Morgunblaðið - 06.10.1998, Síða 26

Morgunblaðið - 06.10.1998, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ HVAR ERU UPPLÝSINGAR? EKKI er ljóst hvaða upplýsingar yrðu færðar í miðlægan gagna- grunn og virðist það ekki munu skýrast fyrr en með reglugerð eftir lagasetningu og samningum rekstr- araðila gagnagrunns við heilbrigðis- stofnanir. Fjölmargir aðilar innan heilbrigðiskerfísins búa yfir heilsu- farsupplýsingum og upplýsingar um ættfræði og erfðir er víða að finna. Heilsugæslan á landsbyggðinni og í Reykjavík. Skráir tilefni komu, greiningu og meðferð. Misjafnt er eftir kerfum hvort bréfaskipti lækna á milli eru skráð, lyfjagjöf o.s.frv. Sums staðar eru upplýsing- ar í tölvukerfum. Sjálfstætt starfandi læknar um land allt. Upplýsingar svipaðs eðlis og hjá heilsugæslustöðvum. Sjúkrahús Reykjavíkur, t.d. slysadeild, öldninardeild, geðdeild og endurhæfíng. Nýtt tölvuskrán- ingarkerfí var nýlega tekið í notkun á slysadeild, norræna kerfið Nomesco. Það er sama kódunar- kerfi og á heilsugæslustöðvum og er hluti af Sögu-kerfi Gagnalindar. Þar með verður ísland fyrsta land í heimi með samræmdan slysagagna- gi-unn. Öll kerfin bjóða upp á skráningu samkvæmt kennitölu, en úrvinnslan á aldrei að vera kenni- tölutengd. Ríkisspítalar. Þar eni yfírgrips- miklar skráningar sjúkraskýrslna, rannsóknamiðurstaðna og annarra heilsufarsupplýsinga, en hugmynd stuðningsmanna miðlægs gagna- grunns er að gögn, sem ekki voru færð í tölvur fyrir 20-30 árum og fyrr, verði nú sett í tölvutækt form. A Landspítala eru lyf- og hand- lækningadeildir, barnadeildir, kvennadeild, sem býr yfír upplýs- ingum um fæðingar, tæknifrjóvgan- ir, kynfrumugjöf og grunnupplýs- ingum um fóstureyðingar (ná- kvæmari skrá er hjá embætti land- læknis), geðdeildir, endurhæfingar- deildir og rannsóknastofur, sem hafa upplýsingar um blóðmeina- og meinefnafræði, veirufræði, sýking- ar og krufningar. Af hálfu geðdeild- anna hefur því að vísu verið lýst yf- ir að upplýsingar þaðan skuli aldrei í miðlægan gagnagrunn. Stóru sjúkrahúsin tvö, Landspít- alinn og Sjúki-ahús Reykjavíkur, eru að mati lækna með mestar heilsufarsupplýsingar undir hönd- um. Upplýsingar frá öðrum heilbrigð- isstofnunum og rannsóknastofum gætu einnig farið inn í miðlægan grunn, s.s. upplýsingar um starf- semi dvalarheimila aldraðra, með- ferðastofnana, meðferðarheimila íyrir börn og unglinga og rann- sóknastofu í lyfjafræði. Krabbameinsfélag íslands býr yfir miklum upplýsingum af leitar- stöð, úr krabbameinsskrá og í erfða- og frumulíffræði. Hjartavernd hefur einnig góðan grunn vegna áratuga hóprannsókna og þar er einnig rekin erfðafræði- rannsóknarstofa. Frumvarp til laga um gagna- grunn á heilbrigðissviði gerir ráð fyrir að Krabbameinsfélagið og Hjaitavemd geti haldið rannsókn- um sínum áfram hér eftir sem hing- að til, þótt upplýsingar þessara stofnana færu inn í gagnagrunn sem annar aðili hefði leyfi til að reka. Ættfræðiupplýsingar er að finna í hundruðum rita hér á landi og á tölvutæku formi og þær eru ein ástæða þess hve fýsilegur kostur ís- lenska þjóðin telst vera við rann- sóknir í erfðafræði. Ýmis gögn stjórnvalda gætu komið til viðbótar heilsufarsupplýs- ingum, t.d. upplýsingar Trygginga- stofnunar, sem hefur byggt upp gagnagrunna um örorkumat, fé- lagslega aðstoð, lyfseðla o.fl. Þá er ýmsar