Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 52
52 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ASGEIR ARNGRÍMSSON Sofðu engill, sólbjartur á vanga, svífur máni yfir höfin breið. Dagurinn gaf þér visku, kjark og vonir, vemdar nóttin þig á langri leið. (Friðrik Erlingsson) Ég bið góðan Guð að vaka yfir drengjunum þínum á þessari erfíðu stundu og varðveita þá um alla þeirra framtíð. Sofðu rótt, kæri vinur. Þín vinkona Helga Geirsdóttir. Mig langar að minnast hans As- geirs frænda með nokkrum orðum, en hann lést í hörmulegu bílslysi hinn 8. desember. Hvers vegna verða svona slys? spyr maður aftur og aftur, en svör- in eru engin. Eins og aðrir strákar hér í Ólafsfirði var Asgeir kenndur við móður sína og var því oftast kallaður Geiri Helgu. Geiri var elst- ur af fimm börnum þeirra Helgu og Bjarna, en þau bjuggu á Túngötu 5 í Ólafsfirði. Pabbi minn og Helga voru systk- ini þannig að mikill samgangur var á milli fjölskyldanna. Við systurnar á Hornbrekkuveginum öfunduðum stelpurnar á Túngötu 5 að eiga tvo bræður, þá Geira og Sigga, sem var litli prinsinn á heimilinu. Geh-i lærði að spila á gítar og lék stund- um heilmikið við okkur. Besti vinur Geira var Peddi frændi. Þeir sýndu okkur krökkun- um gjarnan bíó í Arnahúsinu hjá afa og ömmu. Þarna voru öll barna- börnin og þeir félagarnir elstir og sýndu okkur 8 mm myndir af Chaplin og Abott og Costello. Geiri var náttúrulega stjórnandinn. I Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar stofnaði hann hljómsveit sem spil- aði á skólaböllum og víðar. A sumr- in var síðan æft og spilað í Hring- veri. Geiri fór burtu til að mennta sig og settist síðan að á Akureyri, en hélt mikilli tryggð við okkur ættingjana í Ólafsfirði. Hann var alltaf til í að mæta ef eitthvað átti að gera t.d. fyrir ættarmótin tvö sem haldin voru í Hringveri. Þá keyrði hann frá Akureyri til að æfa með gömlu hljómsveitinni sem átti að sjálfsögðu að spila fyrir dansi. Þarna var æft gamla prógrammið með Creedence Cleai’water og Presley. Geiri hafði mjög gaman af því að dansa og eitt sinn vorum við nokkur pör úr ættinni saman í veislu og var undirrituð með hæl- særi í 10 daga eftir tjúttið við Geira, en það var _svo gaman. Næsta sumar ætlar Ai'nahúsættin að hittast í Hringveri og mikið verður hans Geira saknað. Hann hringdi í Hauk, manninn minn, 4. desember til að vita hvort þeir ættu ekki að byrja að æfa fyrir ættarmótið strax eftir áramót. Þetta sýnir hvað Geiri var drífandi og hvetjandi. Elsku Geiri minn, ég veit að hún mamma þín hefur tekið vel á móti þér ásamt systkinunum og afa og ömmu en við Haukur kveðjum þig með söknuði í hjarta og þakklæti í huga og biðjum guð að styrkja syni þína og fjölskyldu í sorg þeirra. Geiri minn, við rifjum svo dans- inn upp þegar við hittumst síðar. Jónína Kristjánsdóttir. Við kynntumst Asgeiri fyrir um 20 árum síðan þegar hann starfaði hjá Utgerðarfélagi Akureyinnga hf. en undirritaðir störfuðu sem frysti- hússtjórar á Dalvík og í Hrísey. Ófá símtöl voru um ýmiskonar saman- burð og rökræður um hvað betur mætti fara. Það var alltaf gott að leita til Asgeirs og var hann fróður um hina ýmsu rekstrarþætti. Eftir að undirritaðir fluttust suður og tóku við nýjum störfum, rofnaði sambandið en þó voru alltaf öðru hverju höfð skoðanaskipti. Leiðir lágu aftur saman þegar Asgeir var ráðinn framkvæmda- stjóri Kaldbaks hf. á Grenivík. Sölumál voru þá færð yfir til Is- lenskra sjávarafurða hf. sem undir- ritaðir starfa hjá. Samskipti_ urðu mikil og náin samvinna við Asgeir varð í alla staði _mjög góð. I fram- haldi af því að Islenskar sjávaraf- urðir hf. keypti stóran hlut í Fisk- miðlun Norðurlands hf. var ákveðið að ráða nýjan framkvæmdastjóra. Asgeir varð fyrir valinu og starfaði sem framkvæmdastjóri til dauða- dags. Þar sem undirritaðir voru fulltrúar IS í stjórn Fiskmiðlunar- innar voru samskiptin oft mikil. Við eigum margar góðar minn- ingar af fjörugum samræðum um lífsins gang á leið okkar á stjórnar- fundi en Asgeir sótti okkur yfirleitt út á flugvöll. Eins eru margar minningar af góðum samverustund- um í veiðiferðum eða á skemmtun- um með starfsfólki Fiskmiðlunar- innar. Okkur er sérstaklega í minni ánægjulegt 10 ára afmæli Fiskmiðl- unarinnar. Þar