Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Bráðabirgðasvipting
ökuleyfis felld úr gildi
í DÓMI Hæstaréttar sem féll í gær
segir að með breytingu á umferðar-
lögum árið 1997 hafi það ekki verið
ætlun löggjafans að hrófla við regl-
um um ökuleyfissviptingu vegna
vítaverðs aksturs. Var því felld úr
gildi ákvörðun lögreglustjóra um
sviptingu til bráðabirgða ökuleyfis
manns sem ekið hafði á nær tvöföld-
um leyfðum hámarkshraða.
Maðurinn ók hinn 23. október sl.
suður Gullinbrú í Reykjavík á 99
km hraða á klukkustund samkvæmt
mælingu lögreglu. Leyfður öku-
hraði þar er 50 km á klukkustund.
Lögreglustjórinn í Reykjavík svipti
manninn samdægurs ökuleyfi til
bráðabirgða með vísan til 103. gr.
umferðarlaga. Ekki var þar vísað til
umdeildrar nýrrar reglugerðar nr.
280/1998 um sektir og önnur viður-
lög vegna brota á umferðarlögum
og reglum samkvæmt þeim.
Meirihluti Hæstaréttar (3/5) segir
að það skilyrði fyrir sviptingu öku-
réttar að um mjög vítaverðan akstur
hafi verið að ræða hafi verið í lögum
Ekki ætlun lög-
gjafans að hrófla
við skilyrðum öku-
leyfíssviptingar
allt frá 1941. Á þeim tíma sem liðinn
er hafi gengið margir dómar vegna
of mikils ökuhraða, sem skýrt hafi
inntak þessa lagahugtaks. í leiðbein-
ingum ríkissaksóknara frá 1. júlí
1992 sé meðal annars að finna töflu
um fjárhæð sekta og tímalengd öku-
leyfissviptingar. Par sé ekki gert ráð
fyrir sviptingu ökuréttar í tilviki eins
og umræddu.
Umferðarlögum hafi verið breytt
árið 1997 en ráða megi af lögskýr-
ingargögnum að ekki hafi verið ætl-
unin að breyta reglum um sviptingu
ökuréttar fyrir mjög vítaverðan
akstur. Þvert á móti hafi ætlunin
verið sú að festa leiðbeiningar ríkis-
saksóknara í sessi. Af hálfu lög-
reglustjórans í Reykjavík hafi ekki
verið vísað til fordæma úr dóma-
framkvæmd, sem stutt geti, að
svipta beri manninn ökurétti þar eð
um mjög vítaverðan akstur hafi ver-
ið að ræða. Skilyrði til aksturs hafi
verið góð í umrætt sinn og brotið
framið á opnu svæði utan við sjálft
íbúðarhverfið í Grafarvogi.
Því féllst Hæstiréttur ekki á að
sýnt hefði verið fram á að skilyrði
hefðu verið fyrir hendi að svipta
ökumanninn ökuleyfi til bráða-
birgða. Tekið er fram að í úrskurði
héraðsdóms og ákvörðun lögreglu-
stjórans í Reykjavík sé ekki vísað til
reglugerðar nr. 280/1998 né hafi það
verið gert fyrir Hæstarétti.
Tveir dómarar, Arnljótur Björns-
son og Haraldur Henrysson, voru á
því að umræddur akstur hefði verið
mjög vítaverður í skilningi 1. mgr.
101. gr. umferðarlaga. Því væru
ekki rök til að fella bráðabirgða-
sviptinguna úr gildi.
Málið fluttu Jóhann Hauksson
fulltrúi fyrir hönd lögreglustjórans í
Reykjavík og Bjami Þór Óskarsson
hdl. af hálfu ökumannsins.
Morgunblaðið/Ánii Sæberg
Reglugerð
Orkuveitu
samþykkt
samhljóða
REGLUGERÐ um Orkuveitu
Reykjavíkur, sem stofna á um
næstu áramót með samruna Raf-
magnsveitu Reykjavíkur og Hita-
veitu Reykjavíkur, var samþykkt
samhljóða á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur í gær. Verður hún nú
send iðnaðarráðuneytinu til sam-
þykktar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri gerði grein fyrir
nokkrum breytingum sem gerðar
höfðu verið fyrir síðari umræðu um
hana sem fram fór í borgarstjórn í
gær. Borgarlögmaður hefur farið
yfir ýmis lögfræðileg atriði reglu-
gerðarinnar og hún var einnig send
iðnaðarráðuneytinu til athugunar.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði
að tekið hefði verið verulegt tillit til
ýmissa breytingartillagna sjálf-
stæðismanna og sagði þá samþykka
reglugerðinni. Hann vakti sérstaka
athygli á ákvæðum um að hægt yrði
að sannreyna hver væri raunveru-
legur kostnaður við orkuöflun og
orkusölu. Einnig vakti borgarfull-
trúinn athygli á markaðs- og þróun-
ardeild sem stofna ætti innan fyrir-
tækisins. Sagði hann slíka deild
mjög þýðingarmikla 1 allri stefnu-
mótun og henni væri ætlað að sinna
þróunar- og rannsóknarverkefnum
tengdum orkuiðnaði hérlendis og
erlendis.