upplýsingar að fínna hjá heilbrigðisráðuneytinu, embætti landlæknis og lyfjanefnd, svo dæmi séu nefnd. Hins vegar er þar ekki um frumgögn að ræða, heldur safna þessar stofnanir upplýsingum héð- an og þaðan úr heilbrigðiskerfínu. Embætti landlæknis býr til dæmis yfir ýmsum heilbrigðisupplýsing- um, en samkvæmt upplýsingum embættisins er aðeins einn gagna- banki tengdur kennitölu. Það er banki sem ætlaður er til að fylgjast með lyfjagjöfum lækna. Hann er settur saman t.d. einu sinni á ári og teknar stikkprufur úr honum. m/ Upplýsingakerfi heilbrigðisstofnana samræmd FYRIRTÆKIÐ Gagnalind vinnur að því að samræma upplýsingakerfí heilbrigðisstofnana og notar til þess kerfíð Sögu, sem leysir af hólmi nokkur eldri kerfi. Saga hefur þegar verið tekin í notkun á stærstu sjúkrahúsunum, Sjúkrahúsi Reykja- víkur og Landspítalanum. Talsmenn Gagnalindar segja að gögn í tölvu- kerfí séu varin með aðgangstak- mörkunum og með því að ávallt sé hægt að rekja hverjir hafí skoðað þau. Þau séu því betur varin en þeg- ar þau liggja í möppum í hillum stofnana. Sögukerfið samræmir upp- lýsingalindir stofnana og getur hver stofnun nálgast upplýsingar innan sinna veggja, en kerfið er ekki sam- tengt á milli stofnana, þótt slíkt væri mögulegt. Þrátt fyrir að fyrirtækið Gagna- lind hafi verið stofnað árið 1992 er stutt síðan Sögukerfið var tekið í notkun. Samruni hugbúnaðarfyrir- tækja á heilbrigðissviði tók sinn tíma og kom fjöldi manns að undirbúningi málsins, starfsmenn heilbrigðisráðu- neytisins, læknar, hjúkrunarfræð- ingar, ritarar og stjórnendur heil- brigðisstofnana. Helsta markmiðið var að samræma skráningu gagna, en slík samræming hefur ekki verið fyrir hendi áður og í raun hverri heilsugæslustöð og sjúkrastofnun í sjálfsvald sett hvernig staðið var að söfnun upplýsinga. Þá þótti ljóst, að töluvert myndi sparast við að hanna eitt kerfi, þar sem allir fengju sömu þjálfun og þjónustu. Vísaði heilbrigð- isráðuneytið m.a. til þess, að kannan- ir, bæði hér á landi og í Bandaríkjun- um, hefðu sýnt fram á að um þriðj- ungur af vinnu í heilbrigðisþjónustu lægi í umsýslu á pappír og að stærsti hluti þeirrar vinnu væri leit að gögn- um og endurritun þeirra. Ef hægt er að ganga að upplýsingunum vísum í tölvum sparast því mikill tími og auðvelt er að bæta við skrár, án þess að þurfa að endurrita fyrri plögg. Um leið gefst kostur á að geyma fleiri og ítarlegri upplýsingar en áð- ur, samræmingin mun, þegar fram líða stundir, auðvelda samskipti milli deilda og stofnana, þar sem allir tala þá sama „tungumálið" í upplýsinga- miðlun og reiknað er með að kerfið skili hagræðingu fyrir það eitt að veita betri yfirsýn. Auðveldara verð- ur að fylgjast með árangri stofnana og nákvæmar upplýsingar koma í 1975: Fyrsta tölvukerfi á heilsu- gæslustöð var tekió í notkun á Egilsstöðum. Það skráði grunn- upplýsingar á samskiptaseöli, sem iæknir útfyllti um sjúkling sinn, dagsetningu heimsóknar sjúklings, erindi hans, sjúk- dómsgreiningu, rannsóknir og meöferö. 1985: Tölvukerfiö Medicus var tekið í notkun á nokkrum heilsugæslustöðvum. Grunn- upplýsingar úr sjúkraskrá eru færðar í tölvutækt form. Lækn- ar hafa tölvur á boröum sínum og færa upplýsingar beint inn og tölvurnar eru samtengdar á hverri heilsugæslustöð. Med- icus-kerfiö hefur einnig verið í notkun í Svíþjóð. 