Morgunblaðið - 06.10.1998, Síða 35

Morgunblaðið - 06.10.1998, Síða 35
34 ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ 4" STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. TAL OG SAMKEPPNIN SAMKEPPNISYFIRVÖLD höfnuðu á föstudag kröfu Tals hf., þar sem farið var fram á að lækkun Landssíma íslands hf. á GSM-símtölum yrði aftur- kölluð. Tal hf. telur að Landssíminn beini samkeppnis- hamlandi markaðsaðgerðum gegn sér og fór fram á að Landssíminn yrði látinn greiða sekt samkvæmt sam- keppnislögum og lækkun á verði GSM-símaþjónustu Landssímans yrði tekin til baka. Samkeppnisstofnun mæltist hins vegar til þess að Landsíminn lækkaði ekki GSM-þjónustu sína á meðan rannsókn færi fram. Tal hf., sem hóf rekstur á þessu ári, rekur GSM- símakerfi. Forráðamenn fyrirtækisins komu inn á markaðinn með góð orð um að hefja kröftuga sam- keppni við einokunarrisann á þessu sviði, Landssíma íslands. Miklar vonir voru bundnar við aukna sam- keppni og allir bjuggust við, að verð á símaþjónustu myndi lækka til mikilla muna. Landssíminn lækkaði GSM-taxta sinn um 15% á þremur númerum að vali viðskiptavinarins hinn 1. sept- ember síðastliðinn. Tal hf. tilkynnti að frá og með miðj- um september mundi félagið lækka mínútutaxta milli tveggja Talsíma í 10 krónur. Aftur lækkaði Landssím- inn almennan GSM-taxta í 20 krónur mínútuna 17. sept- ember. Þannig hefur allt virzt ganga sem vera ber í eðlilegri samkeppni. Viðbrögð Tals hf. nú við samkeppninni og lækkun Landssímans vekja hins vegar furðu. Það var ekki til- gangurinn með því að veita Tali hf. rekstrarleyfí á markaðnum hér að koma í veg fyrir lækkun á GSM- símagjöldum. Þvert á móti var markmiðið að tryggja lækkun til neytenda. Tilmæli Samkeppnisstofnunar til Landssímans um að ekki verði frekari lækkanir á GSM-símagjöldum á með- an frekari rannsókn fari fram á málavöxtum er ekki í þágu neytenda. Og óskir Tals hf. þess efnis eru áreiðan- lega ekki skynsamleg markaðsstefna af hálfu fyrirtæk- isins. MÁLEFN ALEGAR UMRÆÐUR SÍÐUSTU vikur hafa birzt í sunnudagsblaði Morgun- blaðsins greinar um þau svæði á hálendi íslands, sem hugmyndir hafa verið um að leggja undir virkjun- arframkvæmdir. Ljósmyndari Morgunblaðsins og blaðamaður hafa ferðast um þessi svæði og auk mynda og texta hafa verið unnar sérstakar samanburðarmynd- ir, sem sýna, hvernig þessi svæði mundu líta út ef virkj- unaráform yrðu að veruleika. I umræðum um stefn- uræðu forsætisráðherra á Alþingi í síðustu viku hafði Kristín Halldórsdóttir alþingismaður orð á því, sem hún kallaði „vandaða umfjöllun Morgunblaðsins“ um þetta mikilvæga mál. Sl. sunnudag hófst hér í blaðinu birting á greina- flokki um erfðir og upplýsingar. Fjórir blaðamenn Morgunblaðsins hafa undanfarnar vikur unnið að upp- lýsingasöfnun um þau álitamál, sem upp koma í tengsl- um við áform um miðlægan gagnagrunn með upplýsing- um um heilsufar fólks. Greinar þessar munu birtast daglega í blaðinu fram í næstu viku. I báðum tilvikum, með umíjöllun um hálendismálin og um gagnagrunninn og mál honum tengd, er markmið Morgunblaðsins að tryggja lesendum sínum aðgang að svo nákvæmum