Morgunblaðið - 18.12.1998, Side 1
289. TBL. 86. ARG.
FOSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Irakar vígreifír en segja mikið mannfall hafa orðið í loftárásum Bandarikjamanna og Breta
Blendin viðbrögð umheimsins
en loftárásum haldið áfram
Rússar æfír og kalla sendiherra sinn
heim frá Washington í mótmælaskyni
Washington, London, Bagdad, Moskvu, Peking, París, Kúveitborg, Ramallah, Duhai. Reuters.
BANDARÍKJAMENN og Bretar héldu áfram loftárásum á írak í gær.
Annan daginn í röð gátu sjónvarpsáhorfendur um heim allan fylgst með
beinni sjónvarpsútsendingu frá Bagdad, þar sem næturhiminninn lýstist
annað slagið upp af sprengingunum sem skóku borgina. Irakar fullyrtu í
gærkvöldi að 25 manns hefðu látist í árásunum í gær og fyrrinótt í
Bagdad einni. írakar voru vígreifír í gær og sökuðu Bandaríkjamenn og
Breta um lygar til að finna sér tylliástæðu til að ráðast á þá. Viðbrögð
þjóða heims við aðgerðunum voru afar misjöfn, Rússar mótmæltu árás-
unum harðlega og fóru í gær fram á að boðað yrði til fundar í öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna. Þá var sendiherra Rússlands í Washington
kallaður heim til skrafs og ráðagerða í gærkvöldi.
Bandarískar B-52 sprengjuþotur
og breskar Tornado-vélar tóku á
loft frá bresku eynni Diego Gareia á
Indlandshafi og herstöðvum í Kú-
veit og gerðu árásir á skotmörk í
írak eftir að myrkur var skollið á,
um miðjan dag í gær að íslenskum
tíma. Talsmaður breska flughersins
sagði í gærkvöldi að árásirnar hefðu
verið árangursríkar, og að vélarnar
hefðu snúið óhultar til bækistöðva
sinna.
Henry Shelton, yfirmaður banda-
ríska heraflans, sagði að um fimmtíu
skotmörk í Irak hefðu verið hæfð í
fyrrinótt. William Cohen, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, sagði
að í íyrstu hrinu árásanna hefðu
flugskeyti og sprengjur Bandai'íkja-
manna gereyðilagt loftvarnakerfi,
herflugvelli og einhverjai- af stjórn-
stöðvum Irakshers. Bill Clinton
Bandaríkjaforseti sagði að það hefði
verið hárrétt ákvörðun að hefja árás-
ir á Irak, og að það hefðu verið mikil
mistök ef Bandaríkjamenn hefðu
setið aðgerðalausir á meðan Irakar
byggðu upp vopnabúr gereyðingar-
vopna. Hann vísaði því á bug að
Reuters
Skemmdirn-
ar skoðaðar
IRASKAR konur og börn standa
við rústir íbúðarhúss í Karrada-
hverfinu í Bagdad en húsið
eyðilagðist í eldflaugaárás
Bandarikjamanna og Breta í
fyrrinótt.
Reuters
FLUGUMFERÐARSTJÓRAR á bandaríska flugmóðurskipinu USS Enterprise á Persaflóa leiðbeina
sprengjuflugvélum á flugi inn yfir írak í gær.
árásirnar væru gerðar nú til að
draga athyglina frá umræðu í full-
trúadeUd þingsins um ákæru tU
embættismissis á hendur honum.
Saddam Hussein hvatti lands-
menn sína til dáða í sjónvarpsávarpi
til írösku þjóðarinnar í gær. „Okkar
mikla þjóð og okkar hugrakka her-
lið ... berst gegn óvinum guðs, araba
og mannkynsins. Með vilja guðs
verðið þið sigurvegarar," sagði
Saddam.
