Morgunblaðið - 06.10.1998, Síða 17

Morgunblaðið - 06.10.1998, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 17 VIÐSKIPTI VIÐMIÐUNARVERÐ A HRAOLIU 1998 18,00 Hráolía af Brent-svæðinu í Norðursjó, dollarar hver tunna 11,00 Jan. Feb. Mars Júni Júlí Ágúst Sept. Byggt á gögnum frá Reuters VERÐ 95 okt. BENSINS A ISLANDI 1998 Uppsett smásöluverð stóru olíufélaganna, krónur hver lítri 80,00 78,00 76,00 Vegna hækkunar á ve samkv. ákv. fjármálaráðuheytis Jan. Feb. Mars April Maí Júní Júlí Ágúst Sept. Silfurtún selur vélar fyrir 500 milljónir SILFURTUN hf. hefur gengið frá samningum um sölu á pappírsend- urvinnsluvélum til tveggja landa, Frakklands og Ástralíu, fyrir rúm- ar 500 milljónir króna. Endur- skipulagning félagsins er nú vel á veg komin. Hlutafé félagsins var aukið íyrir skömmu um 130 millj- ónir ki-óna að söluvirði og var það selt til tveggja fjárfesta, Hartog AS í Noregi og Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Sölusamningamir eru mikilvæg- ir fyrir íyrirtækið, segir í fréttatil- kynningu, en undanfama 15 mán- uði hefur félagið verið að þróa nýja alhliða, hátæknilega vélalínu. Allar vélamar verða afhentar á næsta ári. í lok ágúst síðastliðins var undir- ritaður samningur við framleiðslu- íyrirtæki í Ástralíu um sölu á fjór- um pappírsendurvinnsluvélum, tveimur stórum og tveimur minni. Hér er um að ræða vélar til fram- leiðslu á eggjabökkum og eggja- öskjum úr endurunnum pappír. Ástralska fyrirtækið mun einnig framleiða aðrar vörur úr endurunn- um pappír. Samningsupphæðin er um 255 milljónir króna. Áður hafði Silfurtún gert samning við einn af stærstu matvælaframleiðendum Frakklands um sölu á tveimur pappírsendurvinnsluvélum til sömu framleiðslu, íyrir svipaða fjárhæð. Nýsköpunarsjóður og Búnaðar- banki Islands hf. komu að fjár- Samtök iðnaðarins um samkeppnisstöðu hugbúnaðarfyrirtækj a VEGNA athugasemdar frá Sam- keppnisstofnun, sem birt var í Morg- unblaðinu í síðustu viku, um tafir sem urðu á svari við upprunalegu er- indi Samtaka iðnaðarins til Sam- keppnisstofnunar er varðar beiðni SI til Samkeppnisstofnunar um að skoðuð verði samkeppnisleg staða hugbúnaðarfyrirtækja gagnvart Reiknistofu bankanna í þjónustu við íjármálastofnanir, segir Guðmundur Ásmundsson hjá SI að SI hafi túlkað svarbréf Samkeppnisstofnunar frá 17. ágúst 1995 svo að það verði ekki skilið á annan hátt en þann að Sam- keppnisstoftiun hafi ætlað að vinna í málinu þegar henni gæfist tími til en ekki leggja málið til hliðar, þrátt fyr- ir að hún óskaði eftir nánar sldl- Ekki um nein dæmi að ræða greindum dæmum um það sem kraf- ist var úrskurðar um. í frétt í Morgunblaðinu á fimmtu- dag kom það meðal annars fram að í nágrannalöndunum eru 30-40% af veltu hugbúnaðarfyrirtækja þjón- usta við fjármálastofnanir, en hér á landi er hún hverfandi. Guðmundur segir að þar sem ekki hafi verið við nein sérstök dæmi að styðjast árið 1995, ekki frekar en núna, hafi ekki verið sent nýtt bréf með nánar skilgreindum dæmum til Samkeppnisstofnunar. Hann sagði að í bréfi þeirra til Sam- keppnisstofnunar frá 18. apríl 1995 hafi verið vísað til Reiknistofu bankanna og Tölvumiðstöðvar sparisjóðanna. „Einkarekin hug- búnaðarfyrirtæki fengu engin verk- efni fyrir opinberar fjármálastofn- anir þá frekar en nú, þannig að ekki er um nein nánari dæmi að ræða,“ sagði Guðmundur í samtali við Morgunblaðið. I bréfi Samkeppnisstofnunar til Samtaka iðnaðarins frá 17. ágúst 1995, sem Guðmundur vísar hér til, segir m.a.: „Samkeppnisyfirvöld hafa enn sem komið er ekki hafið athugun á samkeppnisstöðu hug- búnaðarfyrirtækja með hliðsjón af því sem hér segir í bréfi Samtaka iðnaðarins frá 18. apríl sl. Sé þess óskað að hraðað verði slíkri athug- un þurfa samkeppnisyfirvöld að fá nánar skilgreind dæmi um meinta samkeppnislega mismunun á þeim markaði sem um ræðir.