Morgunblaðið - 06.10.1998, Page 42
* 42 ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Samtök ferða-
Það var ekki aðalfund-
ur SVG sem ákvað
þjónustunnar
í Morgunblaðinu 1.
október sl. birtist grein
undir heitinu „Samtök
fyrirtækja í ferðaþjón-
ustu“ eftir Pétur
Rafnsson, formann
Ferðamálasamtaka Is-
iands. Þar reifar Pétur
hugmyndir sínar um
heildarskipulag í
ferðaþjónustu. í grein
sinni gætir nokkurs
misskilnings sem rétt
er að leiðrétta.
Fyrir þá sem ekki
þekkja forsögu málsins
er eðlilegt að segja
hana í stuttu máli. Eft-
ir áralangar umræður
um nauðsyn þess að stofna hags-
munasamtök fyrirtækja í ferðaþjón-
ustu var undirbúningsnefnd sett á
laggirnar í upphafl ársins 1998 og
skipuðu fyrirtæki og samtök fyrir-
tækja í ferðaþjónustu 11 fulltrúa í
hana. Fulltrúarnir koma frá Sam-
bandi veitinga- og gistihúsa, Félagi
ferðaskrifstofa, Bílaleigusamband-
inu, Félagi hópferðaleyfíshafa,
'Félagi sérleyfishafa, Flugleiðum,
öðrum flugfélögum og fyrirtækjum
í afþreyingu. Það var því strax í
upphafi ljóst að þessi hagsmuna-
samtök yrðu eingöngu fyrir fyrir-
tæki í ferðaþjónustu, bæði stór og
smá, og fljótlega var tekin sú
ákvörðun að stofna þau á grunni
Sambands veitinga- og gistihúsa
þar sem skipulag og
aðstaða er til staðar.
Hinn 4. júní sl.
boðaði undirbúnings-
nefndin fyrirtæki í
ferðaþjónustu til kynn-
ingarfundar í Reykja-
vík og voru þar lögð
fram drög að lögum
fyrir samtökin. A fund-
inn mættu u.þ.b. 140
manns og reyndist
mikill áhugi á að geng-
ið yrði til stofnunar
samtakanna sem fyrst.
Á þeim fundi gerði
undirbúningsnefndin
skoðanakönnun á því
hvaða nafn fundar-
menn vildu hafa á samtökunum og
voru þrjú nöfn lögð fram. Það er
skemmst frá því að segja að nafnið
sem valið var, „Samtök
ferðaþjónustunnar", fékk helmingi
fleiri atkvæði en það nafn sem varð
nr. 2 í röðinni og tók undirbúnings-
nefndin að sjálfsögðu þann kost að
verða við vilja meirihlutans.
Hinn 24. september sl. hélt Sam-
band veitinga- og gistihúsa aðalfund
sinn þar sem lagadrög undirbún-
ingsnefndarinnar voru lögð fyrir
félagsmenn og var þar samþykkt
einróma að þau kæmu í stað laga
SVG og tækju gildi 11. nóvember
nk., en þá verður stofnfundur SAF
haldinn.
Pétur segir í grein sinni að það
Erna
Hauksdóttir
nafnið á samtökin, seg-
ir Erna Hauksdóttir,
það var meirihluti
þeirra sem sóttu kynn-
ingarfundinn fjölsótta.
lýsi hroka að aðalfundur SVG skuli
hafa samþykkt þetta nafn og „skítt
með alla aðra aðila í ferðaþjónustu á
íslandi og hvað þeim finnst“ eins og
hann tekur til orða. Félagsmönnum
Sambands veitinga- og gistihúsa
þykir illt að sitja undir því að kallast
hrokafulhr svo og ósmekklegu
ámæli um að taka ekki tillit til ann-
arra í ferðaþjónustu og því viljum
við koma því á framfæri að það var
ekki aðalfundur SVG sem ákvað
nafnið á samtökin, það var meiri-
hluti þeirra sem sóttu kynningar-
fundinn fjölsótta, það voru fulltrúar
fyrirtækja alls staðar að úr
ferðaþjónustunni.
Þrátt fyrir að aðild að Samtökum
ferðaþjónustunnar takmarkist við
fyrirtæki skal það tekið fram að það
er á verkefnaskrá samtakanna að
standa að markaðssamstai'fi þar
sem allir hagsmunaaðilar í
ferðaþjónustu komi að s.s. ríki,
sveitarfélög, fyrirtæki, samtök og
aðrir þeir sem telja sig hafa hag af
því að leggja til markaðsmála og
taka þátt í þeirri auknu og sam-
ræmdu markaðssókn sem svo lengi
hefur verið stefnt að.
Höfundur er frmnkvæmdastjóri
Sambands veitinga- og gistihúsa.
BUSETI
Búseturéttur til sölu
umsóknarfrestur til 13. október
2ja herb.