Vestrænum fréttamönnum í
Bagdad er ekki leyft að ferðast um
borgina án fylgdar og hefur þeim ein-
ungis verið veittur aðgangur að af-
mörkuðum svæðum. Hefur því ekki
verið hægt að staðfesta staðhæfingar
um mannfall og eyðileggingu.
Ríkisútvarpið í Bagdad hafði eftir
Saddam Hussein í gær að upphaf
árása Bandaríkjamanna hefði verið
„dagur sigurs“. Greint var frá því að
hús dóttur Saddams hefði verið lagt í
rúst í loftárásum aðfaranótt fimmtu-
dags, en að hún hefði verið að heim-
an, og fram kom að Saddam hefði í
jrærmorgun kannað skemmdir af
völdum árásanna.
íslenska utanríkisráðuneytið lýsti
því yfir í gær að það teldi hernaðar-
aðgerðir Bandaríkjamanna og Breta
gagnvart Irak vera óumflýjanlegar.
Viðbrögð í Noregi og Danmörku
vora á sama veg, Kjell Magne
Bondevik forsætisráðherra Noregs,
sagði íraka sjálfa bera ábyrgðina á
árásunum. Sænsk stjórnvöld gagn-
rýndu hins vegar að öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna skyldi ekki
hafa verið haft með í ráðum er
ákveðið var að ráðast á írak þótt
Göran Persson forsætisráðherra úti-
lokaði ekki að Svíar hefðu stutt að-
gerðirnar, hefðu þeir og aðrar þjóðir
sem sæti eiga í öryggisráðinu, fengið
að fjalla um þær.
Bandaríkjastjórn ákvað í gær að
40 sendiráðum í Afríkuríkjum yrði
lokað í tvo daga, vegna ótta við
hefndarárásir og ítrekaðra hótana
um hryðjuverk í álfunni. Ekki munu
vera fordæmi fyrir jafn umfangs-
miklum lokunum sendiráða.
Jacques Chirac Frakklandsforseti
sagði í gær að sprengjuárásir undir
forystu Bandaríkjanna myndu ekki
leiða til lausnar á íraksdeilunni, og
kvaðst hafa rætt við Kofi Annan,
framkvæmdastjóra SÞ, um leiðir til
að binda enda á átökin. Hann lagði
þó áherslu á að Saddam Hussein
bæri ábyrgð á þeirri stöðu sem upp
væri komin.
Önnur NATO-ríki lýstu flest yfir
stuðningi við árásirnar, en ítalir
hörmuðu að nauðsynlegt hefði verið
að beita valdi. Gerhard Schröder,
kanslari Þýskalands, kvaðst styðja
aðgerðir Bandaríkjamanna og Breta,
en utanríkisráðherrann, Joschka
Fischer, sagði þær „sorglegar" en að
Saddam bæri á þeim ábyrgð.
Hörð mótmæli Rússa
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
sagði í gær að árásimar á Irak brytu
í bága við stofnskrá Sameinuðu þjóð-
anna, og Jevgení Prímakov, forsæt-
isráðherra Rússlands, sagði
„hneykslanlegt" að þær hefðu verið
hafnar á meðan öryggisráð SÞ vai-
að ræða málið á fundi sínum á mið-
vikudagskvöld. I yfirlýsingu frá
rússneska forsætisráðuneytinu segir
að aðgerðirnar séu „áfall fyrir sam-
skipti Bandaríkjanna og Rússlands“
en í kjölfarið ræddi A1 Gore, varafor-
seti Bandaríkjanna, við Prímakov.
Dúman, neðri deild rússneska þings-
ins, fordæmdi árásirnar í gær og
sakaði Bandaríkjamenn og Breta um
„alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi".
Utanríkisráðherra Rússlands,
ígor ívanov, sagði í gær að Rússar
krefðust þess að endi yrði þegar
bundinn á árásir á Irak og samn-
ingaviðræður hafnar til að leysa deil-
una. Ivanov fór ennfremur fram á að
Richard Butler, yfirmanni vopnaeft-
irlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna
(UNSCOM), yrði vikið frá, og sagði
hann ábyrgan fyrir atburðarásinni.
