Morgunblaðið - 07.10.1998, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998 51
Góður árang-
ur íslenskra
kjötiðnaðar-
manna
FRÉTTIR
Bókasafnsþjónusta kvennadeild-
ar Reykjavíkurdeildar RKI
í ÁR eru 30 ár liðin frá því kon-
ur í kvennadeild Reykjavíkur-
deildar Rauða kross íslands tóku
við rekstri sjúklingabókasafna
Landspitalans og SHR í Foss-
vogi.
Árið 1950 gaf frú Ágústa
Þórðardóttir Sigfússon Land-
spitalanum einkabókasafn sitt.
Frú Ágústa ananðist reglu-
bundna bókasafnsþjónustu þar
til kvennadeildarkonur tóku við
rekstrinum í ársbyrjun 1968. Á
SHR í Fossvogi fara kvenna-
deildarkonur í maimánuði 1968
að lána út og fara með bækur á
stofur til sjúklinga. Áður höfðu
þær unnið mikla undirbúnings-
vinnu með starfsfólki bókasafns
SHR í Fossvogi við að flokka,
merkja og skrá bækur sem
Lionsklúbburinn Baldur hafði
fært sjúkrahúsinu að gjöf. Söfnin
hafa verið með hljóðbókaþjón-
ustu frá árinu 1975 í samvinnu
við Blindrabókasafn íslands.
Frá nóvember 1969 hafa
kvennadeildarkonur rekið bóka-
safn SHR á Landakoti og á
sjúkrahóteli RKÍ siðan í júlí
1976.
Kvennadeildarkonur afla fjár
til bókakaupa fyrir söfnin með
árlegum föndur- og kökubasar. I
haust, 1. nóvember, verður
basarinn í húsi Rauða kross Is-
lands, Efstaleiti 9.
Forstöðukonur bókasafnanna
eru: Anna Kristjánsdóttir, SHR á
Landakoti, Sigrún Flóvenz,
Landspítala, Ingunn Gíslason,
SHR í Fossvogi og Grensásdeild,
Eva Úlfarsdóttir, Sjúkrahóteli
RKÍ, Ragna Gunnarsdóttir,
Hljóðbókaþjónusta SHR í Foss-
vogi og Guðlaug Ingólfsdóttir,
Hljóðbókaþjónusta Landspítala.
Dagskrá yfir félagsstarf
deildarinnar hefur verið send til
allra félagskvennam, en fyrsti
fundur vetrarins verður
fimmtudaginn 8. október nk. í
Skíðaskálanum í Hveradölum,
en þar ætla félagskonur að sýna
tískufatnað og Olafur „nikkari"
mun halda uppi fjörinu. Allir
eru hvattir til að mæta.
ÍSLENSKIR kjötiðnaðarmenn hafa
á undanförnum árum tekið þátt í
alþjóðlegum sem og norrænum fag-
mótum sem haldin hafa verið í
tengslum við Interfair-matvælasýn-
inguna í Herning á Jótlandi. Árang-
ur íslensku keppendanna hefur
alltaf verið góður og má segja að
með þátttöku sinni hafí íslenskum
kjötiðnaðarmönnum tekist að koma
landi sínu, menntun og ekki síst ís-
lenskum landbúnaðarafurðum ræki-
lega á framfæri, segir í fréttatil-
kynningu.
Dómarar í keppninni eru kjöt-
iðnaðarmeistarar frá Danmörku,
Noregi og Islandi. Fulltrúi Islands
var Oli Þór Hilmarsson frá Matvæla-
rannsóknum Keldnaholti. Keppnis-
fyrirkomulagið er þannig að allar
vörur byrja með fullt hús stiga eða
50 stig. Eftir gagnrýna skoðun
dómarahópsins á hverri vöru fyiTr
sig tínast stigin af, allt eftir eðli gall-
ans hverju sinni. Þar sem hver vara
er skoðuð út af fyrir sig geta margar
vörur fengið gull, silfur eða brons.
