Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 73
í DAG
BRIDS
Vmsjón lliiOniiiiiilnr
l’áll Ai'iiarsiiii
TILTÖLULEGA óþekktú'
spilarai' undir liðsstjórn
Johns Onstotts (Chris
Compton, Ross Grabel og
Jon Wittes) komust í fjórð-
ungsúrslit í Spingold-
keppninni í sumar, meðal
annars með því að legga að
velli hina sterku sveit Jim-
my Cayne (Burger, Cohen,
Berkowitz, Seamon og
Passell). Onstott tapaði
hins vegar illa gegn sigur-
vegurunum, Nick Nickell
og félögum. Hér sjáum við
handbragð Ross Grabels í
sveit Onstotts í fyrri leik
gegn sveit Bramleys:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður * Á865 V K84
♦ D2 *Á754
Vestur Austur
*2 A DG107
VD7 V G32
♦ ÁG10643 ♦ 875
+ K863 * G109
Suöur
♦ K943
V Á10965
♦ K9
*D2
Vestur Noröur Austur Suöur
1 hjarta
2 tíglar 3 tíglar* Pass
4 hjörtu Pass Pass Pass
* Góð hækkun í hjarta.
Grabel var í suður og
fékk út einspilið í spaða. Vill
lesandinn spreyta sig áður
en lengra er haldið?
Grabel tók fyrsta slaginn
heima á spaðakóng og spil-
aði strax tígulníu að drottn-
ingu blinds. Vestur gerði
þau mistök að gefa slaginn,
en fékk síðan þann næsta á
tigulás. Nú hlaut vestur að
gefa slag og hann valdi lítið
iauf. Grabel heypti því yfír á
drottninguna heima, tók svo
laufás og trompaði lauf. Síð-
an spilaði hann spaða að
blindum.
Vestur má ekki trompa,
því þá fækkar spaðatapslög-
um sagnhafa um einn og svo
getur sagnhafi unnið úr
trompinu án þess að gefa
slag. Vestur henti því tígli
og Grabel tók á kóng blinds.
Hann trompaði nú aftur lauf
og spilaði sér loks út á
spaða. Austur gat tekið þar
tvo slagi, en varð síðan að
hreyfa trompið fyrir sagn-
hafa, svo hjartaslagur varn-
arinnar gufaði upp.
Glæsilega spilað.
Ast er...
koss í rigningu.
TM Reg. U.S. Pat. 0«. — all rights reaervad
(c) 1998 Los Angeles Timat Syndcate
Reikningur frá snyrti-
stofunni? Til hvers ertu
að fara þangað
Arnað heilla
ÁRA afmæli. Á
Þorláksmessu, 23.
desember nk., verður átt-
ræð Kristrún Soffía Jóns-
dóttir, Ásenda 12. Hún
tekur á móti gestum í
Kaffisal Hvítasunnukú'kj-
unnar, Hátúni 2, laugar-
daginn 19. desember frá
kl. 16-19.
ÁRA afmæli. í dag,
föstudaginn 18. des-
ember, verður sjötíu og
fimm ára Einar Þórir Sig-
urðsson, verslunarmað-
ur, Frostafold 14,
Reykjavík. Eiginkona
hans er Hulda Ingimund-
ardóttir. Þau eru að heim-
an í dag.
ÁRA afmæli. í dag,
föstudaginn 18. des-
ember, verður sextugur
Grímur Örn Haraldsson,
vélvirki, Kjarnnóum 19,
Garðabæ. Eiginkona hans
er Svava Axelsdóttir,
verslunarmaður. Þau eru
að heiman á afmælisdag-
inn.
ÁRA afmæli. Þann
21. desember nk.
verður fimmtug Helga H.
Magnúsdóttir, Blómvangi
8, Hafnarfirði. Eiginmað-
ur hennar er Hinrik Ein-
arsson, húsasmiður. Hún
tekur á móti gestum í
íþróttahúsinu í Kapla-
krika, laugardaginn 19.
desember, kl. 20.
SKÁK
I insjoii Mai'geir
I’ólursson
STAÐAN kom upp á heims-
meistaramóti unglinga, 20
ára og yngri, í Kalkútta á
Indlandi í haust. Azer
Mirzoev (2.445) var með
hvitt, en sigurvegarinn á
mótinu, Darmen Sa-
dvakasov (2.440), Ka-
sakstan, hafði svart og
átti leik.
25. - Hxc5! 26. Dxd7
(Eftir 26. Rxc5 - Rd4 27.
