Morgunblaðið - 18.12.1998, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hlutafjárútboð í KR-Sport hf.
Rekstur meistaraflokks KR árið 1997-98 og
((f í/ymarkmiðsáætlun KR-rekstrarfélags 1999-2001
Allar upphæðir eru í milljónum króna Meistara- Markmiðsáætlun
flokkur KR KR-rekstrarféiags
1997-98 1999 2000 2001
Tekjur af mótum 11,4 12,4 13,1 13,8
Tekjur af Evrópukeppni 9,6 10,0 10,0
Auglýsingatekjur 14,1 17,5 18,5 19,5
Sjónvarpstekjur 1,7 2,8 3,5 4,0
Seldir leikmenn 3,4 15,0 15,0 20,0
Aðrar tekjur 10,7
Vörusala og vaxtartekjur 1,7 1,9 2,0
Rekstrartekjur samtals 41,3 59,0 62,0 69,4
Laun og launatengd gjöld 17,3 28,0 29,0 29,0
Þátttaka í mótum 15,4
Keyptir leikmenn 1,9
Húsa- og vallarleiga 8,3 8,3 8,3
Kostnaöur v. Evrópukeppni 5,0 5,0 5,0
Kostnaður v. heimaleikja 1,2 1,3 1,3
Annar rekstarkostnaður 7,4 7,6 8,0
Annar kostnaður og vaxtagj. 2,0 1,8 2,1 2,2
Afskriftir 1,5 1,5 1,5
Rekstrargjöld samtals 36,6 53,2 54,8 55,4
Rekstrarhagnaður 4,7 5.7 7,2 14,0
hefst næstkomandi mánudag
Morgunblaðið/Arnaldur
KR-INGAR binda vonir við hlutafjárútboð í KR-Sport, en tilgangur
þess er að styrkja stoðir meistaraflokks og byggja upp lið sem nær
árangri bæði innanlands og utan til lengri tíma.
50 milljónir
króna í boði á
genginu 1,00
HLUTAFJÁRÚTBOÐ í KR-Sport
hf. fyrir 50 milljónir króna að nafn-
verði á genginu 1,00 hefst næstkom-
andi mánudag. Miðað við mark-
miðsáætlun hlutafélagsins er gert
ráð fyrir að félagið skili 13.950 millj-
óna króna hagnaði árið 2001.
Almenningi gefst kostur á að
kaupa hlutabréf fyrir að lágmarki 10
þúsund krónur að nafnverði og að
hámarki einni milljón króna að nafn-
verði. Verðbréfastofa Búnaðarbank-
ans hf. og Verðbréfastofan hf. annast
sölu á hlutafénu, en sölutími er frá
21. desember til 15. janúar.
Heildai-hlutafé KR-Sport er 100
milljónir króna og er tilgangur
hlutafjárútboðsins að afla fjár til
þess að styrkja stoðir meistara-
flokks, 1. og 2. flokks karla í þeim til-
gangi að byggja upp lið sem nær
árangri bæði innanlands og utan til
lengri tíma, að því er kemur fram í
útboðslýsingu. Stjórn KR-Sport
hyggst sækja um skráningu á Vaxt-
arlista Verðbréfaþings íslands árið
1999.
Lögð hefur verið fram rekstrar-
áætlun A og B (markmiðsáætlun) til
þriggja ára. Markmiðsáætlunin gerir
ráð fyrir 13.950 milljóna ki-óna
hagnaði árið 2001, miðað við meiri
tekjur á mótum, auknar tekjur af
sölu leikmanna og meiri tekjur fyrir
auglýsingar og sjónvai'psútsending-
ar. Rekstraráætlun A gerir ráð fyrir
svipuðum rekstri félagsins og undan-
farin ár, eða 7.982 milljóna króna
hagnaði árið 2001.
