Morgunblaðið - 18.12.1998, Side 12

Morgunblaðið - 18.12.1998, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýr forstjóri ráðinn yfír stóru sjúkrahúsin í Reykjavík Ríkið tekur við fj'árhags- legri ábyrgð á rekstri SHR Ráðinn hefur verið nýr forstjóri yfír bæði stóru sjúkrahúsin í Reykjavík. Jafnframt færist fjárhagsleg ábyrgð af rekstri Sjúkrahúss Reykjavíkur frá borginni til ríkisins. Þá hefur verið ákveðið að sjúkrahúsin fái hálfan milljarð á aukafjárlögum þessa árs. RÍKIÐ mun um næstu áramót taka við fjárhagslegri ábyrgð á rekstri Sjúkrahúss Reykjavíkur af Reykja- víkurborg. Jafnframt hefur Magnús Pétursson, ráðuneytisstjóri í fjár- málaráðuneytinu, verið ráðinn for- stjóri yfir báðum stóru sjúkrahús- unum í Reykjavík. Ennfremur hef- ur verið ákveðið að sjúkrahúsin fái á fjáraukalögum 500 milljónir til að taka á fjárhagsvanda liðinna ára. Ekki er gert ráð fyrir að sjúkra- húsin verði sameinuð þó ráðinn verði einn forstjóri yfir þau bæði. Stjórnir spítalanna munu starfa áfram og framkvæmdastjórnirnar sömuleiðis. Vigdís Magnúsdóttir, forstjóri Ríkisspítalanna, hættir um áramót sökum aldurs, en áformað er að ráða mann í hennar stað, að sögn ráðuneytisstjórans í heilbrigð- isráðuneytinu. „Það er eðlilegt að fagleg og fjár- hagsleg ábyrgð á rekstri fari sam- an. Það ber ekki vott um nútíma- lega stjórnunarhætti að borgin reki Sjúkrahús Reykjavíkur og stjórni honum en ríkið borgi allan tilkostn- að. Nú fer þessi faglega og ijár- hagslega ábyrgð saman og mér finnst það vera mjög skynsamlegt af Reykjavíkurborg að taka þetta skref,“ sagði Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra. Ingibjörg sagði að með þessari stefnumörkun værum við að gera sömu breytingar og flestar aðrar þjóðir hefðu gert á opinberum rekstri, þ.e. að tryggja að sami aðili stjómaði rekstrinum og borgaði fyj'ir hann. „Með ráðningu forstjóra fyrir bæði sjúkrahúsin gefst færi á að fylgja betur eftir ákvörðunum sem hafa verið teknar um ýmsa hagræð- ingu. Fyi'st og fremst erum við að hugsa um að tryggja að við séum ekki að kaupa tvö dýr tæki ef eitt dugar. Við viljum ná fram samhæf- ingu í rekstrinum með ráðningu eins forstjóra. Þar að auki tel ég að við séum mjög heppin að fá Magnús Pétursson til starfa, sem hefur unn- ið í ýmsum fagnefndum innan heil- brigðisþjónustunnar og hefur mik- inn áhuga og þekkingu á þessum rnálum." 500 milljóna aukafjái-veiting Ingibjörg sagði að þessi ákvörðun þýddi ekki að sjúkrahúsin yrðu sameinuð. Áfram færu tvær stjórnir Morgunblaðið/Golli INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, Ingibjörg Pálmadóttir og Geir H. Haarde skrifa undir samning um að ríkið taki við rekstri Sjúkrahúss Reykjavíkur. INGIBJÖRG Pálmadóttir óskar nýjum forstjóra spítalanna, Magnúsi Péturssyni, til hamingju með starfið. og tvær framkvæmdastjómir fyrir sjúkrahúsunum. Fyrir lok næsta árs yrði hins vegar að liggja fyrir ákvörðun um hvort komið yrði á fót einni stjórn fyrir sjúkrahúsin. Samhliða þessum ákvörðunum hefur ríkisstjómin ákveðið að sjúkrahúsin fái 500 milljónir í fjár- aukalögum til að rétta af hallai-ekst- ur liðinna ára. Upphæðin skiptist jafnt á milli sjúkrahúsanna. Fytr á þessu ári fengu sjúkrahúsin tvö 380 milljónir af fjárlagalið sem Alþingi ákvað að færi óskiptur til sjúkrahúsa í landinu. Ingibjörg sagði að með þessu væri búið að taka virkilega vel á í fjármálum sjúkrahúsanna og fjár- hagsstaða þeirra væri betri núna en hún hefði verið í áratug. Til viðbótar væri fjárhagsrammi sjúkrahúsanna rýmri í fjárlögum næsta árs en hann hefði verið und- anfarin ár. Hún sagði að þó að nýr forstjóri væri að taka við erfiðu starfi væri aðkoma hans að starfinu léttari að því leyti að hann þyrfti ekki að glíma við gamlan vanda í þeim mæli sem stjórnendur sjúkra- húsanna hefðu þurft að gera. Fjárhagsleg og rekstrarleg ábyrgð fer samau „Það má segja að þetta mál eigi sér alllangan aðdraganda þó hlut- irnir hafi gerst nokkuð hratt í þess- um umgangi. Það má rekja aðdrag- anda málsins allt til þess tíma þegar Borgarspítalinn var fluttur af dag- gjöldum yfir á föst