Morgunblaðið - 18.12.1998, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ
Hlutverk
forsetans
„En efforseti tekur ekki þátt í þeim um-
rœðum, sem snerta fólk gæti það sþurt:
Hvaða tilgangi þjónar kann?“
- Ólafur Ragnar Grímsson
Komið hefur í ljós að
íslendingar eru
engan veginn sam-
mála um hvers
vegna þeir eru að
reka embætti forseta Islands.
Umræður um þetta efni hafa
raunar verið lítt skipulagðar og
einkennst af verulegri tilfínn-
ingasemi enda hefur sú hefð
skapast hér á landi að ekkert
umdeilanlegt megi nokkru sinni
segja um embætti forseta Is-
lands og einstakling þann sem
því gegnir. Er leitun að viðlíka
„sjálfsritskoðun" í hinum vest-
ræna heimi enda minnir hún
einna mest á kommúníska skoð-
anakúgun. Þetta er stórmerki-
legt menning-
VIÐHORF arlegtfyrir-
—---- brigði, sem ís-
Eftir Ásgeir lenskir fræði-
Sverrisson menn taka
vonandi til
skoðunar er fram líða stundir.
Engu er líkara en sjálf eining,
heill og hamingja þjóðarinnar sé
í hættu gerist einhver svo ófor-
skammaður að velta fyrir sér
hlutverki forseta Islands eða að
gagnrýna þá þróun, sem átt hef-
ur sér stað á vettvangi þessa
embættis hin síðari ár. Skin-
helgi, sem á stundum getur ver-
ið drepfyndin en er þó oftar
dapurleg, hefur lagst yfir þetta
embætti.
Umræðurnar nú hafa skapast
vegna framgöngu Ólafs Ragn-
ars Grímssonar í embætti. Var-
ast ber þó að binda þær við per-
sónu hans enda er nauðsynlegt
að hlutverk forsetans verði rætt
án tillits til þess hver embætt-
inu gegnir.
í umræðunum nú hefur mátt
greina tvo meginstrauma.
í öðrum herbúðunum eru þeir
sem telja það ekki samræmast
embætti forseta íslands að sá
sem því gegnir tjái sig með af-
gerandi eða gagnrýnum hætti
um gang þjóðmála. Forseti eigi
að halda sig utan deilumála.
Honum beri fyrst og fremst að
kynna sjónarmið Islendinga og
þá sitjandi ríkisstjórnar erlend-
is en koma fram sem „samein-
ingartákn" á heimavelli. Forseti
beri ekki pólitíska ábyrgð og því
geti hann ekki lýst persónuleg-
um skoðunum sínum t.a.m. á
sviði utanríkismála.
Þessi sýn á embættið felur í
sér að málfrelsi forsetans er
takmarkað. Hann er fjarlæg
„fígúra“ á ofurlaunum, sem tal-
ar til þjóðarinnar um óumdeil-
anleg efni þegar hátíð er í bæ
eða þegar nauðsynlegt reynist
að minna á að Island er besta
land í heimi og íslendingar
merkasta menningarþjóð
mannkynssögunnar. Erlendis
er vægi hans lítið og tilgangur-
inn með heimsóknum hans
einkum sá að vekja tímabundið
athygli misáhugasamra fjöl-
miðlamanna á tilveru Islend-
inga og framleiðslu íslenskra
útflutningsfyrirtækja.
I hinni fylkingunni standa
þeir sem telja öldungis sjálfsagt
og eðlilegt að forsetinn hafí leyfi
til að tjá sig um það sem fram
fer í landinu. Honum beri að
vera þátttakandi í þjóðlífínu en
ekki standa utan þess, upphaf-
inn og fjarlægur. Þessi fylking
virðist almennt hlynnt menning-
ar- og sölufulltrúahlutverkinu
erlendis.
Fyn-nefnda sjónarhornið fel-
ur í sér að embætti þetta verður
að öllu jöfnu heldur dauflegt en
uppsknifað og svipt inntaki
þegar forsetinn talar til þjóðar-
innar. Spyrja má einnig hvort
hugmyndin um „sameiningar-
táknið“ standist skoðun t.a.m
með vísun til þess að núverandi
forseti var, líkt og forveri hans í
embætti, kjörinn án þess að
baki hans stæði meirihluti
þeirra, sem atkvæði greiddu.
