Morgunblaðið - 25.08.1998, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
pssfgii
FÓLK f FRÉTTUM
I
I
MIKIL stemmning ríkti þau kvöld sem Tina söng á Álafoss föt bezt.
Sænsk stjarna
í Mosfellsbæ
SÆNSKA söngkonan Tina
Stenberg kom til íslands um
daginn og söng þá þrjú kvöld
í Mosfellsbæ^ á kaffi- og veit-
ingahúsinu Alafoss föt bezt.
Tina þessi á sér skemmti-
lega sögu, en það var í sept
ember á síðasta ári sem
Stig Anderson, heilinn á
bak við Abba, sá hana í
svæðissjónvarpi. Hann
fékk strax áhuga á að
gera plötu með henni, og
Tina, sem áður hafði ein-
ungis samið eitt lag, er
nú farin að semja og
hljóðrita með helsta og
besta tónlistarfólki Sví-
þjóðar.
Breiðskífan „Treat
me Fair“ kom út í maí
og hún hefur vakið
mikla athygli. Lagið
„Mess Me Up“ er mjög
vinsælt og Tina er tíður
gestur í spjallþáttum.
Þessi 22 ára kona
semur alla sína tónlist
sjálf og segir heima-
bæ sinn gefa sér mest-
an innblástur. Bærinn
Slagnás er nyrst í Sví-
þjóð í villtri náttúrinni,
nálægt norsku landa-
mærunum.
Tina þykir einnig
mjög falleg og varð hún
þriðja í keppninni um tit-
ilinn Ungfrú Svíþjóð fyr-
ir nokkrum árum. Eftir
það hefur hún unnið þó
nokkuð fyrir sér sem fyr-
irsæta, og það ætti að
reynast henni vel á leið-
inni upp á stjörnuhimininn.
Breiðskífan hennar Tinu
kemur út á Islandi í haust,
og það væri vonandi að hún
kæmi aftur að syngja fyrir
vini sína Mosfellingana og
aðra áhugasama um þessa
fallegu sænsku hæfileika-
konu.
^tþa^-^nna^
TlNASt
„otW-Myn^nSvav-sson
Vnníhjörtu
I
|
I
j
(
(
STEFÁN Marshall, Guðjón Ingi Viðarsson, Hjörvar Freyr Iljörvarsson og
Sveinn Jóhannsson sátu heillaðir af söngkonunni fögru og tónlist hennar.