Morgunblaðið - 07.10.1998, Page 29

Morgunblaðið - 07.10.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 29 að teljast á mörkum velsæmis fyrir opinberan samkomustað. Stelpurnar fjórar í Gjörninga- klúbbnum (The Icelandic Love Corporation) brjóta upp þrúgandi andrúmsloft safnsins með verki sem ekki verður upplifað nema með leikfimisæfingum áhorfand- ans. Sýningargestir verða að hoppa á trampólíni hátt í loft upp til að sjá ofan í kassa, sem hefur verið inn- réttaður sem hótelherbergi, „Hótel Paradís". Að utan er ekkert að sjá nema spegilklæddir veggir, sem eru of háir til að hægt sé að sjá yfir þá. Þeir sem ekki eru tilbúnir að hoppa sjá ekkert nema eigin speg- ilmynd. í sýningarskrá er að finna tilvitnunina „Það er alltaf að verða mikilvægara og mikilvægara að þekkja listamanninn", sem gefur kost á að túlka verkið sem tákn- sögu um persónu listamannsins: áhorfendur verða að leggja á sig himinhá heljarstökk til að komast að því hvernig listamaðurinn er í raun innréttaður, bak við speglað yfirborðið. Hótel Paradís, sem menn láta sig dreyma um, er hins vegar lítið annað en ósköp venju- legt þriðja flokks gistihús. Þannig er í mörgum verkanna einhver meinleg fyndni á ferðinni. En þetta er ekki fyndni sem er sprottin af lífsgleði og kátínu, held- ur miklu fremur af ólund, sem virð- ist hafa snúist upp í kaldhæðna fyr- irlitningu á blekkingarleik listar- innar, listasöfnum og menningar- umhverfi listamannsins. Það er eins og þessu unga fólki sé í mun að sannfæra okkur um, hvað sem það kostar, að það stendur ekki neitt annað til boða en flatneskja hversdagsleikans, að listin sé ekk- ert annað en hillingar og listasafnicþ sirkus. Fyrirmyndir að leikhús-myndlist af þessu tagi má víða finna, t.d. hjá listamönnum eins og Rússanum Ilya Kabakov og Bandaríkjamönn- unum Mike Kelley og John McC- arthy. En upprunalegu fyriiTnynd- ina að mörgu af því sem yngir hóp- urinn er að gera er að finna hjá jafnöldrum eldri listamannanna, hjá Flúxus-hreyfingunni og öðrum liststefnum sem komu fram um svipað leyti, upp úr 1960. Einn af öldungunum, Magnús Pálsson, til- heyrir þeim hópi og það er fróðlegt að bera saman verk hans og þeirra yngri. Reyndar hélt ég fyrst að þar færi einhver ungliðinn, en Magnús er með ólíkindum ferskur og síung- ur listamaður, sem hefur hvergi slegið slöku við. Enda var ósvikin lífsgleði og bjartsýni yfirleitt aðals- merki Flúxushreyfingarinnar á sínum tíma. Magnúsi hefur þó oft tekist bet- ur upp og ég hefði frekar viljað sjá nýlegt myndband hans, í leikstjórn Eyvindar Erlendssonar, sem sýnt var í Nýlistasafninu ekki alls fyrir löngu, „Eyetalk II“. Það er líka vert að minnast á Jóhann Eyfells, sem hefur búið á Flórída um ára- tugaskeið og vill stundum gleym- ast, en í ganginum hangir uppi magnað verk, „Tausamfellur - Mót“, frá 1994, sem eru stórir taudúkar sem hafa legið undir fargi af jarðefnum og málmum og verið látnir veðrast. Kjai-valsstaðir hafa staðið mynd- arlega að sýningunni og hvergi dregið undan, og sýningarstjórar hafa gætt þess að gera hlut yngi'i kynslóðarinnar sem veglegastan. Reyndar er jafnvægis ekki gætt, en ef til vill hafa sýningarstjórar viljað forðast að eldri listamennirn- ir skyggðu á þá yngri, með þveröf- ugum afleiðingum. Sýningarskráin hefur að geyma fjöldann allan af myndum, formála eftir Halldór Björn Runólfsson og kynningu á listamönnunum. En það hefði verið fróðlegt ef