Birkihlíö 2a , Hafnarfiröi
67m2 íbúð, m Félagsl.lán
Búseturéttur kr. 700.107
Búsetugjald kr. 30.023
Skólav.stigur 20, Reykjavík
65m2 íbúð,302 Almennt lán
Búseturéttur kr. 1.190.400
Búsetugjald kr. 41.093
Miöholt 13, Mosfellsbæ
70m2 íbúð,202 Félagsl.lán
Búseturéttur kr. 1.091.546
Búsetugjald kr. 29.967
3ja herb.
Skólatún 2, Álftanesi
93m2 íbúð, 121 Almennt lán
Búseturéttur kr. 1.252.394
Búsetugjald kr. 48.075
Breiðavík 9, Reykjavík
77m2 íbúð,303 Almennt lán
Búseturéttur kr. 862.973
Búsetugjald kr.46.679
Breiðavík 7, Reykjavík
77m2 íbúð,20i Almennt lán
Búseturéttur kr. 862.973
Búsetugjald kr.46.679
Krókamýri 78, Garðabæ
97m2 íbúðir, 102 Almennt lán
Búseturéttur kr. 1.260.245
Búsetugjald kr. 47.592
3ja herb.
Frostafold 20, Reykjavík
78m2 íbúð. 305,502 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.045.245
Búsetugjald kr. 38.255
Skólatún 2, Álftanesi
93m2íbúð,i3i Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.252.394
Búsetugjald kr. 33.149
Miðholt 3, HafnarFirði
90m2 íbúð, 302 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 920.638
Búsetugjald kr.37.188
Garðhús 4, Reykjavík
92m2 íbúð.,101 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.532.798
Búsetugjald kr. 36.251
Frostafold 20, Reykjavík
88m2 íbúðir.,301,406,601,606
Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.132.249
Búsetugjald kr. 42.429
Öruggt húsnæði,
vandaðar íbúðir.
Nýir félagsmenn
velkomnir.
4ra herb.
Miðholt 5, Mosfellsbæ
94m2 íbúð.,103 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.463.888
Búsetugjald kr. 40.242
Skólatún 4, Álftanesi
114m2 íbúð,20i Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.528.266
Búsetugjald kr. 40.291
Miðholt 3, Hafnarfirði
94m2 íbúð.,301 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.035.719
Búsetugjald kr. 41.634
Berjarimi 1, Reykjavík
114m2 íbúð,202 Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 1.494.788
Búsetugjald kr. 44.087
5 herb. NYTT HUS!
Gautavík 29, Reykjavík
120m2 íbúð,302 Almennt lán
Búseturéttur kr. 995.584
Búsetugjald kr. 54.543
3ja herb. Akranes
Lerkigrund 5, Reykjavík
80m2 íbúð,30i Félagslegt lán
Búseturéttur kr. 951.579
Búsetugjald kr. 34.383
Nánari upplýsingar á skrifstofu Búseta hsf. Opið frá 8.30 til 15.30. nema miðvikudaga: 8.30 til 12.00
Umsóknarfrestur til 13 október kl. 15,30, íbúðirnar eru til sýnis eftir samkomulagi. Með umsóknum
þarf að skila skattframtölum síðustu þriggja ára, staðfestum af skattstjóra, ásamt ljölskylduvottorði
frá Hagstofunni.
Úthlutun íbúðanna fer fram miðvikudaginn 14 október kl. 12 að SKEIFUNNI 19,3.HÆÐ,
umsækjendur verða að mæta til að staðfesta úthlutun!
Búseti hsf. Skeifunni 19
Sími 520-5788
www.buseti.is
Sagan endur-
tekur sig
FYRIR um það bil
eitt hundrað árum voru
vaskir menn að reyna
að skjóta fleiri stoðum
undh’ atvinnulíf lands-
manna. Þeir töldu að
mörg vannýtt tækifæri
leyndust í sjávarútvegi
og rétt væri að fara að
dæmi margra annarra
þjóða og hefja hér út-
gerð og fiskvinnslu með
bestu tækjum og að-
ferðum sem þá þekkt-
ust. Allt þyrfti að gera
til að efla atvinnulífið
enda sáu þeir fram á
stöðnun og að Islend-
ingar drægjust aftm’ úr
öðrum þjóðum ef ekki yrði að gert.
Þessir eldhugar fengu heldur
kaldar kveðjur frá mörgum
talsmönnum bænda, sem bentu á að
landbúnaður hefði verið undistöðu-
Leggja verður af þann
búralega hugsunarhátt,
segir Brynjar Haralds-
son, að ein atvinnu-
grein sé annarri æðri.
atvinnugrein landsmanna um aldar-
aðir og yrði það áfram ef skyrisemin
og þjóðerniskenndin ætti að þrífast
áfram í landinu. Allt hjal um
tækifæri í útgerð og glannaskapur
með stóreflingu hennar byði heim
röskun á ríkjandi ástandi, sem hefði
verið traust og farsælt um árabil -
a.m.k. fyrir þá sjálfa. Leikreglur at-
vinnulífsins yrðu því áfram að lúta
hagsmunum landbúnaðarins og aðr-
ar atvinnugreinar að laga sig að því
eða láta undan síga. Landbúnaður
yrði áfram, undirstaða alls at-
vinnulífs á Islandi og um það yrði
séð í öllum valdastofnunum þjóðar-
innar.
