Morgunblaðið - 07.10.1998, Page 39

Morgunblaðið - 07.10.1998, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 39*. AÐSENDAR GREINAR Hug,leiðing,ar um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði Miðlægpir gagnagrunnur Undirritaður er einn af þeim mörgu í læknastétt sem hafa haft áhyggjur af hugmyndum um gerð miðlægs gagnagrunns á heilbrigðis- sviði. Þær áhyggjur eru ekki síst tilkomnar vegna starfs á rann- sóknastofu sem rannsakar litninga- gerð barna og fullorðinna með ýmsa andlega og líkamlega ágalla og reynslu undirritaðs af vörslu við- kvæmra heilsufarsupplýsinga á því sviði. Þjónusturannsóknir Litningarannsóknir eru meðal þjónusturannsókna á heilbrigðis- sviði. Þær eru gerðar af sérstöku og tilteknu tilefni í hvert sinn og snú- ast um leit að vissum þáttum í erfðaeiginleikum manna. Þær geta farið fram - eftir því sem við á - á tímabili sem nær allt frá fóstur- skeiði til elliára mannsins. Af þeim tilfellum, sem um ræðir, má nefna fósturgalla, hættu á litningagalla hjá fóstri þungaðrar konu, van- skapnað eða vangefni hjá nýfæddu barni, þroska-, vaxtar- eða hegðun- artruflun hjá börnum og ungling- um, ófrjósemi hjá ungum konum og körlum, endurtekin fósturlát hjá konum og illkynja æxli hjá fólki á öllum aldri. Á öllum rannsóknastof- um í heilbrigðiskerfínu, er litið svo á að upplýsingar um þær þjónustu- rannnsóknir, sem nauðsynlegar eru, verði að geyma þannig að full- ur trúnaður geti ríkt milli sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna, og að fullt traust um öryggi upplýsing- anna sé fyrir hendi. Að öðrum kosti er starfsemi í þjónusturannsóknum á íslandi í uppnámi. Stefnumótun í upplýsingamálum Þegar núverandi heilbrigðismála- ráðherra setti fram stefnumótun í upplýsingamálum árið 1997, eftir vandaða vinnu fjölmennrar nefndar og fjölda stýrihópa og vinnuhópa, var stigið stórt skref til þess að tryggja friðhelgi einkalífs manna og öryggi heilsufarsupplýsinga. Ritið Stefnumótun í upplýsingamálum innan heilbrigðiskerfísins er reynd- ar svo vel gert og svo mikilvægt að það ætti erindi inn á hvert heimili í landinu. I því kemur meðal annars fram að komið verði á fót „sérstöku heilbrigðisneti", væntanlega tölvu- neti, „sem tengi saman alla þá aðila sem koma að heilbrigðismálum á íslandi." Jafnframt er tekið fram, að þeirri stefnu skuli íylgt að upp- lýsingar skuli varðveittar „þar sem þær verða til“ og að gerðar verði „ráðstafanir til þess að tryggja Símar 557 2000 og 557 7100 Skemmuvegi 36 Bleik gata Kópavogi rekstraröi’yggi upplýsingakerfa og öryggi gagna“. Þessu ber vissulega að fagna en hugmyndin um miðlæg- an gagnagrunn veldur mörgum rannsóknarlæknum réttmætum áhyggjum. Hugmyndir um erfðarannsóknir Það er víst óhætt að persónugera Kára Stefánsson lækni sem upphafsmann að hug- myndurn um stóriðnað á sviði vísindalegra erfðarannsókna á ís- landi. Þær hugmyndir sem Kári hefur sett fram um erfðarann- sóknir eru ekkert minna en stórkostleg- ar. Með réttmætri úr- vinnslu þessara hug- mynda geta almenningur og ís- lenskir vísindamenn sameinast um sumt af því sem sérstætt er á Is- landi. Fyrii' hendi er einstök varð- veisla á alþýðlegum fróðleik um ættir manna, yfirgripsmikil Til að sátt geti hugsan- lega náðst um gagna- grunn leggur Jóhann Heiðar Jóhannsson til að inn í hann fari að- eins formlegar sjúk- dómsgreiningar og rannsóknaniðurstöður. geymsla á heilsufarsupplýsingum og lífsýnum og óbilandi vilji Islend- inga tO þess að láta gott af sér leiða í þágu sjúkra. Margoft hefur komið fram hjá íslenskum læknum og vis- indamönnum og ekki síst hjá Is- lenskri erfðagreiningu að almenn- ingur er reiðubúinn til þátttöku í vönduðum vísindarannsóknum, bæði með því að gefa lífsýni og með því að veita þær heilsufarsupplýs- ingar sem ekki eru sérstakt trúnað- armál. Hugmyndir Kára eru hins vegar svo stórar og svo yfirgrips- miklar að það tekur marga okkai' langan tíma að átta okkur, sérstak- Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12, sími 5544433 MÖRKINNI 3 • SÍMI 588 0640 lega að ná fótfestu í hugleiðingum um þá miklu spurningu: Hvað verð- ur nú um það sem okkur hefur ver- ið trúað fýrir? Þó að „glámbekkir“ leynist vafalítið víðar en menn gera sér grein fyrir er hér engu að síður um alvarlegt siðfræðilegt álitamál að ræða. Hvað á að fara í gagnagrunninn? Sé gert ráð fyrir því að miðlægur gagna- grunnur