Morgunblaðið - 07.10.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 15
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
HLUTI fundarmanna á morgunverðarfundi Stjórnunar-
félags Vestmannaeyja.
Vandamálið 2000
* T1 •
um
Vestmannaeyjum - Stjórnun-
arfélag Vestmannaeyja gekkst fyr-
ir morgunverðarfundi fyrir
skömmu þar sem tölvuvandamálið
árið 2000 var rætt. Vandamálið
snýr að tölvukerfum og tölvum sem
ekki gera ráð fyrir árinu 2000 í
kerfum sínum og geta afleiðingarn-
ar orðið verulega alvarlegar verði
ekki gerðar ráðstafanir til að
bregðast við því.
A fundinum var Hjalti Sölvason,
framkvæmdastjóri ráðgjafarsviðs
Nýherja, með framsögu þar sem
hann fór í gegnum vandamálið og
hvernig væri hægt að bregðast við
því. Fram kom hjá honum að
Nýherji hefði lagt mikla vinnu í að
þróa og staðfæra aðferðafræði sem
dygði íslenskum fyrirtækjum til að
glíma við 2000 vandann. Aðferða-
fræði þessi kallast ÁRNY og skipt-
ist hún í fimm þætti, stöðumat, for-
gangsröðun, verkáætlun, verkfram-
kvæmd og endurskoðun árið 2000.
Hann sagði að þjónusta þessi stæði
fyrirtækjum til boða og gætu menn
metið og valið um hvort þeir þyi-ftu
alla þættina eða einungis hluta
þeirra.
Morgunverðarfundurinn var vel
HJALTI Sölvason, framsögumað-
ur á morgunverðarfundinum.
sóttur og voru fundarmenn mjög
ánægðir með þetta framtak Stjórn-
unarfélagsins.
Hafnarsambandsþing
í Yestmannaeyjum
Vestmannaeyjum - Ársfundur Hafn-
ai-sambands sveitarfélaga ver hald-
inn í Vestmannaeyjum fyrir
skömmu. Þingið var fjölmennt en
meginviðfangsefni þess var umfjöll-
un um flutningaleiðir framtíðarinnar
og framtíðarskipan hafnarmála.
í ályktun fundarins um flutninga-
leiðirnar er því beint til samgöng-
uráðherra að mótuð verði stefna í
flutningamálum bæði á sjó og landi
og í framhaldi af því verði lögð fram
flutningaáætlun áranna 2000 til 2015.
I greinargei'ð með ályktuninni kem-
ur fram að kostnaður við rekstur og
uppbyggirigu hafnarmannavirkja sé
mikill en kostnaður við siglingaleiðir
lítill en aftur á móti sé kostnaður við
lagningu og viðhald vega gífurlegur.
Fram kom að tryggja þurfi jöfn
samkeppnisskilyrði flutningsmáta og
lögð var áhersla á að sjóflutningai’
væru umhverfisvænni en landflutn-
ingar. Fundurinn ályktaði að eðlilegt
væri að notendur greiddu eðlilega
kostnaðarhlutdeild í uppbyggingu og
rekstri samgöngumannvirkja en
slíkt hefði í fór með sér aukna sjó-
flutninga á kostnað landflutninga.
Varðandi framtíðarskipan hafnar-
mála ályktaði þingið að Hafnarsam-
bandið myndi hafa frumkvæði að því
að skipaður yrði nýr samráðshópur
samgönguráðuneytis og sambands-
ins sem vinna eigi tfllögur um
breytta skipan hafnarmála. I þeiiri
breyttu skipan verði haft að leiðar-
Ijósi að endurskoða yfirstjórn hafn-
armála og leikreglur um samskipti
ríkis og sveitarfélaga hvað varðar
fjármögnun framkvæmda og
ákvörðun gjaldskrár. Frelsi hafna í
gjaldskrármálum verði aukið með
það að markmiði að notendur greiði
stærra hlutfall kostnaðar við mann-
virkjagerð og þjónustu. Hafnir verði
flokkaðar eftir fjárhagslegri getu og
hafnargjöld ákveðin þannig að
stærri hafnh’ geti staðið undir
i'ekstri og nýframkvæmdum og sett-
ar verði reglur um hvernig styðja
skuli litlar hafnir sem ekki hafa tekj-
ur eða forsendur til að standa undir
rekstri eða nýframkvæmdum.
Ný stjóm Hafnarsambandsins var
kosin á þinginu en hana skipa Árni
Þór Sigurðsson, Reykjavík, sem er
formaður, Pétur Jóhannsson, Kefla-
vík, Halldór Jónsson, ísafirði, ísak
Ólafsson, Þórshöfn, Gísli Gíslason,
Akranesi, Brynjar Pálsson, Sauðár-
króki, Ólafur M. Kristinsson, Vest-
mannaeyjum, og Sturlaugur Þor-
steinsson, Höfn.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Norræn ráðstefna starfsfólks á meðferðarheimilum haldin í Hveragerði
Beiting þvingunar í með-
ferð og siðferði í starfi
Hrefna Svend Ejner
Friðriksdóttir Pejstrup
Hveragerði - Beiting þvingunar i
meðferð og siðferði í starfi var yfir-
skrift ráðstefnu sem lauk á Hótel
Örk um síðastliðna helgi. Ráðstefn-
an var haldin á vegum Samtaka
starfsfólks á sólarhrings- og með-
ferðarstofnunum fyrir börn og ung-
linga og sóttu hana um 160 fulltrúar
frá öllum Norðurlöndunum en þar
af voru um 60 íslendingar.
