Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 69
FRÉTTIR
Á MYNDINNI er talið frá hægri: Róbert B. Agnarsson, aðstoðar-
frainkvæmdastjóri SÍF hf., Ástrós Sverrisdóttir, formaður Umsjón-
arfélags einhverfra, og Matthfas Kristiansen, formaður Foreldrafé-
lags misþroska barna.
Styrkir í stað jólakorta
Allt braut ekki
siðareglur í um-
fjöllun um dómsmál
Námsstyrkir
veittir í verk-
fræði og raun-
vísindum
STJÓRN Minningarsjóðs Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða Kristjáns-
sonar hefm- ákveðið að veita í ár alls
2,8 milljónir króna í námsstyrki til
átta einstaklinga sem stunda fram-
haldsnám í verkfræði og raunvísind-
um.
Styrkþegai- eru: Birgir Örn Arn-
arson, PhD-nám í hagnýtri aflfræði,
Cornell University, Gréta Björk Kri-
stjándóttir, MS-nám í jarðfræði, Há-
skóla Islands, Haraldur Óskar Har-
aldsson, PhD-nám í verkfræði,
Kunglinga Tekn. Högskolan, Hersir
Sigurgeirsson, PhD-nám í hagnýtri
stærðfræði, Stanford University,
Hilmar Ágústsson, civ.ing.-nám í
efnaverkfræði, Danmarks Tekn.
Universitet, Jóhanna Harpa Arna-
dóttir, civ.ing.-nám í verkfræði,
Danm. Tekn. Universitet, Marta
Guðrún Daníelsdóttir, MS-nám í um-
hverfísverkfræði, U. of Washington,
og Rannveig Ólafsdótth, PhD-nám í
landafræði, Lunds Universitet.
Minningarsjóðminn var stofnaður
1980 á grundvelli erfðaskrár þeirra
hjóna, Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kiistjánssonai-. Frá því er úthlutun
styi-kja hófst árið 1984 hefur alls ver-
ið úthlutað 136 námsstyrkjum.
SÚ hefð hefur skapast hjá SÍF hf.
að veita styrki til líknarmála í
stað þess að senda hluthöfum,
framleiðendum og öðrum við-
skiptamönnum jólakort.
I ár var ákveðið að styrkja tvö
félög, Foreldrafélag misþroska
barna og Umsjónarfélag ein-
hverfra, með 150 þús. kr. fram-
lagi hvort. Foreldraféalg mis-
þroska barna hefur það að mark-
miði að miðla fræðslu um mis-
þroska börn til ýmissa hópa, s.s.
foreldra, skólastofnana o.fl. til að
auka skilning á málefninu. Um-
sjónarfélag einhverfra byggir
starfseini sína einnig á fræðslu og
útgáfu og gætir hagsmuna ein-
hverfra. Starf félaganna byggist
að mestu leyti á sjálfboðavinnu.
SIÐANEFND Blaðamannafélags
íslands hefur kveðið upp þann úr-
skurð að tímaritið Allt hafi ekki
brotið siðareglur í umfjöllun sinni
um dómsmál þriggja barna gegn
föður sínum vegna líkamlegra
misþyrminga og andlegrar kúgun-
ar.
Aðstandendur barnanna lögðu
fram kæra á hendur Evu Magnús-
dóttur blaðamanni og Þórarni Jóni
Magnússyni ritstjóra tímaritsins.
Töldu kærendur m.a. að þótt nöfn
málsaðila hefðu ekki verið nefnd í
umfjöllun tímaritsins væri svo ná-
kvæmlega skýi-t frá atburðum að
auðveldlega mætti sjá um hverja
væri fjallað. Jafnframt töldu
kærendur að viðkvæmar persónu-
legar upplýsingar, sem ekki ættu
erindi við almenning, væru gerðar
að umfjöllun í algjöru heimildar-
leysi. Ennfremur töldu kærendur
að um vítaverðar rangfærslur væri
að ræða í greininni en bentu ekki á
ákveðnar greinar siðareglna BÍ í
því sambandi.
í niðurstöðu siðanefndarinnar,
sem var einróma, segir m.a. að um-
rætt mál hafí vakið mikla athygli á
sínum tíma enda hafí verið um ein-
stakt dómsmál að ræða. Því hafi
verið fyllilega eðlilegt að frá því
væri greint í fjölmiðlum. Er dómur
hafi verið kveðinn upp hafi áhersla
fyi-st og fremst verið lögð á þá nið-
urstöðu að faðir hafi verið dæmdur
til að greiða börnum sínum skaða-
bætur vegna misþyrminga. Á þeim
tíma hafi minna verið fjallað um
heimilisofbeldi sem slíkt. Tímaritið
Allt taki hins vegar þann þátt
málsins fyrst og fremst upp til að
birta hinar dökku hliðar mannlífs-
ins og sýna fram á að slíkt ofbeldi
viðgangist. Greinin sé skrifuð sem
eins konar viðvörun og eigi fullan
rétt á sér sem slík.
Nefndin taldi að tímaritið hefði
getað vandað efnistök sín betur í
einstaka atriðum en þeir annmark-
ar væru ekki svo miklir að siða-
reglur Blaðamannafélags Islands
teljist brotnar.
