Morgunblaðið - 06.10.1998, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 39
Krabbamein hjá
íslenskum körlum
FRÁ ÞVÍ að
Krabbameinsskrá ís-
lands tók til starfa á ár-
inu 1955 hafa öll ný
krabbameinstilfelli hér-
lendis verið ski'áð og
þannig reynst unnt að
fylgjast með þeim
breytingum sem orðið
hafa á nýgengi hinna
ýmsu krabbameina,
þ.e.a.s. árlegum fjölda
nýrra la-abbameinstil-
vika miðað við 100.000
íbúa.
Á þessu tímabili hef-
ur árleg aukning
krabbameinstilfella á
íslandi verið um 1% og greinast hér
nú rúmlega 900 krabbameinstilfelli
árlega, en nýgengið hefur nánast
verið það sama í báðum kynjum.
Ef þróun þessi helst óbreytt
benda tölur þessar til að af þeim ís-
lendingum sem ná þroska á fyrri
hluta næstu aldar, muni u.þ.b. þriðji
hver fá krabbamein einhvern tíma á
æviferli sínum.
Ki-abbamein hjá körlum getur
myndast á öllum ævistigum, en er
þó einkum sjúkdómur efri ald-
ursára, þar sem um það bil helming-
ur þeirra íslensku karla er krabba-
mein fá eru tæplega 70 ára eða
eldri. íslenska þjóðin er ung og er
hlutfall þeirra sem eru 65 ára og
eldri það lægsta á Norðurlöndum,
eða aðeins um 11,5% þjóðarinnar.
Hópur aldraðra á eftir að stækka
hlutfallslega á næstu áratugum og
er álitið að um tvöföldun verði að
ræða fyrir árið 2030. Samhliða þess-
ari fjölgun má því bú-
ast við verulegri aukn-
ingu í nýgengi krabba-
meina hjá íslenskum
körlum á fyrstu ára-
tugum nýtrar aldar.
Við upphaf krabba-
meinsskráningar hér-
lendis var krabbamein
í maga langalgengasti
krabbameinssjúkdóm-
urinn hjá íslenskum
körlum. Greindust þá
u.þ.b. 70 nýir sjúkling-
ar árlega miðað við
100.000 karla, en á ár-
unum 1991-1995 eða
tæpum 40 árum síðar
var nýgengi fallið niður í 17 (sjá
mymd). Á sama tíma hefur nýgengi
blöðruháls-kirtilskrabbameins
hækkað úr 15 við upphaf skráning-
Krabbamein í blöðru-
hálskirtli er fylgifiskur
hækkandi aldurs, segir
Þórarinn Sveinsson í
greinaflokki um karla
og krabbamein.
ar í rétt 70 nú og er sú krabbamein-
stegund nú langalgengust hjá ís-
lenskum körlum. Nýgengi lungna-
krabbameins, sem nú er annar al-
gengasti krabbameinssjúkdómur-
inn hjá íslenskum körlum, hefur
hækkað úr 12 við byrjun skráningar
í 32, eða tæplega þrefaldast á þeim
stutta tíma sem liðinn er frá upphafí
skráningar. Endurspegla þessar
miklu breytingar sem orðið hafa á
nýgengi fyrrnefndra sjúkdóma þær
lífsháttarbreytingar sem urðu á Is-
landi í framhaldi síðari heimsstyrj-
aldar, m.a, með nýjum geymsluhátt-
um matvæla, vaxandi sígarett-
ureykingum og auknu langlífi ís-
lenskra karla, en krabbamein í
blöðruhálskirtli er fylgifískur hækk-
andi aldurs.
Hvað meðferð og lækningar
krabbameina varðar hafa framfarir
verið stöðugar og læknast nú um
40% þeirra karla er krabbamein fá,
en skilgreining lækningar er að við-
komandi sé á lífí 5 árum frá grein-
ingu krabbameinssjúkdóms síns.
Nokkuð má bæta þennan árangur
með markvissari meðferð, þótt ljóst
sé að vegna hárrar tíðni krabba-
meina meðal aldraðra mun mörgum
þeirra er krabbamein fá ekki ætlað-
ur 5 ára lifitími vegna hás aldurs við
greiningu sjúkdómsins.
Dagana 5.-10. október nk. munu
heilbrigðisráðuneytið og Krabba-
meinsfélagið standa fyrir fræðslu til
íslenskra karla m.a. með blaðaskrif-
um og útgáfu bæklingsins „Karlar
og krabbamein". í bæklingnum
verða m.a. dregin fram nokkur ein-
kenni algengustu ki-abbameina hjá
körlum, en í því sambandi er þó rétt
að taka fram að mörg þessara ein-
kenna eru jafnframt fylgifiskar létt-
vægra sjúkdóma eins og kvefs og
magakveisu. Lagist hins vegar þessi
almennu einkenni ekki á tiltölulega
stuttum tíma eða við hefðbundna
Þórarinn Sveinsson
Krabbamein hjá körlum
Aldursstaðlaö nýgengi
miðað við 100.000
Blöðru-
háls-
kirtill
Lungu
Magi
63
- 68 - 73
78
83
M
- 88
meðferð, ber að taka þau alvarlega
með markvissri skoðun m.a. til út-
lokunar á því að hér geti verið um
krabbameinssjúkdóm að ræða.
Hvet ég íslenska karlmenn að
kynna sér vel þá fræðslu sem í hönd
fer og bregðast við henni á réttan
hátt, þar sem eitt þeirra atriða er
miklu máli skipta hvað meðferðar-
árangur varðar er að krabbameins-
sjúkdómurinn greinist á viðráðan-
legu stigi.
Höfundur er forstöðulæknir
krabbameinslækningadeildar
Landspítalans.
Leitin að réttu eigninni hefst hjá okkur
& Vettvangur fólKs í fasteignaleit G 'd m} y+J www.rabl.is/fasteignir
gríy