og ítarlegum upplýsingum um mikils- verð mál, sem til umræðu eru og ákvarðanir þarf að taka um, að þeir geti myndað sér sjálfstæða skoðun um þau. I þjóðfélagi nútímans á hinn almenni borgari að geta haft aðgang að jafn góðum upplýsingum um þau málefni, sem eru á döfinni, og kjörnir fulltrúar hans á Alþingi eða í sveitarstjórnum. Upplýstar umræður fólksins í landinu eru forsenda lýðræðislegra stjórnar- hátta. Þess vegna leggur Morgunblaðið slíka áherzlu á að opna fólki aðgang að upplýsingum, sem fyrrnefndir greinaflokkar bera vitni um. Sjálfstæðisflokkur .9: 37,1% 20 Fylgi stjórnmálaflokka í kosningum 1 og í skoðanakönnunum síðan Spurt í nóv. 1995 til sept. 1998: Hvað myndu menn kjósa í aiþingiskosningum nú? Jafnaðarmannaflokkur - Samfylking jafnaðarmanna 995 Skoðanakönnun vonbrigði fyrir samfylkingarsinna Niðurstaða skoðanakönnunar Félags- vísindastofnunar hlýtur að hafa valdið forystumönnum samfylkingar jafnaðar- * manna vonbrigðum, skrifar Olafur Þ. Stephensen. Málefnaskráin virðist ekki hafa skilað þeim nýju fylgi. RFITT er að meta styrk hinnar nýju samfylkingar jafnaðarmanna út frá niður- stöðum skoðanakönnunar þeirrar, sem Félagsvísindastofnun Háskóla Islands gerði fýrir Morgun- blaðið seinni hluta síðasta mánaðar og greint var frá í blaðinu um helgina. Astæðan er sú að þótt nú sé orðið næsta öruggt að Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Kvennalisti bjóði fram sameiginlega í komandi kosning- um, nefna allmargir kjósendur þessa flokka sjálfa, fremur en samfylking- una, þegar þeir eru spurðir hvaða flokk þeir myndu kjósa ef alþingis- kosningar yrðu haldnar nú. Spurningin er hvort túlka eigi þetta sem svo að þessir kjósendur nefni flokkana af gömlum vana en séu öruggir kjósendur samfylkingarinnar eða hvort þeir nefni flokkana vegna þess að þeir séu á móti því að þeir rugli saman reytum sínum og vilji fremur að þeir haldi áfram að bjóða fram í eigin nafni. 30% fylgi telst tæplega viðunandi árangur Hvað sem því líður, er ljóst að for- ystumenn samfylkingarinnar hljóta að hafa orðið fyrir vonbrigðum með skoðanakönnunina. Gerð hennar hófst tveimur dögum eftir að málefnaskrá A-flokkanna og Kvennalistans var gerð opinber, en sá viðburður, þótt teljast megi til stórtíðinda í pólitík, virðist ekki hafa skilað samfylkingunni neinni fylgis- skriðu. Rúmlega 22% segjast myndu kjósa samfylkinguna ef gengið yrði til kosninga nú. Að því gefnu að allir, sem nefna flokkana sem að samfylk- ingunni standa, myndu kjósa hana, er fylgið 30,1%. Slíkt kjörfylgi þætti tæplega viðunandi, í ljósi fyrri yfirlýs- inga samfylkingarsinna. Sækja ekki fylgi inn á niiðjuna I síðustu þingkosningum fengu núverandi stjómarandstöðuflokkar 37,8% fylgi. Ef gert er ráð fyrir að hópur úr Alþýðubandalaginu, sem svarar til 3-4% kjósenda, muni styðja framboð yzt til vinstri - hópur, sem aldrei hefur getað talizt til líklegra kjósenda samfylkingarinnar - þýða því niðurstöður skoðanakönnunarinn- ar fylgistap jafnaðarmanna, hvort sem litið er á kosningarnar eða síð- ustu skoðanakönnun Félagsvísinda- stofnunar. Og ekki má gleyma því að krataflokkurinn í