Morgunblaðið - 06.10.1998, Síða 43

Morgunblaðið - 06.10.1998, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 43 BREYTTIR TIMAR í SJÁVARÚTVEGI JÓN Sigurðsson liðsmaður Frjálslynda flokksins hefur lengi skrifað greinar um sjávarútvegsmál í Morgunblaðið. Ég hef stundum haft nokkurt gaman af greinum hans þótt okkur greini mikið á. í síðustu grein kýs hann þó að beita persónulegum árásum, sem ég leiði hjá mér. Ég hyggst ekki deila við Jón Sigurðsson um mína persónu en ég vil þess í stað leitast við að svara hinum efnis- legu atriðum greinar hans. Sjávarútvegur hefur allt frá 19. öld verið sú undirstaða sem ís- lenskt efnahagslíf hefur hvílt á. Þá tók að þróast hér innlend þilskipa- útgerð sem varð, ásamt öðru, til þess að íslenskt þjóðfélag tók að rétta úr kútnum eftir margra alda stöðnun. Með innlendri togaraút- gerð á fyrstu áratugum 20. aldar og síðar öflugri bátaútgerð jukust tekjur landsmanna af sjávarútveg- inum og þær sköpuðu jgrundvöll margháttaðra framfara. Islending- um tókst loks að ná fullum yfirráð- um yfir auðlindinni umhverfis land- ið. A síðustu áratugum hefur þessi ávinningur gert Islendingum kleift að skapa hér öflugt velferðarsam- félag og komast í hóp þeirra ríkja heims sem njóta einna mestrar efnahagslegrar velferðar. Grund- völlur þessa velferðarsamfélags er fyrst og fremst þær tekjur sem sjávarútvegurinn hefur skapað. Þetta eru sögulegar staðreyndir sem ekki verður á móti mælt. Margfeldisáhrif sjávarútvegs Við Jón erum sammála um að út- gerðin hefur margfeldisáhrif sem skila sér út um gervallt þjóðfélagið. Þessi margfeldisáhrif eru með tvennum hætti. Annars vegar skil- ar arðurinn af sjávarútveginum sér út í þjóðfélagið í bættri afkomu allra Islendinga, en útvegurinn starfar einnig náið með öðrum at- vinnugreinum og njóta hvorir tveggja nálægðarinnar. Forsætisráðherra sagði í stefnu- ræðu sinni að það væri engin tilvilj- un að Islendingar njóti ríflegs kaupmáttarbata á sama tíma og sjávarútvegurinn er í sókn. For- sætisráðherra er hygginn maður og sér það í rekstri sinnar þjóðar- skútu þegar vel gengur í útvegin- um. Hann veit að stjórnun fisk- veiða er hér sú hagkvæmasta sem þekkist og að útvegurinn hefur tekið jákvæðum breytingum þannig að hann býr nú við nútíma- legt viðskiptaumhverfi ef undan eru skilin kvótaþingsólögin. For- sætisráðherra veit það jafn vel og við Jón að það eru fleiri þættir sem hafa haft áhrif á kaupmáttaraukn- ingu landsmanna. Svokallaðir þjóð- arsáttarsamningar voru gerðir árið 1990, frjálsræði í efnahagsmálum, bönd á ríkisfjármálin og erlend fjárfesting í álverum skipa einnig stórt hlutverk í kaupmáttaraukn- ingunni. En uppúr stendur að það er sjávarútvegurinn, undirstöðuat- vinnugreinin, sem skapar langmest verðmæti fyrir þjóðarbúið. Þessi langmikilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar hefur lagt grunninn að því að hægt var að ná kaupmáttar- aukningunni. Hagsmunir sjávarútvegs og iðnaðar fara saman Sjávarútvegurinn hefur staðið undir margháttaðri nýsköpun í ís- lensku atvinnulífi, sem hefur verið að skila sér í auknum útflutningstekjum annarra atvinnu- greina. Margir gera sér til dæmis ekki grein fyrir að sjávar- útvegurinn hefur stað- ið undir fiestu því sem til mestrar nýsköpun- ar horfir í íslenskum útflutningsiðnaði. Búnaður sem íslensk iðnfyrirtæki hafa þró- að fyrir íslenskan