Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 84
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍM15691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: R1TSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTl 1
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðjð/Árni Sæberg
Á LEIÐ upp í TF-LÍF eftir volk
í sjónum.
370 manns
hafa verið
-hífðir úr sjó
FISKIEFTIRLITSMENN frá
Fiskistofunni tóku þátt í nám-
skeiði hjá Björgunarskóla sjó-
manna í gær. Þeir voru hífðir um
borð úr gúmmíbjörgunarbát í
þyrlu á ytri höfn Reykjavíkur og
handtök við björgun af þessu tagi
voru æfð. Alls hafa 32 æfingar
verið haldnar á þessu ári með
þátttöku þyrlna Landhelgisgæsl-
unnar, þar af 19 á TF-SIF og 13 á
TF-LÍF. Samtals hafa 370 manns,
sem sótt hafa námskeið hjá sjó-
mannafræðsiunni, verið hífðir
upp úr sjó á æfingum á þessu ári.
J'orben Lund, stýrimaður á TF-
fcLIF, sagði að mennirnir hefðu
verið hífðir um borð og síðan
flogið með þá út í Engey. Til
greina kæmi að hætta að fara út í
Engey vegna rusls sem safnast
hefur saman í eynni. Ruslið þyrl-
ast upp þegar vélin nálgast og
segir Torben hættu á því að það
lendi í spöðum og inntökum. Fyr-
ir fimmtán árum lenti rusl í spöð-
unum á TF-GRÓ. Ruslið er reki
úr sjónum en Torben segir að sér
þyki sjálfsagt að gerður verði út
leiðangur til að hreinsa eyjuna.
Þrjú íslensk börn björguðust er lestarvagni þeirra hvolfdi í Noregi í gær
,Taldi að börnin
væru öll látinu
SVEINN Guðmundsson, Ásmund-
ur Þór, Hanna Kristjana og Tómas
Birnir Sveinsbörn komust lífs af
þegar lest fór út af sporinu suður
af Mosjoen í norðurhluta Noregs í
gær. Þau voru á leið frá Bodö til
að Iialda jól í Danmörku. Tveimur
vögnum lestarinnar hvolfdi við
óhappið og var annar þeirra leik-
vagninn þar sem börnin voru.
Um 150 farþegar voru í lestinni
sem var á leið til Þrándheims.
Leikvagninum hvolfdi ásamt
næsta vagni fyrir framan. Sveinn
var í aftasta vagnmum, veitinga-
vagninum, og segir hann að það
hafi verið skelfilegasta lífsreynsla
sín nokkru sinni þegar hann sá
Ieikvagninn á hvolfi.
„Eg taldi víst að börnin væru öll
látin,“ sagði Sveinn í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi. Fjórtán
manns voru fluttir á sjúkrahúsið í
Mosjoen en enginn reyndist lífs-
hættulega slasaður. Sveinn og
börnin sluppu án teljandi meiðsla.
Tvö eldri börnin eru marin eftir
slysið, en yngsta barnið virðist al-
veg hafa sloppið. Tómas Birnir,
sem er tveggja ára, lýsti slysinu á
þann veg fyrir föður sínum að
hann hefði skyndilega farið á
hvolf í lestinni. „Þegar ég komst
inn í vagninn spurði hann hvort
við værum núna komnir til Dan-
merkur. Dóttir mín og Ásmundur
flugu um inni í vagninum þegar
honum hvolfdi og það kom gat á
Ioftplötu í þakinu þegar hann skall
með höfuðið þar,“ sagði Sveinn í
samtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
■ Óhugnanlegasta/43
ÁSMUNDUR Þór, Hanna Kristjana og Tómas Birnir komust heil á
húfi úr lestarslysi í Noregi í gær.
Einn forstjóri yfír báðum stóru sjúkrahúsunum
Fjárhagsleg ábyrgð
ríkisins á rekstri SHR
RÍKIÐ mun um næstu áramót
taka við fjárhagslegri ábyrgð af
rekstri Sjúkrahúss Reykjavíkur af
Reykjavíkurborg. Frá sama tíma
tekur við störfum einn forstjóri yf-
ir báðum stóru sjúkrahúsunum í
Reykjavík. Magnús Pétursson,
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðu-
neytinu, hefur verið ráðinn í starf-
ið. Ennfremur hefur verið ákveðið
að sjúkrahúsin fái á fjáraukalögum
500 milljónir til að taka á fjárhags-
vanda liðinna ára.
„Það er eðlilegt að fagleg og fjár-
hagsleg ábyrgð á rekstri fari sam-
an. Það ber ekki vott um nútíma-
lega stjórnunarhætti að borgin reki
Sjúkrahús Reykjavíkur og stjórni
honum en ríkið borgi allan tilkostn-
að. Nú fer þessi faglega og fjár-
hagslega ábyrgð saman og mér
finnst það vera mjög skynsamlegt
af Reykjavíkurborg að taka þetta
Spítalarnir fá
500 milljónir í
aukafjárveitingu
skref,“ sagði Ingibjörg Pálmadóttir
heilbrigðisráðherra.
Hún sagði að með ráðningu for-
stjóra fyrir bæði sjúkrahúsin gæfist
færi á að fylgja betur eftir ákvörð-
unum sem hefðu verið teknar um
ýmsa hagræðingu í rekstri sjúkra-
húsanna.
