Morgunblaðið - 07.10.1998, Page 64
Drögum næst
m
-
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
HIYEA
VISAGE
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLXN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
49% hlutur ríkis-
ins í FBA seldur
fyrir áramót
IÐNAÐARRÁÐHERRA og sjáv-
arútvegsráðherra hafa ákveðið að
fullnýta strax í fyrsta áfanga heim-
ildir núgildandi laga til sölu á eign-
arhlut ríkissjóðs í Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins eða 49% hluta-
fjár. Finnur Ingólfsson, viðskipta-
og iðnaðarráðherra, segir að vel
heppnuð sala á hlutafé í Lands-
banka valdi því að ákveðið hafí ver-
ið að selja svo stóran hlut í fyrsta
áfanga.
Finnur sagði að salan myndi fara
^Jþannig fram að almenningi yrði
ooðið að skrá sig fyrir hlut í bank-
anum að hámarki þrjár milljónir
króna á nafnverði. Ef menn skráðu
sig fyrir meira en sem næmi þess-
um 49% yrði hlutur hvers og eins
skertur. Ef eftirspurn eftir áskrift
yrði hins vegar minni en 49% yrði
síðar tekin ákvörðun um að selja
það sem á vantaði í tilboðssölu, þó
þannig að einstakir aðilar gætu að-
eins keypt hlutafé sem næmi allt að
3% hlutafjár í bankanum í slíkri
. sölu.
„Ef aðstæður á markaði verða
góðar ætlum við að leita eftir laga-
heimild frá Alþingi fyrir áramót til
að selja 51% hlut ríkisins í bankan-
um á fyrrihluta næsta árs. Bankinn
verður þá að öllu leyti í eigu einka-
aðila. Síðar verður tekin ákvörðun
um hvernig verður staðið að sölu á
þessum hlut,“ sagði Finnur.
Einkavæðingarnefnd
ákveði gengið
Finnur sagði að framkvæmda-
nefnd um einkavæðingu yrði falið
að undirbúa söluna, m.a. ákveða
hvenær hún færi fram og hvert
gengið yrði. Gert væri ráð fyrir að
starfsmönnum yrði gert kleift að
kaupa hlut í bankanum með hlið-
stæðum hætti og gert hefði verið
við söluna á hlutabréfum í Lands-
banka og Búnaðarbanka. Pað þýddi
að miðað væri við að hlutur starfs-
manna í sölunni yrði svipaður og
við sölu á hlutafé í ríkisviðskipta-
bönkunum.
Upphaflega var áformað að selja
49% hlut ríkisins í FBA í tveimur
áföngum, en Finnur sagði að mikill
áhugi almennings á að kaupa hlut í
Landsbankanum gerði það að verk-
um að ákveðið hefði verið að selja
allt hlutaféð í einum áfanga.
Davíð Oddsson um Guðmundar- og Geirfínnsmál á Alþingi
Skynsamlegt að hafa
varnagla til öryggis
""^AVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
sagði í umræðum á Alþingi í gær að
pottur hefði víða verið brotinn í
Geirfínnsmálinu svokallaða og sagði
það mikil vonbrigði að Hæstiréttur
skyldi ekki hafa haft lagaskilyrði til
þess að taka málið upp á nýjan leik í
fyrrasumar. Ráðherra sagði að ekki
aðeins eitt dómsmorð hefði verið
framið í Geirfmnsmálinu heldur
mörg og gat þess ennfremur að þótt
það hefði verið sársaukafullt fyrir
íslenska dómstóla hefði það verið
góð og nauðsynleg „hundahreins-
un“, eins og hann orðaði það, að
fara í gegnum Geirfínnsmálið. „Eg
tel eftir niðurstöðu Hæstaréttar að
það sé skynsamlegt og eðlilegt að
Alþingi velti þessu máli fyrir sér og
hvort ekki sé rétt til öryggis að hafa
vamagla af því tagi sem gerir kleift
að taka upp mál sem kunna að hafa
farið úrskeiðis á rannsóknar-, með-
ferðar- og dómstigum þess,“ sagði
hann.
Tilefni þessara ummæla var
frumvarp um réttarfarsdómstól
sem Svavar Gestsson alþingismaður
mælti fyrir á Alþingi í gær. Er í
frumvarpinu lagt til að settur skuli
á stofn dómstóll er nefnist réttar-
farsdómstóll sem hefði það hlutverk
að fjalla um kröfur um endurupp-
töku mála. „Málið er flutt að gefnu
tilefni frá í fyrrasumar er Hæsti-
réttur hafnaði beiðni Sævars Ciesi-
elskis um endurupptöku máls hans.
Með þessu er ekki verið að gagn-
rýna niðurstöðu Hæstaréttar. Til-
gangur þessa fmmvarps er að
hreyfa nauðsyn þess að Hæstiréttur
þurfi ekki að fella úrskurði í eigin
málum eins og nú háttar," segir
m.a. í greinargerð fí-umvarpsins.