Velferð
barna
í umferðinni
BANDALAG íslenskra skáta
hefur í átta ár ásamt Reykjavík-
urborg fært sex ára börnum að
gjöf endurskinsborða sem
brugðið er yfir öxl barnsins. Síð-
ustu þijú árin þ.e. 1996, 1997 og
1998 hefur P. Samúelsson ehf. -
Toyota verið stærsti stuðnings-
aðili þessa verkefnis.
Ákveðið hefur verið að hafa
stærstu vinninga í sérstöku bfl-
númerahappdætti frá Toyota,
jeppabifreið af gerðinni Toyota
LandCruiser VX 4wd og fólks-
bifreið af gerðinni TOYOTA
Avensis, 1800.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SKIJLI K. Skúlason, framkvæmdastjóri sölusviðs Toyota, Ólafur Ás-
geirsson, skátahöfðingi og Sveinn Guðmundsson, verkefnisstjóri
BÍS.
Aukin
þjónusta
í World
Class
WORLD Class og Sérverslun
hlauparans á 3. hæð í Kringl-
unni hafa gert með sér samning
um að sérfræðingur frá Sér-
verslun Hagkaups verði í Word
Class seinni part dags aðra
hverja viku.
„Viðskiptavinum World Class
er boðin hlaupaskoðun með að-
stoð hlaupabands og upptöku-
búnaðar. Þannig sést hvernig
niðurstigið er og í framhaldinu
er hægt að ráðleggja um val á
skóm.
Stóru hlaupaskóframleiðend-
urnir hafa á síðustu misserum
framleitt skó með tilliti til mis-
munandi hlaupalags. Skórnir
eru orðnir það sérhæfðir og
tæknilega fullkomnir að skór
sem henta einum vel duga öðr-
um alls ekki.
Uppbygging og dempun á
hlaupaskóm hentar mjög vel
fólki sem stendur mikið eða
gengur á hörðu undirlagi," segir
í fréttatilkynningu.
■ EINKAKLÚBBURINN verður
með Laser Tag-kvöld í kvöld kl. 20.
Frítt fyrir Einkaklúbbsfélaga gegn
framvísun skírteina.
■
Vinnustofan
Gallerí Járn
opnuð
SVEINN Magnússon listamaður
hefur opnað vinnustofuna og
verkstæðið Gallerí Járn á Grettis-
götu 3, í bakhúsi.
Sveinn smíðar ýmsa muni úr
smíðajárni og öðrum málmum,
s.s. borð, stóla, lampa, ljósakrón-
ur og lifandi blómaskúlptúra.
Sveinn lærði hjá innréttinga- og
blómalistamanninum Tage And-
ersen í Kaupmannahöfn.
Opið er miðvikudaga til föstu-
daga kl. 13-18, annars eftir sam-
komulagi.
Ný blóma-
skreytinga-
stofa
BLÓMASMIÐJA Hildu var opnuð
um síðustu helgi en hún er við
Rauðavatn. Eigandi hennar er
Hilda Allansdóttir.
Hún lærði í Óðinsvéum í Dan-
mörku og hefur unnið í Blóma-
miðstöðinni og fleiri stöðum síð-
ar. Hún tekur að sér allar teg-
undir skreytinga við öll tækifæri
svo sem brúðarvendi, kransa,
kistuskreytingar, körfur og
skreytingar eftir óskum hvers og
eins. Þurrskreytingar eru alltaf
til á staðnum.
Opið er alla daga frá kl. 10-18
nema sunnudaga kl. 13-18.
LEIÐRÉTT
Talað við Huldu
UMMÆLI eignuð Kristínu Blöndal
um viðræður um samfylkingu á
vinstri vængnum á baksíðu Morg-
unbiaðsins í gær voru í raun höfð
eftir Huldu Olafsdóttur. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
Rangt nafn
í FRÉTT um Móeiði Júmusdóttur
og hljómsveit hennar á þriðjudag
var nafn eins hljómsveitarmeðlims
rangt haft eftir, en hann heitir Þór-
hallur Bergmann. Beðist er velvirð-
ingar á þessu mishermi.
Hærra en ekki lægra
í UMFJÖLLUN um samkeppni í
þjónustu vegna millilandasímtala
var ranghennt að verð á GSM-sím-
tölum frá Tali væru 2,60 krónum
ódýrari en grunngjald fyrir almenn
símtöl til Bandaríkjanna. Rétt er að
verðið hjá Tali er 2,60 krónum
hærra en grunngjald fyrir almenn
símtöl til Bandaríkjanna.
Leiðrétting við verðkönnun
á jólatrjám
RANGT var farið með tvær tölur í
verðkönnun á jólatrjám fyrir
skömmu. Jólatréssalan við Landa-
kot og IKEA selur norðmannsþin í
stærðinni 151-175 cm á 3.490 kr. og
í stærðinni 176-200 cm á 4.490 kr.
Þessi jólatréssala er því með lægsta
verð á norðmannsþin í þessum
tveimur stærðarflokkum. Þess má
geta að Jólatréssalan Landakot hef-
ur lækkað verð á jólatrjám sínum
frá því í fyrra og lætur hluta af
ágóða sölunnar renna til Styrktarfé-
lags krabbameinssjúkra barna.