Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 37 Morgunblaðið/Jón Svavarsson HOPURINN Carmerarctica ásamt Richard Korn stillti sér upp fyrir ljósmyndarann á æfingu. F’jarverandi var Greta Guðnadóttir. Kertaljósatónleikar Camerarctica Tónlist Mozarts í þremur kirkjum HINIR árlegu kertaljósatónleikar kammerhópsins Camerarctica verða að venju haldnir rétt fyrir jól, og eins og áður er það tónlist Wolf- gangs Amadeusar Mozarts, sem er í öndvegi. Leikið verður í þremur kirkjum á höfuðborgarsvæðinu, í Hafnarfjarðarkirkju á morgun, laugardag, í Kópavogskirkju mánu- daginn 21. desember og í Dómkirkj- unni í Reykjavík þriðjudaginn 22. desember. Tónleikamir hefjast kl. 21. Carmerarctica skipa þau Hall- fríður Ólafsdóttir, flautuleikari, Ar- mann Helgason, klarinettuleikari, Hildigunnur Halldórsdóttir og Sig- urlaug Eðvaldsdóttir, fiðluleikarar, Guðmundur Kristmundsson, víólu- leikari og Sigurður Halldórsson, sellóleikari. Þeim til fulltingis verða þau Greta Guðnadóttir á víólu og Richard Korn á kontra- bassa. Verkin sem hópurinn hefur valið eftir Mozart að þessu sinni eru Kvartett í G-dúr K. 285a fyrir flautu og strengi og Grande Sestetto Concertante sem er samtíma út- setning á Sinfonia Concertante K. 364 fyrir strengjasextett. Einnig verður leikinn Kvintett fyrir flautu og strengi G. 441 eftir Luigi Boccherini sem var samtímamaður Mozarts. í lokin verður að venju leikinn jólasálmurinn í dag er glatt í döprum hjörtum, sem er einnig eftir Mozart. „I ár flytjum við einn af fjorum flautukvartettum Mozarts, þann smæsta sem er eingöngu í tveimur köflum og þvínæst er á dagskrá Kvintett fyrir flautu, sóló, selló, og strengi eftir Luigi Boccherini. Þetta er einn af sex kvintettum sem fund- ust á síðasta ári í skjalasafni Palacio Real í Madrid. Þeir hafa verið hljóð- ritaðir en ekki gefnir út á prenti, enn sem komið er, en fyrir milli- göngu millisafnalána Þjóðarbók- hlöðunnar tókst að útvega afrit af handritunum. Grande Sestetto Concertante er samtíma útsetning á Sinfonia Concertante, konsertinn fyrir fiðlu, víólu og hljómsveit eftir Mozart. Höfundur útsetningarinnar er ókunnur en verkið er nánast óbreytt, einungis smækkuð útgáfa af konsertinum, þar sem hljóðfærin sex skipta með sér einleiksstrófun- um,“ segir Hallfríður Ólafsdóttir. Tónleikarnir verða klukkustund- ar langir og eru kirkjurnar einungis lýstar með kertaljósum við þetta tækifæri. Skólakdr Kárs- ness og Dóm- kórinn í Hall- grímskirkju JÓLASÖNGVAR á aðventu heitir kvöldstund í Hallgrímskirkju með Skólakór Kársness og Dómkórnum í Reykjavík í kvöld, föstudags- kvöld, kl. 22. Stjórnandi Skólakórs Kársness er Þórunn Bjömsdóttir og Dómkórinn er í stjórn Marteins H. Friðrikssonar. Sungin verða jólalög og mótettur. Sigrún Þor- geirsdóttir syngur Ave Maria eftir Eyþór Stefánsson með Kárs- neskómum og Anna Sigríður Helgadóttir syngur með Dómkórn- um í kórverkinu Sjá grein á alda meiði eftir Distler. Tónleikunum lýkur með því að allir syngja Nótt- in var sú ágæt ein og Heims um ból. Verð aðgöngumiða er kr. 500 og verða þeir seldh' við innganginn. Ókeypis er fyrir börn. LITADUFT á límbornum papp- ír eftir Auði Sturludóttur. Auður og Asdís sýna í Galleríi Nema hvað AUÐUR Sturludótth' og Ásdís Arn- ardóttir opna sýningu á verkum sín- um í Galleríi Nema hvað, Skóla- vörðustíg 22c, í dag, föstudag, kl. 18. Auður og Asdís eru nemar á þriðja ári í Myndlista- og handíða- skóla Islands. Verkin eru unnin með oiíu á striga og með blandaðri tækni. Sýningin er opin til 4. janúar 1999. Þakkarkveðja Innilegar þakkir fœri ég öllum œttingjum og vinum sem gerðu mér ógleymanlegan 90 ára afmœlisdag minn hinn 4. desember sl. Guð gefi ykkur öllum gleðilegjól. Laufey Þórmundardóttir, Reykholti. SÝNINGUNUM þremur sem staðið hafa yfir undanfarnar vikur lýkur nú á sunnudag. Sýningarnar heita: Nor- hern Facotor - ný kynslóð í nor- rænni byggingarlist, Framsýning, Foroysk nútíðarlist og Myndlist - tónlist. A sunnudag kl. 16 verður leiðsögn um sýningarnai' en kl. 17 flytja þeh' Snom og Halldór tónlist og gjörn- ing. Sýningin er opin alla daga kl. 11-18. bætti ég svo við einu litlu verki eftir hann sjálfan, æfingu sem ég veit ekki til þess að hafi verið tekin upp áður. Þetta er mín leið til að þakka fyrir mig.