Morgunblaðið - 06.10.1998, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 06.10.1998, Qupperneq 48
^48 ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR Morgunblaðið/'V aldimar Kristinsson ÞEGAR Hreinn í Helgadal samkvæmt beiðni reif und- an verðlaunuðum keppnis- hesti reyndust maðkar vera í mysunni í formi blýþynginga um 150 grömm á hvonmi framfæti. Oft helgar tilgang- urinn meðalið Undan- rifsákvæðið sannar gildi sitt ' W7 \ íM P 1- m B T 1 J'T/Sg í <íb»»* Æ' Wl C f ■ 'isí H , ■* **' § * i, / i fcjj ‘ W ~ MorgunblaðiðA^aldimar Kristinsson EVE Barmettler hafnaði í Qórða sæti í 250 metra keppninni, Hinrik varð þriðji, Marianna Tschappu önnur og Angantýr með sigurlaunin, sigrar nú í fyrsta skipti í 250 metra keppni en hefur þrisvar borið sigur ur býtum í 150 metra keppninni. FYRIR tveimur árum var sett í reglur um gæðingakeppni að rifið skyldi undan einum þeirra hesta sem þátt tæki í úrslitum A- og B-flokks á fjórðungs- og landsmótum og kannað hvað leyndist milli plastbotns og hófs. Öðru hvoru heyrast radd- ir um að ýmsir „kappsamir og metnaðarfullir" knapar eigi það til að setja blýþynnur þar á milli og fylla síðan upp með sfli- koni eða öðru fylliefni og sú virðist vera raunin. Nýlega var Hreinn Ólafsson bóndi í Helgadal í Mosfellsbæ beðinn að rífa undan hesti sem notaður hefur verið í keppni í •2 sumar. Hesturinn var á plast- botnum að framan og með sfli- konfyllingu og þegar rifið var undan kom í ljós fjöldi blýþynna eins og notaðar eru til að jafnvægisstilla hjólbarða á bflum. Þegar búið var að týna blýið úr reyndist „yfirþyngdin" vera um 150 grömm á hvorum fæti. Til samanburðar má geta þess að þetta er 3/5 af leyfilegri hámarksþyngd hófhlífa í keppni. Hesturinn sem hér um ræðir var í verðlaunasæti í áhugamannaflokki á Suður- landsmóti á Gaddstaðaflötum og eins á Lokaspretti Harðar á Varmárbökkum í ágúst. Það virðist því ljóst að full ** þörf var á setningu þessa ákvæðis en ekki verður betur séð en rík ástæða sé til að nota þetta ákvæði í mun ríkari mæli en gert hefur verið. Eftir því sem næst verður komist hefur þessu ákvæði einvörðungu ver- ið beitt á lands- og fjórðungs- mótum. Tilgangur með þyngingu framfóta sýningarhrossa er tvíþættur, annarsvegar til að auka fótaburð hrossanna þannig þau lyfti fótum hærra og taki lengri skref og hinsveg- ar til að leiðrétta takt töltsins úr skeiðtölti yfir á hreint tölt. Skeiðmeistarakeppnin A Islenskur sigur í báðum greinum HINRIK Bragason mættur til leiks á ný og byijar á toppnum eins og honum er tamt. HESTAR Li|tperthuf, Þýskalandi ALÞJÓÐLEGA SKEIÐMEISTARAMÓTIÐ Skeiðmeistaramótin eru haldin á haustin, annað hvert ár í Þýskalandi en hin árin í nærliggjandi löndum. Það er Alþjóðiega skeiðmannafélagið sem stendur fyrir þessum mótum, sem hafa verið mjög vinsæl. Fram til þessa hafa mötin verið haldin um miðjan október en verið flýtt og verða framvegis haldin seinni- partinn í september. HÁPUNKTUR þessara móta er að sjálfsögðu skeiðmeistarakeppnin sem mótin draga nafn sitt af. Er nú keppt í bæði 250 metrum og 150 metrum. Fyrir þá sem ekki vita út á hvað keppnin gengur þá tryggja fjórh- fljótustu hestar og knapar í þessum vegalengdum sér þátttök- urétt. Farnir era fjórir sprettir og höfð hestaskipti eftir hvem sprett og þannig situr hver knapi hvern hest einu sinni. Fyrsta sætið gefur 5 stig, annað gefur 3 og þriðja gefur 1 stig en fjórða sætið gefur ekkert stig þótt hesturinn liggi sprettinn á enda. Liggi hestar ekki fást engin stig. Skeiðmeistarakóngnrinn í 150 metrunum Meðal þeirra sem tryggðu sér rétt í 150 metranum var Claas Dutilh frá Hollandi, sem var með sinn marg- reynda stóðhest Trausta frá Hall sem er 17 vetra gamall og hefur tekið oftar þátt í skeiðmeistaramóti en nokkur annar hestur og víst má telja að enginn hestur hafi halað inn eins mörg stig fyrir knapa sinn. Með honum voru Hólmgeir Jónsson með Dropa frá Hraukbæ, Hinrik Braga- son með Viljar frá Möðruvöllum og Angantýr Þórðarson með Stóra-Jarp frá Akureyri, sem hefur einnig góða reynslu í þessum keppnum. Skemmst er frá því að segja að Trausti færði þremur knöpum fyrsta sætið og fimm stig hverjum en á ein- hvern óskiljanlegan hátt mistókst Angantý að láta hann liggja síðasta sprettinn. Claas sigraði fyrsta sprett og Hinrik varð annar á Viljari