Síðarnefnda sjónarmiðið
þarfnast og frekari rökstuðn-
ings því þeir sem mæla hvað
ákafast fyrir málfrelsi forseta
bregðast einna verst við þegar
aðrir, sem væntanlega hafa
sama málfrelsi, nýta sér það til
að gagnrýna framgöngu hans í
embætti. Þá vaknar sú spuming
hvernig þetta „alþýðlega“ sjón-
arhorn fer saman við þá þróun í
átt til konunglegra hirðsiða,
með tilheyrandi sýndar-
mennsku, sem einkennt hefur
forsetaembættið síðustu 10-15
árin eða svo.
Otalið er þriðja sjónarmiðið,
sem fer ekki hátt enda leggja
margir það að jöfnu við land-
ráð. Samkvæmt því eru deilur
þessu með öllu ástæðulausar
einfaldlega vegna þess að með
öllu er ástæðulaust að reka
þetta embætti. Þeir sem eru
þessarar hyggju fá ekki séð að
forseti sinni neinum þeim störf-
um, sem landsmenn geti ekki
verið án eða aðrir geti ekki
unnið. Telja þeir hinir sömu að
þeim miklu fjármunum, sem
varið er til að standa undir for-
setaembættinu, beri að eyða í
meira aðkallandi verkefni t.a.m.
á sviði mennta- eða velferðar-
mála.
Um hvað má forseti Islands
tala og hvað má hann segja?
Þessi spuming er tekin að ger-
ast áleitin. Afstaða núverandi
forseta virðist skýr. Ólafur
Ragnar Grímsson sagði í viðtali
við sænskt dagblað, sem tekið
var á dögunum áður en hann
hélt í opinbera heimsókn til Sví-
þjóðar, að hann hefði „lýðræðis-
legt umboð" frá þjóðinni þar
sem hann væri kosinn beinni
kosningu. Hann upplýsti ekki
nákvæmlega til hvaða verka eða
framgöngu hann hefði hlotið
umboð þetta en orð hans hljóta
menn að skilja á þann veg að
hann hafi átt við aukna þátttöku
forseta í þjóðlífinu. Blaðið hafði
raunar eftir honum að nú ríki
„aukinn vilji fyrir því að forseti
gegni víðtækara hlutverki“.
Ekki var tilgreint hvaða heim-
ildir forsetinn hefði fyrir þessari
ályktun.
Hvert er hlutverk forseta Is-
lands fyrst hann má ekki tjá sig
um þau mál, sem hann ber ekki
pólitíska ábyrgð á? Sjálfur segir
Ólafur Ragnar Grímsson í fyrr-
nefndu viðtali: „En ef forseti
tekur ekki þátt í þeim umræð-
um, sem snerta fólk gæti það
spurt: Hvaða tilgangi þjónar
hann?“
Þessi er einmitt kjarni máls-
ins.
Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma
Þurfum að viður-
kenna vandann
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SIGRÍÐUR Björnsdóttir dýralæknir
hrossasjúkdóma.
Staða dýralæknis hrossasjúkdóma
var sett á laggirnar árið 1994 sem til-
raunaverkefni í kjölfar þess að slíkar
stöður höfðu smám saman verið sett-
ar á fót fyrir aðrar búfjártegundir.
Staðan er á vegum yfirdýralæknis í
nánu samstarfi við Bændaskólann á
Hólum. Sigríður Björnsdóttir hefur
gegnt stöðunni frá upphafi og hefur
hún aðsetur að Hólum. Hún sagði
Ásdísi Haraldsdóttur frá hlutverki
embættisins og hvaða verkefni hafa
verið unnið á vegum þess.
„Hlutverk sérgreinadýralækna er að
taka heildstætt á heilbrigðisvanda-
málum í hverri búgrein fyrir sig og
leita íyrirbyggjandi aðgerða,“ sagði
Sigríður. „Við höfum verið að mestu
laus við smitsjúkdóma í hrossum hér
á landi þar til í vetur að smitandi
hitasótt barst til landsins. Tveir
sjúkdómar hafa þó staðið hrossa-
ræktinni nokkuð fyrir þrifum, sér-
staklega þegar kemur að útflutningi.
Annar er sumarexem og hinn er
spatt. Það vantaði tilfinnanlega
grunnupplýsingar um þessa sjúk-
dóma og hversu stórt vandamál þeir
eru.“
Spatt stærra vandamál
en búist var við
Sigríður hefur stýrt viðamikilli
rannsókn á spatti og er rannsóknin
doktorsverkefni hennar við Dýra-
læknaháskólann í Uppsala í Svíþjóð.
