Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 51 VETRARSTARF Guðspekifélagsins er haflð og fer fram í húsi félagsins að Ingólfsstræti 22. Starfið í vetur er með hefðbundnu sniði, þ.e. opinber erindi á föstudagskvöldum kl. 21, op- ið hús á laugardögum kl. 15-17 með léttri fræðslu og umræðum. Á sunnu- dögum er hugleiðingarstund með leiðbeiningum kl. 17-18. Fyrsta laug- ardag hvers mánaðar kl. 15-15.30 er bókasafn félagsins opið til útláns fyr- ir félaga og á fimmtudögum kl. 16.30-18.30 er bókaþjónusta opin með miklu úrvali andlegra bók- mennta. Fyrirlesarar á fóstudögum verða á næstunni: 9. október: Brynjólfur SnoiTason „Um samspil rafsviða og orkuhjúps manns og dýra“, 16. októ- ber: Kristján Fr. Guðmundsson, 23. október: Guðmundur Einarsson um sálarrannsóknir, 30. október: Sr. Þórir Stephensen um kórherra og klaustur þeiiTa, 6. nóvember: Jörm- undur Ingi Harðarson, allsherjar- ÞORFINNUR Ómarsson, forstöðu- maður Kvikmyndasjóðs Islands, flyt- ur fyrirlestur um sérstöðu franskrar kvikmyndagerðar miðvikudaginn 7. október. Þorfinnur mun bera saman franskar kvikmyndir og bandarískar eftirgerðir þeirra. Fjölmörg dæmi eru um að Hollywood-leikstjórar hafi endurgert franskar kvikmyndir og veltir Þor- finnur því fyrir sér og sýnir dæmi um hvaða breytingum þær taka. Þorfinn- goði, um fornan átrúnað, 13. nóvem- ber: Elías Sveinsson um meðvirkni og heiðarleg samskipti, 20. nóvem- ber: Edda Björgvinsdóttir um Sai Baba, 27. nóvember: Ari Halldórsson „Hvað er Verda?“, 4. desember: Sr. Heimir Sveinsson „Unio Mystica", 11. desember: Jón Oi-mur Halldórs- son, 8. janúar: Vilhjálmur Árnason, prófessor um frelsið: 15. janúar: Jó- hann Axelsson, prófessor, um lifandi klukkur, 22. janúar: Sigurður Örn Steingrímsson um biblíuhandrit írá Qumran, 29. janúar: Birgir Bjarna- son um drauma Einsteins, 5. febrúar: Sr. Gunnar Ki’istjánsson um Jón á krossi og 12. febrúar: Njörður P. Njarðvík, prófessor, „Yður er í dag frelsari fæddur". Allt starf félagsins er ókeypis og öllum opið. Kynning á stefnu og starfi félags- ins fer fram laugardaginn 7. nóvem- ber nk. kl. 15 og eru allir áhugasamir velkomnir. ur talar á íslensku og frönsku. Fyrir- lesturinn sem hefst kl. 20.30 er í húsakynnum Alliance frangaise í Austurstræti 3. Þorfinnur stundaði háskólanám í Frakklandi um árabil, var síðar frétta- og dagskrárgerðarmaður á Sjónvarpinu auk þess sem hann hef- ur skrifað um kvikmyndir í blöð og tímarit. Þorfinnur er forstöðumaður Kvikmyndajóðs Islands. Þegar ég frétti á skotspónum að Svein- björn í Hraunprýði yrði áttræður 6. októ- ber, fletti síðan mann- talinu og sannreyndi það, fannst mér ég ekki geta undan því vikist að setjast við tölvuna og senda honum fáein orð sem afmæliskveðju í tilefni þessara merku tímamóta. Fáh- menn á Hellissandi verðskulda það fremur. Þau fimm ár sem ég hef starfað hér hefur hann verið safnaðarfulltrúi kirkjunnar á Ingjaldshóli og hann sjálfur og Ástrós kona hans alltaf jafn áhuga- söm um málefni kirkjunnar. Þótt ekkert væri annað ætti hann það inni hjá mér. En spor Sveinbjarnar hér í mannlífinu eru svo langt um- fram þau ein og verða ekki talin hér nema að litlu leyti. Sveinbjörn var ungui’ þegar hann fluttist á Hell- issand með foreldrum