Svíþjóð, sem sam- fylkingin ber sig gjarnan saman við eins og aðra norræna krataflokka, leit á 36,6% kjörfylgi í síðasta mánuði sem ósigur. Þá hljóta forystumenn samfylking- arinnar að hafa áhyggjur af því hversu dræmar undirtektir þeir fá hjá yngstu kjósendunum. Eins og fram kom í Morgunblaðinu á sunnudag fær samfylkingin og flokkarnir, sem að henni standa, aðeins um 15% fylgi á meðal 18-24 ára gamalla kjósenda. Þá kemur í ljós, þegar niðurstöður skoðanakönnunar Félagsvísindastofn- unar eru sundurgreindar eftir því hvað fólk kaus í síðustu kosningum, að stuðningsmenn samfylkingarinnar virðast einkum vera gamlir kjósendur flokkanna, sem að henni standa, en ekki fólk, sem áður hefur stutt aðra stjórnmálaflokka. Til dæmis má nefna að af þeim, sem kusu Sjálfstæðis- flokkinn í síðustu kosningum, ætla 82% að kjósa hann aftur en aðeins 2% samfylkinguna. í könnun, sem gerð var í nóvember í fyrra, sögðust hins vegar 12% af kjósendum sjálfstæðis- manna frá 1995 ætla að kjósa sameig- inlegt framboð jafnaðarmanna, sem þá var mjög komið til umræðu. Nú lít- ur því út fyrir að þótt samfylkingin sé að verða áþreifanlegri kostur, ætli henni ekki að takast að blanda sér mjög í slaginn um miðjufylgið. En þá að áhyggju- eða fagnaðarefnum annarra flokka, sem lesa má út úr niðurstöðum könnunar- innar. Framsóknai-flokkurinn nær aðeins að rétta úr kútnum eftir langt tímabil, sem fylgi flokksins hefur ver- ið í kringum 17% í könnunum Félags- vísindastofnunar og hlýtur það að vera framsóknarmönnum nokkur létt- ir. Þeir standa jafnframt sterkt í yngsta aldurshópnum, með um 30% fylgi. Lítið fylgi flokksins í Reykjavík vekur hins vegar athygli; það er nú aðeins tæplega 7% en í síðustu þing- kosningum fékk Framsóknarflokkur- inn tæplega 15% fylgi í höfuðborginni. Þessi útkoma er varla gott veganesti fyrir Finn Ingólfsson, iðnað- arráðherra og efsta mann á lista Framsóknai-flokksins í Reykjavík, í baráttunni um varaformannsstól flokksins síðar í haust. Sjálfstæðisflokkurinn heldur sterkri stöðu sinni, þótt fylgið minnki lítið eitt frá síðustu könnun. Flokkur- inn hefur helmingsfylgi í Reykjavík og einnig á meðal kjósenda á aldrin- um 18-34 ára. Hins vegar hljóta sjálf- stæðismenn að hafa áhyggjur af því hversu illa gengur að tryggja fylgi kvenna við flokkinn; 46,8% karla segj- ast styðja Sjálfstæðisflokkinn en 38,3% kvenna. Athyglisvert verður að sjá hvernig flokkurinn bregzt við þessu í stefnumótun sinni og vali framboðslista á næstu mánuðum. Þriggja flokka kerfí á næstu grösum? Áhyggjur þeirra, sem hyggjast standa að framboði lengst til vinstri á komandi vori, hljóta að vera þær sömu og Sverris Hermannssonar og félaga hans í Frjálslynda flokkn- um; niðurstöður skoðana- könnunarinnar benda ekki til að þeir komi fulltrúa á þing. Enn getur auðvitað margt breytzt, en gangi nið- urstöður skoðanakönnunarinnar eftir, gæti komizt á þriggja flokka kei'fi eft- ir næstu kosningar. Það væru auðvitað veraleg tíðindi. Óvissa um styrk samfylk- ingarinnar Sjálfstæðis- flokkur veikur meðal kvenna Ágóða af sölu K-lykils verður varið til endurbóta á nýju húsnæði Geðhjálpar Geðhjálp afhent Túngata sjö að gjöf frá riltinu GEÐHJÁLP, félagasamtök fólks með geðsjúkdóma, aðstandendur þeirra og áhugafólk um geðheilbrigðismál, hef- ur fengið nýtt húsnæði að gjöf frá rík- inu fyrir starfsemi sína við Túngötu 7. Áætlaður kostnaður við endurbætur á húsinu er 20-30 millj. og mun Kiwan- is-hreyfingin verja öllum ágóða af sölu K-lykilsins, sem seldur verður dagana 8.