Morgunblaðið - 07.10.1998, Page 2

Morgunblaðið - 07.10.1998, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Evrópusambandið krefst viðræðna um þróunarsjóð Barnaspítali Hringsins Spánn hótar að teíja Schengenaðild EVRÓPUSAMBANDIÐ fór fram á það á ráðherrafundi ríkja Evrópska efnahagssvæðisins í Lúxemborg í gær að EFTA-ríkin héldu áfram að greiða fé í þróunarsjóð, sem styrkt hefur fátækari svæði innan ESB. Þetta er gert að kröfu Spánverja, sem hóta að tefja hagsmunamál EFTA-ríkjanna á borð við aðild ís- lands og Noregs að Schengen-vega- bréfasamstarfínu, aðild ríkjanna að Lyfjastofnun Evrópu í London og þátttöku þeirra í fimmtu rammaáætlun ESB um rannsóknir og þróun. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins sýndu önnur ríki ESB sjón- armiðum Islands og Noregs tals- verðan skilning en fengust þó ekki til annars en að styðja kröfu Spánverja, enda er ákveðin hefð fyrir því innan ESB að styðja þannig hagsmunamál einstakra ríkja, gangi þau ekki gegn hagsmunum annarra. I drögum að ályktun fundarins hafði verið gert ráð fyrir jákvæðum ummælum um að flýta þyrfti viðræð- um við Island og Noreg um aðild þeirra að Schengen, stefna þyrfti að aðild ríkjanna að Lyfjastofnuninni sem fyrst og tryggja að ekki yrði hlé á aðild þeirra að rannsókna- og þróunarsamstarfi ESB þegar svokölluð fimmta rammaáætlun tek- ur við af þeirri fjórðu. Allt þetta fengu Spánverjar fellt út úr ályktun- inni. Niðurstaða málsins varð sú að bæði ESB og EFTA vilja ræða um áframhaldandi stuðning EFTA til að ,jafna efnahagslegt misræmi" á Evr- ópska efnahagssvæðinu. EFTA-ríkin gera það hins vegar að skilyrði að núverandi þróunarsjóði verði lokað, en segjast opin fyrir öðrum leiðum til að ná þessu markmiði, einkum í tengslum við íyrirhugaða stækkun sambandsins til austurs. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins er ekki búizt við að afstaða Spánverja komi í veg fyrir að viðræður við Island og Noreg um aðild þeirra að Schengen hefjist síð- ar í mánuðinum. Næst þegar samn- ingamenn þurfa að bera stöðu máls- ins undir aðildarríki ESB gæti hins vegar komið babb í bátinn. Fyrri áfangi boð- inn út næstu daga UTBOÐ vegna framkvæmda við nýjan bamaspítala Hringsins á Landspítalalóð í Reykjavík verður auglýst á næstu dögum og er ráð- gert að byggingin verði orðin fok- held og fullbúin að utan á næsta ári. Verða veittar tæplega 400 milljónir króna til þessa fyrsta áfanga. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra sagði að nú þegar fyrir lægi samkomulag milli Reykjavíkur- borgar og ríkisstjórnar um flutning á Hringbraut væri hægt að hefjast handa af fullum krafti. Með flutningi Hringbrautar skapast betra athafn- rými á Landspítalalóðinni. Teikn- ingar voru tilbúnar í maí en beðið hefur verið byggingaleyfis frá borg- inni sem nú er fengið. Heildar- kostnaður er áætlaður á bilinu 800 til 1.000 milljónir króna og segir ráðherrann að ríkisstjórnin hafi tryggt áframhaldandi fjármögnun þannig að taka megi spítalann í notkun ekki síðar en árið 2001. I fyrsta áfanga verður annars vegar boðinn út grunnur byggingar- innar og síðan uppsteypa. Er stefnt að því að auglýsa útboð á næstu dögum og að fyrsta áfanga ljúki á næsta ári. Þá yrði síðari áfanginn boðinn út. I samkomulagi borgar og ríkis vegna flutnings Hringbrautar kem- ur fram að verkið er talið kosta kringum 580 milljónir króna. Hring- brautin verður færð á kaflanum frá Miklatúni að enda Tjarnarinnar. Verður hún sex akreinar á þessum kafla með mislægum gatnamótum þar sem hún sker Bústaðaveg og Snorrabraut. Lögleiðing EES-reglna Islenzkum regl- um ekki fylgt NEFND á vegum forsætisráðherra telur verulega annmarka á því að meginreglum íslenzkrar stjórnskip- unar hafi verið fylgt við að leiða reglur Evrópska efnahagssvæðisins í íslenzkan rétt. Nefndin telur fjár- og mannaflaskort í ráðuneytum eina ástæðu þessa, þótt í ýmsum til- vikum hafi hið smáa