér litli vinur minn fyrir
allar yndislegú stundirnar sem ég
fékk að eiga með þér.
Fallegar minningar um þig og
fallega brosið þitt gefa mér meir en
orð fá lýst. Guð geymi þig. Ég elska
þig-
Þín frænka,
Sæma.
Elsku fallegi moli minn,
það er ósköp sárt að sjá á eftir
litlum, yndislegum dreng sem gaf
okkur öllum svo mikið með hlýja
brosinu sínu, fallegu augunum og
svo innilegri glaðværð. Það fyrsta
sem ég hugsaði þegar amma þín
sagði mér að þú værir farinn frá
okkur var hvað það þurfti alltaf lítið
til að fá þig til að hlæja. Oft var nóg
að senda þér eitt lítið bros og segja
„góðan daginn moli minn“.
Það er mér líka ofarlega í minni
hvað þú varst duglegur og manna-
legur í einu og öllu. Ekki vildirðu
drekka úr pela. Það var mikið
skemmtilegra að drekka úr glasi.
Svo þegar maður ætlaði að leggja
þig niður í ömmustólinn þinn þá
tókstu það ekki í mál, heldur vild-
irðu fá að sitja uppréttur. Og þá
helst í fanginu á mömmu eða ömmu
og geta lagt hendurnar á borðið.
Það var alltaf svo hlýlegt að koma í
heimsókn og heyra þig vera að
hjala og spjalla á þinn skemmtilega
hátt um heima og geima.
Maður spyr hver tilgangurinn
með þessari sorg sé og svarar á
móti, „litli molinn okkar, þú hefur
komið til okkar til að veita okkur
yndislegar og hamingjuríkar stund-
ir með þér og þú hefur farið frá
okkur aftur til þess að styrkja okk-
ur og kenna okkur eitthvað sem á
eftir að láta gott af sér leiða í fram-
Hvívarþessibeðurbúinn
barnið kæra þér svo skjótt?
Svar af himni heyrir trúin
hljóma gegnum dauðans nótt.
Það er kveðjan „kom til mín“,
kristur tók þig heim til sín.
Þú ert blessuð hans í höndum,
hólpin sál með ljóssins öndum.
(B. Halld.)
Litli engillinn minn, frænka elsk-
ar þig svo mikið. Minningarnar um
þig geymi ég í fallegasta hluta
hjarta míns.
Guð geymi þig,
þín
Ólöf.
Ó, ljóssins faðir, lof sé þér,
að Uf og heilsu gafstu mér.
Nú sest ég upp því sólin sldn,
hún sendir Ijós þitt inn til mín.
Ó, hvað þú, Guð, ert góður.
Elsku barn.
Þú sem brostir svo blítt, varst
svo heilbrigður, fallegur og yndis-
legur ertu nú farinn.
Ég man þegar þú komst í heim-
inn, hvað hún mamma þín var stolt
af litla drengnum sínum sem var
svo duglegur og sterkur. Hún sýndi
þig, litla dýrgripinn sinn, með aug-
un full af ást.
Þú vai'st svo mikil persóna alveg
frá byi'jun, þú vildir strax verða
stór, gera alla hluti um leið. Þú
byrjaðir að borða aðeins tveggja
vikna gamall og svo vildir þú ekki
liggja heldur bara sitja með fullt af
púðum í kringum þig og horfa á allt
sem gerðist í umhverfinu.
Við sem eftir lifum hugsum til
þín með ást, söknuði, gleði og hjart-
að fullt af fallegum minningum og
vitum að þú ert á góðum stað sem
ákveðið var frá byrjun að væri þitt
heimili. Því kveð ég þig, litli dreng-
ur, og veit að þú ert óhultur.
Elsku Ingibjörg, Júlíus og fjöl-
skylda, Guð gefí ykkur styrk á
þessum erfiðu tímum, ég hugsa
alltaf til ykkur.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ,virstmigaðþértaka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil svo ég sofi rótt.
Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir.
FRETTIR
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SKEIÐSPRETTIRNIR eru hans ær og kýr enda hefur árangurinn ekki
látið á sér standa. Logi Laxdal enn og aftur á toppnum í skeiðinu með
sigurlaunin á vekringnum Freymóði frá Efstadal.
Stórmót sunnlenskra hestamanna
Logi Laxdal skeið-
meistari ársins
LOGI Laxdal tryggði sér skeið-
meistaratitlinn öðru sinni í lok fimm
daga stórmóts sunnlenskra hesta-
manna á Gaddstaðaflötum á sunnu-
dag. Vann Logi í skeiðmeistara-
keppni bæði í 150 og 250 metrum og
sýndi svo ekki verður um villst að
hann er fremstur skeiðreiðai-manna
um þessar mundir enda heimsmeist-
ari í greininni. Logi lagði sjö spretti
á jafn mörgum hrossum og skiluðu
öll hrossin heilum spretti án þess að
stökkva upp sem sýnir vel snilli hans
í að taka hross til kostanna.
Mótið var eitt stærsta mót að um-
fangi en dómar hófust á miðvikudag í
síðustu viku. Keppt var í öllum grein-
um innan hestamennskunnar og var
mikið lið hesta og manna mætt til
leiks. Þar á meðal voru knapar og
hestai' í fremstu röð. Einnig voru á
annað hundrað kynbótahross metin.
Nánar verður sagt frá mótinu í
hestaþætti á miðvikudag.
VERÐANDI Brian Traey leiðbeinendur, ásamt Fannýju Jónmundsdóttur.
