Morgunblaðið - 24.12.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.12.1998, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ - Morgunblaðið/Kristinn TILKYNNINGASKYLDAN er alltaf á vakt. Eysteinn Guðlaugsson starfs- maður mætir til vinnu klukkan 20 og situr vaktina næstu tólf txmana. Fj ölmargir að vinna yfir j ólin ÞAÐ verður hátíðleg stund á heimilum um allt land þegar kirkjuklukkurnar hringja inn jól- in í kvöld klukkan sex. En þótt flestir geti notið hátíðarinnar í faðmi Ijölskyldunnar eru fjöl- margir sem þurfa að vinna yfir jólin. Það þarf að hjúkra sjúkum, vakta byggingar og sinna útköll- um hvort sem er á sjó eða landi. Tilkynningaskyldan sinnir sjó- farendum. Að sögn Eysteins Guð- laugssonar, starfsmanns Tilkynn- ingaskyldunnar, er einn starfs- maður á vakt yfir jólin. Þeir reyna þó að skipta vöktunum með sér þannig að flestir geti átt einhveija stund heima í faðmi fjölskyldunnar yfir hátíðirnar. Eysteinn segir að fjöldi skipa á sjó yfir jólin hafi farið minnkandi hin síðustu ár. í fyrra hafi verið 3-4 frystitogarar úti sem stóluðu á söiudaga erlendis strax eftir jólin. En auk þess séu fraktskip alltaf á ferðinni. Hann minnist jólanna árið 1986 þegar tvö sjóslys áttu sér stað með sólahrings millibili, hið fyrra á aðfangadagskvöld og hitt sólarhring síðar. „Við vonum að þetta verði róleg og friðsamleg jól, það er best og ánægjulegast fyrir alla,“ segir Eysteinn, sem verður á vaktinni í kvöld. Jólahald f Húsdýragarðinum Þeir sem eru með búskap vita að hann Ieyfir ekki frí á lög- bundnum frídögum eins og jólun- um. Eins og á öðrum býlum verða starfsmenn í Húsdýragarð- inum á vakt yfir jólin og sinna dýrunum. Unnur Sigurþórsdótt- ir, dýrahirðir í garðinum, tjáði Morgunblaðsmönnum að dýrin fengju sérstaka meðferð á að- fangadag. Þau fá lúxusfæði auk þess sem dýrahirðirinn stjanar við þau, en þau fá til dæmis sér- staka jólaburstun. „Selirnir fá eintóma sfld í stað þess að hún sé blönduð loðnu eins og vanalega. Svínin fá epli, banana og kartöfl- ur og kanínurnar fá grænmeti. Þannig að við höldum líka upp á jólin hér,“ segir Unnur. Aðfangadagur er annasamur í fiestum kirkjugörðum landsins. I Grafarvogskirkjugarði eru starfs- menn á vakt til klukkan þijú á að- fangadag til að aðstoða fólk. Dag- urinn er einn sá annasamasti á ár- inu enda margir að heimsækja leiði látinna ættingja eða vina. Það er einnig mikið að gera hjá upplýsingum Landssímans og að sögn Ónnu Nínu Stefnisdóttir er mjög mikið að gera þangað til klukkan verður sex, þá dettur allt í dúnalogn. Hjá starfsmönn- unum rfldr líka jólastemmning og þeir fá jólakræsingar eins og þær gerast bestar. Aðfangadagur er stærsti dag- ur ársins hjá rafmagnsveitum um allt land og þar með taiinni Raf- magnsveitu Reykjavíkur. Þar hafa menn verið að undirbúa hið mikla álag sem fylgir elda- mennsku á aðfangadag allt frá því í haust, að sögn Gunnars Að- alsteinssonar rekstrarstjóra. „Toppurinn er á milli fimm og sex, þegar kartöflumar em sett- ar yfir á hverju heimili. Það er stöðug aukning í orkunotkun á milli ára og við emm í viðbragðs- stöðu