var Ásgeir hrókur alls fagnaðar og söng þar með hljómsveitinni eins og honum ein- um var lagið. Það er erfitt að skilja hvers vegna maður á besta aldri er hrif- inn á braut en fyrir því eru eflaust skýringar sem Guð almáttugur einn getur svarað. Við þökkum As- geiri innilega samfylgdina en eftir situr minning um góðan félaga með létta lund. Við vottum sonum As- geirs og öðrum ættingjum dýpstu samúð og biðjum Guð að styrkja þau í þeirra miklu sorg og missi. Guð blessi minningu Asgeirs Arngrímssonar. Sæmundur Guðmundsson, Aðalsteinn Gottskálksson. Kveðjá frá Júdósambandi Islands. Þennan morgun, eins og oft áður, áttum við samtal um júdóíþróttina og það sem framundan var í starfi stjórnarinnar. Eitt af því sem varð að afgreiða var júdómaður ársins. Við skeggræddum málið og ég hafði orð á því að oft væri ákvörðun sem þessi sambland af tilfinningu og heildarárangri ársins, sérstak- lega þegar mjótt væri á munum milli íþróttamanna og erfitt væri að gera upp á milli þeirra. Asgeir svaraði þá að lokum, rólegur að vanda: „Já Júlíus, ég stend með mínum manni.“ Mér líkaði þetta svar, þó að ég væri ekki endilega sammála honum, því það var sett fram með þeim hætti sem Asgeiri fór svo vel, af hógværð en þó með festu. Samtalinu lauk með því að við ætluðum að ræða við félaga okkar og tala saman aftur um kvöldið. Af því samtali varð aldrei. Næstu fréttir voru hörmulegar, As- geir hafði lent í umferðarslysi og látist, þennan sama dag, aðeins 44 ára að aldri. Asgeir Amgrímsson var einstak- lega viðfelldinn maður. Kynni okk- ar voru stutt en þau voru afar góð. Þegar ég, óvænt, tók við for- mennsku í Júdósambandi Islands fyrir tæpum þremur árum var As- geir einnig kjörinn í stjórnina í fyrsta sinn. Hann hafði þá um ára- bil verið formaður júdódeildar KA á Akureyri. Ég fann það strax að þarna var hæfur maður á ferðinni, maður sem lagði málin fyrir án þess að vera með „kryddur" um menn eða málefni sem stundum vill verða innan íþróttahreyfingarinn- ar. Hann hafði þá víðsýni í málum sambandsins og íþróttarinnar, að ég sem formaður gat treyst því að fagleg sjónarmið réðu ferðinni í ákvörðunum, jafnvel þó svo að hann væri formaður einnai- stærstu júdódeildar sambandsins. Ég man þennan eiginleika Asgeirs mjög og leitaði til hans, sérstaklega í við- kvæmari málum. Asgeir reyndist bæði mér og júdósambandinu eink- ar vel með störfum sínum og það er mikill sjónai'sviptir og skaði þegar við í stjórn JSI sjáum nú á eftir As- geiri yfir móðuna miklu, langt um aldm- fram. Fjölskyldu hans, ástvinum og þá sérstaklega sonum hans, sem allir hafa æft og keppt í júdóíþróttinni, eru sendar innilegar samúðarkveðj- ur. Harmur þeiri'a og söknuður er mikill en þess beðið að sá sem öllu ræður styrki þau í þeirra mikiu sorg. Asgeirs Arngi'ímssonar er nú sárt saknað en minningin mun lifa. Júlíus Hafstein. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, SIGURÐUR FINNBOGASON, Sunnuholti 6, ísafirði, sem lést á heimili sínu laugardaginn 12. des- ember, verður jarðsunginn frá (safjarðarkirkju laugardaginn 19. desember kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Isafjarðarkirkju eða Styrktar- félag fatlaðra á Vestfjörðum. Signý B. Rósantsdóttir, Ólafur R. Sigurðsson, Gísla Björg Einarsdóttir, Sigrún Sigurðardóttir, Sigþór Sigurðsson, Hafrún Huld Ólafsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, GUÐRÚN (Stella) GUNNARSDÓTTIR, Austurströnd 10, Seltjarnarnesi, sem lést á heimili sínu föstudaginn 11. des- ember, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 21. desember kl. 13.30. Margeir Sigurðsson, Sigurður Ingi Margeirsson, Dóra Hafsteinsdóttir, Magnús Margeirsson, Jenný Ólafsdóttir, Brynja Margeirsdóttir, Guðjón Davíð Jónsson, Ása Kristín Margeirsdóttir, Örn Stefán Jónsson og barnabörn. .Jr l + Frænka mín, VIGFÚSÍNA MARGRÉT BJARNADÓTTIR frá Garðbæ, síðast til heimilis á Sólvöllum, verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju laugar- daginn 19. desember kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Sólvelli, heimili aldraðra á Eyrarbakka. Fyrir hönd ættingja, Aðalheiður Sigfúsdóttir. + Eiríkur Jónsson fæddist 18. nóv- ember 1924 á Hrafnabjörgum í Hjaltastaðaþinghá, N-Múlasýslu. Hann lést 1. október síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Jón Eiríksson og Elínborg Þorsteins- dóttir. Þau eru bæði látin. Eiríkur var annar í röð fimm bræðra. Hann kvæntist eftirlifandi konu sinni, Sigrúnu Jónsdóttur, 18. nóvember 1949, en hún er fædd 1. júlí 1927. For- eldrar hennar voru Jón Sig- urðsson og kona hans Kristín Arngrímsdóttir. Börn Eiríks og Sigrúnar eru: 1) Oddný Rósa, f. 23.5. 