Morgunblaðið - 07.10.1998, Side 23

Morgunblaðið - 07.10.1998, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 23 Vísindalegar hóp- |§j||p rannsóknir Hjartavernda ar Fjöldi skoðana Karlar Konur Hóprannsókn Hjartaverndar á Reykjavíkursvæðinu 18.903 17.061 Öldrunarrannsókn á Reykjavíkursvæðinu Aðrar hóprannsóknir á Reykjavíkursvæðinu "Ungt fólk" í Reykjavík Árnessýsla MONICA-rannsókn Aðrar rannsóknir Hjartaverndar Rannsóknir utan Reykjavfkur Rannsóknir fólks utan hópskoðana ALLS 934 414 1.596 875 1.211 118 1.764 802 3.193 3.389 3.709 3.677 29.917 20.994 59.441 49.016 HeimUd: Hjartavernd Danarvottorð um safnað í rúm 80 ár DÁNAROSRAKIR eru tilgreindar á dánar- vottoröum. Á Þjódskjalasafni eru vardveitt dánarvottord íslendinga frá þvi á sídustu öld og fram til ársins 1916. „Um það bil 850 at- riði eru skráð um hvern einstakling í hóprannsókninni, samtals þannig um 25 milljónir atriða“ sýna sem samtökin búa yfir. Upp- lýsinganna er aflað meðal einstak- linga sem koma til rannsókna hjá Hjartavernd og er þeirra undan- tekningalaust aflað með upplýstu samþykki þeirra. Einstaklingar sem gefa t.d. blóð til rannsókna skrifa undir sérstaka yfirlýsingu um að nota megi það til erfðafræðilegra rannsókna en jafnframt geta þeir hvenær sem er farið fram á að sýn- unum verði eytt. Skv. upplýsingum sem fengust hjá Hjartavernd hefur þess alla tíð verið gætt að tryggja nafnleynd við- komandi einstaklinga í gagnasafni Hjartaverndar. Allar niðurstöður hóprannsóknarinnar hafa verið tölvuskráðar og sjúkrasaga einstak- linganna færð á tölvur frá upphafí. Eru þær því líklega íyrstu tölvu- skráðu sjúkraskýrslur landsins. I öllum erfðarannsóknum sem fram fara á vegum Hjai-taverndar eru nöfn einstaklinga dulrituð. Aldrei á að vera hægt að tengja erfðamörk tilteknum einstaklingum. Hins vegar eru sjúkraskrár Hjarta- verndar ekki dulkóðaðar frekar en á sjúkrahúsum landsins. Ætla má að 40-50 þúsund einstak- lingar hafí tekið þátt í rannsóknum Hjartaverndar á síðastliðnum þrem- ur áratugum. Þar fyrir utan fara fram svokallaðar þjónusturannsókn- ir hjá Hjartavernd á einstaklingum sem koma inn til rannsókna en þeim upplýsingum er haldið íyrir utan gagnagrunna Hjartaverndar. Samstarf vid íslenska erfdagreiningu Hjartavernd rekur eigin rann- sóknarstofu þar sem stundaðar eru erfðarannsóknir en Hjartavernd á einnig samvinnu við fjölmarga aðila um vísindarannsóknir, m.a. við Há- skólann og gerður var samningur á síðastliðnum vetri við Islenska erfðagi-einingu um tilteknar rann- sóknir. Samningur Hjartverndar við ÍE fjallar um erfðarannsóknir sem eru nýhafnar á ákveðnum sjúkdóma- flokkum, sem þessir aðilar vinna í sameiningu. Islensk erfðagreining fær ekki beinan aðgang að gagna- banka Hjartaverndar heldur eru all- ar upplýsingar meðhöndlaðar hjá Hjartavernd. Skv. upplýsingum Hjartaverndar eru eingöngu send erfðasýni til íslenskrar erfðagrein- ingar þar sem er merkt hvort það ber viðkomandi sjúkdóm eða ekki. Eru þessar upplýsingar dulkóðaðar samkvæmt dulkóðunarkerfi Tölvu- nefndar. Hefur Hjartavernd alltaf sett það skilyrði gagnart samstarfs- aðilum að upplýsingar um einstak- linga fara ekki út til samvinnuaðila um rannsóknir. Tilsjónarmenn hafa einir adgang aö greiningarlykli Þegar Hjartavernd vinnur að ákveðnum erfðarannsóknum í sam- starfí við IE er íyrst sent bréf til ákveðinna einstaklinga, sem hafa greinst með tiltekna sjúkdóma vegna áhuga á að rannsaka ættar- tengsl þeirra. Er þeim boðið að taka þátt í rannsókninni og lýst er hvern- ig slík rannsókn muni fara fram. 011 persónuauðkenni eru dulrituð og þvínæst fer fram leit til samanburð- ar í dulrituðum ættargögnum ÍE. Upplýsingar um ættmenni eru þessu næst sendar til baka dulritað- ar og hafa