Morgunblaðið - 18.12.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 33
ERLENT
Lávarðadeild breska þingsins úrskurðar að einn dómara
í máli Augustos Pinochets hafí verið vanhæfur
Mál Pinochets tek-
ið fyrir að nviu
London, Santiago, Madríd. Reuters.
STUÐNINGSMENN Augustos
Pinochets, fyrrverandi einræðis-
heiTa í Chile, fögnuðu í gær þeirri
ákvörðun lávarðadeildar breska
þingsins að taka aftur til umræðu
hvort Pinochet nýtur friðhelgi, og
fella þannig úr gildi úrskurð fimm
manna áfrýjunardómstóls lávarða-
deildarinnar frá því 25. nóvember
síðastliðinn að Pinochet skyldi ekki
njóta friðhelgi.
Telst þessi merkilegi úrskurður sig-
ur fyrir verjendur Pinochets sem
haldið höfðu á lofti kröfunni um að
málið yrði tekið fyrir að nýju hjá lá-
varðadeildinni, sem er æðsta dóm-
stig í bresku réttarkerfi, þar sem
Hoffmann lávarður, einn dómar-
anna fimm sem sat í áfrýjunardóm-
stólnum, væri vanhæfur vegna ná-
inna tengsla sinna við mannrétt-
indasamtökin Amnesty
International. Hoffmann er yfir-
maður mannúðarsamtaka sem rekin
eru á vegum Amnesty og eiginkona
hans, Gillian, hefur starfað fyrir
Amnesty í meira en tuttugu ár.
„Fyrri ákvörðun lávarðadeildar-
innar getur ekki fengið að standa,
og hana verður að fella úr gildi,“
sagði Browne-Wilkinson lávarður,
sem forystu hafði i fimm manna
nefnd dómara sem hlýddi á rök
verjenda Pinochets. Sagði Browne-
Wilkinson alla nefndarmeðlimi hafa
verið sammála um að Hoffmann
hefði verið vanhæfur. Sagði í yfir-
lýsingu frá lávarðadeildinni að nú
yrði skipaður nýr áfrýjunardóm-
Reuters
ANDSTÆÐIN GUR Augustos
Pinochets hrópar slagorð eftir
að lávarðadeild breska þingsins
tilkynnti í gær að hún hefði fellt
úr gildi fyrri úrskurð sinn um
að Pinochet nyti ekki friðhelgi.
stóll, sem fjalla mun á nýjan leik um
hvort Pinochet skuli njóta friðhelgi
eður ei, og mun hann væntanlega
hefja störf 18. janúar.
Pinochet-málinu
líkt við sápuóperu
Jose Miguel Insulza, utanríkis-
ráðherra Chile, lýsti furðu sinni á
þessum nýjustu tíðindum en til-
kynnti jafnframt að þarlend stjórn-
völd myndu gera sitt ýtrasta til að
tryggja að dómur nýs áfrýjunar-
dómstóls yrði Pinochet í hag. Líkti
Gutenberg Martinez, forseti neðri
deildar þingsins í Chile, Pinochet-
málinu við sápuóperu en sagði
ákvörðunina í gær skynsamlega,
vitaskuld hefði Hoffmann lávarður
átt að víkja sæti úr áfrýjunardóm-
stólnum vegna tengsla sinna við
Amnesty.
„Eg held að Pinochet verði afar
ánægður. Hann treystir bresku
réttarkerfi mjög vel,“ sagði Fern-
ando Barros, einn stuðningsmanna
Pinochets. Fulltrúar mannréttinda-
samtaka, sem barist hafa fyrir því
að Pinochet yrði leiddur fyrir rétt
vegna ódæðisverka sem framin
voru í stjórnartíð hans í Chile
1973-1990, héldu hins vegar ró
sinni. „Auðvitað er ég ekki ánægður
með þessa ákvörðun en þetta þýðir
ekki að allt sé tapað,“ sagði
Vincente Alegria, sem gegnir for-
ystu í samtökum útlægra Chilebúa.
„Pinoehet er ekkert á förum, þessu
ferli hefur aðeins verið seinkað um
tvo mánuði,“ sagði Alegria og lagði
áherslu á nauðsyn þess að lagalega
rétt væri staðið að þessu málum.
Fréttirnar komu Baltasar
Garzon, spænska dómai-anum sem
krafist hefur framsals Pinochets til
Spánar svo hægt verði að leiða hann
fyrir rétt þar vegna þjóðarmorðs,
pyntinga og hi-yðjuverka, í opna
skjöldu en haft var eftir honum að
ákvörðun myndi ekki hafa áhrif á
rannsókn hans á hendur Pinoehet.
