Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 06.10.1998, Blaðsíða 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 6. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Sigurður Smári og Hálfdán Guðrún Snædal Skapandi unglingar skemmta sér saman MIKIÐ var um að vera á Sel- tjamamesinu um helgina þeg- ar unglingar frá félagsmið- stöðvum hvaðanæva af land- inu hittust á Landsmóti Sam- fés. í Valhúsaskóla ómuðu glaðlegar raddir og allir voru * á þönum, enda mikið að gera í fjölmörgum smiðjum sem starfræktar vom á laugardag- inn. Saman voru komnir 220 unglingar og ekki annað að sjá en allir skemmtu sér hið besta og ynnu verkefni sín af miklum áhuga. Hægt var að velja um mismunandi smiðjur eftir áhugasviði hvers og eins, en reynt var þó að láta aðeins einn úr hverri félagsmiðstöð vera í hverri smiðju. Valið stóð á milli spray-smiðju, fréttasmiðju, útvarpssmiðju, listasmiðju, heimasíðusmiðju, útivistarsmiðju, íþrótta- smiðju, hljóðfærasmiðju, fata- _ hönnunarsmiðju og stutt- myndasmiðju. Stuttmynd um einsemd I salnum við anddyri skól- ans voru krakkar í óða önn að gera stuttmyndir, og mátti sjá nokkra sem munduðu mynd- bandsupptökuvélar á meðan aðrir léku hlutverk. Aðal- steinn Már Gunnarsson, Sveinn Atli Jónsson frá Bú- stöðum og Helga Hrönn Þórð- ardóttir frá Akureyri voru á - - ferli með upptökuvélina. „Við erum að gera mynd um ein- semd, segir Sveinn Atli, „og ég leik einstæðinginn." „Við reynum að sýna hvernig hann er aldrei inni í hópnum og ailtaf einn að þvælast," segir Helga, og bætir við að hún haldi að myndin verði sýnd um kvöldið á baliinu. í fréttum er þetta helst... I fréttasmiðjunni voru Marsibil frá Blönduósi og As- laug frá Akureyri í óða önn að útbúa veggspjald. „Við skipt- um þessu niður í hópa, ljós- myndara og fréttamenn. Við fórum tvö og tvö saman og tók- um myndir af öllum sem við síðan setjum saman á vegg- spjald með viðtölum við krakk- ana. Veggspjöldin verða hengd hérna upp fyrir kvöldið,“ segir Marsibil. Stelpurnar voru mjög ánægðar með mótið og sögðu að þær hefðu til dæmis ekkert þekkst fyrir mótið en vasru orðnar bestu vinkonur. I danssmiðjunni voru ung- lingar á fleygiferð að æfa dans- atriði fyrir kvöldið og í mynd- listarsmiðjunni var gríðarmik- ill skúlptúr í sköpun þar sem notast var við ýmis lífræn efni eins og trjágreinar og fleira. Iþrótta- og útivistarhópamir voru allir úti við í góða veðrinu að sinna sínum áhugamálum, en allir voru spenntir íyrir að hittast á ballinu um kvöldið og frétta hvað hinh- hefðu verið að gera um daginn. Markmiðið að kynnast og auka tengslin Margrét Sigurðardóttir er forstöðumaður Selsins á Sel- tjamarnesi, sem er staðar- haldari landsmótsins að þessu sinni. „Við höfum haldið svona mót í nokkur ár, og landsmótsnefnd undirbýr mótin, en í henni era bæði starfsfólk félagsmiðstöðva og unglingar, ásamt staðarhald- ara. Markmiðið með lands- mótinu er að krakkarnir kynnist hver öðrum, örva tengslin milli félagsmiðstöðv- anna og bæta í hugmynda- bankann. Það er misjafnt hvað krakkamir eru að gera í hverri félagsmiðstöð fyrir sig og þess vegna gott að hittast, kynnast öðram krökkum, fá nýjar hugmyndir og kynnast öðrum vinnubrögðum," segir Margrét. Morgunblaðið/Kristinn ►GUÐRÚN Sædal Björgvinsdóttir frá Fjörheimum í Njarðvík sat við litríkt verk sem hún var að vinna að. Hún segir að þetta sé í fyrsta skipti sem hún prófar að máia með spray-brúsa. „Mér finnst þetta mjög gaman,“ sagði Guðrún, en sagðist þó efast um að hún myndi nota þekkinguna til að búa til myndir til að hengja upp í herberginu sínu. „En það er gaman að kynnast þessu,“ segir hún, „og búið að vera mjög skemmtilegt hérna í dag.“ „Þetta er mjög flott mynd hjá Guðrúnu," segir einn aðstoðarmaðurinn í smiðj- unni. „Það er eins og hún sé alvön.