Morgunblaðið - 07.10.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.10.1998, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 LISTIR MORGUNB L AÐIÐ „TAUSAMFELLUR" eftir Jóhann Eyfells. það er list þeirra yngri og óþekkt- ari sem vekur forvitni á þessari sýningu, og mun ég því aðallega fjalla um þeirra þátt. Þegar litið er yfír myndlist yngri listamanna mætti ætla að myndlist væri að færast nær leikhúsinu. Verkin eru sviðsetningar frekar en innsetningar. Sum verkanna á sýn- ingunni gætu allt eins átt heima uppi á leiksviði. Jafnvel Ari Alex- ander Ergis, sem sker sig úr að því leyti að hann er sá eini sem sýnir málverk, „Mæðrasynir", drunga- legar portrettmyndir í djúpbláum lit, sviðsetur sínar myndir á vissan hátt. Sýningargestum er boðið að setja á sig heyrnartól og upplifa þær við undirleik dulmagnaðrar tónlistar, sem á vafalaust að gera þær dramatískari. Það er einkum listamaðurinn sjálfur, sjálfsímynd hans, mýturn- ar í kringum hann og samfélags- legt hlutverk listamannsins sem er algengasta viðfangsefnið hjá yngri listamönnunum. I myndbandi sem fylgir verki Asmundar Asmunds- sonar rekur hann raunasögu sein- heppins listamanns, sem verður fyrir því óláni að viðbeinsbrotna rétt um það bil sem hann er valinn til búa til verk fyrir sýningu. Hann tekur til bragðs að biðja þrjá lista- menn, „Kiddana þrjá“, Kristin G. Harðarson, Kristján Guðmundsson og Kristin E. Hrafnsson, að láta sig fá tillögur að verkum, sem þeir ætla sér ekki að nota. A ljósmynd- um má sjá hvernig hann (með handlegginn í fatla) leiðbeinir starfsfólki safnsins um uppsetn- ingu á verkum kollega sinna. Þannig má segja að Ásmundur hafi tekið orðtakið „að fá lánað“, þegar talað er um að vera undir áhrifum frá öðrum listamanni, mjög bók- staflega. rænu sjónarmiði kemur þetta manni fyrir sjónir sem lítið annað en ódýi’ brella. Og þeirri hugsun skýtur upp í kollinn hvort listamað- urinn hafi ekki meiri trú á því sem hann er að gera en svo að honum finnist hann þurfa að beita slíkum brögðum. Hér er a.m.k. ekki verið að brjóta neitt blað, fyrir u.þ.b. þrjátíu árum lá Vito Acconci undir gólffjölum í sýningarsal í New York og fróaði sér á staðnum, og það er lítill vandi að nefna lista- menn sem á undanförnum árum hafa lagt fyrir sig pornógrafíu, þar á meðal Jeff Koons og bræðurnir Chapman. Er pornó síðasta hálm- strá listamanna í örvæntingarfullri leit að hneykslunarefni? Það verð- ur að virða það við Kjarvalsstaði að þeir hafa látið Agli það eftir að setja upp þetta útbólgna og mis- heppnaða verk, og hvergi reynt að ritskoða það, jafnvel þótt það verði MYNPLIST Kjarvalsstaðir -30/60+ SAMSÝNING 27 LISTAMANNA Opið alla daga frá 11-18. Aðgangur 300 kr. Til 25. okt. HUGMYNDIN að sýningunni, að sýna saman verk eftir listamenn sem eru annars vegar ekki orðnir þrítugir og hins vegar komnir yfir sextugt, kemur kannski á óvart í fyrstu. En í ljósi þeirrar umræðu sem orðið hefur um yfirlitssýning- ar um myndlist undanfarin ár er hún skiljanleg. Mönnum hefur fundist að „millikynslóðin", þeir sem eru á bilinu milli þrítugs og sextugs, sé allsráðandi í sýningar- flórunni, og þeir elstu og yngstu verða oft útundan. Hér er dæminu snúið við og jaðarkynslóðirnar, sem svo mætti kalla, eru í sviðs- ljósinu. Með því að einskorða valið við listamenn yngri en 30 ára eru sýn- ingarstjórum settar ákaflega þröngar skorður, því ef tekið er til- lit til þess að þátttakendur hafa verið í skóla og framhaldsnámi og þurft tíma til að koma sér á fram- færi, þá eru þeir komnir undir þrí- tugt. Enda eru allir yngri þátttak- endurnir