Dc4 - Re2+ missir hvítur
drottninguna fyrir hrók
og riddara) 26. - Re3 27.
fxe3 - Hxcl 28. Hxcl -
Dxc3+ 29. Kg2 - Dxcl
30. Dxb7 - Dc2+ 31. Kh3
- Df5+ 32. Kg2 - He8 og
hvítur gafst upp.
íslendingai' áttu heims-
meistarann í þessum ald-
ursflokki árið 1994, þegar
Helgi Áss Grétarsson sigr-
aði, en hafa ekki sent full-
trúa á mótið síðan.
Guðmundar Arasonar mót-
ið: Fimmta umferð í kvöld
frá kl. 17 í íþróttahúsinu við
Strandgötu í Hafnarfirði.
SVARTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
//þettct varab sundro^ -fj6~/s>hy/al<jnsiL.''
STJÖRJVUSPÁ
o f t i r líi'a ni'ov II i* :i L n
BOGMAÐUR
Afmælisnbarn dagsins
Þú átt auðvelt með að
vinna aðra til fylgis við þig
og það sem meira er að þú
kannt yfírleitt með þennan
hæfíleika þinn að fara.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Varastu að láta draga þig inn
í deilur samstarfsmanna
þinna því þær snúast um mál
sem koma þér ekkert við.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það getur verið notalegt að
setjast niður með vinum
sínum og rifja upp gamla og
góða daga. Þú munt hljóta
umbun fyrú' vel unnin verk.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) KA
Þótt mann langi mikið í
einhvern hlut er ekki ástæða
til þess að setja allt úr
skorðum hans vegna. Horfðu
á heildarmyndina.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þeir tímar geta komið að
maður er eins og á milli
tveggja elda heimilis og
vinnustaðar. Leystu málin af
sanngirni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Nú virðist vera rétti tíminn
til þess að fitja upp á
einhverju nýju. Mundu samt
að hóf er best á hverjum
hlut.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
éL
Til þess að sanna ágæti
hugmynda þinna er þér
nauðugur einn kostur, að
framkvtema þær. Vertu
óhræddur því málin munu
ganga upp.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Það eru ekki allú' jafn
opinskáir í þinn garð.
Reyndu að fá sem flesta til
þess að segja hug sinn.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Málstaður þinn vinnur æ
fleiri á sitt band og mest
munu gleðja þig sinnaskipti
gamals vinar. Sýndu honum
þakklæti þitt.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) XS/
Það getur reynst
nauðsynlegt að leita sér ráða
í fjármálum. Flýttu þér samt
hægt og kannaðu vandlega
alla valkosti.
Steingeit
(22. des. -19. janúar) éSí
Reyndu að láta minniháttar
atvik sem minnst áhrif hafa
því þú ert á réttri leið bara
ef þú ert sjálfum þér
samkvæmur.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar) GSvl
Varastu að reyna að slá ryki
í augu annarra. Það er alltaf
best að koma til dyranna
eins og maður er klæddur.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) >%■*
Það er vel hægt að varðveita
einstaldinginn þótt í
margmenni sé. Leggðu þig
fram um að vera þú sjálfur.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni visindalegra staðreynda.
J ^fírbreíðölur á öófa
ífga upp á gamla sófann fvrír jólín
Sófalist
Glæsibæ, sími 568 7133
Reykjavíkurvegi 50 sími 565 4275
Frábært úrval af ítölskum
* A - dömuskóm
^ ATH! 5% stað-
greiðsluafsláttui
Úrval af
handunnum
Speglar
bæði silfur
Tiffany's-
lömp
um
- Kristall
- Postulín
- Húsgögn
- Gjafavara
Á horni Laugavegar og Klapparstígs
Mikið úrval af
fallegum jóla- og
samkvæmis-
fatnaði.
Síðir kjólar.
Hverfisgötu 78, sími 552 8980
JÓLABOÐ
SPESSA
HIÐ ÁRLEGA
JÓLABOÐ SPESSA
VERÐUR HALDIÐ
Á MATSTOFUNNI
ÁNÆSTU GRÖSUM
N.K. LAUGARDAG.
0 RÚSSIBANARNIR
LEIKA FYRIR GESTI.
O ÝMSAR ÓVÆNTAR
UPPÁKOMUR.
DÁSAMLEGUR MATUR.
OPNUM KL. 18:00.
#1?
- Matstofan
A næstu grösum /
Laugavegi 20b • sími 552 8410