Björgólfur Guðmundsson, stjóm-
arformaður KR-Sport, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að KR væri
trniega það félag á Islandi sem væri
best til þess fallið að fara á hlutafjár-
markað. „KR-ingar hafa undanfarin
ár fengið flesta áhorfendur og síðast-
liðin þrjú ár hefur tæplega 40%
áhorfenda í efstu deild sótt leiki liðs-
ins. Liðið leikur í Evrópukeppni
félagsliða á næsta ári og er grunn-
greiðsla frá Knattspyrnusambandi
Evrópu, EUFA, ríflega 4 milljónir
króna fyrir hverja umferð auk tekna
af sjónvarpsauglýsingum. Einnig
gerum við okkur vonir um sölu á
leikmönnum til erlendra liða, en
nokkrir hafa verið til skoðunar er-
lendis.“
Afkoma hlutafélagsins er ein-
göngu háð árangri meistaraflokks
liðsins á knattspyrnuvellinum, að
sögn Björgólfs. „Pau félög sem hafa
náð bestum árangri fá flesta áhorf-
endur, mestar tekjur fyrir miðasölu
og fyrir sjónvarpsútsendingar.
Slæmur árangur liðsins þýðir hins
vegar lægri tekjur á öllum sviðum.
Leikmenn verða því að ná árangri á
vellinum ef fjárfesting hluthafa eigi
að skila sér.“
Knattspyrnusamband Ewópu hef-
ur lýst andstöðu við eignaraðild er-
lends fjárfestis í KR, en gengið hafði
verið frá viljayfirlýsingu um sam-
stai'f á síðasta ári. Ekki er búist við
að niðurstaða fáist í deilumálinu fyrr
en á næsta ári. Björgólfur segir að
KR og erlenda fjárfestingarfyrir-
tækið hafi lýst yfir vilja til þess að
hefja viðræður að nýju þegar niður-
staða um eignaraðild liggur fyrir.
-----------------------
Sparisjóðabankinn
tekur fjölbankalán
Fyrsta ís-
lenska lánið
í evrum
SPARISJÓÐABANKINN samdi í
gær við 10 erlenda banka um tæp-
lega 2,1 milljai-ðs lántöku til 5 ára.
Er lánið í evrum og er þetta fyi-sta
íslenska lánið í þeim gjaldmiðli, að
sögn Ara Sigurðssonar, forstöðu-
manns hjá Sparisjóðabankanum.
Þýski bankinn Deutsche Bank og
danski bankinn Den Danske Bank
höfðu umsjón með lántökunni sem
tókst vonum framar að sögn Ara.
Lánið er 25 milljónir evra og er
vaxtabyrðin 0,225% yfii- Libor-vöxt-
um, sem er sama vaxtabyrði og á
fyrsta fjölbankaláninu sem Spari-
sjóðabankinn tók í júní sl. Segir Ari
að um góð kjör sé að ræða þar sem
markaðurinn hafi óneitanlega þokast
upp á við á undanförnum mánuðum.
Tilkynning um almennt útboö og skráningu á Verðbréfaþingi Islands
Hlutafjárútboð
Fjárhæð útboðsins er að hámarki 9.165.768 krónur að nafnvirði og er um að
ræða nýtt hlutafé. Heildarnafnverð hlutabréfa félagsins verður 100.823.450 krónur
að loknu útboði.
Útboðsgengi er 3,60.
Tilgangur með skráningu Hans Petersen hf. á Vaxtarlista Verðbréfaþings íslands
er að auðvelda viðskipti með hlutabréf í félaginu, gera verðmyndun öruggari,
auka upplýsingar um félagið og gera það opnara og aðgengilegra fyrir hluthafa,
viðskiptavini og allan almenning.
Forkaupsréttartímabil: 22. desember 1998 til 6. janúar 1999.
Gangi ekki allt hlutafé út til forkaupsréttarhafa kemur til
almennrar sölu frá 7. janúar 1999 til 14. janúar 1999.
Skrái hluthafar sig fyrir öllu hlutafénu verður útboði lokað fyrr.