1986: Tölvukerfiö Starri kom til skjalanna. Svipað Medicus. 1990: Heilbrigðisráðuneytið kynnti sjúkraskrárkerfi fyrir Macintosh-tölvur. 1992: Heilbrigðisráðuneytið þrýsti á aö hin ólíku kerfi yrðu sameinuö í eitt. Fyrirtækið Gagnalind var stofnað. Þróunar- félag íslands á 40% hlut í fyrir- tækinu, Skýrr á 9,45%, Þor- steinn Ingi Víglundsson fram- kvæmdastjóri og fleiri eiga um 20% og hópur lækna á rúm 30%. Hluthafar eru alls 38 og hlutafé er 34,5 milljónir króna. Kerfi Gagnalindar, SAGA, var hannað sem alhæft kerfi fýrir heilbrigðisþjónustuna. 1997: Slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur varð fyrst til að taka Sögu-kerfið í notkun. í kjölfarið fýlgdu heilsugæslustöðvarnar f Fossvogi og á Selfossi, lækna- stöðin í Glæsibæ, bæklunar- deild og geödeild Ríkisspítal- anna. 1998: 18 heilbrigðisstofnanir nota Sögu og 10 hafa ákveöiö að taka kerfiö upp á næstunni. Notendur á heilsugæslustööv- um verða 700, en 90% heilsu- gæslustöðva hafa þegar ákveð- ið að taka kerfið upp. Saga veröur heildarsjúkraskrárkerfi Ríkisspítalanna. Eldri kerfi eru enn víöa í notkun. wmmmammmmammmmmmms veg fyrir óþarfa tvítekningu starfa, svo dæmi sé tekið. Saga á sjúkrahúsum og skóium Slysadeild Sjúkrahúss Reykjavík- ur reið á vaðið í byrjun síðasta árs og tók Sögukerfið í notkun. Heilsu- gæslustöðvar fylgdu í kjölfarið, en formlega var upplýsinga- og sjúkra- skrárkerfið tekið í notkun í mars á þessu ári. Þá var gengið frá samn- ingi Gagnalindar og Ríkisspítalanna í maí sl., eftir eins árs tilraunaverk- efni. í samningnum er kveðið á um að Sögu-kerfið verði tekið í notkun á öllum deildum Ríkisspítala, en núna er það í notkun á geðdeild og bækl- unarskurðdeild. Þá má geta þess, að Sögukeifið verður sett upp í 30 skólum í Reykja- vík fyrir skólahjúkrunarfræðinga. Eini aðgangur þeirra verður að svokölluðu skólaskráningarblaði, með upplýsingum um nemendur. Sögukerfið gerir ekki ráð fyrir að upplýsingar á einu sjúkrahúsi séu opnar öllum starfsmönnum þar, heldur hafa starfsmenn hverrar deildar aðeins aðgang að upplýsing- um sem hana snerta og aðgangur þeirra er mismikill. Ekki er hægt að komast í upplýsingar um aðrar deildir nema í þeim tilvikum þar sem ákveðið er að senda upplýsingar frá einni deild yfh' á aðra, til dæmis af bæklunarskurðdeild yfir á geðdeild. Gagnabanki sjúkrahússins skiptist því í hólf og kemst hver deild aðeins að sínu hólfi. I raun er Sögukerfið að byggja upp marga gagnagrunna, einn á hverjum stað, en starfsleyfi Gagna- lindar gerir ráð fyrir að sækja þurfi um leyfi til Tölvunefndai', eigi að samtengja grunnana á einhvern hátt. Gagnalind er ekki í því hlut- verki að miðla upplýsingunum, held- ur búa til kerfí fyrir heilbrigðisstofn- anir og þjónusta það. Rngrafar í kerfinu Sögukerfið skráir allar aðgerðir, svo hægt er að rekja þær til hvers starfsmanns. Þegar starfsmaður á deild sjúkrahúss notar tölvu byrjar hann á því að skrá inn persónulegt notendanafn og lykilorð. Um leið og hann ritar skjal, breytir því á ein- hvern hátt eða les það kemur fram hver er þar að verki. Ollum aðgerð- um í kerfinu fylgir þannig skráning á df ÉMÉ í j ö foo É íljjTfl ÉTú i»i~ó □ cTO é~~5ú 6 ðo 6 jr c>,¥íir 6 o <> é ójTð "jTió ó<k II c-i • <5¥oé o Z ó 'á"éra m 6 6i5ó á~5 i ðo á ó « é ■ áiÉ ÉT& iTé ■ '0~á ðo á>öá o áo_

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.