íslenzka stjóm- kerfi fengið miklu áorkað miðað við aðstæður. í skýrslu nefndarinnar, sem kynnt var í gær, segir að ekki hafi ávallt verið hugað nægilega að því hvort í settum lögum sé að finna efnislegar heimildir til að setja stjómvaldsfyrirmæli, sem skerði frelsi eða innihaldi almennar réttar- reglur sem snúi að borgurunum. Þá segir nefndin að finna megi dæmi um að lögleiddar hafi verið hér á landi reglur, sem bindi hendur ís- lendinga, án þess að jafnframt hafi verið lögleiddar þær undanþágur, sem gildi á EES. Óþarflega miklar takmarkanir séu settar á athafna- frelsi íslenzkra borgara og íslenzk stjómvöld séu þannig „kaþólskari en páfinn". Þá telur nefndin að við birtingu á fjölmörgum EES-gerðum hafi ekki verið farið að kröfum stjómarskrár og íslenzkra laga og að auglýsingar á gildistöku að þjóðarétti á breyt- ingum á viðaukum og bókunum við EES-samninginn hafi ekki átt sér stað svo sem ótvírætt sé skylt sam- kvæmt íslenzkum lögum. ■ Fijálsræði skert/33 Óhjákvæmileg^t verður að breyta kjördæmaskipaninni ÞINGMANNANEFND, sem skipuð var á síðasta ári til að gera tillögur um breytta kjördæmaskip- an og tilhögun kosninga til Alþingis, leggur til að kjördæmum verði fækkað úr átta í sex. Tillaga er gerð um að skipta Reykjavíkurkjördæmi og Reykjaneskjördæmi og til verði sex kjördæmi með 9-11 þingmönn- um. Friðrik Sophusson, alþingismað- ur og formaður nefndarinnar, sagði að allir stjórnmálaflokkar hefðu það á stefnuskrá sinni að draga úr því misvægi sem nú er á vægi atkvæða milli kjördæma. Flokkarnir hefðu sett fram ólíkar hugmyndir um hvemig ætti að ná þessu markmiði og því væri niðurstaða nefndarinnar málamiðlun milli sjónarmiða. Hann sagði ljóst að ef ætti að draga úr misvægi atkvæða væri óhjákvæmi- legt að breyta núverandi kjör- dæmaskipan. Það væri ekki hægt að ná þessu markmiði innan núver- andi kerfís. Tillagan fer til flokksformanna Þingflokkar á AJþingi hafa tví- vegis rætt hugmyndir nefndarinn- ar, en ekki liggur íyrir formlega af- staða flokkanna til tillagnanna. Friðrik sagði að nefndin legði til að tillögurnar færu nú til umfjöllunar hjá formönnum flokkanna og þeir kæmu sér saman um að leggja fram nauðsynleg lagafrumvörp. Drög að frumvörpum til breytinga á stjórn- skipunarlögum og til breytinga á lögum um kosningar til Alþingis íylgja skýrslu nefndarinnar. Friðrik sagði mikilvægt að frumvörpin kæmu fram sem fyrst á þingi svo nægur tími gæfist til að afgreiða þau fyrir þinglok. Nefndin gerir þá tillögu að Vest- urland, Vestfirðir og Húnavatns- sýslur verði sameinaðar í eitt kjör- dæmi. Skagafjörður, Siglufjörður, Norðurland eystra og Múlasýslur verði eitt kjördæmi. Þriðja lands- byggðarkjördæmið verði A-Skafta- fellssýsla, Suðurland og Suðurnes. Tillaga er gerð um að Reykjanes án Suðurnesja verði sjálfstætt kjör- dæmi. Þá er gerð tillaga um að Reykjavík verði skipt upp í tvö jafn- stór kjördæmi. ■ Fjórum núverandi/32 Morgunblaðið/Tómas Tómasson Endur- nýjun langt komin TURN Bessastaðakirkju var í gær hífður á sinn stað eftir að burðarvirki hans hafði verið end- urbyggt en þar voru viðir orðnir feysknir. Næst er að klæða hann og verður koparklæðning yst. Tómas Tómasson, verk- fræðingur hjá ístaki, sem sér um verkið segir að byijað hafí verið í lok júní og verklok séu áætluð í nóvember enda hafi endurnýjun turnsins reynst viðameiri en gert var ráð fyrir. Múrhúðun á veggj- um kirkjunnar hefur verið lag- færð og nú er verið að ljúka við að kústa hana hvíta á ný. í dag esieuii : 4 SÍDU ► VERIÐ fjallar í dag um mikla túnfiskveiði innan ís- lenzku landhelginnar. Það segir einnig frá erfiðu ástandi á mörkuðum fyrir sjávarafurðir í Asíu og Rúss- landi og skýrir frá aflabrögðum. Landslið \ Brynjar Björn, | Guðjón vill kvenna til • Helgi og Sig- • sigur ■ Tyrklands : urður í hópinn ; Armeníu ______ • __________ • ___________ ci • ci • cs Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.