tækifærið hefði verið notað til að fá listamennina til að lýsa eigin viðhorfum til listar sinn- ar og annarra. Sýningarskrá er kjörinn vettvangur fyrir listamenn að koma skoðunum sínum á fram- færi og getur þar að auki verið góð heimild um umræðuna á hverjum tíma. Gunnar J. Arnason Orgelharmonikka TÖJVLIST Gerðuberg HARMONIKKUTÓNLEIKAR Tatu Kantomaa flutti umritanir á klassískum verkum og hefðbundin harmonikkulög. Laugardaginn 3. október. „HARMONIKKAN einasta ynd- ið mitt er“ var einu sinn sungið og er þetta vísubrot ekki fjarri lagi, því „fátt var svo til gamans gert“ hér áður fyrr í dansi og öðrum mannfagnaði, að harmonikkan væri þar fjarri góðu gamni. Nokkuð er sagan fáorð um uppruna þessa al- þýðuhljóðfæris en nafnið „accordion“ kemur fyrst fram 1829, í sambandi við einkaleyfi Vínar-Ar- menans Cyrills Demians á belg- hljóðfæri með fimm bassatökkum, sem á mátti leika tíu hljóma, er var nýjungin fyrir þetta hljóðfæri. Nafnið „Harmonica“ á hljóðfærinu munnharpa er sagt eiga sér þann uppruna, að Christian F.L. Buseh- mann (1805-64) hafi fengið hug- myndina að munnblásnu orgeli, er hann var að smíða stilliflautur á verkstæði föður síns, sem var org- elstillari. Christian Messner og Matthias Hohner voru um langt skeið nær þeir einu sem framleiddu munnhörpur og voni einnig frægir fyrir hamonikkur sínar. Consertina eða Konzertina var fyrst notuð af Carli Fr. Uhlig, árið 1834, og þá var form þess rétt- hyrnt. Sama form var einnig notað af Heinrich Band (1846) en hann breytti tónskipan hljóðfærisins og segir þjóðsagan, að Iri nokkur hafi haft þetta hljóðfæri með sér til Ar- gentínu, þar sem það varð sérlega vinsælt tangó-hljóðfæri. Sexstrend- ingslagið er rakið til Charles Wheatstones og samstarfsmanns hans, Johanns Matthias Stroh (1851). Hjóðfæri þeirra var upphaf- lega kallað „melophone" og vin- sældirnar má m.a. rekja til þess að tónskipanin var tvöföld, svo að sami tónninn hljómaði á út- og innsogi. Til skamms tíma var tónskipanin og hljómkerfi bassans það sem hindraði notkun hljóðfærisins í klassískri tónlist, en nú eru fram- leiddar harmonikkur þar sem hægt er að leika án bundinnar hljómskip- unar. Hljóðfærið sem Kantomaa lék er á þesslegt, auk þess að vera byggt með sub-bassa og stærra hljómborði og því mun stærra og þyngra í meðförum en venjulegar harmonikkur. A þessa stóru nikku lék Kantomaa Austurias eftir Al- beniz, Valse triste eftir Sibelius og Oblivion eftir Piazzolla ásamt harmonikkuverkum eftir minna þekkt tónskáld og Lýrískan vals eftir óþekktan höfund, fallegt lag, sem var sérlega finlega flutt. Það háði Kantomaa nokkuð að hann er ekki búinn að ná fullum sáttum við þetta mikla hljóðfæri, þótt það hafi ekki dulist neinum, að hér er á ferð- inni frábær flytjandi. Eftir hlé lék Kantomaa á venju- lega nikku, nokkra „standarda" eins og La Mariposita og Car- melita, bæði eftir Pietro Frosini, og tvö þekkt lög eftir Pietro Deiro, El- vira og Heimkoma Pietros, og skemmtilega ungverska útleggingu eftir Viljo Vesterinen. I öllum þess- um lögum var leikur Kantomaa al- deilis glæsilegur, bæði hvað snertir tækni og fallega tónmyndun. Svo aftur sé vikið að hljóðfærinu sem notað var á fyi'ri hluta tónleikanna verður fróðlegt að fylgjast með Kantomaa, er hann hefur fullmótað leik sinn á þetta volduga hljóðfæri, sem hvað hljómvídd minnir á orgel og mætti vel hugsa sér að orgeltón- list frá barokktímanum hæfði