Sagði ívanov að Rússar myndu fara
fram á að „hlutlausari og reyndari“
maður tæki við stöðunni.
Butler ver skýrsluna
Butler varði í gær skýrslu sína um
framgang vopnaeftirlits í Irak, sem
varð til þess að Bandaríkjamenn og
Bretar tóku ákvörðun um hernaðar-
aðgerðir. Hann sagði hana vera
„heiðarlega, byggða á staðreyndum
málsins og hlutlausa". Hún hefði
ekki verið skrifuð til að þjóna hags-
munum eins né neins. Sagðist hann
ekki hafa nein áform um að segja
starfi sínu lausu.
Talsmaður rússnesku stjórnarinn-
ar sagðist í gær hvorki geta játað né
neitað fullyrðingum Interfax-frétta-
stofunnar um að nokkrum deildum
sjóhersins og flughersins hefði verið
skipað í viðbragðsstöðu eftir að
fregnh' bárust af árásunum á írak.
Arababandalagið, Indverjar og
Pakistanar fordæmdu árásirnar í gær
og Vatíkanið gaf út harðorða yfirlýs-
ingu þai- sem þær voru gagnrýndar.
Persaflóaríki vora varkár í yfirlýsing-
um, og Kúveitbúar létu í Ijós von um
að frekari átökum yrði afstýrt.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, sagði að ísraelar
stæðu utan við deiluna, en myndu
verja land sitt ef þörf kræfi.
■ Sjá nánar bls. 26-28 og
forystugrein á iniðopnu.
Fulltrúadeildin tekur mál Clintons fyrir í dag
Þingforseti viður-
kennir framhjáhald
Washington. Reuters.
FULLTRUADEILD Bandaríkja-
þings mun í dag hefja umræður um
hugsanlega málshöfðun á hendur Bill
Clinton Bandaríkjaforseta sem leitt
gæti til ákæra til embættismissis.
Málin tóku hins vegar óvænta stefnu
í gærkvöldi, þegar repúblikaninn
Bob Livingston, tilnefndur forseti
fulltrúadeildarinnar, gaf út yfirlýs-
ingu þar sem hann viðurkenndi að
hann hefði nokkrum sinnum haldið
framhjá eiginkonu sinni eftir að hann
var kjörinn á þing.
Dagblaðið Roll Call í Washington
hafði áður birt frétt þess efnis á net-
útgáfu sinni. I fréttinni kom fram, að
hugsanlegt væri að Livingston byðist
til að segja af sér, en talsmaður hans
vísaði því á bug í gærkvöldi. Heim-
ildamenn innan Repúblikanaflokks-
ins töldu líklegt að aðrir foiystumenn
flokksins tækju upp hanskann fyrir
Livingston.
Livingston hafði fyrr um daginn
sagt að ekki yrði hjá því komist að
taka mál Clintons fyrir. „Engan
langar til að ræða um ákæru til emb-
ættismissis, en hún liggur fyrir þing-
inu og við verðum að taka á máhnu."
Kvaðst Richard Gephardt, leiðtogi
demókrata í fulltrúadeildinni, hins
vegar vera á móti því að kosið yrði í
dag eða á morgun um hvort málinu
yrði vísað áfram til öldungadeildar-
innai-, á sama tíma og hemaðarað-
gerðir stæðu yfir gegn írak.
Demókrötum tókst að koma í veg
fyrir áætlun repúblikana þess efnis
að umræður færa fram stanslaust í
átján klukkustundir um fjögur
ákæruatriði sem dómsmálanefnd
fulltrúadeildarinnar samþykkti að
vísa til þingsins fyrr í þessari viku.
Upphaflega ætlaði fulltrúadeildin að
greiða atkvæði um ákærana gegn
Clinton í gær en á miðvikudag, eftfr
að Clinton hafði fyrirskipað árásimar
á Irak, var ákveðið að fresta málinu.