Frumherjar hurfu
Sem betur fór brutust frumherj-
ar sjávarútvegsins út úr þessari
sjálfheldu þrátt fyrir mikið and-
streymi og hófu veg þessarar at-
vinnugreinar til vegs og virðingar,
landi og þjóð til hagsældar. En eins
og sagan endurtekur sig sífellt þá
er nú komin upp svipuð staða nema
að í stað bændanna, sem töldu að
aðrar atvinnugreinar ættu að vera
aftar í röðinni vegna þess að land-
búnaður væri mikilvægust allra at-
vinnugreina, þá eru nú komnir arf-
takar frumherjanna í sjávarútvegin-
um, sem setja sig á háan hest ef á
þá er yrt og tala með lítilsvirðingu
um aðrar atvinnugreinar; þær eigi
allt sitt undir útgerðinni og eigi
bara að þakka fyrir sig og taka
þegjandi við öllum fullyrðingum
sem þaðan koma um röðun atvinnu-
greina í einhvern ímyndaðan
virðingarstiga.
Hótanir í stað umræðu
Þessir menn hafa ekki, frekar en
talsmenn bændanna fyrir hundrað
árum, nokkurn áhuga á að ræða af
skynsamlegu viti um forsendur,
sem þurfa að vera fyrir hendi til
þess að svara kalli tímans um fjöl-
breyttara atvinnulíf.
Þeir tönglast sífellt á
þvl að sjávarútvegur-
inn hafi verið og verði
áfram undirstöðuat-
vinnugrein. Allt tal um
að færa leikreglur að
einhverju leyti að
hagsmunum annarra
atvinnugi’eina er ekki
eingöngu talið til
marks um skilnings-
leysi á meintum undir-
stöðuatvinnuvegi held-
ur skilgreint sem árás
á hann og brugðist við í
samræmi við það með
ótrúlegum fyrirgangi
og hroka. Jafnvel
gengur svo langt að einstakir út-
gerðarmenn hafa haft í hótunum
um að skipta ekki við íslenskan
iðnað ef einhver úr hans röðum
kvartar yfir þeim erfiðleikum sem
fylgja því að stunda samkeppn-
isiðnað við hliðina á sjávarútvegin-
um. Þetta segja þeir sem fá afla-
heimildir upp í hendurnar frá okkur
hinum fyrir ekki neitt og láta okkur
auk þess borga fyrir sig hluta launa-
greiðslna sinna með sjómannaaf-
slættinum. Bændur báðu þó ekki
aðra að greiða hjúum sínum kaupið.
Samkeppnisiðnaði fórnað
Við sem erum að reyna að reka
iðnfyrirtæki í samkeppni við inn-
fiutta vöru, og einnig hinir sem
flytja afurðir sínar út, finnum vel
fyrir nálægð sjávarútvegsins. Hann
fær aðgang að sameiginlegri
auðlind landsmanna fyrir ekki neitt,
honum er ílvilnað með sjómannaaf-
slættinum og hann hefur síðustu
mánuði notið mikilla hækkana á
mörkuðum. Þetta þýðir að atvinnu-
greinin þolir hærra raungengi en
ella. Eftir standa samkeppnisiðn-
greinar og fá í engu varist því ekk-
ert af því sem upp var talið nær til
þeirra: Þær verða að kaupa sitt
hráefni á markaðsverði, þær láta
ekki aðra taka þátt í launagreiðslum
sínum. Þær fá ekki hækkanir á af-
urðum og allra síst er skráning ís-
lensku krónunnar miðuð við þarfir
þeirra. Sú undarlega þversögn hef-
ur líka verið staðfest að því verr
sem gengur í sjávanítvegi því betur
vegnar íslenskum samkeppn-
isiðnaði. Þetta stafar af því að þá er
raungengi krónunnar í einhverju
samræmi við framleiðslukostnað
fyrirtækjanna.
Ný hugsun - ný tækifæri
Nú eru flestir hugsandi menn
sammála um að sjávarútvegurinn
geti ekki tekið við öllu fleira fólki í
vinnu á næstu árum og áratugum.
Fjölgun landsmanna er jöfn og þétt
og því sé mikil nauðsyn að efla aðr-
ar arðbærar atvinnugreinar og búa
þeim eðlileg skilyrði við hlið
sjávarútvegsins en ekki einhvers
staðar þar fyrir aftan. Leggja verð-
ur af þann búralega hugsunarhátt
að ein atvinnugrein sé annarri æðri
enda erum við nú að nálgast 21. öld-
ina. Þá er tímabært að láta af hugs-
unarhætti bændaforingjanna frá 19.
öldinni.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Frostverks ehf.
Brynjar
Haraldsson
Ert þú
EINMANA?
Við erum til staðar!
VINALÍNAN
vinur í raun
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
Oðunto
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 5611680