-10 október nk. til endurbótanna. Túngata 7 er um 540 fermetrar að stærð. Húsið teiknaði Einar Erlends- son, arkitekt, en Gísli J. Johnsen konsúll byggði húsið á árunum 1946-47. Ríkið eignaðist húsið við lát Önnu E.Ó. Johnsen, síðari konu Gísla, sem gaf það í minningu hans. Við lát hennar átti heilbrigðisyfirvöldum að afhendast húsið til ráðstöfunar. Ríkis- sjóður hefur nú afhent Geðhjálp húsið til eignar og þar með hefur Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra efnt loforð sem gefið var á alþjóða geðheil- brigðisdeginum fyrir ári. I frétt frá samtökunum kemur fram að félagið hafi frá upphafi rekið félagsmiðstöð og skrifstofu og lagt ríka áherslu á fræðslustarf með út- gáfustarfsemi, fræðslufundum, nám- skeiðum og sjálfshjálparhópum. Auk þess hafa samtökin frá 1994 annast lögboðna þjónustu við 30 manns með langvinna geðsjúkdóma í kjölfar þjónustusamnings við félagsmál- aráðuneytið og Svæðisskrifstofu fatlaða. Síðastliðið vor var einnig gerður þjónustusamningur við Félagsmálastofnun Reykjavíkur um Morgunblaðið/Árni Sæberg INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigðisráðherra og Páll Pétursson félags- málaráðherra tóku til hendinni þegar Túngata 7 var formlega aflient Geðhjálp og fjarlægðu málningu og veggfóður af einum vegg. liðveislu og félagslega heimaþjónustu við geðfatlaða. Gert er ráð fyrir að í nýju húsa- kynnunum við Túngötu verði öflug starfsemi með félagsmiðstöð, mötu- neyti, vinnustofu, skrifstofu, + verkstæði, listasmiðju auk aðstöðu til iðjuþjálfunar, kennslu, námskeiða- og fundahalda. Einnig verða innréttuð herbergi sem m.a. eru ætluð fólki ut- an af landi sem dvelja þarf í borginni vegna geðrænna veikinda. ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 35 * Afreka íslenskra björgunarmanna minnst Sameiningar- tákn þjóðanna a,fhjúpað við Orlygshöfn Minnisvarði, sem reistur var að Hnjóti í Örlygshöfn til minningar um afrek íslenskra björgunarmanna, var afhjúpaður við hátíðlega athöfn á laugardaginn. Örlygur Steinn Sigurjónsson fylgdist með athöfninni, sem fram fór að viðstöddu margmenni í blíðskaparveðri. HINN 1. desember nk. verður hálf öld liðin síðan togarinn Sargon fórst und- an Hafnarmúla. Fred Collins, t.v., er eini núlifandi sex skipverja sem komust lífs af þar sem ellefu fórust. Egill Ólafsson, t.h., var meðal björgunarmanna. ÞJÓÐFÁNAR íslendinga og Breta höfðu verið dregnir að húni þegar prúðbúna gesti bar að garði að Hnjóti. Meðal þeirra voru Fred Collins, sem bjargaðist af togaranum Sargon árið 1948 undan Hafnarmúla, Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra, Jim McCulloch sendiherra Breta á Is- landi, Þórólfur Halldórsspn sýslumað- ur Barðastrandarsýslu, Ólafur Hanni- balsson