Morgunblaðið - 06.10.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.10.1998, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Alla þessa viku verður kynning á hættum sem körlum stafar af krabbameini Mikilvægt að þekkja einkenni krabbameina í karlmönnum Morgunblaðið/Arni Sæberg ÞAU sem kynntu fræðsluátakið Karlar og krabbamein voru (fv.) Þórarinn Sveinsson, Sveinn Magnússon, Ingibjörg Pálmadóttir, Guðrún Agnarsdóttir, Hrafn Tulinius og Eiríkur Jónsson. KARLAR og krabbamein er heiti íræðsluherferðar sem Krabbameins- félagið og heilbrigðisráðuneytið sam- einast um og stendur fram á helgina. Er hún hluti af átakinu „Evrópa gegn krabbameini“ sem Evrópusam- bandið og lönd innan Evrópska efna- hagssvæðisins standa að. Markmiðið er að fá karla á öllum aldri til að kynna sér einkenni krabbameina. Læknar sem kynntu fræðsluátak- ið sögðu mikilvægt að þekkja þessi einkenni og bregðast við þeim vari þau lengur en tvær til þrjár vikur og ef meðferð með sýklalyfjum dugar ekki. Ymis einkenni, svo sem hósti og þvagtregða, bentu ekki alltaf til alvarlegs sjúkdóms en gætu verið einkenni um krabbamein. Læknarn- ir sögðu að kæmi fram blóð í þvagi eða hráka skyldu menn ekki draga það að leita læknis. „Það er jafnan ánægjulegt að eiga samstarf við Krabbameinsfélagið sem hefur staðið fyrir árangursríkri krabbameinsleit hjá konum,“ sagði Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra er átakið var kynnt í gær. „Það er þarft að koma á framfæri upplýsingum um krabbamein karla og í því skyni er gott að geta leitað til þeirra fjölmörgu karlaklúbba til að koma fræðslunni á framfæri," sagði ráðherra enn fremur. TUraunir með krabbameinsleit Þessar árlegu Evrópuherferðir hófust fyrir átta árum en Island var með í fyrsta sinn í fyrra. Var þá ijall- að um konur og krabbameinsleit. Hrafn Tulinius, yfirlæknir krabba- meinsskrárinnar, sagði tilraunir hafa verið gerðar að leit krabbameins í ristli hjá körlum en þær ekki taldar gefa nógu góðan árangur. Áfram yrði kannað hvort leit að krabbameinum í körlum væri fýsilegur kostur. Hrafri minnti á noklöu- einkenni sem gætu verið merki um krabbamein, svo sem þrálátur hósti, óþægindi frá maga eða ristli, blóð í þvagi, erfiðleikar við þvaglát, hnútur í eista eða pung og hnútar eða þykkildi á líkamanum. Hvatti hann menn til að leita læknis ef þessi einkenni kæmu fram. Eiríkur Jónsson, yfirlæknir á þvagfæraskurðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, og Sveinn Magnússon, læknir og deildarstjóri í heilbrigðis- ráðuneytinu, sögðu þá spumingu karla ekki óeðlilega af hverju ekki mætti t.d. leita blöðruhálskrabba- meins, sem væri það algengasta meðal karla, þegar menn vissu um góðan árangur af krabbameinsleit meðal kvenna. Leit að krabbamein- um í körlum hefði hins vegar ekki skilað nógu góðum árangri og leit að krabbameini í blöðruhálskirtli væri ýmsum erfiðleikum bundin. Þórarinn Sveinsson, forstöðu- læknir krabbameinslækningadeildar Landspítala, sagði leit meðal ein- kennalausra karlmanna ekki hafa reynst árangursríka. Guðrún Agn- arsdóttir, forstjóri Krabbameinsfé- lags Islands, sagði marga ná háum aldri þrátt fyrir að þeir gengju með krabbamein í blöðruhálskirtli og gætu lifað án óþæginda. Aðrir fengju illvígan sjúkdóm sem legði þá að velli og enn aðra væri hægt að lækna. Sp- urning væri hins vegar um lífsgæði og hvort fylgikvillar meðferðar rýrðu þessi lífsgæði. Því væri hópleit vandkvæðum bundin þar sem erfitt gæti verið um úrræði. Nýgengið hefur fjórfaldast Undir það tók Eiríkur Jónsson og sagði að yrði hópleit beitt væri erfið- leikum bundið að greina á milli þeirra sjúkdómsgerða sem þyrftu meðferðar við og hinna sem mættu liggja óhreyfðar. Skurð- og geisla- meðferð gætu rýrt fyrir körlum get- una til kynlífs og stjóm þvagláta og því þyrftu sjúklingar og læknar að meta í hveiju einstöku tilviki hvaða úrræði væru heppilegust. Hann sagði meðalaldur karla með krabba- mein í blöðruhálskirtli 74 ár. Hann sagði tvo þriðju hópsins lifa ágætu lífi og oft deyja af völdum annarra