KRINGMN
Gleðilega hátíð
Blóð vantar í bankann
BLÓÐBANKANN hefur skort
blóð undanfarnar vikur, að
sögn Bjargar Ólafsson, hjúkr-
unarframkvæmdastjóra, og hef-
ur ástandið farið versnandi.
Björg segir að á þessum árs-
tíma séu alltaf að ganga pestir.
Þar sem aðeins fullfrískt, fólk
getur gefið blóð fækkar bljóð-
gjöfum á þessum árstíma. Þá
valda annir fólks fyrir jólin því
að færri gefa sér tíma til að
gefa blóð en ella. Einnig hefur
þörfin fyrir blóð verið óvenju-
mikil, þar sem mikið hefur ver-
ið um skurðaðgerðir á sjúkra-
húsum, m.a. vegna viðleitni til
að fækka á biðlistum, segir
Björg.
Hún segir að engan einn
blóðflokk skorti umfram annan;
blóðgjafa vanti úr öllum flokk-
um. Karlar mega gefa blóð fjór-
um sinnum á ári en konur
þrisvar vegna þess að minna
járn er í blóði kvenna en karla.
Teknir eru 450 millilítrar úr
hverjum blóðgjafa.
A-flokkar og Kvennalisti
Asakanir um
óbilgirni og
trúnaðarbrest
Óbilgirni og trúnaðarbrestur eru orð
—
sem heimildamenn Omars Friðriksson-
ar í A-flokkum og Kvennalista notuðu
síðdegis í gær um stöðuna í viðræðum
um samfylkingu.
VIÐRÆÐUR fulltrúa Alþýðu-
bandalags, Alþýðuflokks og
Kvennalistans í kjörnefnd til und-
irbúnings prófkjörs vegna vænt-
anlegs framboðs samfylkingar-
innar í Reykjavík fóru út um þúf-
ur sl. miðvikudagskvöld. Auknar
líkur eru nú taldar á að þátttaka
Kvennalistans í undh-búningi að
sameiginlegu framboði heyri sög-
unni til.
Framan af voru uppi ólíkar
skoðanir milli A-flokkanna um
hvemig standa ætti að uppröðun á
framboðslista samfylkingarinnar í
Reykjavík fyi-ir þingkosningarnar
í vor. Alþýðubandalagsmenn voru
flestir mjög andvigir opnu próf-
kjöri en fulltrúar Alþýðuflokksins
sóttu það fast. Samkomulag náðist
svo fyrir skömmu um þær tillögm'
sem kynntar voi'u á fundum kjör-
nefndarinnar í vikunni. Er álitið
að A-flokkamir hafi náð höndum
saman þar sem Alþýðubandalagið
hafi fallist á að haldið yrði opið
prófkjör með því skilyrði að Al-
þýðuflokkurinn samþykkti að
prófkjörsreglur yrðu með þeim
hætti að þátttakendur ættu þess
eingöngu kost að raða frambjóð-
endum af lista eins flokks í sæti.
Það var svo á grundvelli þessa
samkomulags sem gengið var frá
sameiginlegri tillögu A-flokkanna
um prófkjörsreglur og skiptingu
sæta milli flokkanna, sem fulltrúar
þeirra lögðu fram á átakafundi
kjörnefndar sem stóð yfir í um
fimm klukkustundir sl. þriðju-
dagskvöld.
Flokksaðild verði
ekki skilyrði
I tillögum A-flokkanna felst að
prófkjörið verði opið öllum en
þátttaka í prófkjörinu teljist jafn-
gilda stuðningsyfirlýsingu við
framboð samfylkingarinnar. Hver
flokkur á skv. tillögunni að velja
sex til níu frambjóðendur fyrii-
sinn lista með þeirri aðferð sem
hver flokkur um sig ákveður.