á heilbrigðis- sviði verði að veruleika vaknar óneitanlega upp spurningin um það hvað á að leggja inn í þennan mikla upplýsingabanka? Undirritaður þykist muna það rétt að fyrsta hugmyndin hafí verið sú að þar inn fari allar heilsufarsupplýsingar um alla Is- lendinga, allt frá upplýsingum um viðtöl, skoðun og meðferð einstakra sjúklinga á læknastofum og heilsu- gæslustöðvum að yfirgripsmiklum sjúkraskrám og rannsóknaniður- stöðum stóru sjúkrahúsanna. Enn þrýtur hugann orku til að búa til ímynd af þessu gríðarlega verki, þó ekki sé neitt hugsað til þeirra fjár- muna eða þess tíma, tækni og skipulagningar sem til þarf. Hins vegar má leiða hugann að efasemd- um um gagnsemi þess að tölvuvæða orðréttan texta úr gömlum sjúla-a- ski’ám, sem vafalítið geyma ýmsar raunverulegar trúnaðarupplýsing- ar, sem engin ástæða er til að gera öðrum aðgengilegar. Sjúkdómsgreiningar eingöngu? Undimtaður hefur frá upphafí þessa máls haft þá skoðun að mið- lægur gagnagrunnur sé óþarfur, meðal annars vegna þess að reynsl- an hefur sýnt að núlifandi Islend- ingar eru fúsir til samstarfs um vís- indarannsóknir og fullfærir um að gefa upplýsingar um eigið heilsufar og viðeigandi heimildir til frekari athugunar heilsufarsgagna. Engu að síður virðist þó sá andi svífa yfír vötnunum að slíkur heilsufars- grannur verði hér til í einhverri mynd. Til að orðlengja ekki frekar vill undirritaður setja fram þá skoðun að sátt geti hugsanlega náðst um þá hugmynd að miðlægur gagna- grunnur vei'ði gerður á þann hátt að inn í gagnagrunninn fari einung- is formlegar sjúkdómsgreiningar og rannsóknaniðurstöður, sem kóð- aðar verði samkvæmt þeim skrán- ingarkerfum sem nú eru fyrir hendi. Slík kóðunarkerfi eru vel stöðluð, ekki læsileg öðrum en þeim sem til þekkja, hafa verið í notkun á sjúkrastofnunum um margra ára skeið og flest eru þau nú þegar tölvuvædd. Enn fremur vill undirritaður leggja til einstakir læknar og hugs- anlega aðrir heilbrigðisstai'fsmenn geti hafnað þvi að upplýsingar, sem þeir hafa í sinni vörslu og meta sem sérstakar trúnaðarupplýsingar, fari inn í miðlægan gagnagrann. Spurningar Að lokum verður ekki komist hjá því að leggja fram og fara fram á svör við nokkrum grunnspurning- um: 1. Verður okkur rannsóknalæknum fyrirskipað, annaðhvort með lög- um um gagnagrann eða með beinum fyrirmælum af yfir- stjórnum heilbrigðisstofnana að afhenda skilyrðislaust í miðlæg- an gagnagrunn heilsufarsupplýs- ingar, sem við hingað til höfum álitið að væru viðkvæmar trún- aðarupplýsingar? 2. Höfum við siðferðilega heimild til að afhenda slíkar upplýsingar án þess að við vitum nokkuð um samþykki sjúklinganna fyrir slíku og án þess að við getum lát- ið sérfræðilegt mat okkar og reynslu ráðu neinu um það hvað telja beri mjög viðkvæmt og al- gert einkamál viðkomandi per- sónu? 3. Getum við treyst því að við úr- vinnslu upplýsinga í miðlægum gagnagranni verði ávallt fylgt þeirri vísindalegu og siðfræði- legu reglu að engin samantekt eða úrvinnsla fari fram fyrr en formleg rannsóknaráætlun hefur verið gerð og samþykkt af þai' til bærum aðilum, svo sem tölvu- nefnd, vísindasiðanefnd eða land- lækni? Höfundur er læknir og sérfræðing- ur í bamameinafræði. Borðplötur & sólbekkir Rispuvörn á yfirborði Líming vatns- og hitaþolin (B3, B4) BakhliS einnig þétthúðuð Nýjasta plasthúðunartækni Sérstök slithúð sem eykur endingu Melamine rakaheld filma til varnar vatni og raka að neðan Framleitt samkvæmt ISO 9000 gæðastaðli Fjölbreyft litaval, margar þykktir og breiddir. Hagstæðustu verðin! : visa Sögurnarþjónusta á staðnum. GC RAÐGREIÐSLUR Mé? T| VERIÐ HAGSÝN VERSLUN FYRIR ALLA ! EILDSul ERSLUNI -trn^ór.WCÍ'M'- Viö Fellsmúia Sími 588 7332 Opiðfrá kl. 9 -18 virka daga ogfrókl. 10-14 laugardaga Jóhann Heiðar Jóhannsson j9■ ■!IEEE!I ■*■♦> ■ þakrennur : Þola Islenskt veðurfar Þakrennukerfið frá okkur er samsett úr galvanhúðuöu plastvörðu stáli. Það er auðvelt og fljótlegt í uppsetningu. Þakrennukerfi sem endist og endist. <3auii.mtVii TÆKNIDEILD Ót/frK .rrtfG Smiðshöfða 9 • 132 Reykjavík Simi 587 5699 • Fax 567 4699 ^NOHA Brunaslönour frá Noregi Viðurkennd brunavöm Fáanlegar meö og án skáps Heildsöludreifing: Smíðjuvegi 11. Kópavogi —-rTQ^gyi- Sími 5641088. fax 5641089 Fást í bvopingavöfuuerslunum um land allt. Barnarúm Rauðarárstíg 16, sími 561 0120.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.