fjárlög, en það gerðist 1986. Þá töldu menn að það gæti haft í för með sér talsverð vandræði í för með sér að hafa þennan háttinn á. Þá var ákveðið í borgarstjórn Reykjavíkur að að- skilja algerlega rekstur borgarsjóðs frá rekstri sjúkrahússins vegna þess að menn töldu að að því gæti komið að þau fjárframlög sem ákveðin væru á fjárlögum dygðu ekki fyrir rekstri," sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík. Ingibjörg Sólrún sagði að það væri búið að ganga á ýmsu í fjár- hagslegum samskiptum borgarinn- ar og ríkisins vegna Sjúkrahúss Reykjavíkur undafarin ár. Á síðustu fjórum árum hefði árlega verið gerður samningur um fjármál spít- alanna. Sjálfstæðismenn sam- þykkja ekki samninginn MIKLAR umræður urðu í upphafi fundar í borgarstjóm Reykjavíkur í gær utan dagskrár í framhaldi af kynningu borgarstjóra á samningi milli ríkisins og borgarinnar um yf- irtöku ríkisins á Sjúkrahúsi Reykja- víkur. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins gagnrýndu vinnubrögðin, töldu hér alitof hratt farið og frá- leitt að hafa ekki rætt málið í borg- arráði áður en til undirskriftar samningsins kom. Borgarstjóri benti á að samningurinn hefði verið undirritaður með fyrirvara um sam- þykki borgarráðs en ljóst væri að hann hefði stuðning. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fór nokkrum orðum um samninginn, sem gerður er milli heilbrigðismála- ráðherra og fjármálaráðherra ann- ars vegar og borgarstjóra hins veg- ar. Skipa ætti matsnefnd þriggja manna til að meta þann eignarhlut borgarinnar sem ríkið myndi taka yfir. Borgarstjóri sagði að rekja mætti upphaf yfirtöku ríkisins allt til ársins 1986 þegar viðræður fóru fram milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um yfirtöku þess á spítalan- um. Hún sagði hlutina hafa gerst hratt síðustu daga, hún hefði átt fund í heilbrigðisráðuneytinu síðast- liðinn mánudag og þar hefði verið ákveðið að setja alvarlegar viðræð- ur í gang. Þær hefðu gengið vel fyr- ir sig og drög legið fyrir á miðviku- dagskvöld sem hún kynnti þá borg- arfulltrúum Reykjavíkurlistans. Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti sjálfstæðismanna, sagði stórmál hér bera brátt að og gagnrýndi þau vinnubrögð að kynna samninginn fyrir stjórn SHR aðeins 20 mínút- um áður en skyldi undirrita. Hún sagði borgarstjóra ekki hafa gert minnstu tilraun tii að kynna málið á borgarráðsfundi síðastliðinn þriðju- dag og málið væri kynnt eins og smámál í upphafi borgarstjómar- fundar. Inga Jóna vakti athygli á því að sveitarstjórnir ættu að starfa samkvæmt sveitarstjómarlögum og borgarfulltrúar hljóti að vera sam- mála um að stærðargráða málsins sé slík að borgarráð hefði átt að fjallað um málið. Kvaðst hún ekki geta ímyndað mér að ljúka mætti við mál- ið fyrir áramót, þegar samningurinn á að taka gildi. „Ég lýsi því yfir hér að við sjálfstæðismenn munum greiða atkvæði gegn þessu máli og krefjumst þess að borgarstjóm ræði málið efnislega. Mér finnst vinnu- brögðin vera með hreinum ólíkind- um,“ sagði Inga Jóna og sagði hvorki rætt við minnihlutann opið né í trún- aði, sem hefði þó verið hægt. Minnti hún á að borgarstjóri hefði fjallað um málið í ráðuneytunum og þá hefði málið verið nánast frágengið og væri undarlegt að taka það ekki upp í borgarráði daginn eftir. Helgi Hjörvar, oddviti Reykjavík- urlistans, taldi að minnihlutinn hefði átt að geta fylgst með málinu gegnum eigin flokk og ekki hefði þurft tilstilli Reykjavíkurlistans. Hann benti á að samningurinn væri í meginatriðum svipaður því sem verið hefði upp á teningnum sem sjálfstæðismenn vildu á síðasta ára- tug. Þjónusta við Reykvíkinga verð- ur alls ekki fyrir borð borin eins og borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins gaf í skyn. