Morgunblaðið - 24.12.1998, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Minnkandi líkur á að Kvennalistimi verði með í samfylkingu
Alþýðuflokksmenn
samþykkja prófkjör
STJÓRN fulltrúaráðs alþýðu-
flokksfélaganna í Reykjavík hefur
samþykkt samkomulag A-flokk-
anna um sameiginlegt prófkjör
samfylkingar vegna alþingiskosn-
inganna í vor. Stjórn kjördæmis-
ráðs alþýðubandalagsfélaganna í
Reykjavík kemur saman nk. mánu-
dag til að fjalla um samkomulagið.
Enn er óljóst hvort Kvennalistinn
tekur þátt í prófkjörinu, en líkur á
því að svo verði fara minnkandi.
Á fundi stjórnar fulltrúaráðsins
gerði samninganefnd Alþýðu-
flokksins grein fyi-ir gangi samn-
ingaviðræðnanna við Alþýðubanda-
lag og Kvennalista. Tillagan sem
samþykkt var af fulltrúum A-flokk-
anna í nefndinni 16. desember sl.
var samþykkt með 11 atkvæðum,
en þrír sátu hjá.
Tillagan gerir ráð fyrir að próf-
kjör verði haldið 23. eða 30. janúar.
Allir stuðningsmenn samfylkingar
geta tekið þátt í því. Gert er ráð
fyrir að hver flokkur velji 6-9 fram-
bjóðendur á sinn lista og er flokks-
aðild ekki skilyi’ði fyrir kjörgengi.
Tilnefningarnar eiga að liggja fyrir
á hádegi laugardaginn 9. janúar.
Kjósendur eiga að raða frambjóð-
endum þess flokks sem þeir kjósa
og ræður styrkleiki flokkanna
hvaða sæti þeir fá. Samkomulag er
þó um að hver flokkur hljóti
minnst tvö af átta efstu sætum Hst-
ans. Ennfremur eru aðilar sam-
mála um að bjóða Jóhönnu Sigurð-
ardóttur alþingismanni að skipa
fjórða sæti listans. Þá eru aðilar
sammála um að sanngjarnt sé að sá
flokkur sem hljóti næstflest at-
kvæði ráði 10. sæti listans.
Bókaður stuðningur
við Kvennalista
Margi’ét Bjömsdóttir, Hólmfríð-
ur Sveinsdóttir og Jóhanna Þór-
dórsdóttir bókuðu á fundum að
þær teldu að reyna ætti til þrautar
að fá Kvennalistann til samstarfs
um samfylkingu fyrir næstu kosn-
ingar. Þær tóku undir kröfu
Kvennalistans um girðingu við
þriðja sætið eða girðingu við sjö
efstu sætin, en ekki átta eins og
segir í tillögunni.
Fulltrúar Kvennalistans, sem
rætt var við í gær, vildu ekki tjá sig
um niðurstöðu Alþýðuflokksins, en
greinilegt er að þær eru ósáttar við
tillöguna eins og hún lítur út í dag.
Það var hins vegar að heyra á
Pétri Jónssyni, formanni fulltrúa-
ráðs alþýðuflokksfélaganna, að
málið væri afgi-eitt af hálfu Al-
þýðuflokksins og að viðræðum um
prófkjör yrði ekki haldið áfram.
Kvennalistinn hefði frest til 9. jan-
úar til að tilkynna þátttöku í próf-
kjörinu.
Samkomulag að takast
í Reykjanesi
Samkomulag virðist hins vegar
vera að takast milli flokkanna
þriggja á Reykjanesi. Upphaflega
var rætt um að halda prófkjör um
fimm efstu sætin, en Kvennalistinn
lagði til að prófkjörið yrði haldið
með girðingu við fjórða sætið. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
eru taldar góðar líkui’ á að hinir
flokkamir samþykki tillöguna, en
fundur verður haldinn í framboðs-
nefndinni nk. sunnudag, en þá er
stefnt að því að klára málið.
Svala Jónsdóttir, sem sæti á í
nefndinni fyrir hönd Kvennalista,
sagðist ekki telja að ósamkomulag
um framboðsmál í Reykjavík hefði
áhrif á ákvarðanir Kvennalistans á
Reykjanesi. Hún sagðist vona að
samkomulag á Reykjanesi virkaði
sem hvatning fyrir fólk í öðram
kjördæmum að ná saman.
Morgunblaðið/RAX
HOLTACAROAR
Skötuilmur
um land allt
OPID í DAG KL«
9-12
BÓNUS FRÁ 10-12
SKÖTUILMINN lagði um land
allt er þjóðin gæddi sér á Þor-
Iáksmessuskötunni í gær, til
dæmis í Múlakaffi þar sem fólk
tók hressilega til matar síns.
Mikil sókn er í skötuveislur veit-
ingahúsa á höfuðborgarsvæðinu
og eru pantanir jafnvel farnar að
berast fyrir næsta ár.
Með skötunni bera veitinga-
menn hefðbundið meðlæti svo
sem hamsatólg, hnoðmör, kart-
öflur og rófur, rúgbrauð og
siryör.
Þá fengust þær upplýsingar í
Naustinu að áhugi kvenna á þess-
um veislukosti hafi greinilega
farið vaxandi. Einungis ein kona
hafi snætt skötuna, sem þar var
borin fram, árum saman. Svo
hafi tvær bæst í hópinn og síðan
fleiri og fleiri.