tilsjónarmenn Tölvu- nefndar einir aðgang að greiningar- lyklunum og sjá þeir um að afkóða gögnin hjá Hjartavernd. Þar með er orðinn til nafnalisti yfir ættingja umræddra sjúklinga sem boðið er að taka þátt í umræddri erfðarannsókn og gefa sýni. Jafnframt er rann- sókninni lýst ítarlega og ef viðkom- andi samþykkir að taka þátt, undir- ritar hann sérstaka yfirlýsingu þess efnis og gefur þar með upplýst sam- þykki sitt. Hafni hann þátttöku er öllum gögnum um hann eytt. LÆKNAR útfylla dánarvottorð, sem síðan berast til Hagstofu Is- lands og þar eru þau varðveitt í dán- armeinaskrá. A dánar- vottorðum er að finna upplýsingar um dánaror- sakir og sjúkdóma hina látnu og er algengt að læknar og aðrir vísinda- menn á heilbrigðissviði fái leyfi Tölvunefndar til aðgangs að þessum gögnum vegna erfðafræðilegra rann- sókna ef rekja þarf ættmennatengsl. A Hagstofunni eru varðveitt öll TRYGGINGASTOFNUN ríkisins (TR) berst mikill fjöldi pappírsgagna sem innihalda heilbrigðisupplýsingar um sjúklinga, samkvæmt upplýsing- um Kristjáns Guðjónssonar, deildar- stjóra sjúkratryggingadeildar TR. Skipta má þessum upplýs- ingum í þrennt. I fyrsta lagi er um að ræða reikninga sem heilsugæslulæknar senda stofn- uninni en á þeim koma eingöngu fram upplýsingar um að tilteknir sjúklingar hafi komið til læknis. Stofnuninni berast einnig ýmsar heilsufarsupplýsingar m.a. um sjúk- dómsgreiningar. Þeim er svo skipt í flokka eftir því um hversu viðkvæm- ar upplýsingar er að ræða. I svoköll- uðum Bl-flokki er að finna upplýs- ingar um sjúkdómsgreiningar, lækn- ismeðferð og aðgerðir, lyfseðla o.fl. A reikningum sem berast frá sér- fræðingum er að finna sjúkdóms- greiningar og eru þessar upplýsing- ar færðar í þennan flokk. I B2-flokki eru skráðar viðkvæm- ustu upplýsingarnar. Þar er að finna nokkurskonar úttekt á heilsufari við- komandi sjúklings þar sem teknar eru saman upplýsingar á borð við ör- orkumat, hvað er að viðkomandi sjúklingi, hvers konar lyf hann notar o.s.frv. Þá ber að geta þess að í tengslum við sjúklingatryggingar fær Tryggingastofnun oft afrit af sjúkraskýrslum frá viðkomandi heil- brigðisstofnunum. Tryggingastofnun þarf að hafa eftirlit með greiðslu lyfjakostnaðar og hefur stofnunin fengið send frum- rit frá lyfjaverslunum af öllum lyf- seðlum sem stofnunin tekur þátt í að greiða. Eftirlit með greiðsluskyldu stofnunarinnar hefur falist í því að tveir starfsmenn skoða úrtak úr um dánarvottorð sem gefin hafa verið út allt frá árinu 1916 undir nöfnum. Upp úr þessum gögnum eru svo unn- ar ýmsar ónafngreindar töflur s.s. upplýsingum um dánarorsakir skipt eftir kyni, aldri og árum. Læknar fylla út ákveðna reiti á dánarvottorðum skv. nákvæmum reglum sem fara ber eftir. Þar kem- ur fram sjúkdómsgreining viðkom- andi og svokölluð grundvallardánar- orsök, auk upplýsinga um starf, 1,2 milljónum lyfjaávísana á ári. Fyr- ir nokkru lét Tryggingastofnun hanna nýtt hugbúnaðarkerfi, svo- kallað lyfjaeftirlitskerfi, svo unnt væri að taka upp rafræna sendingu lyfseðla frá apótekum til TR. Lyfja- eftirlitskerfið er ekki komið í fulla notkun í dag en nokkrar lyfjaverslanir tengj- ast því nú þegar og senda lyfseðla og reikninga með tölvuskeytum til stofnunarinnar. Er stöðugt unnið að útvíkkun þessa kerfis. Einstaklingsbundnar upplýsingar um lyfjaneyslu eru tvímælalaust meðal viðkvæmustu persónuupplýs- inga sem varðveittar eru. Tölvu- nefnd hefur heimilað Trygginga- stofnun skráningu úr þeim lyfseðlum sem hún fær senda vegna greiðslu á lyfjakostnaði en nefndin hefur ekki heimilað stofnuninni að safna upp- lýsingum um allar afgreiðslur lyfja- búða eða um aðra lyfseðla en þá sem krafist er greiðslu á hjá stofnuninni. Þá hefur Tölvunefnd nýlega end- urnýjað heimild