sínum, Bene- dikt S. Benediktssyni kaupmanni á Hellissandi og Geirþrúði Halldórs- dóttur. Tvennt er það í mínum huga, þar sem hann markaði dýpri spor en títt er. Að reka símstöðina og póstþjón- ustuna á Hellissandi var ekkert áhlaupaverk hér áður fyrr. Með óþrjótandi elju og samviskusemi og vilja til að þjóna þessari litlu byggð tókst honum að reka póst og síma með sóma. En oft krafðist það fórna og mikils erfiðis, sem hvorki var mælt né vegið. Sumt af því sem hann lagði á sig við að halda línum í lagi í illviðrum er lyginni líkast og aldrei taldi hann það eftir sér að vaka eða vakta símann og talstöðina ef mikið lá við. Hellissandur og íbúar hans standa í mikilli þakkarskuld við Sveinbjörn fyrir það sem hann lagði á sig í þeim efnum. Mér hefur oft flogið í hug að ekki megi drag- ast lengi að fá Svein- björn til að segja frá af- skiptum sínum af síma- málum á Snæfellsnesi áður en þessi tækni hóf innreið sína og festa hana á blað, því sú saga gæti horfið með honum. Annar og ekki ómerkari þáttur í ævi Svein- bjarnar er útgerðarsaga hans með Sigurði Kristjónssyni eða Skarðs- víkurútgerðin. Saman gerðu þeir Hellissand að stórútgerðarstað svo eftir var tekið. I sjávarþorpum er það mikill heiður að eiga mestu og bestu aflaskipin árum eða áratugum saman. Og í þessari útgerð stóð Sveinbjörn meðfram störfum sínum fyrir Póst og síma og lét sig til við- bótar ekki muna um að vera með nokkrar rollur heima í Hraunprýði. En sennilega verður það ekkert af þessu sem hans verður lengst minnst fyrir heldur hitt hversu ein- stakur greiðamaður hann hefur ver- ið alla tíð. Hafi hann getað rétt ein- hverjum hjálparhönd hefur aldrei á því staðið nema gildar ástæður lægju til. Sjálfur gat ég ekki annað en kímt þegar ég frétti af þvi hvern- ig hann gat ekki neitað nágrönnum sínum og vinum um að afgreiða þá um áfengissendingar, þrátt fyi'ir að hann hafi alla tíð verið einstakur bindindismaður á vín og helst ekk- ert viljað af því vita. Taldi það lýta mannlífið en ekki prýða það. Það hugnaðist ekki manni eins og Svein- birni Benediktssyni. En þeirra þarf- ir voru ekki hans þarfir og hans ekki þeirra og hver varð að vera ábyrgur fyrir eigin lífi. Því brást honum ekki greiðasemin í því frem- ur en öðru. Sveinbjörn Benedikts- son skilur eftir sig djúp og merkileg spor í mannlífinu á Hellissandi og þeim sporum fylgir ekkert traðk þar sem á annarra hlut hefur verið gengið. Heldur hlaut hann af því skaða sjálfur ef því var að skipta. Eg sakna þein'a hjóna Svein- bjarnar og Ástu í Hraunprýði nú þegar þau eru komin inn í Stykkis- hólm. Gleðst þó yfir hvað þau una hag sínum þar vel. Ég held að það hafí verið sannmæli hjá Árna Helgasyni í Stykkishólmi þegar hann segir að ráðum þeirra feðga Benedikts og Sveinbjamar hafi mátt treysta, enda hafi Sveinbjörn verið allt í senn, tryggur, heiðarleg- ur og duglegur. Fleiri verða þessi orð ekki en ég vil nota tækifærið og senda Sveinbirni mínar innilegustu árnaðaróskir, Sandarar standa í þakkarskuld við hann. Megi Guð gefa þeim hjónum ánægjulegt ævi- kvöld og góða framtíð. Ólafur Jens Sigurðsson, Hellissandi. yiNNLENT Vetrarstarf Guðspeki- félagsins hafið AFMÆLI SVEINBJORN BENEDIKTSSON Sérstaða franskrar kvikmyndagerðar R A AUGLYSINGAR Félagsmenn