Morgunblaðið - 24.12.1998, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frumvarp rfldsstjórnarinnar um breytingar á lögum um stjóm fiskveiða
GÓÐÆRISGAUR, Greifasleikir og Kvótastubbi bregðast ekki sínum
hvað sem raular og tautar.
Sameining- sjúkrahús-
anna fyrir borgarstjórn
SAMNINGUR um sameiningu
sjúkrahúsanna í Reykjavík var
lagður fram í borgarráði á þriðju-
dag og var afgreiðslu hans vísað til
borgarstjórnar.
í bókun borgarstjóra segir m.a.
að eftir margra ára hallarekstur og
niðurskurð til sjúkrahúsa séu ekki
forsendur fyrir því að borgin verði
áfram í rekstrarlegri og pólitískri
ábyrgð fyrir Sjúki-ahús Reykjavík-
ur. I bókun Sjálfstæðisflokks er
m.a. lögð áhersla á að sjúkrahúsið
verði áfram sjálfstæð stofnun rekin
af borgaryfírvöldum. Vegna
ágreinings í borgarráði fer málið til
borgarstjómar.
I bókun borgarstjóra er bent á
að fyrir einu ári hafi verið gerð
grein fyrir því að til þess gæti kom-
ið að rekstur sjúkrahússins flyttist
yfir til ríkisins. Það hafi einnig
komið fram á fundi á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur fyrir síðustu kosning-
Sjálfstæðis-
menn gagnrýna
vinnubrögð
borgarstjóra
ar. Aðalatriðið sé ekki hvort borgin
eða ríkáð reki spítalann heldur hitt
að tryggja góða heilbrigðisþjón-
ustu fyrir alla landsmenn. „Það er
að mínu mati best gert með því að
bæta verkaskiptingu milli stóru
sjúkrahúsanna, auka samstarf þar
sem það hentar og síðast en ekki
síst treysta rekstrargrundvöll
þeirra með auknum fjárframlög-
um,“ segir í bókun borgarstjóra.
Fleiri en ríkið
í bókun sjálfstæðismanna segir
að til að tryggja nauðsynlegan
samanburð, fjárhagslega og fag-
lega samkeppni, sé brýnt að fleiri
aðilar en ríkisvaldið standi að slík-
um rekstri. Reykvíkingar hafi
byggt upp Borgarspítalann og með
sameiningu hans og Landakots-
spítala hafi átt að leggja grunn að
öflugra sjúkrahúsi og hagkvæmari
rekstri, sem yrði valkostur við
Landspítalann. Fram kemur að
sjálfstæðismenn hafa lagt áherslu
á að starfsemi sjúkrahússins yrði
skilgreind og þjónustusamningur
gerður við ríkisvaldið um rekstur-
inn. Borgarstjóri hafi hins vegar
lagt á það áherslu að ríkisvaldið
tæki alfarið við rekstri sjúkrahúss-
ins. Þá segir: „Vinnubrögð borgar-
stjóra í þessu máli eru ámælisverð.
Ekkert samráð er haft við borg-
arráðsfulltrúa, stjórnarmenn
Sjúkrahúss Reykjavíkur eða
starfsmenn þess. Hér er enn eitt
dæmið um vinnubrögð borgar-
stjóra scm sýnir hvernig lýðræðis-
leg vinnubrögð eru fótum troðin."
'k
Þln uorslun er 6
oftlrtúldum atoOum:
Stigahlíð, Reykjavik
^ Grímsbæ, Reykjavík
Hagamel, Reykjavík
Seljabraut, Reykjavík
Vesturbergi, Reykjavik
Gilsbúð, Garðabæ
Selásbraut, Reykjavík
Hringbraut, Keflavík
Miðbæ, Akranesi
Borgarbraut, Stykkishólmi
Grundargötu, Grundarfirði
Vallholti, Ólafsvík
□lafsbraut, Ólafsvík
Vitastig, Bolungarvík
Lækjargötu, Siglufirði
Aðalgötu, Ólafsfirði
Álaugarvegi, Höfn
Breiðumörk, Hveragerði „
Tryggvagötu. Selfossi
Skrifstofa 587 6720
iStangarhyl, Reykjavík
>$C *
%
Síarfsfólfyfog cigendur
ósl^a lanHsmönnum ölliun
gleðilegra jóla
jta verslun
Jólagleði Hjálpræðishersins og Verndar
Mikil jóla-
stemmning o g
allir velkomnir
A
KVÖLD verður hús
Hjálpræðishersins þétt
setið en þangað eru allir
velkomnh' sem ekki eiga
þess kost að eyða aðfanga-
dagskvöldi með ættingjum
sínum. Það eru Jólanefnd
Verndar og Hjálpræðisher-
inn sem standa fýrir sam-
komunni. Miriam Óskars-
dóttir sér um skipulagningu
jólafagnaðarins.
„Hús Hjálpræðishersins
hefur í fjöldamörg ár staðið
opið á aðfangadagskvöld og
þangað geta komið allir þeir
sem vilja. Undanfarin ár
höfum við haldið kvöldið há-
tíðlegt í samstarfi við
Vemd.“
- Hverjir koma til ykkar á
aðfangadagskvöld?