en hinir lágu ekki. I öðrum spretti vann Hólmgeii' á Trausta, Hinrik varð annar á Stóra-Jarpi og Angantýr þriðji á Viljari. Þar með var Hinrik efstur með 6 stig, Claas og Hólmgeir jafnfr með 5 stig og Angantýr með 3 stig og tveir sprettir eftir. Hinrik varð fyrstur á Trausta, Angantýr annar á Dropa og Claas þriðji á Viljari. Hinrik var þai' með kominn með afgerandi forystu, 11 stig, Claas annar með 6, Hólmgeir með 5 og Angantýr með 4. Góð staða hjá Hinriki, því Claas gat aðeins unnið með því að verða fyrstur í síðasta spretti og Hinrik síðastur eða þá að ekki lægi hjá honum. Það gekk ekki eftir því Hinrik vann á Dropa og Claas varð annar á Stóra-Jai-pi. Niðurstaðan varð því glæsilegur sig- ur hjá Hinriki, sem nú var að keppa í fyrsta sinn eftir að keppnisbanni hans lauk og ekki í fyrsta skipti sem hann sigrar í þessari keppni. Hestarnir vora á mjög góðum tíma í keppninni þegar þeir lágu á annað borð. Hólmgeir náði besta tímanum, 13,84 sekúndum, á gamla biýninu Trausta og Hinrik náði 14,20 á honum. Á þessu má sjá að gott sog hefur verið á vekringunum, enda brautin mjög góð og allar aðstæður. Sigur í tveimur sprettum Hinrik var einnig í slagnum í 250 metranum með Eitil sinn frá Akur- eyri sem hann eignaðist nýlega. POTTÞÉTT gæti Hinrik hugsað í síðasta sprettinum þegar ljóst er að sigurinn er hans. KONUNGUR skeiðmeistarakeppninnar er án efa hinn sautján vetra Trausti frá Hall í eigu Claas Dutilh sem situr hestinn hér á leið í verðlaunaafhendingu. Enginn hestur hefur skilað jafnmörgum stigum í skeiðmeist- arakeppnum undangenginna ára og Trausti, sem skeiðaði 150 metrana undir gildandi heimsmetstíma. Andstæðingar hans voru Angantýr Þórðarson með Ægi frá Störtal, Marianna Tschappu frá Sviss á Gammi frá Ingveldarstöðum og Eve Barmettler frá Sviss með Eirík rauða frá Hólum. Marianne tók for- ystuna í fyrsta spretti, Gammur var sá eini sem lá. Segja má að Hinrik hafi farið illa að ráði sínu að ná ekki Eitli niður í þessum spretti, en hann lagaði stöðuna á Gammi í næsta spretti þegar keppinautarnir fóru á stökki. I þriðja spretti var Angantýr með Gamm og allt fór á sama veg; hann lá einn hesta og spennan því í algleymingi fyrir síðasta sprett. Allir keppendur höfðu í raun möguleika á að sigra. Eve var nú með Gamm og ef hann lægi áfram einn hesta yrðu allir jafn- ir með 5 stig, kynleg staða það. En ekki fór það svo, því nú lágu þrír hestar og nú var það Angantýr sem tryggði sér sigurinn með því að ná Eitli niður og tryggja sér fyrsta sæt- ið. Eve varð önnm* á Gammi og Marianne þriðja á Eiríki rauða, en Ægir hljóp hjá Hinriki sem sagði að keppni lokinni að það hefði orðið sér dýrkeypt að klúðra fyrsta sprettin- um á Eitli. Þótt ekki hafí 250 metra keppnin verið reisnarmikil var hún spennandi. Líklega í fyrsta skiptið sem skeiðmeistarakeppnin vinnst á tveimur sprettum. Sigurvegararnir nú, þeir Hinrik og Angantýr, hafa áður komist í kynni við verðlaunagripina sem þeir fengu, því báðir hafa þeir með þess- um sigrum sigrað þrisvar í 150 metra skeiðmeistarakeppni og einu sinni í 250 metra keppninni. Spennandi en vandasöm keppni Allir geta verið sammála um að skeiðmeistarakeppni býður upp á geysilega spennu en hinu er ekki að leyna að ávallt koma fram vangavelt- ur í þá átt hvort ekki sé verið að leggja of mikið á hrossin á of stutt- um tíma. Framkvæmd skeiðmeist- arakeppni er vandasamt verkefni og liggur kúnstin í því að tryggja næga hvfld milli spretta en þó ekki svo langan tíma að spennufall verði. Stundum hefur borið á því að menn vilji ekki fara með hrossin í þessa keppni; mönnum ekki sama hverjir „skaka“ á hestunum þeirra eða þykir álagið of mikið. Ljóst er að hestar sem taka þátt í þessu þurfa að vera vel á sig komnir líkamlega sem and- lega; verða að þola pressuna. Sjálfsagt er hægt að gera út af við hesta í þessari erfíðu keppni en hitt liggur líka ljóst fyrir að hestar kom- ast óskemmdir frá rauninni og er Trausti frá Hall besta dæmið þar um. Hann hefur verið með flest árin frá því hann var sjö vetra og engan bilbug á honum að fmna. Fer í gegn- um þetta spennulaust en skilar þó fullri snerpu. Framkvæmd skeiðmeistarakeppn- innar á Lipperthof var vei lukkuð, enda vanir menn sem stjórnuðu leiknum. Valdimar Kristinsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.