„Ég tel, í ljósi reynslu síðustu
ára, þrátt fyrir að borgin hafi haft
mikinn vilja til að reka Sjúkrahús
Reykjavíkur, að þetta rekstrarfyrir-
komulag sé fullreynt. Það er ijóst að
fjármunir til rekstrarins koma úr
ríkissjóði, en ekki úr borgarsjóði og
hin fjárhagslega ábyrgð hlýtur að
liggja á endanum hjá ríkinu þó að
borgin hafi verið hinn formlegi eig-
andi og rekstraraðili spítalans. Við
teljum eðlilegt að fjárhagsleg og
rekstrarleg ábyrgð fari saman,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagði að nú þegar fjárhagsleg
ábyrgð af rekstri SHR væri komin
yfir á ríkissjóð yrði ríkið að marka
stefnu varðandi framtíðarrekstur
spítalanna. Hann útilokaði ekki
frekari breytingar á stjóm þeirra.
Hann tók fram að starfsfólk þyrfti
ekki að óttast um sinn hag við þess-
ar breytingar.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins gagnrýndu samninginn á
fundi borgarstjórnar í gær og að
málið hefði ekki verið rætt í borgar-
ráði áður en til undirskriftar kom.
■ Ríkið tekur við/12-13
Niðurstöður nefndar Bandaríkjaþings um þróun kvótakerfa
Hluti arðsins af kerfínu
skili sér til samfélagsins
NIÐURSTÖÐUR nefndar sem unnið hefur að ít-
arlegri úttekt fyrir Bandaríkjaþing á reynslu af
kvótakerfum í sjávarútvegi voru kynntar þinginu
í gær. Meðal þeirra sem sæti áttu í nefndinni
oru Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði við Há-
skóla íslands, og Rögnvaldur Hannesson, pró-
fessor í hagfræði við Norska viðskiptaháskólann í
Bergen. I skýrslu sinni leggur nefndin til að
banni við þróun kvótakerfa í Bandaríkjunum
verði aflétt. Þá kemur fram í niðurstöðum nefnd-
arinnar að við hönnun kvótakerfa verði að full-
nægja ákveðnum skilyrðum. Þannig þurfi að hafa
í-huga samfélagið í heild og varast að kerfið þró-
ist í andstöðu við bandarísk lög og þau markmið
sem menn setja sér í upphafi.
Gísli Pálsson segir eina af helstu niðurstöðum
nefndarinnar þá að upphafleg úthlutun aflaheim-
ilda skipti geysilega miklu máli við hönnun kvóta-
kerfa. Nefndin bendi þannig á margs konar út-
hlutunarmöguleika, meðal annars til sjómanna,
bátaeigenda, vinnslustöðva og til byggða. Einnig
telur nefndin að verulegu máli skipti hverjir komi
að upphaflegri úthlutun. „Nefndin leggur mikla
áherslu á að þeir aðilar sem koma að hönnun
kerfisins komi sem víðast úr sjávarútveginum og
hópur svokallaðra hagsmunaaðila sé ekki skil-
greindur mjög þröngt," segir Gísli.
Þá segir ennfremur í skýrslunni að hluti þess
arðs sem verði til í kvótastýrðum fiskveiðum
verði að að skila sér til samfélagsins en ekki að-
eins til handhafa aflaheimildanna. Nefndin bend-
ir á ýmsar leiðir í þessu sambandi, þar á meðal
auðlindagjald eða skattlagningu.
Gísli segir athyglisvert hvernig að nefndar-
störfum hefur verið staðið. „Hið pólitíska vald fól
umboðsmanni vísinda í landinu að standa að þess-
ari samantekt. Ekki er valið í nefndina á pólitísk-
um forsendum, heldur með hagsmuni almennings
að leiðarljósi. Allir nefndarmenn eru algerlega
óháðir hagmunaaðilum og hafa ekki neinna hags-
muna að gæta. Nefndin hefur unnið með full-
kominni leynd í meira en ár. Hún hefur því ekki
unnið undir neinum þrýstingi," segir Gísli.
■ Höfuðatriði/42-43
Frjóvgun
með gjafa-
eggjtim
AÐEINS vantar eggin til að hægt sé
að hefja tæknifrjóvgun með gjafa-
eggjum á tæknifrjóvgunardeild
kvennadeildar Landspítalans. Eggin
verða að vera íslensk enda er ekki
hægt að frysta og flytja egg jafn
auðveldlega á milli landa og sæði,
sem hefur verið flutt frá Danmörku
til íslands um árabil.
I viðtali við Þórð Óskarsson, yfir-
lækni, kemur fram að eggjagjafar
geti gefið egg nafnlaust eða undir
nafni.
■ Tæknifijóvgun/B6-B7
---------------
Óska eftir
viðræðum
við formenn
EKKI var tekin ákvörðun um að
slíta viðræðum við Alþýðuflokkinn
og Alþýðubandalagið um sameigin-
legt framboð á félagsfundi Kvenna-
listans í Reykjavík í gærkvöldi.
Samþykkt var á fundinum að fela
fulltrúum listans að óska eftir fundi
með formönnum A-flokkanna til að
gera þeim grein fyrir afstöðu
Kvennalistans.
Á fundinum var jafnframt lýst yfir
fullu trausti á þær konur sem staðið
hafa í samningaviðræðunum við A-
flokkana að undanfórnu.
■ Ásakanir/4