Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 41
Skerpum hugsunina Jón
- Olum ekki á biturð
MORGUNBLAÐIÐ
hinn 30. september síð-
astliðinn kom mér á
óvart. Þar birtist grein
frá Jóni Sigurðssyni
fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra og
stuðningsmanni Sam-
taka um þjóðareign.
Margt hafa þau samtök
sent frá sér upp á
síðkastið en ekkert
jafnast á við þá reg-
indellu sem er að fínna
í grein Jóns. Það má
vera að Jón Sigurðsson
skerpi hugsun sína með
skrifíim í Morgunblaðið
og fái til þess rými en að saka Kri-
stján Ragnarsson um að bera
ábyrgð á of stórum fiskveiðiflota er
skrök.
Varaði við
offjárfestingum
Ég hefði helst ekki viljað þurfa
að svara shkum „málflutningi".
Mér finnst hann ekki svara verður.
En ef þessu er látið ósvarað er
hætta á að einhver trúi því og þess
vegna er mikilvægt að önnur sjón-
armið komist að.
Ailan þann tíma sem Kristján
Ragnarsson sat sem einn af sjö
stjómarmönnum í Fiskveiðasjóði,
varaði hann við offjárfestingum í
fiskiskipum. Það geta allir staðfest
sem þekkja til þeirra mála. Allar
þær ákvarðanir sem teknar voru
um stækkun flotans voru markaðar
af stjómmálamönnum. Allan sjö-
unda og áttunda áratuginn benti
Kristján á gallana sem
fylgdu því að flotinn
yrði of stór. Og hann
barðist gegn því kerfi
sóknarmarks sem ríkti
frá 1984-1990 því það
leiddi af sér offjárfest-
ingar og hægði á allri
endumýjun.
Þjóðhagsstofustjóri
hrósar kerfinu
Það má hins vegar
þakka Kristjáni Ragn-
arssyni fyrir að hafa
tekið þátt í því að
koma núverandi fisk-
veiðistjórnunarkerfi á
fót enda hefur það sýnt sig að það
hefur skilað miklum ávinningi fyr-
ir íslenska þjóð. Við búum nú við
Það má vera að Jón
Sigurðsson skerpi
hugsun sína með skrif-
um í Morgunblaðið,
segir Brynjólfur
Bjarnason, en að saka
Kristján Ragnarsson
um að bera ábyrgð á of
stórum fískveiðiflota
er skrök.
nútímalegt markaðskerfi í sjávar-
útvegi þar sem sífellt fleiri eiga
kost á því að eignast hlut í vel
reknum útvegsfyrirtækjum, stofn-
ar eru á uppleið og hagræðingin
skilar sér til þjóðarinnar. Það
hlýtur að teljast merkilegt þegar
sá maður sem stýrir áætlanagerð
fyrir íslenskan þjóðarbúskap,
Friðrik Már Baldursson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, sér ástæðu til
þess að hrósa stjórnkerfi fisk-
veiða, vara við breytingum á því
og upplýsa að hann myndi frekar
vilja fjárfesta í vel reknu íslensku
sjávarútvegsfyrirtæki en norsku
olíufyrirtæki.
Jón Sigurðsson, sem þekktur var
að málefnalegum skrifum, virðist
vera að falla ofan í gryfju félaga
sinna sem höggva til hægri og
vinstri í einskærri biturð.
Höfundur er forstjóri Granda hf.
Brynjólfur
Bjarnason
H> hna Eyjóifsdóttir á eigin fótum»tónlistinni eftír láf eiginrnannsirfS
IKrossgátur * Smásaga * tikamsrífekt; engar afsakanir! - VinnfÍi
ELECANCE
75-
Stærðir
B-C-D-DD
Sendum í
póstkröfu
Framhaldsaðalfundur SameinaSa
lífeyrissjóðsins verður haldinn mónu-
daginn 9. nóvember 1998 kl. 16.00
að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38
Dagskrá:
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
Aðildarfélögum sjóðsins hefur verið sent fundarboð
ásamt fundargögnum. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu
á fundinum með tillögu og málfrelsi. Þeir sjóðfélagar sem
hyggjast nýta sér þennan rétt eru beðnir að tilkynna joað
skrifstofu sjóðsins eigi síðar en 6. nóvember n.k. og munu
þeir þá fá fundargögn við setningu fundarins.
nTillögur til breytinga á sam|Dykktum liggja frammi
rifstofu sjóðsins frá 21. september 1998 og geta joeir
sjóðfélagar sem áhuga hafa á að kynna sér (oær fyrir
fundinn, fengið þær á skrifstofu sjóðsins eða sendar í pósti.
Einnig er hægt að nálgast tillögurnar á veraldarvefnum.
Slóð sjóðsins er www.lifeyrir.rl.is.
m
Reykjavík, 18. september 1998 i
Stjórn SameinaSa lífeyrissjóðsins.
SuSurlandsbraut 30
108 Reykjavík
Sími 510 5000
Fax 510 5010
Grænt númer 800 6865
HeimasíSa:
lifeyrir.rl.is
Netfang:
Græddur er geymdur lifeyrir mottaka@lifeyrir.rl.is
meinaði
lífeyrissjóðurinn