Helgi Sigurðsson sérfræðingur í
hrossasjúkdómum og sérfræðingar
við Dýralæknaháskólann í Uppsala
unnu með Sigríði að rannsókninni.
„Við höfum reynt að átta okkur á
hversu útbreitt spattið er, en um er
að ræða sjúkdóm sem byrjar með
brjóskeyðingu í smáliðum hækilsins
sem leiðir svo til kölkunar í liðunum.
Eins konar slitgikt," segir Sigríður.
„Niðurstöðurnar leiddu í ljós að
sjúkdómurinn er mun algengari en
áður hafði verið talið og vísbending-
ar komu fram um að hann sé arf-
gengur og tengist byggingu hrossa.
Eftir þessa rannsókn höfum við
ágætis yfirlit yfir stöðuna, en vitum
samt ekki nóg. Við verðum að afla
meiri upplýsinga um sjúkdóminn áð-
FRAMLEIÐNISJÓÐUR og Út-
flutnings- og markaðssjóður hafa
ákveðið að skerpa línurnar á milli
sín hvað varðar styrk-
veitingar til hrossa-
ræktarinnar. Að sögn
Bjama Guðmundsson-
ar formanns Fram-
leiðnisjóðs mun sá
sjóður einbeita sér að
þróunar- og rannsókn-
arverkefnum.
Bjarni Guðmunds-
son sagði að á undan-
fórnum árum hefðu 12-
15 miHjónir króna
runnið til hrossarækt-
arinnar úr Framleiðni-
sjóði. Ymis verkefni
hefðu verið styrkt,
meðal annars þau sem
tengjast útflutningi og
einnig uppbygging aðstöðu á ein-
staka búum, svo eitthvað sé nefnt.
Hann segir að í framtíðinni verði
lögð meiri áhersla á að styrkja
verkefni sem kæmu heildinni að
gagni.
Tvær umsóknir um styrki liggja
nú fyrir hjá Framleiðnisjóði og
verður ákvörðun um þær teknar á
fundi 19. janúar næstkomandi.
Annars vegar er um að ræða um-
sókn frá Félagi hrossabænda um
ur en ákveðnar fyrirbyggjandi að-
gerðir geta hafist.“
Fyrir tveimur árum hófst rann-
sókn á sumarexemi og er verkefnið
byggt upp á svipaðan hátt og spatt-
verkefnið, það er að segja að reynt
er að sýna fram á arfgengi veikleika
fyrir sumarexemi. Sumarexem er of-
næmi fyrir flugum sem ekki er að
finna hér á landi, en íslenskir hestar
komast í kynni við eftir útflutning.
„Nú þegar liggja fyrir vísbending-
ar um að veikleikinn fyrir sjúkdómn-
um tengist ákveðnum vefjaflokkum
sem eru arfgengir. Út frá því verður
kannað hvort greina megi veikleik-
ann í erfðaefninu.
Nú hefur verið safnað gögnum um
400 hross sem flutt hafa verið úr
landi og koma úr 15 þekktum ættum.
Unnið er að því að slá þessi gögn inn
í gagnagrunn og í framhaldinu verð-
ur kannað hvort við finnum ákveðnar
ættir með háa tíðni og lága.
Sá orðrómur að munur sé á tíðni
styrk til að undirbúa kynningu á
hestamennsku í grunnskólum
landsins. Hins vegar er umsókn um
styrk til rannsókna á
sumarexemi. Er þetta
verkefni unnið í sam-
vinnu yfirdýralæknis-
embættisins, Bænda-
skólans á Hólum,
Dýralæknaháskólans í
Hannover og Keldna,
eins og kemur fram í
viðtali við Sigr-íði
Björnsdóttur á öðrum
stað hér í hestaþættin-
um.
