Morgunblaðið - 06.10.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 11
FRÉTTIR
Prófkjör sjálfstæðismanna á Reykjanesi
Of fáar konur í framboði
Morgunblaðið/Kristinn
KARLKYNIÐ var ráðandi á fundi frambjóðenda í prófkjöri sjálf-
stæðismanna á Reykjanesi fyrir komandi Alþingiskosningar. Frá
vinstri til hægri eru Markús Möller, Sigríður Anna Þórðardóttir,
Gunnar Birgisson, Kristján Pálsson, Árni Mathiesen, Stefán Tómas-
son, Jón Gunnarsson og Árni R. Árnason.
SIGRÍÐUR Anna Þórðardóttir al-
þingismaður er eina konan sem hef-
ur tilkynnt þátttöku í prófkjöri
Sjálfstæðismanna á Reykjanesi fyr-
ir komandi Alþingiskosningar. Hún
stefnir á fyrsta sætið og etur þar
kappi við Árna Mathiesen þing-
mann og Gunnar Birgisson, oddvita
Sjálfstæðismanna í Kópavogi, Um
annað sætið berjast þingmennirnir
Ái’ni R. Ái'nason og Kristján Páls-
son og Markús Möiler hagfræðing-
ur. Stefán Tómasson býður sig fram
í 3.-4. sæti og Jón Gunnarsson í það
fjórða. Þátttakendurnir eru allir
sammála um að fleiri konur vanti í
prófkjörið.
Frambjóðendurnir telja einnig all-
ir að kominn sé tími til þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn taki við stjórn heil-
brigðismála í landinu, og að ekki hafi
vel verið haldið á þeim málum frá því
að flokkurinn hafði þau síðast með
höndum.
Þeir eru allir, að undanskildum
Markúsi Möller, í aðalatriðum
hlynntir núverandi fískveiðistjórnun-
arkerfi. Þeh' eru sammála um það að
einkavæða eigi Rás 2 með einum eða
öðrum hætti, og flestir telja að eins
eigi að fara að með Rás 1. Gunnar
Birgisson sagði þó að fara ætti sér
hægt varðandi sölu Rásar 1 og
Markús Möller sagði að þá sérstöku
þjónustu sem hún innti af hendi
mætti bjóða út. Allir, að undanskild-
um Sigríði Önnu Þórðardóttur og
Árna Mathiesen, sögðust hlynntir
því að samkynhneigðir hefðu sama
rétt og aðrir til ættleiðingar bai-na.
Lítið fór fyrir sérstökum kjör-
dæmismálum á fundi fí-ambjóðend-
anna sem haldinn var að viðstöddum
um þrjátíu áheyrendum í kjölfar
þings Sambands ungra Sjálfstæðis-
manna í Garðaskóla í Garðabæ á
sunnudaginn. Umræðuefnin réðust
nokkuð af þvi sem hafði verið efst á
baugi á þinginu.
Ilvetja fleiri konur
til þátttöku
Nokkuð var þó rætt um breikkun
eða tvöföldun Reykjanesbrautarinn-
ar. Frambjóðendurnh’ voru sammála
um að það væri brýnt verkefni, en
vildu helst að féð til þess kæmi ann-
ars staðar en úr ríkissjóði.
Ásdís Halla Bragadóttir, aðstoðar-
maður menntamálaráðherra, sem
sjálf vai- lengi orðuð við þátttöku í
prófkjörinu, spurði frambjóðenduma
hvort ekki væri vandamál að aðeins
ein kona væri i hópi þeirra. Allir
voru þeh' sammála um það, og
hvöttu fleiri konur til að blanda sér í
slaginn, enda væri frestur til þátt-
töku ekki útrunninn. Markús Möller
taldi að gæfu ekki fleiri konur kost á
sér kæmi til greina að láta prófkjörið
aðeins ná til fjögurra efstu sætanna,
en stilla upp í 5. og 6. sæti framboðs-
lista sjálfstæðismanna til að auka
hlut kvenna.
Heilbrigðisráðuneytið einna
siakast ráðuneytanna
Gagnrýnin á stjórn heilbrigðis-
mála á undanförnum áram var hörð.
„Miðað við það fólk sem hefur stýrt
heilbrigðisráðuneytinu síðastliðin 12
ár er ekki von á að staðan sé góð,“
sagði Gunnar Birgisson.
Árni R. Árnason sagði að staða
heilbrigðisráðuneytisins væri einna
slökust af öllum ráðuneytunum, en
svo hefði ekki verið meðan það var
undir stjórn sjálfstæðismanna.
Greinilegt var að Ingibjörg
Pálmadóttir, núverandi heilbrigðis-
ráðherra, var ekki undanskilin í
gagnrýni frambjóðendanna, en
Markús var þó sá eini sem nefndi
nafn hennar beint í þessu sambandi.
Lítill tími gafst til svara um afstöðu
manna til séreignar eða sameingar á
auðlindum landsins, sérstakiega fisk-
inum. Ljóst var þó að allir aðrir en
Markús voru hlynntir núverandi
kvótakerfi í meginatriðum, en vildu
þó laga ákveðna agnúa á því. Stefán
Tómasson og Jón Gunnarsson nefndu
í því sambandi sérstaklega þá eigna-
myndun sem yrði til þegar menn
færðu sig úr úr útveginum.