sjúkdóma. Fundist hefði við krufn- ingsrannsóknir að stór hópur karla hefði merki um krabbamein í blöðru- hálskirtli en dánarorsök þó verið önnur. Árlega greinast hérlendis um 125 karlar með krabbamein í blöðruháls- kirtli og um 40 látast úr sjúkdómn- um. Sjúkdómurinn er sjaldgæfur hjá körlum undir fimmtugu. Nýgengi sjúkdómsins hefur fjórfaldast á síð- ustu fjórum áratugum m.a. vegna bættra greiningaraðferða. Nýgengi magakrabbameins hefur hins vegar lækkað úr 69,4 á hverja þúsund árin 1956 til 1960 niður í 17,6 árin 1991 til 1995. I tengslum við átakið Karlar og krabbamein hefur verið gefinn út bæklingur þar sem greint er frá helstu einkennum krabbameina sem karlar geta fengið. Bæklingnum er dreift gegnum heilsugæslustöðvar og lyfjaverslanir en einnig hafa Lions-, Kiwanis-, Oddfellow- og Rotary- klúbbar verið fengnir til að dreifa bæklingnum innan vébanda sinna og forráðamenn þeirra hvattir til að fá lækna í heimsókn með erindi. Bilun leiddi til bflveltu UNGUR ökumaður velti bif- reið sinni út af veginum við bæinn Vatn í Hofshreppi sl. laugardagsvöld. Hann var fluttur á Sjúkrahús Sauðár- króks og síðan á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri, en fékk að fara heim daginn eftir. Talið er að bilun í hjólabúnaði bifreiðarinnar hafi valdið útafakstrinum. Ökuhraðinn var ekki mikill að sögn lögreglunn- ar á Sauðárkróki og ekki um ölvun að ræða. Skagfirðingar réttuðu í Laufskálarétt á laugardaginn og sagði lögreglan að á þriðja þúsund manns hefðu verið í réttunum. Skemmtanahald í kjölfarið fór friðsamlega fram. Kærðir fyrir hraðakstur LÖGREGLAN í Reykjavík stöðvaði um helgina 38 öku- menn vegna hraðaksturs. Öku- maður var stöðvaður á Vestur- landsvegi við Höfðabakka eftir að hafa mælst aka bifreið sinni á 124 lon hraða. Annar öku- maður var stöðvaður eftir að hafa mælst aka bifreið á 140 km hraða á Vesturlandsvegi. TAL lækkar verð á GSM- símum TAL hf. hefur ákveðið að bjóða þeim sem gerast áskrifendur að Tímatals-þjónustuleið Tals GSM-síma á lægra verði. Sem dæmi má nefna að Motorola- sími, sem kostar 9.900 kr., er boðinn á 3.900 kr. Nokia 5110- sími er boðinn á 13.900 kr., en almennt verð á símanum er 27.800 kr. Að sögn forsvars- manna Tals er þetta tilboðs- verð sambærilegt við það sem gerist í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Landsvirkjun heldur eftir greiðslum til rússneska fyrirtækisins Technopromexport Stéttarfélög íhuga að stefna verði laun ekki greidd LANDSVIRKJUN tilkynnti rússneska fyrir- tækinu Technopromexport bréfleiðis í gær að fyrirtækið myndi halda eftir greiðslum til þess í nægilegum mæli til að tryggja hags- muni starfsmanna, en félagsmálaráðherra rit- aði Landsvirkjun bréf í gær þar sem hann fór þess á leit að fyrirtækið beitti slíkum aðgerð- um. ASÍ og önnur stéttarfélög sem að málinu koma hafa til athugunar að stefna Technopromexport og/eða Landsvirkjun, fái starfsmennimir ekki laun sín greidd að fúllu. Tveir rússneskir starfsmenn Technopromex- port fóru úr landi á sunnudagsmorgun en þrír starfsmenn sem senda átti úr landi hafa gerst félagsmenn í Félagi járniðnaðarmanna og dvelja hér á landi á ábyrgð félagsins. Gripið til nauðsynlegra úrræða Páll Pétursson félagsmálaráðherra sendi Landsvirkjun bréf í gær þar sem hann fór þess á leit við fyrirtækið að það héldi eftir greiðslum til Technopromexport í nægilegum mæli til þess að starfsmenn fyrirtækisins fengju greidd laun samkvæmt samningum. Landsvirkjun sendi frá sér yfirlýsingu um hádegisbil í gær þar sem íyrirtækið segist, með hliðsjón af ósk- um félagsmálaráðherra um úrbætur, hafa gert kröfu til Technopromexport að íyrirtækið gerði fullnægjandi ráðstafanir til úrbóta. Seg- ist Landsvirkjun gera ki-öfu um þetta í kjölfar þess að hafa fengið staðfestingu á því að Technopromexport hafði ekki greitt starfs- mönnum sínum við Búrfellslínu 3A laun í fullu samræmi við hlutaðeigandi kjarasamninga. í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun segir: „Landsvirkjun hefur því í bréfi til verktakans í dag gert