í Samtökum iðnaðarins BateaBBvgpsRBBatiHBHBBBSasaanBsaE] athugið! Samtök iðnaðarins boða til kynningarfundar miðvikudaginn 7. október nk. um fyrirhugaðar breytingar á reglugerð Sameinaða lífeyrissjóðsins. Dagur: Miðvikudagur.7. október nk. Staíuu________Veislusalurinn Gullhamrar, Húsi iðnaðarins, Hallveigarstíg I ákl..8:30ti! 10:00. B jarniGuðmundsson, tryggi ngastærðfr. Jóhannes Siggeirsson, framkvæmdastjóri Félagsmenn eru eindregið hvattir til að mæta og kynna sér þær breytingar sem gera á, á reglugerð sjóðsins og hvaða þýðingu þær hafa á þá sjálfa og starfsmenn þeirra. 0) SAMTÖK IÐNAÐARINS HALLVEIGARSTlG 1 • PÓSTHÓLF 1450 • 121 REYKJAVlK SÍMI511 5555 • FAX 511 5566 • TÓLVUPÓSTUR mottaka@si.is UPPLÝSINGAVEFUR www.si.is Astma- og ofnæmisfélagið heldur félagsfund fimmtudaginn 8. okt. 1998 kl. 20.30 í Múlabæ, Ármúla 34. Efni fundarins: 1. Myndun stuðningshópa astma- og ofnæmis- fólks og aðstandenda þeirra. 2. Kosning fulltrúa á þing SÍBS. Kaffiveitingar. Mætum sem flest. Stjórnin. Aðalfundur Félag íslenskra fótaaðgerðafræðinga minnir félagsmenn sína á aðalfundinn, sem haldinn verðurað Hótel Sögu, þingsal B, laugardaginn 10. október nk. kl. 10.00 árdegis. Nýtt veggspjald verður kynnt og selt á fundinum. Félagar fjölmennum. Stjórnin. ÞJONUSTA Vantar — vantar — vantar Vegna mikillar eftirspurnar eftir leiguíbúðum vantar okkur flestar stærðir leiguíbúða á skrá. Með einu símtali er íbúðin komin á skrá hjá okkur og um leið ertu komin(n) í samband við fjölda leigjenda. Arangurinn mun ekki láta á sér standa og það besta er, að þetta er þér að kostnaðarlausu. II ■EIGI EIGULISTINN “"9 LEIGUMIÐLUN 511 1600 Skipholti 50B, 105 Reykjavík. KENNSLA Sölu- og þjónustunámskeiðið Gæðasala Námskeið þetta hentar þeim sem vilja ánægð- ari viðskiptavini, aukna sölu og hæfara starfs- fólk. Næstu námskeid: 7.-8. okt. Kvöldnámskeið. Fös. 9. okt. Heilsdagsnámskeið. Lau. 10. okt. Heilsdagsnámskeið. Fullbókað. 12, —13. okt. Kvöldnámskeið. Fullbókað. 15. —16. okt. Kvöldnámskeið. Skráning og upplýsingar um námskeiðið eru veittar í síma 561 3530 og 897 3167 SÖLUKENIUSLA GUIUIUARS ANDRA Einkaþjálfun • Námskeið • Ráðgjöf • Fyrirlestrar Við höfum sameiginlegt markmið - að þér gangi vel! SMAAUGLYSINGAR FÉLAGSLÍF □ EDDA 5998100619 I 1 Atkv. □ Hlín 5998100619 VI 2 □ FJÖLNIR 5998100619 III Aðalstöðvar KFUM og KFUK. Holtavegi 28. Hádegisverðarfundur á morgun, miðvikudag, kl. 12.10. Ritningar- lestur og bæn: Sigurbjörn Þor- kelsson. Ársæll Aðalbergsson, formaður Vatnaskógar, flytur fréttir af starfinu þar. Um kl. 12.30 verður borin fram létt máltíð. Verð kr. 500,-. Allir velkomnir. I.O.O.F. Rb. 4 ■ II 3.h. 1481068 - 8V4 •rfv fr- — Aglow «sv/ “ kristið JvJ. kvennastarf Konur og karlar — verið öll hjart- anlega velkomin á hinn árlega herrafund Aglow I kvöld, 6. okt. kl. 20.00 í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58—60. Kaffi, söngur, hugvekja og fyrirbænir. Stjórn Aglow i Reykjavík. Aðaldeild KFUK. Holtavegi Fyrsti fundur vetrarins verður Vindáshlíð í kvöld. Brottför frá Holtavegi kl. 18.00 Prófessor Sigriður Halldórsdóttii fjallar um Ólafíu Jóhannsdóttur erindi sem hún kallar: „Að verc köllun sinni trú". Stjórnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.