Morgunblaðið - 07.10.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 19
ERLENT
Watergate-málið 1974 - kynlifsmál Clintons 1998
Fylkingarnar hafa
haft hlutverkaskipti
DÓMSMÁLANEFND fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings kom saman
til fundar 31. janúar árið 1974 og
samþykkti þá einróma að leggja til
við deildina, að hafm yrði rannsókn
á því hvort rétt væri að ákæra Ric-
hard M. Nixon, forseta Bandaríkj-
anna, vegna Watergate-málsins með
það fyrir augum að svipta hann
embætti. í annað sinn á þessari öld
komst dómsmálanefndin að svipaðri
niðurstöðu á fundi sínum í fyrradag
en að þessu sinni vegna þeirra saka,
sem bornar hafa verið á Bill Clinton.
Þessum tveimur málum, Wa-
tergate-málinu og kynlífsmálum
Clintons, er oft jafnað saman en það
er margt, sem greinir þau að. Tilefn-
ið er að sjálfsögðu gjörólíkt og af-
staða þingmanna 1974 fór ekki jafn
nákvæmlega eftir flokkslínum og
hún gerir nú. A þessum tíma var
Peter Rodino nýtekinn við sem for-
maður dómsmálanefndarinnar og
margir efuðust um, að hann væri
fær um að takast á við það erfiða
verkefni, sem Watergate-málið var.
Hann skilaði því samt vel og Charles
Rangel, demókrati frá New York og
annar tveggja manna, sem enn eru
fulltrúadeildarþingmenn og sátu í
dómsmálanefndinni 1974, segir, að
nefndarmenn hafí verið „mjög
ábyrgir í afstöðu sinni“.
Engin samstaða 1974
Charles Wiggins, fyrrverandi
þingmaður fyrir repúblikana í Kali-
forníu og einn nefndarmanna, er þó
RICHARD Nixon er hann
kvaddi Hvíta húsið 9. ágúst
1974, daginn eftir afsögn hans.
ekki sammála því, að einhver „sam-
staða“ hafí verið með þingmönnum
flokkanna 1974. í meginatriðum hafi
afstaða þeirra farið eftir flokkslínum
en þó ekki með jafn afgerandi hætti
og nú.
Auk Rangels er hinn fulltrúa-
deildarþingmaðurinn John Conyers,
demókrati frá Michigan, og hann á
raunar enn sæti í dómsmálanefnd-
inni. Þrír nefndarmannanna 1974
fóru síðar í öldungadeildina,
demókratinn Paul Sarbanes og
repúblikanarnir Trent Lott og Willi-
am Cohen. Lott er nú leiðtogi
repúblikana í öldungadeildinni en
Cohen varnarmálaráðherra í stjórn
Clintons.
Umræðurnar nú um hugsanlega
ákæru á hendur Clinton minna um
margt á umræðurnar 1974. Þá sagði
Lott, að forseta ætti ekki að víkja úr
embætti nema fyrir „mjög alvarleg
afbrot, sem gætu reynst hættuleg
bandaríska stjórnkerfinu" en ekki
fyrir „ótilhlýðilega hegðun". í síð-
ustu viku sagði hann, að „óviður-
kvæmilegt framferði" væri næg
ástæða. Conyers vildi 1974, að
rannsóknin á Watergate-málinu yrði
„umfangsmikil og ótímabundin" en
nú vill hann „tímabundna og tak-
markaða rannsókn".
Repúblikanar, sem voru í minni-
hluta á þingi 1974, fengu þá aðeins 12
menn af þeim rúmlega 130, sem unnu
að rannsókninni á Watergate-málinu,
en demókratar hafa nú þriðjunginn
af miklu fámennara starfsliði. Einn
af þeim lögfræðingum, sem
demókratar fengu til liðs við sig 1974,
þá nýkominn úr skóla, var kona að
nafni Hillary Rodham, 26 ára gömul.
Vann hún mikið að málinu þótt hún
kæmi ekki að neinni ákvarðanatöku
og ári síðar giftist hún Bill Clinton.
Ekki Watergate
heldur framhjáhald
Stuðningsmenn Clintons benda á,
að málið gegn Nixon hafi meðal ann-
ars falið í sér misnotkun á band-
arísku alríkislögreglunni, FBI, og
leyniþjónustunni, CIA,; í því að
múta mönnum til að þegja og í ólög-
Reuters
DÓMSMALANEFND fulltrúadeildarinnar á fundi í fyrradag en þá
ákvað hún að hefja rannsókn á því hvort ástæða sé til að ákæra Clint-
on fyrir embættisafglöp. Málverkið til vinstri er af Peter Rodino, for-
manni nefndarinnar 1974. Hitt er af Henry Hyde, núverandi formanni.
legum innbrotum. Málið gegn Clint-
on snúist ekki um neitt „Waterga-
te“, heldur framhjáhald.
Andstæðingar Clintons segja aft-
ur á móti, að málið snúist um það, að
forsetinn hafí logið eiðsvarinn og
reynt að hindra framgang réttvísinn-
ar. Fyrir það verði að refsa honum.
Ekki kom til þess, að Band-
aríkjaþing greiddi um það atkvæði
hvort víkja bæri Nixon því að hann
sagði af sér áður. Fyrir utan Wa-
tergate-málið og Clinton-málin nú
er aðeins um eitt annað slíkt mál að
ræða í sögu þingsins. Þar var árið
1868, skömmu eftir að borgarastyrj-
öldinni í Bandaríkjunum lauk, en þá
samþykkti fulltrúadeildin að höfða
mál á hendur Andrew Johnson for-
seta en í öldungadeildinni var það
fellt og munaði aðeins einu atkvæði.
(Heimildir: Reuters, The New Yofk Times)
Bensíntár
„Það sem betra er, orkuspamaður (Sirion) er nógu mikill
til að fjármálaráðherra felli tár!"
(What Car, september 1998)
Daihatsu Sirion
„Með öðrum orðum, þér nægir ekkert minna en dísilbíll
- og það einstaklega spameytinn dísilbíll -
ef þú ætlar að eyða minni peningum í eldsneyti"
(Autocar, 22. júlí 1998)
Vélin í Sirion nýtir eldsneytið betur og skilar hreinni bruna en þekkst hefur
í sambærilegum bensínvélum. Samkvæmt Evrópustaðli fer eyðslan niður
í 4,9 lítra á hundraði með beinskiptingu og 5,5 lítra með sjálfskiptingu. 'i
oð
Beinskiptur frá kr. 988.000. Sjáifskiptur frá kr. 1.038.000 í
BRIMBORG
Faxafeni 8 • Sími 515 7010
Brimborg-Þórshamar Bílasala Keflavíkur Bíley Betri bílasalan Tvisturinn
Tryggvabraut 5 • Akureyri Hafnargötu 90 • Reykjanesbæ Búðareyri 33 • Reyðarfirði Hrísmýri 2a • Selfossi Faxastig 36 • Vestmannaeyjum
Sími 462 2700 Sfmi 421 4444 Sími 474 1453 Sfmi 482 3100 Sfmi 481 3141
3 ára ábyrgð
DAIHATSU
fínn í rekstri