Fjölmargir aðilar fluttu fyririestra
á ráðstefnunni en einnig voru
haldnar þar málstofur um hin ýmsu
málefni er tengdust efni ráðstefn-
unnar.
Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni
voru Svend Ejner Pejstrup, skrif-
stofustjóri á félagsmálastofnuninni í
Frederiksborg, Anni Haugen,
félagsráðgjafi, en hún fjallaði í sínu
erindi um barnavernd hér á landi
fyrr og nú, Leif Anderson, sál-
fræðingur frá Svíþjóð, flutti fyrir-
lestur um þvingun í meðferð og
Hrefna Friðriksdóttir, lögfræðingur
á Barnavemdarstofu, fjallaði um
réttarstöðu barna og unglinga og
reglur um þvinganir.
I maí síðastliðnum kom út
skýrsla hér á landi um þvingun-
arráðstafanir á íslenskum meðferð-
arheimilum. Skýrslan var unnin að
frumkvæði félagsmálaráðherra.
Gerði Hrefna í máli sínu grein fyrir
helstu niðurstöðum hennar. „Það er
aldrei hægt að setja einhlítar regl-
ur um það hvað má og hvað ekki má
í meðferðinni. Meðferðarheimilin
eru sett upp því böm eiga rétt á
meðferð og samfélagið krefst þess
að meðferðin sé árangursrík og
varanleg. Á öllum meðferðarheimil-
unum er reynt að móta starfið
þannig að ekki þurfi að koma til
þvingana af neinu tagi en iðulega
þarf starfsfólk að
beita öllum ráðum til
að halda aga á heimil-
unum,“ sagði Hrefna.
íslensk lög standa
að mörgu leyti að baki
lögum annarra Norð-
urlanda á þessu sviði.
Engin lög eru til hér
um þvinganir á með-
ferðarheimilum. Að
sögn Hrefnu má al-
mennt segja að hér
gildi lögin um neyð-
arrétt/neyðarvöm á
þessum stöðum. „Það
þýðir að ef neyðará-
stand kemur upp þá
þarf starfsfólk að
stoppa það af með öllum ráðum og
til þess að það sé hægt þarf oft að
beita einhvers konar þvingunum.
Það hefur verið mjög erfitt fyrir
starfsfólk að fóta sig í þessum mál-
um því engar reglur hafa verið til.
Það er stórkostlegt að þessi ráð-
stefna skuli haldin nú því það er
nauðsynlegt að þeir sem sinna þess-
um málum ræði opið hvað felst í því
að veita börnum og unglingum með
mestu erfiðleikana meðferð."
Svend Ejner Pejstrup flutti fyr-
irlestur um siðfræði og faglegar
grundvallarreglur í starfinu. I máli
hans kom fram að í Frederiks-
borgaramti hafa starfsmenn í
þessum geira komið sér saman um
reglur er gilda fyrir allt starf á
meðferðarheimilunum. „Við leggj-
um áherslu á rétt barnsins og
reynum að líta á málin frá þeim
sjónarhóli. Hvernig myndum við
sjálf vilja láta koma fram við okk-
ur? Við göngum út frá því að börn
og unglingar eiga ekki að þurfa að
þola slæmar eða niðurlægjandi að-
gerðir. Auðvitað geta komið upp
tilfelli þar sem þvingun er nauð-
synleg en þá geta starfsmenn rætt
þau tilfelli út frá reglunum sem til
eru,“ sagði hann.
Félagsmálastofnunin í
Frederiksborg hefur gefið út
bæklinga sem kynna reglurnar og
gera bæði foreldrum og börnum
grein fyrir rétti sinum. Svend lagði
áherslu á að siðferðileg sjónarmið
mættu ekki falla í skuggann af hin-
um faglegu og mikilvægt væri að
starfsfólk ræddi sín á milli um regl-
ur sem þessar því að erfitt væri að
gera þær einhlítar og alltaf kæmu
upp mál sem erfitt væri að setja á
ákveðinn bás.
Utför
Þórðar
í Haga
Skorradal - Hinn 102 ára gamli
heiðursmaður, Þórður bóndi
Runólfsson, Haga í Skorradal,
var kvaddur frá Hallgrímskirkju
í Saurbæ laugardaginn 3.
október sl. í fegursta veðri.
Prestur var sr. Kristinn Jens
Sigþórsson. Organisti Kristjana
Höskuldsdóttir. Kór Leirár- og
Saurbæjarsóknar söng. Að
greftrun lokinni var boðið til
erfidrykkju að Hlöðum.
Ofeymum ekkí geðsjúkum
Kiwanishreylingin
www.mbl l.is