“ Morgunblaðið/Kristínn ►SIGURÐUR Smári Sigurðsson frá Þróttheimum í Reykjavík og Hálfdán Þorsteinsson, starfsmaður Vitans í Hafnarfirði, grúfðu sig yfir tölvuskjáinn í Heimasíðusmiðjunni. „Við erum að gera heimasíðu fyrir Samfés 1998 um það sem er að gerast hérna um helgina," segir Hálfdán. „Við setjum inn myndir frá smiðjunum og segjum smávegis frá því hvað hver smiðja er að gera,“ segir Sigurður, sem segist vera vanur maður því hann hafi gert sína eigin heimasíðu. „Eg fékk tölvu fyrir tveimur árum og þá byrjaði ég að prófa mig áfram og fannst það mjög skemmtilegt. Við erum níu sem erum að vinna að heimasíðunni núna fyrir mótið,“ segir hann og bætir við að mikil vinna fari í að gera heimasíðu ef hún á að vera góð.“ Hálfdán segir að heimasfðusmiðjan sé í samstarfi við fréttasmiðjuna. „Þau eru búin að skrifa greinar um hvað er að gerast og við höfum si'ðan sett það inn á netið. Það hefúr gengið mjög vel hjá hópnum að vinna saman,“ segir Hálfdán og segir það frábæra hugmynd að hafa aðeins einn úr hverri félagsmiðstöð í hópunum, því þá kynnast þau nýjum krökkum og „vinaklíkurnar" leysast upp. BÁRA, Ragnar, Guðjón, Atli, Stef- án, Tinna og Björg- vin skemmtu sér konunglega. Morgunblaðið/Jón Svavarsson ►TÍSKUSÝNING var um kvöldið á fötum sem hönnuð voru fyrr um dag- inn. Morgunblaðið/Kristinn ►f SPRAY-smiðjunni fyrir vana menn leiðbeinir Toggi, Þorgeir Frímann Óðinsson, en verið er að skreyta undirgöng sem liggja frá Eiðistorgi. „Ég er myndlistarnemi og hef gert margar veggmyndir. Ég fór út á vegum Samfés til Vínarborgar, en þar var í gangi samnorrænt verkefni gegn mismunun á minnihlutahópum. Þar var graffiti-smiðja sem ég sótti og þess vegna er ég núna að vinna með þeim sem eru í spray-smiðjunni.“ Toggi segir að þessi málunaraðferð geti gengið á hvað sem er og geri lífið bara litríkara. „Ég mála veggi, borð og kló- settskálar og ýmislegt heima hjá vinum mínum,“ segir hann. „Sjáðu til dæmis þennan undirgang hérna. Veggjunum er skipt upp í fleti, og hérna labba krakkarnir í gegn nær daglega á leiðinni í skólann, á meðan fullorðna fólkið keyrir bara yfir í bflum. Krakkarnir hafa gaman af þessu, og mér finnst þau eiga alveg jafn mikið tilkall til þessara veggja og aðrir. Það er ekki eins og þetta skaði neinn. Það er alveg upplagt að hafa hér skreytingu til að lífga upp á umhverfið. “ Morgunblaðið/Kristinn ►FRÁ LEIKLISTARSMIÐJUNNI bárust óbóta- skammir. „...Það er ekki nóg með að þú sért að líkja manni við sauðfé..." Anna Margret Sigurðardóttir og Gréta Björg Jakobsdóttir koma báðar frá Skjóli á Blönduósi. Hvað gekk eiginlega þarna á? „Við vor- um í spunaverkefni sem á sér stað í fataverslun. Anna Margret átti að reyna að selja mér skó en um leið áttum við að móðga hvor aðra,“ segir Gréta. „Við finnum upp á öllum munnsöfnuðinum sjálfar,“ segja þær í kór og skellihlæja. „Við vorum svolítið seinar að velja, og þess vegna lentum við saman í hóp,“ segir Anna. „Þetta er alveg frábært. Hún Linda Sif er alveg æðisleg sem er með leiklist- arsmiðjuna," segir Gréta. Þetta er í fyrsta skipti sem Anna Margret prófar að leika, en Gréta lék húsa- músina í Dýrunum í Hálsaskógi og aukahlutverk í Atómstöðinni, leikritum sem sýnd voru á Blönduósi. „Við komum fimm frá Blönduósi og umsjónarmað- ur,“ segja stelpumar, sem segjast mest hafa kynnst krökkunum í leiklistarsmiðjunni og hlakka mikið til að fara á ballið um kvöldið og kynnast fleirum. I Morgunblaðið/Kristinn ►KATLA Ásgeirsdóttir frá Bústöðum lagar hér kjól sem hún sýnir auk þess að hafa hannað ásamt öðrum stelpum í fatahönnunarsmiðjunni. „Þegar við fórum að skoða efnin, og sáum köflótta efnið, datt okkur í hug að búa til svona kjól.“ Eins og sjá má á myndinni er heljarmikið höfuðfat við kjólinn sem minnir einna helst á íslenska skautbúninginn í nýrri útfærslu. í það minnsta er eitthvað þjóðlegt við samsetninguna. Katla segist aldrei áður hafa hannað föt, og ekki mikið saumað nema í skólan- um. „Kannski einn og einn bol, en ekkert annað,“ segir hún og brosir. Vala Valdimars frá Akureyri var einnig í fatahönnunarsmiðjunni og sagði að það væri geðveikt gaman. „Minn hópur er búinn að hanna tvo kjóla, og síðan verðum við með tískusýn- ingu í kvöld á bailinu. Kjóllinn sem við hönnuðum er með vírpilsi og svo notum við líka álpappír og net. Rosalega sérstakur,“ segir Vala, sem segist þó ekki viss hvort hún leggi fatahönnunina fyrir sig í framtíðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.