Nyrup Rasmussen
Sakaður
um sjálfs-
dýrkun
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
BRESKA stjórnin er að byggja
árþúsundahvelfingu, „Milleni-
um Dome“, til að fagna alda- og
árþúsundamótum, en Poul Nyr-
up Rasmussen forsætisráð-
heiTa Dana ætlar að gefa hverj-
um Dana er fæðist árið 2000
bók, sem hann áritar sjálfur.
Hugmyndin vekur þó ekki ein-
dregna hrifningu. „Hann heldur
að hann sé frelsarinn sjálfur,“
segh- Pia Kjærsgaard formaður
Danska þjóðai-flokksins.
Mörgum þykja áform Nyrups
jaðra við ósmekklega sjálfs-
dýi-kun. Sumir benda á að betur
færi á að danska þingið sendi
nýburum stjórnarski'ána. Aðrir
álíta frekar við hæfi að Margrét
Þórhildur Danadrottning áriti
bækurnar, sem þannig yrðu
mun merkilegri eign en bækur
með ái'itun manns, sem af ein-
skærri tilviljun væri forsætis-
ráðherra einmitt árið 2000.
Bananadeilan
rædd
Genf. Reuters.
HIN harða deila
Evrópusambands-
ins (ESB) og
Bandaríkjanna um
innflutningsreglur
ESB á banönum
verður tekin fyrir í
sáttanefnd Heims-
viðskiptastofnunarinnar (WTO), í
dag, samkvæmt upplýsingum
stjórnarerindraka og embættis-
manna í Genf.
Roderick Albott, sendiherra
Bandaríkjanna hjá ESB, sagði að
framkvæmdastjórn ESB teldi ekki
hægt að fresta því fram yfir jól að
sáttanefndin taki málið aftur til
meðferðar.
Kjarni deilunnar snýst um að þær
breytingar sem ESB hefur gert á
innflutningsreglum sínum á banön-
um frá því sáttanefnd WTO úr-
skurðaði í fyrra að þær væru ekki í
samræmi við GATT-reglur um við-
skiptafrelsi á heimsmarkaðnum, eru
að mati Bandaríkjamanna og nokk-
urra Mið- og Suður-Ameríkuríkja
í dag
ekki fullnægj-
andi til að upp-
fylla sett skil-
yrði. Reglui'nar
settu enn of
miklar hömlur
við innflutningi
„dollarabanana“
frá Mið-Ameríku til ESB, sem hygla
framleiðslu fyi-rverandi evrópski’a
nlendna. Fulltrúar ESB neita þessu.
Viðræður í Washington
Deilan hefur magnazt upp eftir
að Bandaríkjamenn gi'ipu til þess
að undirbúa regiugerð sem heimilar
að settir verði ofurtollar á margs
konar vörur frá ESB frá marzmán-
uði nk. ESB hefur fyrir sitt leyti
kært þessa fyi'irhuguðu einhliða
refsitolla til WTO.
Jacques Santer, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB og fieiri hátt-
settir talsmenn sambandsins, hefja
einnig í dag viðræður við ráðamenn
í Wahington, þar sem bananadeilan
verður ofarlega á dagskránni.
FAGOR
gorenje
Ofnar og helluborð
IO 46 HV IOR 58 HV Gorenje Gorenje Ofn m. blástri/grill N Keramik helluborö/ ^>79.900 stgr.
IH136B Fagor Ofn m. blástri N ^76.000 stgr.
VFI 400 R Fagor Keramik helluborö/
DAH 50 RF Veggháfur úr stáli 19.900 stgr.
FAGOR
gorenje
FFD 23 Fagor Kælir/frystisk. I47x60cm 39.900 stgr.
KF 2868 Gorenje Kælir/frystisk. i55x60cm 53.900 stgr.
FFR 33 Fagor Kælir/frystisk. I70x60cm 49.800 stgr.
KF 2560 Gorenje Kælir/frystisk. I8ix55cm 56.800 stgr.
(* $ & s í * / //
' RÖNNING
Borgartúni 24 • Sími 562 4011
...IPAKKANN PINN
- midbœ Hafnatjjaröar
■Á PjF Útivistargallar
TPP <?T ver^ ^ ^500-
i\LjCPI Gefðugóðangalla!
Jólagjöfín
fyrir kylfinginn
fæsthjá okkur!
asi
^565 4533