Hefur kynnt sér málið
„Mér sýnist augljóst að forsætis-
ráðherra hefur kynnt sér málið og
fiestir sem hafa kynnt sér það hafa
komist að svipaðri niðurstöðu,“
sagði Ragnar Aðalsteinsson hæsta-
réttarlögmaður í samtali við Morg-
unblaðið aðspurður um ummæli for-
sætisráðherra. Hann var einnig
spurður um hugmyndina um um-
ræddan dómstól: „Eg er samþykkur
því að menn fái að leggja beiðni um
endurupptöku fyrir dómstóla. Það
er mjög mikilvægt að það séu dóm-
stólar sem taka slíka ákvörðun. Ef
um verður að ræða sérdómstól, sem
yrði væntanlega skipaður einum
lögmanni, einum háskólakennara og
einum dómara, þá er hann óháðari
en þeir eru og er ekki að fjalla um
eigin mál,“ sagði lögmaðurinn enn-
fremur og kvaðst mundu fagna til-
komu slíks dómstóls.
■ Mörg/10
31túnfískur
á einum deg’i
TÚNFISKVEIÐI hefur heldur
betur glæðst hjá japönsku túnfísk-
veiðiskipunum sem nú stunda
veiðar innan íslensku lögsögunn-
ar. Eitt skipanna fékk í síðustu
viku 31 túnfísk á einum degi en
það er mesta dagsveiði frá því að
tilraunaveiðar Japananna hófust
innan lögsögunnar á síðasta ári.
Veiði hefur verið með ágætum síð-
ustu vikur og er meðalveiðin hjá
skipunum um 8 til 10 fiskar á dag.
Meðalþyngd túnfískanna er um
120 kíló og meðalaflinn því um
eitt tonn á dag. Aflinn fór hins
vegar upp í 31 túnfisk, eða um 3,7
tonn, á einum degi hjá einu skip-
, anna í síðustu viku og segir Hörð-
ur Andrésson, fískifræðingur á
Hafrannsóknastofnun, það vera
mesta dagsafla frá því tilrauna-
veiðar Japana innan íslensku
fískveiðilögsögunnar hófust á síð-
asta ári. Hann segir annað jap-
anskt skip hafa fengið 27 físka á
einum degi fyrr í þessum mánuði
og því hafí Islandsmetið verið
tvíslegið á skömmum tíma. Mesta
dagsveiði innan lögsögunnar á
síðasta ári var 23 fískar. Hörður
segir veiðina hafa verið hvað
besta um þetta leyti í fyrra og því
megi varla búast við að metið
verði slegið aftur á þessu ári.
■ Japanskt skip/Bl
Morgunblaðið/Emil Þór
Unnið við Búrfellslínu
VINNUFLOKKUR Lands-
virkjunar var við vinnu við
Búrfellslínu IIIA í gær og þarna
eru mennirnir komnir í um 44
metra hæð að setja saman
háspennumastur á austurbakka
Hvítár, sunnan við Vörðufell á
Skeiðum.
Gagnabankar og skrár með viðkvæm-
um heilbrigðisupplýsingum
Fostureyðingar
og ófrjósemis-
aðgerðir skráðar
MIKLU magni heilsufarsupplýsinga
um skjólstæðinga heilbrigðisþjón-
ustunnar hefur verið safnað og þær
skrásettar í dreifðum gagnabönkum
og skrám bæði af hálfu stjómvalda
og ýmissa heilsufélaga. Pessi gagna-
söfn innihalda yfirleitt viðkvæmar
persónuupplýsingar, sem eru oft
geymdar undir nafni eða kennitölu.
Er öryggi þeirra varið með ströng-
um aðgangstakmörkunum.
Landlæknisembættið varðveitir
ýmsar aðgreindar persónubundnar
skrár vegna eftirlitshlutverks emb-
ættisins. Meðal þeirra eru skrá yfír
alnæmissjúklinga, fóstureyðingar
og ófrjósemisaðgerðir. Þar eru
skráðar persónutengdar upplýsing-
ar. Annast einn starfsmaður emb-
ættisins varðveislu fóstureyðinga-
og ófrjósemisskránna. Gilda strang-
ar reglur um meðferð þeirra og er
aðgangur að upplýsingunum tak-
markaður. Að sögn Matthíasar
Halldórssonar aðstoðarlandlæknis
hefur verið til umræðu að undan-
fórnu að afmá nöfn viðkomandi ein-
staklinga úr skránum þannig að þar
komi eingöngu fram fæðingarmán-
uður og fæðingarár.
Landlækni ber samkvæmt lögum
að halda sérstakar skrár um fóstur-
eyðingar og ófrjósemisaðgerðir
vegna eftirlitshlutverks_ embættis-
ins, skv. upplýsingum Olafs Olafs-
sonar landlæknis.
Skrá um sjúkrahúslegu
í heilbrigðisráðuneyti
Heilbrigðisráðuneytið hefur um
nokkurra ára skeið safnað og tölvu-
skráð svokallaðar vistunarupplýs-
ingar frá sjúkrahúsum landsins þar
sem skrásett er hverjir leggjast inn
á sjúkrahús, legutími sjúklings og
sjúkdómsgreining hans. Þetta er
gert að fengnu leyfí landlæknis og
Tölvunefndar. Kennitölur allra
sjúklinga eru dulritaðar áður en
upplýsingar eru færðar í skrána til
að vernda persónuauðkenni og hef-
ur aðeins einn starfsmaður ráðu-
neytisins aðgang að henni. Matthías
Halldórsson telur eðlilegra fyrir-
komulag að þessi skrá verði falin
landlækni til varðveislu en að upp-
lýsingarnar séu geymdar í ráðu-
neyti, sem lúti pólitískri yfírstjórn.
Þessar upplýsingar koma fram í
greinum sem birtar eru í Morgun-
blaðinu í dag í greinaflokknum
Erfðir og upplýsingar.
■ Gagnabankar/22-26