þessu hljóðfæri mjög vel, t.d. Tokkata og fúga í d-moll, sem er eignuð J.S. Bach. Hvað sem þessu líður er hér um að ræða hljóðfæri, sem er í allt örðum gæðaflokki en venjulegar nikkur, eins konar orgelharmon- ikka, hljóðfæri er sómir sér í allri tónlist og býður upp á margvíslega tómyndunar- og tæknimöguleika, umfram það sem gerist á venjuleg- ar nikkur. Jón Asgeirsson Brot af mörgum sögum Morgunblaðið/Sigrún Davíðsdóttir MAÐURINN og mannslíkaminn hefur verið myndhöggvaranum, Steinunni Þórarinsdóttur, stöðugt viðfangsefni. í gömlu bindingsverks- bakhúsi við Studie- stræde í Kaupmanna- höfn hefur Steinunn Þórarinsdóttir mynd- höggvari raðað upp sögum sínum, eins og Sigrún Davíðsdóttir sá er hún leit þar við. HVÍTKALKAÐIR veggirnir í gamla bindingsverksbakhúsinu við Studiestræde veita heillandi bak- grunn fyrir brotakennd verkin, sem unnin eru í ýmis efni. Ekki svo að skilja að verkin sýnist ekki heildstæð eða heil, heldur segist Steinunn Þórarinsdóttir mynd- höggvari sjálf líta á verkin sem brot. „Þetta eru sögubrot,“ segh- hún. „Brot af sögu minni, af ýms- um sögum, frásagnir, en kannski meira huglægar en hlutlægar," bætir hún við hugsi er hún svipast um á þessari fyrstu sýningu sinni í Danmörku. Sýningin stóð út sept- ember í Galleri Krebsen, þar sem Tryggvi Ólafsson hefur oft sýnt áður. Það var einmitt Tryggvi, sem kom Steinunni á framfæri við galleríið er hann sýndi þeim bæk- ling með verkum hennar. Mest af verkunum er unnið fyrir sýninguna í Höfn, sem fer síðan áfram til Kristiansstad í Sviþjóð. Sýninguna segist Steinunn hafa unnið með rýmið í huga, en á sýn- ingunni eru flest verkin ný. Þetta er fyrsta sýning Steinunnar í Dan- mörku, en hún lærði í Bretlandi og á Ítalíu, svo Norðurlöndin hafa verið nokkuð utan hennar sjón- deildarhrings. Italíu hefur hún svo heimsótt aftur, segist lengi hafa haft áhuga á gamalli list og það hafi vafalaust átt sinn þátt í að hún kaus að halda til Italíu á sínum tíma og halda svo áfram tengslum við landið. List, sem einmitt er oft aðeins varðveitt í brotum. „Það styrkti mig í að vinna brot af sög- um og veitti mér mikinn innblást- ur,“ segir Steinunn. Maðurinn og ógnandi andi Maðurinn og mannslíkaminn hefur verið Steinunni stöðugt við- fangsefni. „Maðurinn og umhverfi hans,“ segii- hún, þegar yrkisefnin ber á góma. „Ég kem endalaust auga á nýja fleti þess.“ En and- stætt ákveðinni festu í viðfangsefni þá er efnisnotkunin mjög fjöl- breytileg. I verkum Steinunnar getur að líta gips, pottjárn, blý, ál og gler. Efnið segist hún velja eftir því hvað henni finnist eiga best við hverju sinni. Hugmyndir sínar skissar hún á blað. Sumum hendir hún eins og gerist og gengur, en þeim sem henni finnst hæfa í þrí- víð verk velur hún efni við hæfi. Efni, sem hentar framkvæmdinni, hugmyndinni, lit og öðru, sem skiptir máli. „Efnið fer eftir hvaða áhrifum ég sækist eftir,“ segir hún. Verk Steinunnar eru ýmist serí- ur eða stök verk, sem þó eru oft með sama tema, sem strax kemur í ljós utan dyra, þar sem tvær mannsfígúrur í áli standa and- spænis hvor annarri, en horfa þó framhjá hvor annarri. Þegar inn er komið blasa við fjögur höfuð úr pottjárni og gleri, „Speglun“. Tvö og tvö snúa þau saman. í öðru tvíeykinu gengur glerlag í gegnum höfuðið þar sem munnurinn ætti að vera, í hinu gengur glerlagið í gegn þar sem augun ættu að vera. Glerið gefur yfirbragð þess að það sé bundið fyrir