“ Tónlistin á plötunni var tekin upp í Garðakirkju í júlí sl. Halldór Vík- ingsson sá um upptökur og hljóð- vinnslu, og upptökustjóri ásamt hon- um var Hrafnhildur Hagalín Guð- mundsdóttir. Pétur kveðst afskap- lega ánægður með hljóminn og út- komuna. „Maður gerir þetta ekki upp á eigin spýtur," segir hann. „Svo var Þorsteinn Gylfason svo vænn að skrifa textann í bæklinginn." Gítarinn sem Pétur leikur á er verk gítarsmiðsins Joaquín García í Málaga á Spáni. „Hann er smíðaður fyrir mig 1986 og er því á þrettánda ári og er búinn að fara með mér víða. Joaquín García er mjög kær og góð- ur vinur, spænskur Argentínumaður á sjötugsaldri, sem mér finnst vera alveg feiknamikill galdramaður. Eg átti því láni að fagna að kynnast hon- um vel og vera með honum oft lang- dvölum, og prófa ný hljóðfæri sem hann hefur verið að smíða. Hann er maður sem hefur gefið mér mikinn innblástur. Hann er sífellt að leita, alltaf að breyta hljóðfærunum sín- um, hlusta og prófa eitthvað nýtt. Það er eins með hljóðfærið og kenn- arana að það verður eins og órjúfan- legur hluti af tilveru manns,“ segir Pétur. Máradans Péturs Jónassonar Sýningum lýkur Kjarvalsstaðir Lögum Tárrega raðað upp í svítu „Ég byrjaði með fimm eða sex stykki eftir Tárrega sem ég hef spil- að mikið á tónleikum í gegnum tíð- ina. Svo fór ég að gramsa í nótna- safninu, skoða og lesa í gegnum þessi stykki og hugsaði með mér „þetta er nú ansi gott, ég verð að hafa þetta með,“ og svo komu alltaf fleiri og fleiri. Einhvern veginn gat MARADANS er titill- inn á nýútkominni geislaplötu Pétui's Jón- assonar gítarleikara. Hér er á ferð fyrsta ein- leiksplata Péturs en hann hefur um árabil verið í fremstu röð ís- lenskra gítarleikara. Hann stundaði fram- haldsnám í Mexíkó og á Spáni og hefur síðan haldið fjölda einleiks- tónleika víða um heim, leikið inn á hljómplötur og geislaplötur ásamt öðrum og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Á nýju geislaplötunni leikur Pétur þekkt gít- arverk frá gullaldartíma spænskrar tónlistar. Flest eru lögin eftir tón- skáldið Francisco Tárrega, eða alls nítján, en auk þeirra er þar fantasían Kveðjur eftii' Fernando Sor og æfing eftir fyrrverandi kennara Péturs, José Luis González, sem lést fyrr á þessu ári. Pétur segir það hafa staðið til all- lengi að gefa út einleiksplötu. Þegar hann er spurður hvað hafi ráðið laga- valinu segir hann að á plötunni sé samsafn margra af hans uppáhalds- lögum og bestu og fallegustu lögun- um efth' Tárrega. Upphaflega segist hann hafa verið með mjög flókna hugmynd um að stefna saman tónlist úr ýmsum áttum. Svo hafi hann farið að hugsa málið betur og ákveðið að „taka frekar eina hugmynd og fara með hana alla leið,“ eins og hann orðar það og bætir við að hann muni þá frekar gera fleiri plötur með annaiTÍ tónlist. ég aldrei hafnað þess- um verkum þannig að á endanum sat ég uppi með næstum því tutt- ugu verk eftir Tárrega. Þau eru stutt, laglín- urnar sterkar og þau eru alveg feiknarlega vel samin. Ég raðaði þeim upp eins og í hálf- gerða svítu, svo þau renna saman í ákveðnu samhengi.“ Á síðasta vetri þegar ég var í miðju kafi, lést kennar- inn minn langt fyrir aldur fram, og það hafði töluverð áhrif á lokaút- komuna. Svona kennar- ar eru feiknarlega áhrifamiklir í lífi manns,“ segir Pét- ur, sem var einkanemandi González um tveggja ára skeið. „Hans sér- grein var að spila Tarrega." Pétur ákvað að hafa með Fantasíu op. 21 eftir Fernando Sor. „Þetta er kveðjufantasía sem ég lærði hjá González á sínum tfma og var eitt af okkar uppáhaldsverkum. í lokin Pétur Jónasson \ Styrjaldarárin á Suðurlandi Umsvif í 40 herstöðvum. Hemaðarflugið frá Kaldaðamesi og hlutur þess í orrustunni um Atlantshaf. Sagt er frá sambúð hersins og héraðs- búa, skemmtunum og slysförum, árflóði og endalokum herstöðvarinnar í Kaldaðarnesi. „Hér er sagan sögð bœði eins og hún horfði við Islendingum og einnig eins og hermennirnir sjálfir sáu hana. Hér er um einstœða bók og einkar verðmœta að rœða. “ Sigurjón Björnsson, í ritdómi í Mbl. 26. nóv. 1998.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.