Morgunblaðið - 18.12.1998, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 18.12.1998, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ *? MINNINGAR SIGURÐUR EYJÓLFSSON + Sigurður Eyj- ólfsson fæddist í Björgvin á Stokks- eyri 16. janúar 1906. Hann andað- ist á Landakotsspít- ala 9. desember síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Fossvogskirkju 17. desember. Sigurður hóf kennsluferil sinn 23 ára gamall, komandi beint úr Kennai-askólanum, í fæðingarbyggð sinni, Stokkseyi’i, og kenndi þar í tvo vetur. Par var gró- inn skóli og hinn ungi kennari naut handleiðslu skólastjóra. Eftir náms- dvöl í Svíþjóð einn vetur, varð hann fyrsti skólastjóri bamaskólans við Ölfusá, sem einmitt þetta haust, 1933, var breytt úr farskóla í fastan skóla. Starfið hóf hann þar á árbakk- anum í ársgömlu húsi, sem er stofm .inn að leikhúsi bæjarins sem nú er. I áratug var hann eini fasti kennarinn ' við skólann, þar var enginn greinar- munur gerður á kennara og skóla- stjóra. Byggðin hafði einn lækni, "* einn prest og einn kennara. Þegai- Leifur Eyjólfsson bættist við haustið 1943 þótti mörgum undarlegt hvem- ig tveir kennarar ættu að kenna bömunum, mætti kannski búast við tveim prestum? Nú era kennarar á Selfossi mun fleiri en allir íbúar staðarins vora þegar Sigurður tók þar til kennslu. Alla skólastjóratíð hans fjölgaði án afláts skóla- húsum og kennurum í takt við barnamergðina og síaukna skólagöngu. Því var langt í frá að embættið væri rólegt eða þægilegt, mjög mæddi á skólastjóra, bæði íyrir steinsteypu sakir og sálusorgunar. Nú til dags væri talað um streitu, en aldrei heyrði ég reyndar það orð úr Sigurð- ar munni. Allt fórst honum vel úr hendi, hann naut vinsælda og trausts bæði bama og foreldra. Hann hafði 24 nemendur í skólanum fyrsta árið, en 1961, þegar nemendur hans vora orðnir nálægt 400, fann hann að nóg var komið á þessum vettvangi og átti til að bera nægt vit og framsýni til umskipta. Hann fluttist suður og starfaði síðan hjá landsstjóm menntamála í höfuðstaðnum, fyrst sem fulltrúi fræðslumálastjóra til 1973 og svo í menntamálaráðuneyti allt til 1979, eða vel fram yfir venju- legan starfsaldur embættismanna. Þar reyndist sem fyrr, að það sem hann tók til, lafði ekki laust., Þegar kempa af þessu tagi kveð- ur og fær hvíldina, rifjast enn upp fyrir okkur, sem fengum að njóta manndómsára hans, að tíminn flýg- ur sem kólfi væri skotið, sem betur fer, því að lífið ætlast ekki til kyrr- stöðu. Mér finnst ég vera aftur barn og Sigurður að taka mig upp í Is- landssögu eða landafræði. Mikið þótti okkur til þess koma á hversu marga þeirra staða sem fjallað var um hann hafði komið, heima og er- lendis. Hann vissi gjörla, að þjálfun- ar var þörf ef leikni skyldi ná, samt var honum lagið að skapa umræðu og stagla ekki. Þessi fyrsti gluggi barnsins til umheimsins, sem skól- inn var, þeir Sigurður og Leifur, ut- an við hinn sjálfhverfa heim fjöl- skyldunnar, skilur vissulega eftir sig óafmáanleg spor í sálinni. En það var ekki bara á fræðilegu sviði að Sigurður efldi okkur, hinn sið- ferðilegi þáttur, borinn af hjarta- hlýju hans og umhyggju í garð bamanna, stóð hvergi að baki. Það verður reyndar að segjast eins og er, að á þeim áram var ég ekki alltaf ánægður með siðferðilega umhyggju Sigurðar. Iðulega var það, þegar ég var að hefna fyrir heimsins ranglæti, knúinn beinum, heitum og skipulags- lausum tilfinningum bemskunnar, með því að lúskra skólasystkinum mínum, átti hann það til að blanda sér í Jaann refsidóm og skakka leik- inn. Eg kunni honum þá hina megn- ustu óþökk fyrir, en vissulega hugsa ég öðravísi um þau mál nú og er feg- inn að hann fékk að ráða. Nú er kominn tími til að þakka fyrir sig. Blessuð sé minning Sigurðar Eyj- ólfssonar, samúð tjái ég Unni og börnunum öllum. Þór Vigfússon. KJARTAN MAGNÚSSON + Kjartan Magnússon fæddist í Ólafsvík 15. júlí 1917. Hann lést í Landakotsspítala 3. desember síðastliðinn og fór út- för hans fram frá Fossvogs- kirkju 11. desember. Elskulegur afi okkar, Kjartan Magnússon, er dáinn og langar okk- ur að minnast hans í nokkrum orð- um. Hann var þessi maður sem öll- um líkaði vel við og börn sóttu í og var það án efa vegna þess hversu gefandi og blíður hann var. Hann var mikill jólamaður og tók fullan þátt í undirbúningi þeirra. Eru okkur þá sérstaklega minnis- stæðar þær stundir þegar hann dundaði sér tímunum saman við að gera fallegar jólaski’eytingar í kjall- aranum, ásamt því þegar við sung- um jólalögin í árlegu jólaboði þeirra ömmu og bar þá ávallt fallega söng- rödd hans hæst. Hann