Bjarni segir þetta
gríðarlega stórt verk-
efni og má búast við
að það taki langan
tíma. Hann segir að
gríðarlegui' áhugi sé
meðal hrossaræktenda á að unnið
verði af krafti að rannsóknum á
sumarexemi, enda virðist sjúkdóm-
urinn vera farinn að hafa mikil
áhrif á útflutning hrossa héðan og
því verði að reyna að finna lausn á
vandamálinu. Það sé borðliggjandi
að ef verða á við óskum um styrk
sem þennan muni nánast allt það
fjámagn sem ætlað er til hrossa-
ræktarinnar úr Framleiðnisjóði
renna til þeirra.
sjúkdómsins milli ætta hefur
legið í loftinu meðal hesta-
manna. En sumarexem er
ákaflega háð umhverfisþátt-
um og því getur verið erfitt
að sýna fram á arfgengi sjúk-
dómsins.“
Arfgengiverkefnið er sam-
starfsverkefni rannsóknar-
stofu í erfðatækni hrossa við
stofnun sem heitir Animal
Health Trust í New Market
á Englandi, Hólaskóla, Til-
raunastöðvarinnar á Keldum
og Bændasamtakanna.
Framlag Islendinga felst
fyrst og fremst í gagna-
grunninum og arfgengiút-
reikningum sem Ágúst Sig-
urðsson búfjárerfðafræðing-
ur hefur umsjón með. En
erfðatæknihlutinn verður
unninn í New Market og
fjármagnaður af þeirri stofn-
un.
„Við munum þó taka þátt í
þeirri vinnu með það í huga
að flytja þekkingu í erfða-
greiningu hrossa hingað
heim. Eg sé fram á að hún
muni nýtast í framtíðinni við DNA-
gi-einingar til dæmis vegna staðfest-
ingar á ættemi hrossa. Fjöldi sýna
er sendur til faðernisgreiningar í út-
löndum og mikil þörf er á að flytja þá
vinnu hingað heim. Ekki er ólíklegt
að fleiri rannsóknarverkefni muni í
framtíðinni liggja á þessu sviði.
En það þarf að rannsaka sumarex-
em á breiðari grundvelli. Nú er unn-
ið að því að koma á rannsóknarverk-
efni í samstarfi við rannsóknastofu í
ónæmisfræði við Dýralæknaháskól-
ann í Hannover í Þýskalandi. Það
verkefni er á sviði ónæmisfræði í
þeim tilgangi að varpa skýrara Ijósi
á eðli sjúkdómsins og þróa aðferðir
til greiningar.“
Nauðsynlegt að verja hrossin
gegn smitsjúkdómum
Starf Sigríðar hefur frá því í vetur
mikið snúist í kringum hitasóttina
sem fyrst varð vart í hrossum hér á
landi í febrúar. Þrátt fyrir að enn sé
ekki vitað með vissu hvaða veira olli
hitasóttinni segir hún að ýmislegt sé
vitað um veikina og hvernig veii’an
hegðar sér. Vilhjálmur Svansson
dýralæknir, doktor í veirufræði, hef-
ur verið ráðinn til að sinna grunn-
rannsóknum í leit að veirunni á
Keldum. Eftir að allar venjulegar
mótefnamælingar og ræktunarað-
ferðir hafa bi-ugðist verður nú hafist
handa við mikla leit í rafeindasmá-
sjá. Mikið magn sýna er til frá því
sóttin gekk yfir og nýlega voru sótt
sýni austur á land og vestur í Dali
þar sem hross voru veik fyrir fáein-
um vikum. Sigríður hefur tekið sam-
an upplýsingar um faraldsfræði
sjúkdómsins og er skýrslu um út-
breiðsluna að vænta á næstunni.
„Við vitum ekki hvernig hitasóttin
á eftir að hegða sér hér í framtíðinni,
til dæmis hvort þau hross sem ekki
urðu veik, eða virtust ekki verða það,
hafa myndað ónæmi og hversu lengi
það ónæmi varir,“ "sagði Sigríður.
„Það kom nokkuð á óvart að hita-
sóttin lagðist ekki eins þungt á hross
sem voru á útigangi og þau sem voru
inni. Það hlýtur að skýi'ast á því að
smitálagið er minna úti en þess ber
að gæta að við vorum mjög heppin
með veður. Þó kom í ljós að flest
hross drápust úr hitasóttinni í verstu
hretunum sem gerði í byrjun mai's á
Suðurlandi og í júlíbyrjun á Norður-
landi.
Útigangur hrossa krefst þess að
þau séu mjög heilbrigð. Hvers konar
öndunarfærasjúkdómar gætu reynst
hættulegir. Þess vegna verðum við
að halda þeirri stefnu eins og kostur
er að verja hrossastofninn gegn
smitsjúkdómum.
Ef alvarlegir sjúkdómai-, til dæmis
hestainflúensa, yrðu landlægh- yrði
Fr amleiðnisj ó ður
breytir um áherslur
Bjarni
Guðmundsson