Tryggingastofnunar til að tengja lyfseðlaskrár sínar sam- an við þjóðskrá, lyfjaskírteinaskrá og örorkubótaskrá. Afrit geymd í bankahólfi Nefndin hefur sett stofnuninni ákveðna skOmála um meðhöndlun þessara upplýsinga. Þannig ber Tryggingastofnun um leið og tiltek- inn lyfseðill hefur verið samþykktur til greiðslu að rugla kennitölur og færa allar upplýsingar í gagnagrunn stofnunarinnar með rugluðum kenni- tölum. Gera má einn greiningarlykil sem geri kleift að afrugla kennitöl- urnar og er varsla hans falin tilsjón- armönnum Tölvunefndar. Þá verður öll umferð gagna á Netinu að vera á heimili og hjúskaparstöðu. í seinni tíð hafa einnig verið færðar inn á vottorðin í ákveðna reiti svokallaðar undirliggjandi dánarorsakir, sem geta talist meðvirkandi dánarorsak- ir, t.d. ef hinn látni hefúr verið hald- inn ákveðnum sjúkdómum. Gefin eru út u.þ.b. 2.000 dánarvottorð á hverju ári og fara tveir fulltrúar landlæknisembættisins yfir öll vott- orðin áður en þau eru send til Hag- stofunnar til varðveislu. Þar eru þau varðveitt í læstri geymslu. dulkóðuðu formi og er við það miðað að svokölluð lykillengd megi ekki vera skemmri en 56 bitar. Að sögn Kristjáns fer það nokkuð eftir eðli mála hvaða upplýsingar eru tölvuskráðar. „Við erum með tvenns- konar tölvukerfi í dag. Gömlu kerfin eru öll hjá Skýrr og þarf sérstakt að- gangsorð til að komast inn í viðkom- andi skrár. Er það yfirleitt takmark- að við tiltekna starfsmenn sem þurfa eðli máls samkvæmt að sýsla með þessi gögn. Við erum einnig með kerfi hér inn- an húss sem er smám saman að taka yfir sem er miðlæg tölva í umsjá tölvudeildar Tryggingastofnunar. Tekin eru afrit sem geymd eru í bankahólfi. Þessar upplýsingar eru enn betur varðar en önnur gögn því aðgengi að þeim er takmarkað við færri starfsmenn.“ Pappírsgögn í læstum hirslum Tryggingastofnun ver öryggi upp- lýsinga sinna fyrst og fremst með stífum aðgangstakmörkunum að gögnum. Sumar upplýsingar eru einnig dulritaðar. „Við erum til dæmis með upplýsingar um sjúk- linga sem hafa greinst með alnæmi og þar er yfirleitt ekki sýslað með nöfn heldur númer,“ segir Kristján. Eðli málsins samkvæmt þarf Tryggingastofnun að hafa öll þessi gögn undir höndum í daglegum rekstri stofnunarinnar og reynt er að fara eins vel með þau og unnt er, að sögn Kristjáns. Pappírsgögnin eru t.d. geymd í læstum hirslum eftir því sem kostur er á. Að sögn Krist- jáns er að störfum fjögurra manna nefnd, svokölluð gagnanefnd, að vinna að tillögum um úrbætur í þess- um málum. HAGSTOFAN Nafntengd gögn varin með aðgangstakmörkunum TRYGGINGASTOFNUN 5Tilsjónarmenn Tölvunefndar afkóða lista úrtakshóps í / rannsókninni (sjúklinga og / ættingja) og búa til / ' þátttakendalista /'/';■ með kennitölum / J//‘ 8Að lokinni rannsókn vill vísindamaðurinn varðveita gögnin með leyfi Tölvunefndar. / Þrjár leiðir eru til: / Gögnin eru geymd með nöfnum / einstaklinga (sjaldgæft).Tölvu- , nefnd setur stranga skilmála um varðveislu gagna og aðgangstakmarkanir. / Nöfn og kennitölur eru dul- / kóðaðar (algengt). / Greiningarlykill er í vörslu / tilsjónarmanna Tölvu- nefndar eða vísindamanns^V^ Óheimilt er að afkóða gögnin nema með leyfi Tölvunefndar. / Öll persónuauðkenni / 4/ f gagna eru afmáð. / Æ Vísindamaðurá / /V, •' Æ enga möguleika Æ á að endurtaka Æ rannsóknina á sama ^ hópi eða leiðrétta mistök. Aðrar skrár á pappír og tölvutæku formi Til verður dul- S kóðað ættartré s Dulkóöaður ættfræðigrunnur 6Vísindamaðurinn kynnir rannsóknina fyrir þátttakendum og óskar eftir samstarfi þeirra a 3Dulkóðaður sjúklingalisti er borinn saman við dulkóðaðan ættfræðigrunn. 7Þátttakendur N. undirrita samþykkis- yfirlýsingu og gefa blóðsýni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.