munninn og augun, svo áhrifin eru ekki laus við óhugnað og ógnun. Þessi tilfinning er ekki vakin af því listakonan leiti uppi dökkar hliðar tilverunnar, heldur af því að einföld verk henn- ar vísa í margar áttir. Við hliðina á höfðunum fjónam er „Móðir“ úr gipsi. Klassísk upp- stilling konu, þar sem aðeins brjóstin gefa kynið til kynna, vek- ur hugrenningar til klassíski-ar listar, en móðirin, sem heldur höndunum í vaggandi stellingu, hefur ekkert barn. Uppi á lofti er „Rauður þráður" þar sem efri hluti konu sveiflar rauðiyðguðum þráð, sem smitar rauðum lit á kvenlík- amann. Þetta er aðeins brot af hug- myndaheimi Steinunnar. Hug- myndaheimi, sem bæði skírskotar til klassískrar listar og samtímans í heillandi samspili, sem gefur skoðandanum tækifæri til hug- renningar í fjöldamargar áttir. Hið einfalda yfirbragð lumar á mörgu. Baldnar systur bregða á leik LEIKLIST Möguleikhúsið SNUÐRA OG TUÐRA eftir Iðunni Steinsdóttur. Höf- undur leikgerðar og söngtexta: Pétur Eggerz. Leikstjóri og höf- undur leikmyndar: Bjarni Ingv- arsson. Leikarar: Drífa Arnþórs- dóttir og Linda Asgeirsdóttir. Tónlist: Vilhjálmur Guðjónsson. Búningar og brúðugerð: Katrín Þorvaldsdóttir. Möguleikhúsið við Hlemm. 3. oktdber SNUÐRA OG TUÐRA er leikþáttur ætlaður yngsta áhorfendahópnum (2-9 ára) sem er byggður á sögum eftir Iðunni Steinsdóttur. Pétur Eggerz, leikhússtjóri Mögu- leikhússins, er höfundur leik- gerðarinnar sem samanstend- ur af þremur „frásögum" af þeim systnim: þegar Snuðra meiddi sig, þegar þær gáfu föt foreldra sinna í Afríkusöfnun og þegar þær fóru í sveitina og duttu í fjóshauginn. Þessi at- riði eru síðan tengd saman með lýsingum á daglegu lífi systranna, mestmegnis lýsing- um á því hvernig þær rífast um dótið sitt og eru foreldrum sínum erfiðar. Það eru þær Drífa Arnþórs- dóttir og Linda Asgeirsdóttir sem fara með hlutverk systr- anna. Báðar teljast þær til yngstu kynslóðar íslenskra leikara og báðar hafa þær sýnt ágæta takta í gamanleik, Drífa í uppsetningu Lundúnaleik- hópsins á Margréti miklu eftir Kristínu Omarsdóttur í hitti- fyrra og Linda í Uppstoppað- ur hundur eftir Staffan Göthe, sem var lokaverkefni Nem- endaleikhússins í vor sem leið. Hæpið er að segja að hlut- verk Snuðra og Tuðra geri miklar kröfur til leikaranna tveggja, atferli þeirra felst að- allega í ýktum ólátum, hams- lausri kátínu og grátvipram, þar sem það á við. Þær Drífa og Linda fóru léttilega með þetta og náðu þær vel til hinna ungu áhorfenda, þótt örfáum vel upp öldum börnum þætti greinilega nóg um ólætin í þeim á köflum. Katrín Þorvaldsdóttir hefur hannað litríka og sniðuga bún- inga systranna og hún gerir einnig brúður sem notaðar eru á skemmtilegan hátt í sýning- unni. Samvinna brúðuleiks og „leikaraleiks“ var vel útfærð og einnig var nýting á leik- mynd skemmtileg og óvenju- leg. Það er Bjarni Ingvarsson, leikstjóri, sem á heiðurinn af leikmyndinni sem sam- anstendur af kommóðu og tré- kubbum sem snúa má á alla kanta eftir þörfum. Leikurinn er síðan kryddaður með nokkrum sönglögum eftir Vil- hjálm Guðjónsson sem voru létt og grípandi eins og við á í barnasýningu. Snuðra og Tuðra er barna- sýning sem hönnuð er með það fyrir augum að hægt sé að ferðast með hana á milli staða og vafalaust eiga hinar böldnu systur eftir að kæta marga krakka á leikskólum landsins í vetur. Soffía Auður Birgisdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.