1949, búsett í Noregi. 2) Jón, f. 29.6. 1952, málarameist- ari í Reykjavík. 3) Gunnar Við- ar, f. 13.5. 1953, húsasiníða- Því er lokið, loks í kvöld. Lokið stef á skáldsins vör. Lífsins bók með lokuð spjöld. Lokið hinstu næturfór. (M.Á) Fæstum er gefínn sá andlegi styrkur að geta barist við banvæna sjúkdóma áratugum saman og nán- ast aldrei færa í tal þjáningar sínar meistari á Akur- eyri. Afkomendur þeirra eru nú orðn- ir ellefu. Eiríkur lærði húsasmíði og hlaut meistararéttindi í þeirri iðngrein árið 1953, síðan stundaði hann nám í mynd- og handmennta- deild Kennaraskóla íslands í einn vetur, en sótti síðar fram- haldsnámskeið í þeirri grein. Eirík- ur vann um nokk- urra ára skeið sem smiður hér á Akureyri, en 1962 var hann ráðinn smíðakennari við Odd- eyrarskóla á Akureyri og gegndi því starfi til 1985, en þá lét hann af störfum sökum van- heilsu. Útför Eiríks fór fram frá Akureyrarkirkju 8. október síð- astliðinn. og vandamál. í nær tvo áratugi sá- um við, sem þekktum Eirík, hvern- ig sjúkdómurinn vann á honum hægt og miskunnarlaus, an hann mætti hverjum degi og nýjum erf- iðleikum með endurnýjuðu þreki og viljastyrk, jafnvel með brosi á vör. Hann var hetja sem varðveitti innri gleði, gestrisni og hlýtt handtak til hinstu daga. Eiríkur var vandvirkur og góður smiður og áhugasamur kennari. Mest af ævistarfí hans fór í að leið- beina litlum höndum við gerð skemmtilegra og fallegra hluta, sem margir fóru í jólapakka til nán- ustu ættingja. Glaðværð og vin- semd var honum eðlislæg, en þó gat hann einnig verið fastur á skoðun og komið henni á framfæri án reiði og sárinda. A kennarastofunni átti hann marga vini og rétti þeim oft litla, vandaða trémuni, sem hann hafði fórnað frítíma sínum í að gera. A smíðastofunni vann hann marga helgina við að lagfæra muni þeirra barna, sem minna gátu, eða þá að hann var að smíða ný sýnis- horn. Hann tók mikinn þátt í stúku- starfi, sem fram fór í skólanum, en var einnig mjög virkur félagi í stúkunni Brynju. Eiríkur var ákaf- lega hjálpsamur og var af mörgum kallaður til verka, sem skiluðu litlu í vasann. Það varð honum aldrei að umræðuefni. Við Eiríkur störfuðum saman mest af hans starfsævi og hann var heimilisvinur, sem tengd- ist fjölskyldunni traustum böndum allt til hinsta dags. Fársjúkur spurði hann frétta af öllum og gladdist þegar vel gekk. Meðan þrekið entist hélt hann venju sinni þó að á sjúkrahúsi væri, að fylgja gestum að útidyrum og kveðja með virktum. Gi'unnur að góðu heimili má oftar en ekki rekja til húsmóð- urinnar. Sigrún, kona hans, reynd- ist honum einstaklega fórnfús og traust. Heima studdi hún hann með ráðum og dáð, en þegar sjúkrahús- vistin kom til sat hún hjá honum flesta daga, studdi hann um gang- ana og flutti honum fréttir. Um helgar ók hún honum heim og bjó gestum þeirra hjóna veisluborð. A kveðjustund er margs að minn- ast og margt að þakka. Það er öll- um gæfa að fá tækifæri til þess að starfa með traustu og fórnfúsu fólki. Sagt er að aldurinn verði þeim aðeins mælikvarði liðins tíma, sem varðveita innri gleði til efri ára. Þessa innri gleði varðveitti Ei- ríkur ótrúlega lengi og gat því tekið þátt í spaugi líðandi stundar. I mín- um huga var hann óbuguð hetja til hinsta dags. Sigrúnu, börnum, barnabörnum og öðrum ættingjum og vinum sendi ég og fjölskylda mín innilegar samúðarkveðjur. Indriði Úlfsson. Skilafrestur minningargreina EIGI minningargi'ein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnpdags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í miðviku- dags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað þarf greinin að ber- ast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu gi’eina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna skilafrests. EIRIKUR JÓNSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.