Til að fá bronsverðlaun þarf varan að
hafa 42-45 stig, silfur 46-48 stig og
gull 49-50 stig. Vara sem hlýtur gull
er því nánast gallalaus. Að lokinni
þessari úttekt er valin besta einstaka
varan úr hópi gullverðlaunahafa inn-
an hvers vöruflokks.
Keppnin í ár er í tveimur flokkum;
flokki hrápylsa, þar eru t.d.
spægipylsa, pepperoni o.fl., og flokki
hráskinka. Frá íslandi komu 39
vörutegundir frá þrettán kjötiðnað-
armönnum starfandi í fjórum fyrir-
tækjum. Af innsendum vörum náðu
37 í verðlaun, sem skiptust í fern
gullverðlaun, tíu silfurverðlaun og
tuttugu bronsverðlaun.
MATHYS^
Vatnsvörn
STÖÐVIÐ LEKANN MEÐ
FILLCOAT
ÁRVÍK
ARMÚLA 1 • Sl'MI 568 7222 • FAX 568 7295
www.mbl.is
Titanic í for-
sölu á mbl.is
í FYRSTA sinn á íslandi er nú
hægt að panta myndband í forsölu á
Netinu, nokkru áður en myndin fer
í almenna sölu. Um er að ræða stór-
myndina Titanic, eftir James
Cameron. Þeir sem áhuga hafa geta
smellt á þar til gerðan hnapp á
mbl.is, pantað myndbandið og feng-
ið það sent í póstkröfu eða sótt í
verslanir Skífunnar.
Einnig verður hægt að panta í
forsölu teiknimyndina Anastasíu,
sem er með íslensku tali, og sérút-
gáfu af Titanic, sem gefin er út í
takmörkuðu upplagi. Hægt er að
panta myndböndin til miðnættis 12.
október. Myndböndin verða síðan
afhent þeim sem panta 14. október,
tveimur dögum fyrir almennan út-
gáfudag.
Fyrstu 200 sem panta Titanic í
forsölu á mbl.is fá smáskífu með
lögum úr myndinni í kaupbæti, allir
sem panta Titanic í forsölu fá Titan-
ic-plakat og nöfn þeirra sem panta
Titanic eða Anastasiu á mbl.is verða
sett í pott þar sem dregið verður
um ferð fyrir tvo til London.
Frá Norðurleið Landleidum ehf.
Höfum fellt niður til vors 1999 ferðir á
sunnudögum frá Reykjavík kl. 8.30 og 17.30
og Akureyri kl. 9.30 og 17.00
en förum í þeirra stað eina ferð kl. 15.00
bæði frá Reykjavík og Akureyri
og verða þá millitímar þessir:
SUNNUDAGSFERÐIR REK-AK OGAK-REK
Kl. . . Frá T 15 00 Reykjavík j I . . Kl. l ... 21.00
15 45 . . Akranesvegamót k. . . 20.10
16 15 . Borgarnes . . . 19.50
16.40 . . Bifröst . . . 19.25
17 15 Brú . . . 18.55
17 45 . . Staðarskáli . . . 18.50
18.10 . . Norðurbraut . . . 18.00
19 00 Blönduós . . . 17.10
19 50 Varmahlíð . . . 16.20
21.00 .w.Akureyri . . . 15.00
Til Frá
jMZ
NORÐURL EIÐ
LANDLEIÐIR
FiJ hamineju
----------JTlf
x O k ^
mec j ÁmifL s a i a
aífhæiio!
m
m
á
f11IIxkI lil jíaknfendal M<ir^iml>1;iðsins
íslenski dansflukkurinn á 25 ára
afmæli á árimf. Af þyí tilefni
býdur Morgunblaðið á.skriff;ndurri
sínum að kaupa tvo miða á vefði
eins á afmælissýningu íslenska
dansflokksins 15. október.
Þeir se.m áhuga hafa frc.ta pantað sér rniða með
því að hringja f áskriftardeild Morgunblaðsins í
síma Ú60 1122.
Gúða skemmtun!
ÍSferi'ild dansflokkurinn
[J