sjávarútveg hefur ver- ið að vinna sér sess sem það besta sem völ er á í heiminum. Iðn- fyrirtæki í tengslum við stöðugan sjávarútveg hafa sprottið upp og eflst. Mörg fyrir- tæki, þeirra á meðal Marel, Sæplast, J. Hinriksson og Hamp- iðjan, hafa sótt á erlenda markaði og náð þar fótfestu. Hugbúnaðar- fyrirtæki hafa einnig notið sam- búðarinnar við sjávarútveg, en al- mennt má segja að hagsmunir iðn- aðar og sjávarútvegs fari saman hérlendis eftir að stjórnkerfi físk- veiðanna komst í lag. Jón Sigurðs- son hittir því naglann á höfuðið þegar hann segir frá því að margir þurfi að koma að því að skapa verð- mæti úr auðlindum hafsins. Út- gerðin stæði vissulega illa að vígi ef ekki kæmu til góðar vinnslustöðv- Þegar hinn mikli ár- angur af núverandi fiskveiðistj órnunarkerfi blasir við, segir Krist- ján Ragnarsson, þá megum við ekki hverfa aftur til kerfis hand- og sóknarstýringar, sem einkenndist af offjár- festingum og ofveiði. ar, öfiugar veiðarfæragerðir og framsækin markaðsfyrirtæki. Með sama hætti gætu þessi fyrirtæki ekki þrifíst án öflugrar útgerðar. Án hennar hefðu þau aldrei orðið til. Sífellt fleiri fjárfesta í útvegsfyrirtækjum Arangurinn af kvótakei'finu er ótvíræður. Okkur hefur tekist að nútímavæða íslenskan sjávarútveg. Endurnýjun hefur gengið vel, fyr- irtæki eru að rétta úr kútnum en þurfa svigrúm til þess að vaxa og dafna. Vísbendingar eru um að upp séu að koma árgangar mikilvægra fiskistofna sem eru hinir sterkustu í háa herrans tíð. A sama tíma er auðlindin að skila mikilli hag- kvæmni og árangri fyrir þjóðarbú- ið í heild. Kvótakerfið hefur hlotið viðurkenningar margra mætra manna hér á landi og erlendis. Fram hefur komið hjá forstjóra Þjóðhagsstofnunar að hann teldi fískveiðistjórnunarkerfið hag- kvæmt og að heildartekjur þjóðar- búsins verði hámarkaðar með því. Hin dreifða eignaraðild skilar æ fleirum beinum hagnaði af nýtingu auðlindanna þar sem sparnaður landsmanna stendur undir öflugum útvegsfyrirtækjum og treystir á þau. Þeir sem hugsa til framtíðar sjá að það er bjart framundan. Þeir eru ekki fastir í viðjum þeirrar for- tíðar þegar kerfið var undir hæl stjórnmálamanna sem ýttu undir offjárfestingar og óhagkvæmni. Fræðsluátak á ári hafsins Afkoma íslendinga byggist á fiskveiðum. Útvegsmenn telja það mikilvægt að landsmenn hafi glögga mynd af viðfangsefnum sjávarútvegs, möguleikum hans og þýðingu fyrir þjóðarbúið. Okkur þykir það miklu varða að lands- menn hafi þekkingu á því með hvaða hætti verðmætasköpun í út- veginum verður til í veiðum og vinnslu og við hvaða aðstæður ís- lensk útvegsfyrirtæki búa með til- liti til alþjóðlegrar samkeppni. Að auki er mikilvægt að kynna hvern- ig veiðum er stjórnað til þess að tryggja skynsamlega og hag- kvæma nýtingu mikilvægustu auð- lindar islensku þjóðarinnar. Til þess að sinna þessum markmiðum munum við, á ári hafsins, meðal annars birta fræðsluauglýsingar í Morgunblaðinu og víðar og gefa út bækling sem dreift verður á öll heimili í landinu. Við höfum opnað heimasíðu á netinu og bjóðum landsmönnum um borð í skip okkar til þess að sjá hvernig útvegurinn starfar. Verðmæti á diski neytandans Þegar horft er til framtíðar er ljóst að áfram verða gerðar kröfur til útvegsmanna um bætt lífskjör í landinu. Því miður eru engin teikn á lofti um að aðrar atvinnugreinar létti af okkur þeim kröfum. Við