Söluaðilar eru Búnaðarbankinn Verðbréf og útibú Búnaðarbanka íslands hf.
Umsjón með útboðinu hefur Búnaðarbankinn Verðbréf, Hafnarstræti 5, 3. hæð, 155 Reykjavík.
Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að skrá hlutabréf Hans Petersen hf. á
Vaxtarlista þingsins. Niðurstöður útboðsins verða tilkynntar í viðskiptakerfi
Verðbréfaþings íslands ásamt upplýsingum um endanlega skráningardagsetningu.
Skráningarlýsing og önnur gögn um Hans Petersen hf. liggja frammi hjá
Búnaðarbankanum Verðbréfum og Hans Petersen hf., Suðurlandsbraut 4, 108 Reykjavík.
I BUNAÐARBANKINN
VERÐBRÉF
- byggir ú trausti
Nýr flug-
vallarsljóri
á Keflavík-
urflugvelli
UTANRÍKISRÁÐHERRA hef-
ur skipað Björn Inga Knútsson í
embætti flugvallarstjóra á Kefia-
víkurflugvelh
frá 1. janúar að
telja, er Pétur
Guðmundsson,
flugvallarstjóri,
lætur af störf-
um sakir ald-
urs.
Björn Ingi
er fæddur 31.
Björn Ingi desember 1961.
Knútsson Hann hefur
lokið námi á sviði rekstrar flutn-
ingakerfa við London School of
Foreign Trade og University of
Wales Institute of Science and
Technology.
Frá árinu 1977 til ársins 1996
starfaði Bjöm Ingi hjá Skipa-
deild Sambandsins, síðar Sam-
skipum. Á því tímabili var hann
meðal annars deildarstjóri gáma-
deildar, fulltrúi útgerðar í
Bandaríkjunum, deildarstjóri
stórflutningadeildar og að lokum
fulltrúi útgerðar í Færeyjum.
Frá febrúar 1996 til október
1998 starfaði Björn Ingi hjá
Sofrona Unilines Holding SA á
Nýja-Sjálandi og í Ástralíu, fyrst
sem rekstrarráðgjaíi og síðar
sem framkvæmdastjóri rekstrar-
sviðs.
Bjöm Ingi er kvæntur Önnu
Berghndi Magnúsdóttur
sjúkraliða og eiga þau þrjú börn.
Marel hf.
Nýr fram-
kvæmdastjóri
framleiðslu-
ferils
DR. HÖRÐUR Arnarson tekur
við starfi framkvæmdastjóra
framleiðsluferils Marels hf. frá
og með næstu
áramótum.
Hörður hef-
ur starfað hjá
Marel hf. síðan
1986. Hann var
deildarstjóri
vömþróunar-
deildar frá ár-
inu 1991 og frá
Dr. Hörður 1996 fram-
Arnarson kvæmdastjóri
vöraþróunarferils og mun hann
gegna því starfí áfram.
Hörður er fæddur árið 1962.
Hann lauk prófi í rafmagnsverk-
fræði frá HI árið 1986 og doktor-
sprófi frá DTH í Kaupmanna-
höfn árið 1990. Hörður fékk
Hvatningarverðlaun Rannsókn-
arráðs ríkisins 1992.
Eiginkona Harðar er Guðný
Hallgrímsdóttir og eiga þau þrjú
böm.
Leiðrétting
Lára Long sel-
ur reksturinn
í FRÉTT í blaðinu í gær af nýj-
um eigendum Ljósmyndarans i
Mjódd var sagt að Jóhannes
Long og Lára Long væru að
selja reksturinn. Hið rétta er að
nýir eigendur kaupa reksturinn
af Lára Long sem rekið hefur
stofuna undanfarin ár.
Einnig skal tekið fram að mis-
sagt var að Finnbogi Marinósson
hefði unnið hjá Jóhannesi Long.
Hann hefur unnið sl. 3 ár hjá
Lára Long í Ljósmyndaranum í
Mjódd. Beðist er velvirðingar á
þessu.