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði málið snúast um mikla hagsmuni, pólitíska stefnumörkun og eignir borgarinnar og taldi ekki mögulegt að afgreiða það fyrir áramót. „Þetta er svartur dagur fyrirstjóm Reykjavíkur," sagði borgarfulltrú- inn og taldi að þeir sem hafa staðið fyrir uppbyggingu SHR myndu ekki verða sáttir við þetta. Hann sagði þennan gjöming í samræmi við stefnu framsóknarmanna, að koma SHR undir ríkið og taldi menn hafa gefist upp vegna fjár- hagsörðugleika spítalans. Vilhjálm- ur sagði engin rök hafa verið færð fyrir því að þessi eining verði hag- kvæmari í rekstri eða að þjónustan batni. Hér væri verið að koma upp risastofnun sem væri tímaskekkja í nútímaþjóðfélagi. Vildi hann heyra það frá borgarstjóra í hverju hag- kvæmnin ætti að felast og hvernig ná ætti fram betri þjónustu og hvað vekti í raun fyrir þeim sem að þess- um samningi standa. Hefur farið fram hagkvæmnisathugun í þessum málum? spurði Vilhjálmur og sagði misskilning að þessi sameining leysti fjárhagsvanda sjúkrahúsanna. Leið þjónustusamninga hefði ekki verið reynd í þessum málum, en þeir hafi gefið góða raun í rekstri heil- brigðisstofnana sem þegar hafa reynt þá. „Þetta eru döpur tíðindi og ég vænti þess að þessi samningur fái hér góða umræðu á fundi borgar- ráðs hvenær sem það verður og að tækifæri gefist til funda með starfs- mönnum SHR.“ Hann sagði nauð- synlegt að fá upplýst hvernig mat á eignum þessara stofnana verði feng- ið, en svo virtist sem gert væri ráð fyrir að ríkissjóður endurgreiddi viðhald og endurbyggingu á Landa- koti árin 1995 til 1998 sem sér virtist vera beitt fyrir R-listann sem agni til að fá samninginn gerðan. Pétur Jónsson sagði vegna um- mæla Vilhjálms að hann hefði engra hagsmuna að gæta í þessum samn- ingi, hann hefði verið framkvæmda- stjóri stjómunarsviðs Ríkisspítala og hefði átt ágætt samstarf við stjórnendur SHR. Hann kvaðst ekki hafa vitað um samninginn fyrr en hann lá fýrir. Vilhjálmur sagði það spurningu í máli sem þessu hvort einstaklingur sem gegndi slíkri stöðu hjá Ríkis- spítala ætti að vera viðstaddur um- ræðuna. Sigrún Magnúsdóttir benti á að nú væri í höfn 16 ára baráttumál Framsóknarflokksins, sem árið 1982 hefði flutt um það tillögu í borgarstjóm að ríkið tæki við rekstri Borgarspítala, eins og hann þá hét. Eyþór Arnalds sagði vinnubrögð- in í þessum leynisamningi, eins og hann orðaði það, ekki koma sér á óvart. Hann sagði það skrýtna ábendingu hjá Helga Hjörvar að þingmenn sjálfstæðismanna ættu að upplýsa borgarfullrúa flokksins. Komið hefði í ljós að borgarfulltrú- ar R-listans hefðu ekki vitað um málið og því væri augljóst að hér hefði borgarstjóri einn staðið að verki. Borgarspítali var reistur fyr- ir fé Reykvíkinga, en á nú að selja hann fyrir lítið. Við teljum fljót- fæmislega farið af stað. Guðlaugur Þór Þórðarson sagði merkilegt að vera á borgarstjórnar- fundi þar sem kynnt væri utan dag- skrár eins og smámál að SHR væri að skipta um eigendur. Það sem liggi í augum uppi sé að menn hafi gefist upp í þessum rekstri og það án þess að borgarfulltrúar R-listans viti um málið og með svo stuttum fyrirfara um gildistöku sem raun beri vitni. Þótt vinnubrögð vegna sameiningar Rafmagnsveitu og Hitaveitu hafi ekki verið til fyrir- myndar væru þau hátíð miðað við þetta, að borgarstjóri skuli hafa kynnt sameiningu á fundi með starfsmönnum SHR sama morgun og samningurinn lægi fyrir. Ætla hefði mátt að stjórn SHR hefði fjall- að um tillögur til að mæta rekstrar- vanda en ljóst væri nú að hér væri uppgjöf á ferðinni eins og við aðra þætti í stjóm borgarinnar. Helgi Hjörvar sagði minnihlutann ekki hafa neinar tillögur fram að færa í neinum málum og stefna hans væri aðallega sú að vera á móti. Hann sagði samninginn byggðan á þeim drögum sem borgarlögmaður, Jón G. Tómasson, hefði unnið í borg- arstjóratíð Davíðs Oddssonar og því hefði Reykjavíkurlistinn ekki átt von á öðru en samstöðu um málið. Sagði hann málinu ekki hafa verið haldið leyndu fyrir borgarfulltrúum Reykjavíkurlistans. Borgarstjóri sagði eðlilegt að þessi umræða hefði vaknað og sér fyndist undarlegt að málið hefði komið mönnum í opna skjöldu, þessi hugmynd hefði svo lengi verið til umfjöllunar. Hún sagði gagnrýni ekki með öllu óréttmæta, en á fundi sl. mánudag hefði verið ákveðið að hefja lokatörn og hún kynnt málið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.