ef eitthvað bregður út af. Um 20 manns era á vakt úti í hverfunum á þessum áiagstíma og mæta þeir heim til fólks að bjarga málunum fljótlega eftir að beiðni um aðstoð hefur borist. Fólk veit ekki af því og er oft undrandi á því hvað starfsmenn- irnir em fljótir á staðinn," segir Gunnar. Þrátt fyrir að nauðsyn- legt sé að sumir vinni yfir jólin munu vonandi allir eiga gleði- lega jólahátíð. FRÉTTIR HJÁ upplýsingaþjónustu Landssímans er vanalega mikið að gera til klukkan sex í dag, þá dettur allt í dúnalogn, segir Anna Nína Stefnisdóttir starfsmaður. SVÍNIN í Húsdýragarðinum fá hátíðarfæðu: epli, banana og kartöflur í stað hversdagslegs fóðurs. Grísimir hennar Gjólu kunna vel að meta það. MorgunblaðiíVGolli GOTT veður var í höfuðborginni í gærkvöldi og fjöldi fólks á ferð í miðborg Reykjavíkur og fór fjölgandi um og eftir kvöldmatar- leytið. Verslanir vom opnar og ungir og gamlir ljósberar samein- Mannfjöldi í miðborginni uðust í friðargöngu frá Hlemmi að Lækjaríorgi. Lögreglan sagði umferð mikla og hafa gengið vel og áfallalaust, enda þurrt og eng- in hálka. Fremur lítið hafði verið um útköll yfir daginn og allt fór friðsamlega fram í jólastemmn- ingunni. Rafíðnaðar- og símamenn um tilboð um innanhússsamning Efast um lögmæti samtengingarinnar RAFIÐNAÐARSAMBAND íslands telur að tilboð Landssímans um inn- anhússsamning sé óvenjuleg leið og vafasöm. Einkum finnst sambandinu mjög óeðlilegt að leggja þrjá mis- munandi samninga fyrir félaga jafn- margra launþegasamtaka og tengja síðan niðurstöðumar saman. Guð- mundur Gunnarsson, formaður RSÍ, kveðst telja þetta ólöglega aðferð. Einar Gústafsson, formaður Félags íslenskra símamanna, kveðst ósáttur við þessa samtengingu, en hins veg- ar sé of snemmt að fella dóma um innihald tilboðsins. Þórarinn V. Þór- arinsson, stjómarformaður Lands- símans, kveðst telja tilboðið þjóna bæði hagsmunum fyrirtækins og starfsmanna. Kostnaður um 300 millj. Tilboðið nær til félaga þrennra launþegasamtaka, RSÍ, FÍS og Verkamannasambandsins. Lands- síminn leggur til að kaffitími starfs- manna að morgni verði felldur niður, í stað þess verði greidd yfirvinna, eins og heimilt er samkvæmt gild- andi kjarasamningum. Þá er 2% launahækkun boðin frá og með 1. janúar ásamt því að starfsmenn fái 75 þúsund króna eingreiðslu. Þessu til viðbótar er farið fram á að félagsmenn hinna þriggja félaga fallist á breytingar sem snerta við- komandi félög. Oskað er eftir að raf- iðnaðarmenn samþykki að launa- greiðslur til þeirra komi mánaðar- lega í stað vikulega eins og nú tíðkast. Óskað er eftir að félagsmenn FÍS samþykki breytingar á vöktum og hugmyndir sem eyða myndu ágreiningi um lífeyrismál, en slíkar deilur hafa verið uppi síðan fyrirtæk- inu var breytt í hlutafélag 1. janúar 1997. í yfirlýsingu RSÍ kemur fram það sjónarmið að ákaflega óeðlilegt og jafnvel ólöglegt sé að afgreiða lífeyr- ismál símamanna með þessum hætti. Þá gerir félagið athugasemdir við samtenginguna, eins og fyrr segir, og bendir á að starfsmenn eru dreifðir um allt land þannig að kynn- ing fari fyrir ofan garð