munum því eflast til þess að gera betur. Til þess þurfum við öfluga fiskistofna og fiskveiðistjórnunar- kerfi sem skilar árangri. Það höf- um við í dag. Markaðssvæði ís- lenskra sjávarafurða er allur heim- urinn og auðlindin er hafið. Þeir fiskar sem við veiðum í hafinu verða ekki að verðmæti fyrr en á diski neytandans. íslenskur sjávar- útvegur er orðinn alþjóðlegur og því verður hann að njóta sambæri- legra tækifæra og keppinautarnir búa við. Sérstök skattlagning á sjávarútveginn mun skerða sam- keppnisStöðu hans og þar með lífs- kjör á Islandi. Ekki afturhvarf til úreltra tíma Af öllum þeim stói-yrðum sem Jón Sigurðsson hefur látið frá sér fara hef ég undrast mest afstöðu hans til vísindamanna Hafrann- sóknastofnunarinnar og hvernig hann hefur reynt að gera lítið úr vitneskju þeirra. Hann hefur ítrek- að látið að því liggja að ástæðu- laust sé að fara að ráðum þeirra því þekking þeirra sé takmörkuð. Ég leyfi mér að setja samasemmerki milli þessarar afstöðu hans og af- stöðu til fiskveiðistjórnunar, því hann veit að hún hefur tryggt við- gang fiskistofnanna. Sá árangur þjónar hins vegar ekki sjónarmið- um hans til stjórnunar fiskveiða. Þegar hinn mikli árangur af nú- verandi fiskveiðistjórnunarkerfi blasir við, þá megum við ekki hverfa aftur til kerfis hand- og sóknarstýringar, sem einkenndist af offjárfestingum og ofveiði. Nú þegar okkur hefur tekist að byggja upp okkar mikilvægasta fiskistofn, þorskstofninn, þá höfum við alls ekki efni á því að leyfa óhefta sókn sem myndi tortíma fiskistofnunum við landið. Háværir menn hrópa á afturhvarf til úreltra tíma þegar handstýring stjórnmálamanna réði ríkjum. Málflutningur þessara manna sem kenna sig við frjáls- lyndi er afar varasamur fyrir fram- tíð íslensku þjóðarinnar. Höfundur er formaður Landssam- bands íslenskra útregsmanna. Kristján Ragnarsson Þau vítamín og næringarefni sem mjólkin hefur að geyma gegna mikilvægu hlutverki í daglegu lífi okkar alla ævi. Látum aldrei vanta mjólk á okkar heimili. Skíðaveisla Heimsferða til Austurríkis frá kr. 29.630 Heimsferðir bjóða nú glæsilegt úr- val skíðaferða til bestu skíðastaða Austurríkis með beinu flugi til Miinchen, vikulega frá 30. janúar 1999. Við höfum valið Zell am See og Saalbach-Hinterglemm sem okkar aðal áfangastaði. Þeir sam- eina stórkostlegt úrval skíða- brekkna við allra hæfi, afbragðs gististaði og síðast en ekki síst feiknarlega skemmtilegt mannlíf á kvöldin, mikið úrval góðra veit- inga- og skemmtistaða. Hér getur þú valið um yfir 60 lyftur á hverju svæði, snjóbrettasvæði og yfir 100 km af skíðagöngubrautum. Og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjón- ustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Verð kr. 29.630 Flugsæti á mann til Miinchen m.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára. Verð kr. 48.930 Flug, hótel og flugvallarskattar m.v. hjón m. 2 börn, vika, 30. janúar, Pinzgauer Hof. Verð kr. 56.960 Flug, hótel og flugvallarskattur m.v. 2 í herbergi, 30. janúar. 20.000 kr. afsláttur fyrir fiölskylduna 5.000,- kr. afsláttur á mann, fyrstu 200 sætin Beint morgunflug til Miinchen Brottför kl. 8.30 á iaugardögum 30. janúar 6. fcbrúar 13. febrúar 20. febrúar 27. febrúar 6. ntars HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600. www.heimsferdir.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.