verkefnisstjóri, Einar K. Guðfinnsson, fyrsti þingmaður Vest- firðinga, og Jón Gunnar Stefánsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar. I minnisvarðanum, sem sýnir skip í öldufaldi með kross á stefni sameinast á táknrænan hátt þjóðirnar, sem á fyrri helmingi aldarinnar voru sam- eiginlega áminntar óþyrmilega um ægivald náttúruaflanna. Sjö ensk fiskiskip fórust undan Vestfjörðum frá 1914 til 1948 og auðnaðist íslensk- um björgunai-mönnum að bjarga skip- verjum úr áhöfn þriggja þeirra. Síðasta skipið var togarinn Sargon frá Grimsby, sem fórst undan Hafnar- múla hinn 1. desember árið 1948. Meðal björgunarmanna var Egill Ólafsson, safnstjóri minjasafnsins að Hnjóti, sem átti upphaflega hugmynd- ina um að reisa varðann. Honum tókst, ásamt félögum sínum, að bjarga sex skipverjum af sautján úr áhöfn Sargons. Fred Collins, sem þá var átján ára að aldri, kom til íslands í boði ríkisstjórnarinnar ásamt eigin- konu sinni Mary og var viðstaddur af- hjúpun minnisvarðans. Bauð utan- ríkisráðherra Fred og konu hans sér- staklega velkomin, nú þegar 50 ár eru liðin frá björgun Sargons. Öðluðust reynslu í íslenskum veðurham „Englendingar voru fyrstir fram- andi þjóða til að nýta sér ómælisauð Islandsmiða og öðluðust í íslenskum veðurham reynslu til stórræða annars staðar á úthafinu. Um aldamótin 1500 er talið að Englendingar hafi átt á fimmta hundrað hafskipa, en um hálft annað hundrað af þessum skipum hélt á hverju ári á íslandsmið, verslaði hér og stundaði fiskveiðar. Mörg þessara ensku skipa og skip annarra fisk- veiðiþjóða er hér stunduðu veiðar lentu hér í sjávarháska og fórust. Stundum varð mannbjörg, en oftar en ekki hafa sjómenn ekki átt afturhvarf til síns heima og hlotið vota sjávar- gröf,“ sagði ráðherra I ræðu sinni. Fór ráðherra orðum um stofnun Slysa- varnafélags Islands árið 1928 og sagði sögu þess Morgunblaðið/Örlygur Steinn Siguijónsson EGILL Ólafsson, safnvörður minjasafnsins að Hnjóti, flytur ríkisstjórn íslands þakkarorð. Skírskotun til sjávar- háskans félags og annarra íslenskra björgun- armanna verða skráða gullnu letri í sögu Islands, því hetjuskapur og árangur þeirra hefði verið einstakur. „Orðstír íslenskra björgunarmanna hefur sennilega ekki borist víðar en þegar björgunardeildin Bræðraband- ið í Rauðasandshreppi bjargaði skip- brotsmönnum af breska togaranum Dhoon þegar hann strandaði við Látrabjarg í desember 1947,“ sagði ráðherra. Að lokinni ræðu sinni afhjúpaði ráðherra minnisvarðann ásamt Agli Ólafssyni og blessaði síðan sóknar- prestur Tálknfirðinga, séra Sveinn Valgeirsson, varðann og las úr 107. Davíðssálmi. Á minnisvarðanum stendur: Ríkisstjórn Islands lét reisa þennan minnisvarða 1998 til að minn- ast afreka íslenskra björgunarmanna við björgun innlendra og erlendra sjó- manna úr sjávarháska og til minning- ar um þá sem ekki varð bjargað. Tvær þjóðir sameinast í veglegu verki Um minnisvarðann sagði Egill, að þar sameinuðust tvær þjóðir í veglegu verki. „Listaverkið minnir á lífið og tilveruna, vonina, bænina og hefur Krist að leiðarljósi," sagði hann í þakkarorðum sínum til ríkisstjórnar- innar. Var