Þeim tilmælum var jafnframt
beint til flokkanna að flokksaðild
yrði ekki gerð að skilyrði fyrir
kjörgengi frambjóðenda. Kjör-
seðlinum yrði þannig skipt upp í
flokkshólf eins og áður segir og
þátttakendur í prófkjörinu velji
aðeins frambjóðendur úr einu
hólfi með því að setja númer fyrir
framan nöfn frambjóðendanna.
A-flokkai-nir lögðu síðan til að
hver flokkur fengi minnst eitt af
fjórum sætum á endan-
legum framboðslista og
tvö af átta sætum list-
ans. Jafnframt yrði Jó-
hönnu Sigurðardóttui-
tryggt öruggt sæti á
listanum. Fulltrúar Kvennalist-
ans gátu með engu móti fallist á
þessa tillögu á fundi kjörnefndar
og lögðu því fram breytingartil-
lögu um að tryggt yrði að listinn
fengi þriðja og sjöunda sæti
framboðslistans. Fulltrúar A-
flokkanna höfnuðu þessari hug-
mynd.
Fóru lengra en umboð leyfði
Hart var tekist á á fundinum
um þessi mál en umboð fulltrúa
Kvennalistans úr flokksstofnun-
inni var bundið því skilyrði að
þær féllust aldrei á að fara niður
fyrir sjöunda sætið. Þrátt fyrir
það ákváðu fulltrúar Kvennalist-
ans að slaka á kröfum sínum og
buðu næst upp á að taka þriðja og
áttunda sætið með fyrirvara um
samþykki flokksstofnunarinnar.
Fulltrúar A-flokkanna fóru
með þessa tillögu inn í sína
flokksstofnun á miðvikudag en
höfnuðu henni svo á fundi kjör-
nefndar á miðvikudagskvöldið og
héldu sig við þá tillögu að
Kvennalistinn ætti kost á að fá
eitt af fjórum efstu sætum listans
og eitt af sætum fimm til átta.
Jafnframt lögðu þeir fram tillögu
um að aðilar væru sammála um
að bjóða Jóhönnu Sigurðardóttur
alþingismanni sjálfdæmi um það í
hverju hólfanna þriggja hún kysi
að bjóða sig fram. Það hólf yrði
merkt með listabókstaf viðkom-
andi flokks að viðbættum orðun-
um „og óháðir“.
Fulltrúar Kvennalistans brugð-
ust illa við þessari tillögu, sem
varð í reynd til þess að viðræð-
urnar sigldu í strand. Líta þær
svo á að ef Jóhanna tæki þann
kost að taka þátt í prófkjörinu á
vegum Kvennalistans gæti hún
náð fyrsta sætinu í hólfi Kvenna-
lista með þeim afleiðingum að að-
eins ein Kvennalistakona kæmist
inn, og þá væntanlega í sjöunda
eða áttunda sæti.
Fulltrúar Kvennalistans töldu
að þetta tilboð væri í reynd end-
anleg höfnun af hálfu A-flokk-
anna og segja að trúnaðarbrest-
ur hafi átt sér stað. Innan
Kvennalistans er litið svo á að nú
sé komið í ljós að A-flokkarnir
hafi myndað sterka blokk gegn
Kvennalistanum, sýnt óbilgirni
og reynst ósveigjanlegir. Enn-
fremur eru kvennalistakonur
gagnrýnar á reglur prófkjörsins
um aðskilin flokkshólf, sem þær
segja lokaðar og ólýðræðislegar.
Réðu þær ráðum sínum um
framhaldið á samráðsfundi síð-
degis í gær og á félagsfundi
Kvennalistans í Reykjavík í gær-
kvöldi. Lá niðurstaða ekki fyrir
þegar þetta var skrifað.
Tillagan um Jóhönnu ein-
skorðuð við A-flokkana?
Innan A-flokkanna segjast
menn undrandi á viðbrögðum
Kvennalistans við tillögunni um
Jóhönnu Sigurðardótt-
ur. Er litið svo á, skv.
heimildum blaðsins, að
ef fulltrúar Kvenna-
listans hefðu lagt til að
tillagan um sjálfdæmi
Jóhönnu yrði einskorðuð við A-
flokkanna, þá hefðu fulltrúar A-
flokkanna í kjörnefnd fallist á
það. Er sú skoðun uppi innan A-
flokkanna, að þrátt fyrir að full-
trúar Kvennalistans í kjörnefnd
hafi teygt sig lengra til samkomu-
lags en þær höfðu umboð til að
gera, þá hafi kvennalistakonur í
flokksstofnuninni verið einstak-
lega ósveigjanlegar í þessum við-
ræðum öllum í vetur og aldrei
viljað gefa neitt eftir.
Töldu tilboðið
endanlega
höfnun