fæddir á árabilinu 1968 til 1973, þar af átta árið 1970, svona til fróðleiks. Af eðlilegum ástæðum er hægara um vik að velja fulltrúa meðal listamanna eldri en sextugt. Af þeim hópi urðu fyrir valinu þau Kristján Davíðsson, Guðmunda Andrésdóttir, Asgerður Búadóttir, Jóhann Eyfells, Magnús Pálsson og Erró. Ekki veit ég hver ástæðan er, en svo virðist sem myndlist eldri kyn- slóðarinnar sé fjölbreyttari en þeirrar yngri, jafnvel þó svo að þeir yngri séu talsvert fleiri, tutt- ugu og einn talsins. Meðal yngri listamannanna eru mest áberandi innsetningar í ætt við þær sem oft hefur mátt sjá í sölum Nýlista- safnsins undanfarin ár, en það sem fólk myndi kalla „hefðbundið" mál- verk eða skúlptúr er varla að finna. Eg geri ráð fyrir að sýningarstjór- arnir, þeir Kristján Steingrímur Jónsson myndlistarmaður og Ei- Einn af þeim sem mikið velta fyrir sér opinberri persónu lista- mannsins er Erling Þ.V. Klingen- berg, og hæðist hann að þeirri ímynd sem samfélagið skapar af listamönnum. Erling birtir okkur fjórar mismundandi útgáfur af eig- in „persónu", með því að útbúa út- stillingarkassa, þar sem minjagrip- um úr ævi listamannsins er ætlað að sýna okkur hvernig sjálfsímynd listamannsins er mótuð af kring- umstæðum og tíðaranda. Verkið er paródía á glerkassana, sem lengi voru við innganginn að Kjarvalssal, þar sem ýmislegt smálegt úr vinnustofu Kjarvals átti að minna á litríkan karaketer hans. Ekki nóg með það, heldur sýnir Erling myndband þar sem gert er enn meira grín að Kjarval og leikur hann þar listamanninn, þar sem hann álpast um dauðadrukkinn úti í hrauni, haldinn ofskynjunum í öl- vímu, gengur örna sinna, og klessir litum á striga. Heldur er þetta nú aumt grín. Þykir það kannski há- mark róttækninnar að gera gys að Kjarval á sjálfum Kjarvalsstöðum? Fyi’irferðarmesta verkið á sýn- ingunni, sem teygir sig yfir stóran hluta gangsins milli sýningarsal- anna, er eftir Egil Sæbjörnsson. Verkið er að verulegu leyti „milli þilja“, falið á bak við falskan vegg, en með opi sem snýr út að garðin- um. Hér virðist Egill vera að fjalla um subbulegan veruleikann bak við tjöldin, gægjuþörf og feluleiki. En verkið allt er afar sundurleitt og hangir varla saman. Til að kóróna allt er myndband við einn enda gangsins, falið á bak við svart tjald, af listamanninum að fróa sér. Agli er mikið í mun að ganga eins langt og hann getur til að ofbjóða sýn- ingargestum, sem eru tældir inn í dimmt skúmaskot og gerðir að óviljandi gluggagægjum. Frá list- ríkur Þorláksson, forstöðumaður Kjarvalsstaða, hafi valið þá sem at- hyglisverðastir þóttu, en ekki verið að velja eftir einhverri tiltekinni línu. Eg ætla ekki að fara út í saman- burð milli kynslóða. Þetta er fyrst og fremst sýning yngri kynslóðar- innar, enda eru þau mun fleiri, og GJÖRNINGAKLÚBBURINN hefur komið því þannig fyrir að eina leiðin til að skyggnast inn í „Hótel Paradís" er að hoppa sem hæst á trampólíninu við hliðina og skoða spegilkassann ofan frá. MYND EFTIR AGl'ST GUÐMUNDSSON i. Það er boðið til brúðkaups og á örsmárri eyju í ógnþrungrtu Atlantshafinu á aö dansa í þrjá daga. nema ske kynni að: Brúðurin sé ekki búin að gera upp hug sinn, breski togarinn Goodiwoman strandi og sumir deyi en aðrir ekki, klerkarnir ærist og heimti jarðarför í brúð- kaupínu, ástin og djöfuilinn kyndi undir stór- bruna í hjörtum gestanna, brúðinni verði rænt... Sannast þá hið fornkveðna að enginn dansar ófuliur nema snarvitlaus sé. (Nemo saltat sobrius nisí valde insanit.) HÁSKÓLABÍÓ í leikhúsi listamannsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.