á viðstöddum að heyra að verkið væri vel gagnsætt og auðskilið. Minnisvarðann gerði Bjarni Jónsson listmálari eftir hugmynd, sem hann útfærði, frá Kristni Þór Egilssyni og Sigmundi Hansen. „Það er geysilega mikil meining á bak við þetta listaverk og það hefur mikið gildi fyrir þjóðina alla,“ bætti Egill við. Reynir Hjálmtýsson frá Vélsmiðj- unni Orra og Ólafur Þor- varðarson smíðuðu varðann, en skildina sem eru á teignum við hann hannaði Anna Th. Rögn- valdsdóttir. Þeir eru hugsaðir sem sjálfstæð minning um skipin sjö, sem fórust við Vestfirði á öldinni. Sterk skírskotun til sjávarháskans Fred Collins sjómaður, sem er eini núlifandi skipbrotsmanna af Sargon hætti á sjónum árið 1981 eftir áratuga sjómennsku. Eftir að honum hafði MINNISVARÐANN gerði Bjarni Jónsson eftir hugmynd Kristins Egilssonar og Sigmundar Hansen. verið bjargað af Sargon, lá hann nokkra daga á sjúkrabeði á Efri- Tungu og var hann leystur út með gjöf að lokinni heimsókninni að þessu sinni. Hann sagði að minn- isvarðinn hefði sterka skír- skotun til sjávarháskans, sem hann lenti í og hann væri mjög lýsandi fyrir i það sem gerist á slíkri ögurstundu að svo miklu leyti sem hann þekkti til. Hann man vel eftir kuldanum daginn sem skipið fórst, enda fékk hann kalsár á fæturna. „Við vissum ekkert hvar við vorum og höfðum ekkert skyggni fyrir bál- hvössum og koldimmum éljunum," sagði Fred. Áhöfnin dvaldi í hálfan sólarhring í flakinu í aftakaveðri áður Til minnis um afrek björgun- armanna en hjálp barst. „Margir skipverjanna dóu um borð úr kulda og vosbúð áður en björgunarmennimir komu. Veðrið versnaði eftir því sem á leið og við urðum frá okkur numdir þegar björg- unarmennirnir komu og björguðu okkur.“ Þá hafði frostið og veðurofs- inn tekið sinn toll því ellefu menn voru látnir. Atburðurinn mun aldrei h'ða Fred úr minni og sagðist hann aldrei hafa lent í viðlíka háska á löng- um sjómannsferli sínum. Hann fór heim til Englands með konu sinni á sunnudag, og hafði verið gefin gæra af Emmu Kristjánsdóttur frá Efri- Tungu, en hún var barn að aldri þegar skipbrotsmaðurinn dvaldi á bænum sér til hressingar. Birna Mjöll Atla- dóttir ski-eytti gæruna. Aðdáun breska sjávarútvegs- ráðherrans í kaffisamsæti, sem konur úr Bræðrabandinu, Slysavarnafélagi Rauðasandshrepps, sáu um, voru flutt nokkur þakkarávörp. Fred Collins þakkaði viðstöddum og breski sendi- herrann flutti gestum hlýjar kveðjur frá Elliot Morley, breska sjávarút- vegsráðherranum, sem sagðist dást að minnisvarðanum eftir að hafa séð mynd af honum og lýsti aðdáun sinni á íslenskri lund. Einar K. Guðfinnsson sagði í sínu ávarpi að hér væru menn staddir á merkilegum tímamótum þar sem minnst væri atburða sem ■...... mörkuðu djúp spor í sam- skiptum Breta og Islendinga. Ólafur Hannibalsson þakkaði öllum þeim fjölmörgu, sem hjálpað hefðu til við að vinna hugmyndinni brautargengi, og Björg Baldursdóttir lagði fyrir hönd Bræðrabandsins orð í belg og sagði að lokum að minnisvarðinn myndi draga ættingja látinna sjómanna til sín og þeim yrði mikil huggun að þessum sóma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.