“ Verðbréfaþing Islands Hlutabréf lækkuðu í verði VIÐSKIPTI á Verðbréfaþingi ís- lands í gær námu alls 780 milljón- um króna, mest með bankavíxla, 497 milljónir króna. Viðskipti með hlutabréf námu 80 m.kr. mest með bréf Samherja 22 m.kr., Flugleiða 7 m.kr. og Granda og íslands- banka, u.þ.b. 6 m.kr. með bréf hvors félags. Verð hlutabréfa lækkaði almennt í gær. Mest lækkaði verð bréfa Básafells, um 15,8%, Skeljungs um 6,2% og SR-Mjöls um 5,1%. Þá lækkaði úrvalsvísitala Aðallista um 2,37% í gær. Seðlabanki Islands Gjaldeyrisforði minnk- ar um hálfan milljarð GJALDEYRISFORÐI Seðla- banka Islands minnkaði um 535 milljónir í september og nam í lok mánaðarins 28,7 milljörðum kr. eða jafnvirði 414 milljóna Banda- ríkjadala. Gjaldeyrisforðinn hefur aukist um 883 milljónir kr. frá ára- mótum. Erlendar skuidir jukust Erlendar skammtímaskuldir bankans jukust í mánuðinum um 2 milljarða króna og voru í mánaðar- lok 3,3 milljarðar kr., að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Seðlabankanum. Á gjaldeyrismarkaði voru hrein gjaldeyrisviðskipti Seðlabankans neikvæð um 1,7 milljarða kr. í september. Gengi íslensku krón- unnar, mælt með vísitölu gengis- skráningar, lækkaði um hálft pró- sent. Heildareign minnkar Heildareign Seðlabankans í markaðsskráðum verðbréfum minnkaði í september um 3,1 millj- arð kr. miðað við markaðsverð, mest vegna sölu á spariskírteinum ríkissjóðs. I lok mánaðarins nam spariskírteinaeign bankans um 5 milljörðum kr. en hún var um 8 milljarðar í byrjun mánaðarins. VANTARMGVOG VOGIR EINFALDAR 0G ÓDÝRAR KRÓK-. BORO- - GÓLF- ■ FÓLKS- - NÁKVÆMIS-^ BllA- BRAUTAR-' VIOGERÐIROG ÞJÓNUSTA Leitið tipplvsiiiga ÓLAFmeíSLASON&COHF SUmBORGí SÍMI5684800 M5685056 www.mbl.is mögnun þessara útflutningssamn- inga. Auknir möguleikar á samstarfsverkefnum Hlutafé félagsins hefur verið aukið um 130 milljónir kr. að sölu- verði. Nýja hlutaféð skiptist jafnt milli Nýsköpunarsjóðs og Hartog AS. Nýsköpunarsjóður á nú 8,3% í félaginu en Hartog AS á 10,7%, en átti 2,4% fyrir. Báðir aðilar hafa mann i stjóm félagsins. Eigendur Hartog AS, sem er fjárfestingarfélag, eru ennfremur eigendur að norska umbúðafyrir- tækinu Elopak AS, sem meðal ann- ars framleiðir vélar og umbúðir fyrir ýmiss konar drykkjarvörur á Islandi. Að mati stjómenda Silfur- túns er mikilvægt fyrir fyrirtækið að fá að félaginu iðnaðarfjárfesta eins og Hartog AS þar sem það veitir nýja og aukna möguleika á samstarfsverkefnum við þróun og nýsköpun, auk aðgangs að nýjum mörkuðum. Samstarf við Elopak Silfurtún er nú þegar í samstarfi við Elopak Inc. í New Hudson í Michigan í Bandaríkjunum um þróun vélar sem framleiða á há- gæða iðnaðarpakkningar. Þessu verkefni er stýrt af tæknideild Silf- urtúns en það er unnið að flestu öðm leyti ytra. Fyrstu vélamar eru væntanlegar fyrir mitt næsta ár og verða þær markaðssettar á helstu mörkuðum félagsins í Evr- ódu og Norður-Ameríku. SMIÐI ÞJONUSTA^ VIÐGERÐIR = HÉÐINN = SMIÐJA Stórási 6 »210 Garöabæ sími 565 2921 • fax 565 2927 I keppni þeirra bestu er fullkDmin samhæfing allra þátta lykillinn að velgengni. Aptiva ijölskyldan irá IBM iullnœgir öllum kröium nútimu margmiðlunar. Fullkominn hljað- ng myndbúnaður ásamt fjarskiptamöguieikum færa þér úendanlega möguleika. SZ:....SSL JSS Hvert sem hugurinn stefnir, veitir Aptiva þér _ tækifæri til að kanna óravfddir heimsins. NÝHERJI Skaftahlíð 24 • Sími 569 7700 http://www.nyherji.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.