Nýir leiðbeinendur Brian
Tracy námskeiða á Islandi
I SUMAR hefur staðið yfir þjálfun
fimm nýrra leiðbeinenda Brian
Tracy námskeiða á Islandi. Hingað
til hefur Fanný Jónmundsdóttir, um-
boðs- og yfirumsjónarmaður Brian
Tracy námskeiða á Islandi, séð alfar-
ið um þessi námskeið. Leiðbeinend-
urnir munu starfa sjálfstætt með
Innsýn sf. Brian Ti'acy International
á Islandi.
I lok ágúst bætast við fimm nýir
leiðbeinendur sem ásamt Fannýju
munu halda Phoenix námskeiðið:
Leiðin til hámarksárangurs, út um
allt land. Brian Tracy er höfundur
Næstsíðasta kvöld-
gangan í Viðey
NU LÍÐUR að mánaðamótum,
er skipulagðri dagskrá í Viðey
lýkur. Sól er nokkuð farin að
lækka á lofti og þvi þurfa tvær
síðustu kvöldgöngur sumarsins
að hefjast kl. 19.30.
I kvöld verður gengið um Vest-
ui'eyna. Farið verður með Viðeyj-
ai-ferjunni úr Sundahöfn á áður
nefndum tíma. Gengið verður frá
kirkjunni, framhjá Klausturhól,
um Klifið, Kattarnefið á Eiðinu
og yfir á Vesturey. Þetta er ein
skemmtilegasta gönguleiðin í
Viðey, margt að sjá og mikil saga.
Þai'na eru t.d. Áfangar, listaverk
R. Serra, sem verður kynnt sér-
staklega í þessari ferð. Einnig
eru þarna steinar með áletrunum
frá 1810-1842. Gangan tekur um
tvo tíma. Fólk er minnt á að
klæða sig eftir veðri, sérstaklega
er áríðandi að vera vel skæddur.
Gjald er ekki annað en ferju-
tollurinn kr. 400 fyrir fullorðna
og ki'. 200 fyrir börn.
Ljósmyndasýningin í Viðeyjar-
skóla verður lokuð virka daga
þessarar viku, en síðustu sýning-
ardagarnir verða um næstu
helgi. Grillskálinn er opinn,
einnig hjólaleigan og hestaleigan
sem og veitingahúsið í Viðeyjar-
stofu
bókarinnar Hámarksárangur, sem út
kom á íslensku ekki alls fyrir löngu.
Brian Tracy er höfundur Phoenix
námskeiðsins en námskeiðið er ár-
angur margra ára rannsóknarstarfs
á árangri og velgengni um allan
heim. Þetta er námskeið í mann-
rækt, sjálfstyrkingu og öllu sem við-
kemur mannlegum samskiptum.
Þátttakendur Phoenix námskeiða
læra allt sem þarf' til að ná árangri
og skara fram úr.
Námskeiðin eru ætluð einstakling-
um, fyrii'tækjum og stofnunum.
Kynningarfundur verður haldin á
Hótel Loftleiðum í byrjun septem-
ber, þar sem námskeiðið verður
kynnt svo og nýir Brian Ti-aey leið-
beinendm-.
Verðandi Brian Tracy leiðbein-
endur eru: Helgi Sigurjónsson, Jóna
Björn Sætran, Margrét Svavarsdótt-
ir, Rósa Traustadóttir og Sonja
Garðarsdóttir, auk Guðrúnar H.
Valdimarsdóttur sem hefur verið
starfandi með Fannýju.
Kí ktu á mig
stundum kem
ég á óvart!
Huliðsheim-
ar Hafnar-
fjarðar
ERLA Stefánsdóttir sjáandi hefur
verið með hugleiðsluferðir um hul-
iðsheima Hafnai'fjarðar í samvinnu
við Upplýsingamiðstöð ferðamanna í
Hafnarfirði á þriðjudagskvöldum í
sumar. Síðasta ferð sumarsins er í
kvöld þriðjudagskvöldið 25. ágúst.
Farið er undir leiðsögn Erlu á
nokkra staði í lögsögu Hafnarfjarðar
eftir því sem andinn blæs henni í
brjóst. Þátttakendur fá í hendur kort
af huliðsheimum Hafnarfjarðar sem
ferðamálanefnd Hafnarfjarðar lét
útbúa fyi’ir nokkrum ánim í sam-
vinnu við Erlu.
Farið verður með rútu kl. 19 frá
Upplýsingamiðstöð ferðamanna í
Hafnarfirði og tekur ferðin u.þ.b tvo
tíma. Skráning er í Upplýsingamið-
stöðinni.
--------------
Æfingaflug
Flakkferða
FLAKKFERÐIR eru samstarfs-
verkefni Samvinnuferðar-Landsýn-
ar, Eurocard, Landsbanka Islands
og Jafningafræðslunnar. Um er að
ræða ferðir fyrir fólk á aldrinum 16-
25 ára sem er reiðubúið að skemmta
sér án vímuefna á góðu verði.
Félagsskapurinn er öllum opinn á
þessu aldursbili ef fólk er reiðubúið
að virða hugsjónina um vímulausar
ferðir.
Næst á dagskránni er óvenjulegt
æfingaflug, i kvöld þriðjudagskvöld
25. ágúst og Geisla-klukk eða „Laser
Tag“, (3 leikir 900 krónur), fóstudag-
inn 28. ágúst á miðnætti.
Nánari upplýsingar og skráning í
Hinu Húsinu einnig www.aretic.is
/flakk.
£UMENIA\
femttyrjp -
erm
EUMENIA
Euronova þvottavél
• 3 kg af þvotti
• vinduhraði 600 snún./mín.
eða 800 snún./mín.
• mál 67 x 46 x 45 cm
Verð frá
kr. 59.900 stgr.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
Umboðsmenn um land allt