kröfu til þess að hann geri fullnægj- andi ráðstafanir til úrbóta og muni Lands- virkjun halda eftir greiðslum til hans í nægi- legum mæli til að tryggja hagsmuni starfs- mannanna þar til verktakinn hefur sýnt fram á að fullnægjandi uppgjör hafi farið fram við hlutaðeigandi starfsmenn samkvæmt kjara- samningum." Landsvirkjun hyggur á frekari viðræður við fulltrúa Technopromexport síðar í vikunni og mun fyrirtækið þá tilkynna verktakanum að fáist ekki viðunandi niðurstaða í málinu muni Landsvirkjun grípa til þeirra úrræða sem nauðsynleg kunna að teljast og tiltæk eru til að tryggja framgang verksins og hagsmuni starfsmanna. Upplýsingum um skattareglur ber ekki saman Að sögn Páls Péturssonar félagsmálaráð- herra hefur tvísköttunarsamningur milli Rússlands og íslands ekki tekið gildi og greiða starfsmenn Technopromexport því tvöfalda skatta af þeim launum sem þeir fá hérlendis. Samningurinn er á lokastigi og er búist við að hann taki gildi á næstu mánuð- um. Að sögn Páls hefur utanríkisráðuneytið verið að grafast fyrir um skattareglur í Rúss- landi að hans beiðni, og komist að því að þeim upplýsingum, sem fengist hafa frá Rússlandi, ber ekki saman við þær upplýsingar sem fengist hafa frá Technopromexport, og mun verða farið nánar ofan í það. Tveir starfsmenn farnir úr landi Að sögn Arnar Friðrikssonar formanns Félags járniðnaðarmanna fóru tveir starfs- menn af þeim fimm sem senda átti úr landi, til Rússlands á sunnudagsmorgun. Þeir hafi sjálfir ákveðið að hag þeirra væri betur borgið með því að fara heim, því töluverð áhætta fælist í því að vera áfram hérlendis, bæði hvað varðaði áframhaldandi störf þeirra hjá fyrirtækinu og atvinnuöryggi þeirra almennt. „Hinir þrír sem senda átti úr landi gerðust félagsmenn í Félagi járniðnað- armanna á sunnudag og hafa falið félaginu að fara með öll sín mál varðandi launa- greiðslur, hvort sem það er gagnvart Lands- virkjun, stjórnvöldum eða Technopromex- port. Við höfum í framhaldi ki-afið Lands- virkjun, Technopromexport og félagsmála- ráðuneytið um að skila þegar í stað til félags- ins þeim gögnum sem nauðsynleg eru til að fara yfir þeirra launamál svo hægt sé að reikna laun þeirra út. Þeir hafa fulla heimild til að vera hér þangað til uppsagnarfrestur og atvinnuleyfi þeirra rennur út,“ sagði Örn Friðriksson formaður Félags járniðnaðar- manna í samtali við Morgunblaðið í gær. Sagði hann ennfremur að félagið hefði gert kröfu til þess að mennimir gætu verið hér í landinu, a.m.k. þar til þeir hefðu fengið það fullnaðaruppgjör sem þeir eigi rétt á. „Dragist það þá vilja þeir mjög gjaman fai-a að vinna hjá öðram fyriilækjum hér á landi og það sem íyrst. Þó að þeir séu formlega á okkar ábyrgð þá er það bæði Rafiðnaðarsambandið, Verka- lýðsfélagið Þór á Selfossi og reyndar öll verka- lýðshreyfingin sem vinnur að þessum málum fjTÍr alla erlendu starfsmennina," sagði Öm. ASÍ stendur vörð um að starfsmennirnir fái launin greidd að fullu Ástráður Haraldsson lögmaður ASÍ segir að sambandið hafi til skoðunar að stefna fyrir- tækjunum Landsvirkjun og Teehnopromex- port vegna vanskila á launum til rússnesku starfsmannanna við Búrfellslínu. „Við eram með það í skoðun, en það er alls ekki víst að það þurfi að stefna einum eða neinum eftir þá yfirlýsingu sem Landsvirkjun gaf út í hádeginu [í gær] um að fyrirtækið myndi halda eftir þeim fjármunum sem þurfi til að greiða mönnunum laun. Ef að það geng- ur eftir þá þarf ekki að stefna neinum. Málið er til skoðunar hjá Alþýðusambandinu og þeim stéttarfélögum sem að málinu koma, og meðal annars höfum við verið að skoða mögu- leikana á því að stefna Technopromexport til greiðslu á fullnaðarlaunum, og eftir atvikum að fá kyrrsettar samningsgreiðslur frá Landsvirkjun til Technopromexport til að dekka þennan mun. Uppgjörið verður skoðað þegar þar að kemur og ef eitthvað stendur út- af þá munu stéttarfélögin og Alþýðusamband- ið annast það að mennirnir fái launin sín greidd að fullu,“ sagði Ástráður í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.