BJÖRGUN ehf. hefur kynnt borgaryfirvöldum hugmynd að nýju
hverfi á um 17 hektara uppfyllingu út í Skerjafjörð.
Nýtt byggingarsvæði á uppfyllingu
kynnt í borgarráði
Sækja um 17
hektara lóð
í Skerjafírði
ing hverfisins við gatna- og lagna-
kerfí þorgarinnar yrði mun hag-
kvæmari en í flestum öðrum nýjum
hverfum. Ennfremur myndi æsku-
lýðsstarf í Nauthólsvík eflast með
stækkun svæðisins, nýrri aðkomu-
leið og fjölbreyttari starfsemi.
Eini staðurinn
Að sögn borgarstjóra hafa borg-
aryfirvöld enn ekki tekið afstöðu til
hugmyndarinnar. „Mér líst að
mörgu leyti ágætlega á þetta,“
sagði hún. „Það sem við þurfum
fyrst og fremst að horfa á er strönd-
in. Ég geri mér ekki alveg grein
fyrir hvort þarna verður um að
ræða röskun á fjörunni en ég reikna
þó með að það hafi þegar verið gert
því Skeljungsbryggjan er þarna og
þarna voru birgðastöðvar Skelj-
ungs, sem nú eru í eigu borgarinn-
ar. Þetta nýja land verður framund-
an þeirri lóð.
Að mínu mati er þetta því eini
staðurinn á strandlengjunni sem
hægt væri að fylla upp í og ég geri
ráð fyrir að þetta hverfi geti orðið
eftirsótt. Það mun styrkja byggðina
í Skerjaflrði og gera það mögulegt
að vera þar með meiri þjónustu
heldur en nú er. Auk þess sem öll
íbúðabyggð sem hægt er að koma
við vestan Elliðaáa er eftirsóknar-
verð.“
Borgarstjóri sagði að hugmyndir
væra uppi um að leggja niður í
framtíðinni flugbraut sem liggur
norð-austur og suð-vestur og að
gert væri ráð fyrir að á hana yrðu
sett tímamörk í þeirri vinnu sem nú
stendur yfír um framtíð flugvallar-
ins. „Flugmálayfirvöld hafa talið
brautina nauðsynlega af öryggisá-
stæðum og ekki síst vegna þess að
sams konar braut í Keflavík er lok-
uð,“ sagði Ingibjörg Sólrún. „Ef sú
braut yrði opnuð, mætti leggja
brautina á Reykjavíkurflugvelli af.“
Undirgöng undir flugbraut
Borgarstjóri sagði að möguleiki
væri á að leggja undirgöng undir
norður-suður-brautina og opna
þannig aðkomu að hverfinu frá
Hlíðarfæti sem gert er ráð fyrir að
verði lagður vegna starfseminnar á
flugvellinum. „Þessi byggð gæti þá
hugsanlega átt aðkomu þá leiðina,"
sagði Ingibjörg Sólrún.
BJÖRGUN ehf. hefur óskað eftir 17
hektara lóð í sjó í Skerjafírði undir
um 700 íbúðir, skrifstofu- og versl-
unarhúsnæði og opinberar stofnan-
ir. Hugmyndin hefur verið kynnt í
borgarráði og þaðan var henni vísað
til borgarskipulags. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri segir að
sér lítist ágætlega á hugmyndina.
Fáist leyfi borgaryfu-valda er gert
ráð fyrir að lóðargerð taki 2-3 ár og
að byggingarframkvæmdir geti haf-
ist að hluta eftir 1-2 ár.
Það er Bjöm Ólafs arkitekt sem
unnið hefur tillöguna. „Það hefur
verið lögð áhersla á að nýta vel
þessa staðsetningu," sagði Sigurður
R. Helgason framkvæmdastjóri
Björgunar ehf. „Þetta verður
þriggja til fímm hæða byggð og er
gert ráð fyrir að 2/3hlutar íbúðanna
verði með útsýni út á sjó. Við höfum
einnig lagt mikla áherslu á að
skyggja ekki á þá byggð sem fyrir
er í Skildinganesi hvorki útsýni né
annað írá þeim húsum."
Utan öryggismarka
Sigurður sagði að byggðin væri
utan öryggismarka flugvallarins
eins og í svipaðri fjarlægð og önnur
byggð sem reist hefur verið í ná-
grenni flugvallarins nýverið eins og
t.d. við Þorragötu. „Þetta hverfi
tengist frekari þróun inn á flugvall-
arsvæðinu," sagði hann. Aðkoman
verður sú sama og að Skildinganesi
en auk þess hefur lauslega verið
rætt um undirgöng undir eina flug-
brautina að sögn Sigurðar. „Við
munum kosta landgerð og gi’jótvörn
og allan undirbúning fyrir fram-
kvæmdimar," sagði hann. „Hafa
umsjón með skipulagi, sjá um hafn-
argerð, gatna- og lagnagerð, stíga
og stétta og umsjón með hönnun
húsa til samræmingar í hverfinu.
Við munum síðan selja lóðirnar en
fylgja hverfinu eftir til að tryggja
að það gangi upp.“
I erindinu til borgaryfírvalda er
bent á að hverfið hafi marga góða
kosti eins og t.d. nýjan skemmtileg-
an áningar- og útsýnisstað frá
göngustíg meðfram Skerjafirði.
Byggðin myndi styrkja núverandi
byggð í Skildinganesi m.a. í skóla-
og dagvistarmálum, verslun og
þjónustu auk þess sem hún styrkti
miðborgina. Fram kemur að teng-