Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 54
♦ 54 ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Talað er fagurlega en framkvæmt bagalega Frá Sigurbjarti Jóhannessyni: MIKIÐ hefur verið rætt um nýt- ingu auðlinda okkar á undanförnum árum og er það vel. I þessu hefur sitt sýnst hverjum og er það ekki að undra svo miklir hagsmunir sem eru í veði. Hafa þá mest verið uppi tvö sjónarmið hvað varðar sjávar- nytjar. Það er annarsvegar sjónar- mið sægreifa, sem vilja ganga í auð- Iindir sjávar án bóta, og hinsvegar sjónarmið fólksins í landinu sem vill hafa nokkuð fyrir snúð sinn. Undan- farið hafa stjórnmálasamtök í land- inu lýst hug sínum í þessu máli og eru línur nokkuð skýrar milli stjórnar landsins og stjórnarand- stæðinga, með fáum undantekning- um þó sem litlu skipta. Þar sem flestir stjórnarandstæðingar styðja sjónarmið fólksins virðist það ein- sýnt að eftir næstu kosningar muni sjónarmið sægreifa verða undir á þingi og gjald verði tekið fyrir nýt- ingu auðlinda sjávar. Fjármagn það sem þannig mun á næstu árum streyma inn í sjóði al- mennings, líka sægreifa, mun verða langþráð lyftistöng í velferðarkerf- inu sem að undanfornu hefur liðið fyrir þröngsýn sjónarmið hags- munahópa. Það skal undirstrikað að þessu fjármagni verði ekki úthlutað til einstaklinga, eins og sumir telja vænlegast, heldur verði það notað til að bæta heilbrígðiskerflð og al- mennatryggingakerfið, mennta- kerfíð, umhverfísmálin og þar með vegakerfið og til lækkunar á skött- um. Á þessu er mikil þörf sem hægt er að færa rök að. I heilbrigðiskerfinu standa heilar deildir sjúkrahúsa ónýttar og sár- þjáðir sjúklingar bíða í löngum röð- um eftir sjúkravist og heilbrigðis- stéttir flýja land. Almannatrygging- ar greiða elli- og örorkubætur sem nægja ekki fyrir nauðþurftum, elli- styrkur er kr. 15.123 svo dæmi sé tekið. Menntakerfið getur ekki boðið menntunarþyrstum ungmennum upp á sómasamlega fræðslu. Stór hluti kennara fer aldrei í kennslu að loknu dýru námi vegna lágra launa og slæms aðbúnaðar í skólum. Aldrei hafa fleiri leiðbeinendur ver- ið starfandi í menntakerfinu að sögn menntamálaráðuneytisins. Án þess að ráða nokkuð við hlutina. Endurmenntun bæði kennara og annarra sem hafa lagt á sig nám er í molum. Af þessu hlýst að í mörgum fögum, þar með taldir skólar lands- ins, er fólk með aldraða menntun. Umhverfismálin í öngþveiti, talað er fagurlega en framkvæmt bagalega, of mikið mál til að telja upp í stuttu máli. Vegamálin eru kafli út af fyrir sig, einfaidlega vanþróuð. Innan við 30% vegakerfisins er með bundnu slitlagi. Svokölluð vanþróunarvið- miðun Sameinuðu þjóðanna er hærri. Allir þessir þættir eru sveltir og margir fleiri, svo sægreifar geti matað krókinn. Á sama tíma eru launamenn skattpíndir undir drep, til að hægt sé að borga skuidir þeirra. Já, launamenn, því aðrir virðast ekki þurfa að borga skatta, þess vegna verður að leggja niður tekjuskattinn, að minnsta kosti á einstaklinga. Öðru vísi er ekki hægt að bjarga stórum hluta þjóðarinnar frá þessari ósvinnu sem undanskot frá skatti er. SIGURBJARTUR JÓHANNESSON, Víghólastíg 24, Kópavogi. Ferdinand Smáfólk i ANOTHER ROOT 3EER FOR MY BROTHER 5PIKE, 5'ILVOUS PLAIT.. , I HAP A 6IRL FRIEND BACK HOME, 6UT 5HE'5 5T0PPEP WRITIN6T0ME. Annan rótarbjór fyrir Sám Ég átti kærustu heima, en Skál fyrir öllum kærust- Svei! bróður minn, viltu gjöra svo hún er hætt að skrifa mér ... unum sem skrifa okkur vel ekki lengur ... Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Nýbýlavegi 30, (Dalbrekkumegin), sími 554 6300. www.mira.is Unifilla - SPARTL ÞÆGILEGAR UMBÚÐIR FYRIR SPAÐA ÞURRT EFTIR 30 MÍN. ÁRVÍK ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.