og neðan hjá mörgum. „Það er mat RSÍ að það hefði verið eðlilegra að hafa meira samráð við trúnaðarmenn og samn- inganefndir hópanna, auk þess að bera plöggin undir stéttarfélögin." Einar Gústafsson, formaður FÍS, segir að skoða verði tilboð Landssím- ans betur áður en hægt sé að tjá sig um innihald þess og tilboðið hafi borist svo nærri jólum að tíminn sé naumur. „Þá fínnst mér út úr kortinu að spyrða saman atkvæðagreiðslu um ólík mál og spyr hvort þetta sé löglegt og gjörlegt," segir hann. Hlynntur vinnustaðasamningum Launagreiðslur Landssímans nema tæplega þremur milljörðum króna í ár og segir Þórarinn V. Þór- arinsson, stjómarformaður Lands- símans, að 2% launahækkun myndi þýða um 60 milljóna króna hækkun þess kostnaðar. Eingreiðsla til starfsmanna myndi kosta fyrirtækið um 90 milljónir. „Þar að auki viljum við kaupa aukinn vinnutíma, þannig að við erum að skuldbinda okkur til að kaupa vinnutíma fyrir um 120-130 milljónir í viðbót á næsta ári,“ segir Þórarinn. Hann segir að einnig verði að taka með í reikninginn tilboð til starfs- manna sem ekki hafa lífeyrisréttindi miðað við fóst laun eins og þeir hefðu vænst þegar fyrirtækinu var breytt í hlutafélag áramótin 1996/97. „Þeim er gert tilboð til að ljúka því og koma í veg fyrir að fyrirtækið eigi yfir höfði sér málaferli vegna mögulegra deilna um viðskilnað ríkisins við þessa starfsmenn," segir Þórarinn. Hann segir Landssímann vonast til að þetta tilboð verði samþykkt og sé það miðað við að greiðslurnai' komi til framkvæmda næstu mán- aðamót eftir að samþykki fæst. „Við erum bjartsýnir á góð viðbrögð og að tekist hafi að slá þann tón sem henti bæði hagsmunum íýrirtækisins og starfsmanna," segir Þórarinn. Hann kveðst mjög hlynntur vinnu- staðasamningum og fari það sjónar- mið saman við framtíðarsýn Vinnu- veitendasambands íslands. „Slíkir samningar gefa kost á að hvert fyrir- tæki taki á þeim hagræðingarmögu- leikum sem gefast hverju sinni. Það má sjá fyrir sér að í almennum kjarasamningum væri að allra minnstu leyti fjallað um laun, heldur væru launaákvarðanir viðfangsefni í kjarasamningum úti í fyrirtækjum. Það er örugglega talsvert þangað til það gerist, en þetta er þróun og til- boð okkar er þáttur í þeirri þróun,“ segir Þórarinn. Þjónar hagsmunuin beggja Hann segir að hagnaður af Lands- símanum sé mjög góður í ár, kostn- aðaraðhald hafi verið mikið og m.a. hafi launaútgjöld á þessu ári verið minni en ráð var fyrir gert. Lands- síminn hafi ekki náð að fjölga starfs- fólki á síðasta ári eins og áætlað var, heldur þurfi að reiða sig meira á vinnuframlag hvers og eins. „Við teljum að það sé heppilegra að ganga hreint til verks og semja við starfs- fólk um skilvirkari vinnutíma og hærra fastakaup, enda þjóni það hagsmunum hvorra tveggja. Þetta er borið upp sem vinnustaðasamningar sem félagsmenn í hverju og einu fé- lagi greiða atkvæði um, en hanga þó saman, því það er til lítils að leggja niður kaffitíma hjá vinnufiokki ef einhver einn í þeim flokki hefur enn samning um að drekka kaffi.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.