undi sér vel á jólunum og verður því einmanalegt án hans um þessi og komandi jól. Nú er afi farinn frá okkur, en við vitum að honum líður vel, laus við sjúkdóma og erfiða heilsu. Far þú í friði, elsku afi. Elsku amma, pabbi og aðrir fjöl- skyldumeðlimir, megi guð og góðar minningar styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Gagnkvæm ást afabarns og afans er fjársjóð- ur. Hinn unga fysir á haf út en sá gamli leitar lendingar. Leiðir þeirra skarast og hvor hvetur annan. Þeir auðgast af handabandi og hlátri. Þeir lifa um eilífð í hjarta hvor annars. (Höf. ók.) Andrea og Elísa Magnúsdætur. Formáli minningargreina ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingai' um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dá- inn, um foreldra hans, systkini, maka og böm, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í greinun- um sjálfum. RASAUGLVSINGAR atviimnu- AUGLÝ5INGAR Tungumálakennara vantar Tungumálakennara vantar frá 1. janúar 1999 að Grunnskólanum Tálknafirði vegna barns- eignarfrís. Grunnskólinn á Tálknafirði er lítill skóli með um 65 nemendur. Tálknafjörður er stór- skemmtilegt sveitarfélag. Sérstaklega Ijúft veður. Húsnæði í boði og flutningsstyrkur. Upplýsingar gefur Björk Gunnarsdóttir, skóla- stjóri, í síma 456 2537 og Björn Óli Hauksson, sveitarstjóri, í síma 456 2539. TILK YWNIMGAR Tillaga að deiliskipulagi fyrir Skriðufell í Þjórsárdal — Heimasvæði og tjald- og hjólhýsasvædi Með vísan til 1. mgr. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með auglýst ' tillaga að deiliskipulagi fyrir hluta Skriðufells- jarðar í Þjórsárdal, Gnúpverjahreppi. Um er að ræða tillögu að: 1. Hjólhýsasvæði í Nesskógi og við Einbúa og Miðás í landi Skriðufells og tjaldsvæði á Sandártungu. Auk þess framtíðarsvæði fyrir jaðarmiðstöð hálendis og framtíðartjald- svæði í landi Skriðufells. 2. Heimasvæði Skriðufellsjarðar. Uppdráttur og greinargerð mun liggja frammi á hreppsskrifstofu Gnúpverjahrepps, félags- heimilinu Árnesi, frá og með 18. desember 1998 til 15. janúar 1999. Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu vera skriflegarog berast oddvita Gnúpverjahrepps eigi síðar en 29. janúar 1999. Þeir, sem ekki gera athugasemdir við tillöguna innan tiltekins frests, teljast samþykkir henni. Oddviti Gnúpverjahrepps. Auglýsendur athugið skilafrest! Auglýsingatexta og/eða tilbúnum atvinnu-, rað- og smáauglýsingum sem eiga að birtast í sunnudagsblaðinu, þarf að skila fyrir kl. 12 á föstudag. auglýsingadeild sími 569 1111 símbréf 569 1110 netfang: augl@mbl.is Lumene snyrtivörukynning í Reykjavíkurapóteki í dag kl. 14.00-18.00. 20% kynningarafsláttur. Lumene snyrtivörur. Til viðskiptavina Iðntæknistofnunar Lokað verður vegna jólaleyfa frá og með 23. desembertil áramóta. Gleðileg jól. Handverksmarkaður Handverksmarkaður verður á Garðatorgi laugardaginn 19. desemberfrá kl. 10 — 18. Milli 60 og 70 aðilar sýna og selja muni sína. Kvenfélagskonur sjá um kaffisölu. HÚSNÆÐI ÓSKA5T íbúð með húsgögnum óskast til leigu fyrir traust og gott fyrirtæki í 12 — 14 mánuði, frá janúar nk. Ársalir ehf., fasteignamiðlun, Lágmúla 5,108 Reykjavík, sími 533 4200. ATVINNUHÚSNÆBI Skrifstofuhúsnæði 150—250 fm óskast til leigu fyrir opinbera stofn un miðsvæðis í borginni, með aðgengi fyrir fatlaða og má gjarnan vera laust sem fyrst. Ársalir ehf., fasteignamiðlun, sími 533 4200. KENNSLA FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA Frá Fjölbrautaskólanum við Ármúla Brautskráning nemenda Nemendur verða brautskráðir frá skólanum laugardaginn 19. desember og hefst athöfnin kl. 14.00 í Langholtskirkju. Velunnarar skólans eru velkomnir. Skólameistari. FUNDIR/ MANNFAGNAOUR Kópavogsbúar — opið hús Opið hús er á hverjum laugardegi milli kl. 10 og 12 í Hamraborg 1,3. hæð. Ármann Kr. Ólafsson, bæjar- fulltrúi sjálfstæðismanna í Kópa- vogi, verður í opnu húsi laugardaginn 19. desember. Állir bæjarbúar eru velkomnir. Heitt kaffi á könnunni. Sjálfstæðisfélag Kópavogs. Til leigu Hverfisgata 14 nýuppgert, um 400 fm skrifstofuhúsnæði, auk 100 fm bakhúss. Bílastæði fylgja. Leigutími frá 1. febrúar 1999. Upplýsingar í síma 896 5430, Rafn Einarsson. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF FERÐAFÉIAC ® ÍSLANDS MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533 Sunnudagsferð 20. des. kl. 10.30 Gönguferð á Ker- hólakamb Es]u um vetrarsól- stöður. Áramótaferðin í Þórsmörk 30/12-2/1. Nú er hver að verða síðastur að taka miða í þessa einstöku ferð. Góð gisting í Skagfjörðsskála.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.