Markús sagði að meginstefna hlyti
að vera sú að hagur þjóðarinnar allr-
ar yrði sem mestur af nýtingu auð-
iinda sjávarins. Hann sagðist vilja að
kerfí það sem Pétur Blöndal alþing-
ismaður hefur lagt til yrði reynt. Það
felst í því að öllum landsmönnum er
úthlutað leigubréfum með rétti til
hluta kvótans á hverju ári.
Málefnaþing Sambands ungra sjálfstæðismanna
Foreldrar fái lengra orlof
í FJÖLSKYLDUÁLYKTUN mál-
efnaþings Sambands ungra sjálf-
stæðismanna er því fagnað að feður
hafí fengið sjálfstæðan rétt til fæð-
ingarorlofs en jafnframt er lagt til
að hvort foreldri um sig eigi rétt á
þriggja mánaða sjálfstæðu fæðing-
arorlofl og að auki rétt á þriggja
mánaða sameiginlegu orlofi til við-
bótar, sem foreldrar ráði hvernig
þeir skipta á milli sín. Að sögn Ás-
dísar Höllu Bragadóttur, formanns
SUS, var þetta eina tillagan sem
samþykkt var á þinginu sem kallar
á aukin útgjöld ríkissjóðs.
Prófkjör sjálfstæðis-
manna á Reykjanesi
Markús stefn-
ir á 2. sæti
MARKÚS Möller, hagfræðing-
ur hjá Seðlabanka Islands, hef-
ur ákveðið að gefa kost á sér í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi og stefnir
hann á annað sæti á framboðs-
lista flokksins þar í komandi
Alþingiskosningum.
Markús situr í stjóm full-
trúaráðs Sjálfstæðisflokksins í
Garðabæ auk þess sem hann á
sæti í stjóm landbúnaðamefnd-
ar flokksins. Hann er einnig í
stjóm Neytendasamtakanna.
í stjórnmálaályktun þingsins er
fagnað þeim árangri sem ríkisstjórn
Davíðs Oddssonar hefur náð í efna-
hagsmálum. Bent er á að enn séu
umsvif hins opinbera of mikii og því
hvetur SUS alþingismenn til að
draga úr þeirri útgjaldaaukningu,
sem fjárlagafrumvarp ársins 1999
boðar. Með því móti verði hægt að
lækka skatta og auka frelsi einstak-
lings þannig að hann fái að njóta sín
sjálfum sér og öðrum til heilla.
SUS beinir þeim eindregnu til-
mælum til menntamálaráðherra að
hann láti af fyrirætlun um bygg-
ingu tónlistarhúss fyrir opinbert
fé. Eru hann og aðrir þingmenn
flokksins hvattir til að sýna ábyrgð
í meðferð almannafjár í þessu máli
sem öðrum. Ef svigrúm sé í ríkis-
fjármálum til að auka útgjöld um
milljarða króna beri fremur að
greiða erlendar skuldir. I ályktun-
inni er tilkomu íslenskrar erfða-
greiningar fagnað og telur SUS
eðlilegt að einu fyrirtæki verði
veitt tímabundið einkaleyfi á mið-
lægum gagnagrunni á heilbrigðis-
sviði að því gefnu að vernd per-
sónuupplýsinga sé tryggð.
Frábær söluturn
Vorum að fá í sölu frábæran söluturn með veltu upp á 6—7
millj. á mán. Bílalúgur, mikil sala í pylsum og skyndibitum. Einnig
góð íssala. Er með myndbönd, þau nýjustu. Staðsettur miðsvæð-
is í Rvík. Einstakt tækifæri fyrir duglega aðila að eignast framtíð-
arfyrirvinnu. Mikil arðsemi.
Höfum aldrei haft jafnmikið úrval af jafngóðum söluturnum
og núna.
Bílasala
Til sölu bílasala upp á Höfða. Góður innisalur og gott útisvæði.
Þekkt fyrirtæki. Einstaklega hagstætt verð. Mikil viðskipti. Allt
tölvuvætt.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni,
komið og flettið söluskránni.
F.YRIRTÆKIASAlAN
SUÐURVE R I
SlMAR 581 2040 OG 581 4755. REVNIR ÞORGRÍMSSON.
FRETTIR
atsreiðvarm
RAIUNO
varpinu
Það er góð tilfinning að
geta fylgst með heims-
fréttunum á fleiri víg-
stöðvum en íslenskum
fjölmiðlum.
Breiðvarpið býður upp á mjög fjölbreytilegan frétta-
flutning á ensku, þýsku, frönsku og ítölsku.
Auk hinna vinsælu fréttastöðva CNN og Sky News, bjóðast
áskrifendum Breiðvarpsins evrópskar stöðvar eins og
Pro Sieben, ARD, TV5, CNBC Europe og RAIUNO. Síðast
en ekki síst býður The Computer Channel upp á fræðandi
dagskrá tengda tölvuheiminum.
TV5
cömjóufer
20.000 KSIMILI EIGA ÞBSS NÚ KOST AÐ
TENGJAST BKEISBANDINU OG MUNU ÞÚSUNDIR
HEIMILA BÆTAST VIÐ A NÆSTU MÁNUDUM.
Hrhmgdu strax
OO KYHINTD ÞÉR MÁUDl