„Það er alls konar fólk
sem kemur til okkar og þar á með-
al eru einstæðingar og einnig fólk
sem hefur ekki annað heimili en
Hjálpræðisherinn. Þá heimsækja
okkur útlendingar sem eru staddir
hér um hríð og stundum hefur það
komið fyrir að gestaskip liggja við
höfnina og við höfum þá fengið
áhöfnina til okkar.“
Miriam segir að margir sjálf-
boðaliðar séu að störfum á að-
fangadagskvöld. „Þetta er fólk sem
vill Iáta gott af sér leiða og við höf-
um fengið hringingar héðan og
þaðan frá fólki sem vill koma og
vinna með okkur. Hjónin sem hafa
boðist til að koma og sjá um að
elda í kvöld eru Anna Olafsdóttir
og Arnar Gestsson. Þau voru líka
með okkur í fyrra og koma með
börn og tilvonandi tengdabörn með
sér. Stefán Garðarsson verður
veislustjóri eins og í fyrra og siðan
ætla til dæmis nokkrir unglingar
að þjóna til borðs auk annarra
sjálfboðaliða. Kona ein hafði sam-
band fyrir skömmu og bauðst til að
koma í uppvaskið. Það er frábært
að finna þennan kærleika og
skynja að fólk er tilbúið að koma
og gefa af sér með þessum hætti.“
-Hvenær hefst jólagleðin hjá
ykkur í kvöld?
„Við hefjum dagskrána klukkan
sex með því að jólaguðspjallið er
lesið á ýmsum tungumálum og síð-
an er sungið borðvers. Að því búnu
borðum við saman. Við bjóðum upp
á hangikjöt með öllu tilheyrandi og
verðum líka með annars konar kjöt
á boðstólum."
Miriam segir að einstaklingar og
fyrirtæki gefi þeim gjarnan mat og
aðrar gjafir, t.d fá þau yfirleitt
kjötið frá kjötiðnaðarfyrirtæki,
sælgæti frá sælgætisverksmiðjum,
ístertur, ýmsan dósamat, ferska
ávexti og annað sem þarf í veislu-
máltíð. „Þá hafa bæði
einstaklingar og fyrir-
tæki komið með gjafir
eins og bækur eða fatn-
að en auðvitað fá allir
gestir jólagjöf.
Það er mjög hátíðlegt
hjá okkur á aðfanga-
dagskvöld. Við fáum líka góða gesti
í heimsókn. Gísli Helgason ætlar
að gleðja okkur með tónlistarflutn-
ingi og Óskar Jakobsson leikur á
píanó og þjónar til borðs. Eftir
matinn eru borðin fjarlægð og þá
er dansað í kringum jólatréð." Þá
bætast gjarnan við nokkrar fjöl-
skyldur sem dansa með í kringum
jólatréð. Ávallt er boðið upp á kaffí
og kökur á gistiheimilinu.
„Ég vil ítreka að allir eru vel-
komnir til okkar í kvöld og það er
mjög gott ef fólk hringir í okkur og
lætur skrá sig. í fyrra heimsóttu
okkur um hundrað manns og við
eigum von á sama fjölda í ár.“
►Miriam Óskarsdóttir er fædd
í Reykjavík árið 1960. Hún
varð foringi í Hjálpræðishern-
um um tvítugt og bjó síðan í
Noregi um skeið.
Hún dvaldi í Panama í átta ár
og rak þar m.a. barnaheimili
fyrir fátæk börn ásamt konu
frá Kólumbíu, var skólastýra
um skeið og sá um söfnuð auk
þess sem hún sá um útvarps-
þætti.
Miriam lauk BA námi í
spænsku, sænsku og norsku
frá Háskóla íslands árið 1995
og árið 1996 kennsluréttindum
frá sama skóla.
Miriam söng á geisladisk trú-
artónlist árið 1994 en hafði áð-
ur sungið inn á kassettu til
styrktar starfi í Panama.
Miriam mun halda tónleika
hjá Hjálpræðishernum í Los
Angeles í febrúar næstkom-
andi og verða með námskeið á
spænsku.
Miriam varð flokksforingi
Hjálpræðishersins fyrir einu
og hálfu ári.
-Þið útbúið líka pakka fyrir
funga?
„Já, það gerum við og mætum
sama velvilja hjá fyrirtækjum og
einstaklingum sem gefa okkur oft
ýmislegt í þá.“
Fjölskyldur hafa líka getað leitað
til ykkar eftir matarkortum?
„Við gefum um 300 matarkort
fyrir jólin sem gilda fyrir úttekt
upp á 2.500 krónur. Sumar fjöl-
skyldur fá 1-2 slík kort, við metum
aðstæður hverju sinni. Þeir sem
hafa látið fé renna í jólapottinn
okkar gera okkur kleift að styðja
við bakið á fjölskyldum með þess-
um hætti. Við erum
með tvo jólapotta í Kr-
inglunni, einn á póst-
húsinu í Austurstræti
og einn við verslunina
Liverpool."
- Býður Hjálpræðis-
herinn ekki til stn
öldruðum umjólin?
„Jólahátíðin okkar íyrir aldraða
er 27. desember og um skipulagn-
inguna sjá foreldrar mínir, Irma og
Óskar. Að þessu sinni mun sr.
Frank M. Halldórsson flytja jóla-
hugvekju og Guðrún Ásmundsdótt-
ir leikkona les jólasögu. Við bjóð-
um upp á heitt súkkulaði og tertur
og eftir borðhaldið er dansað í
kringum jólatréð. Sá siður hefur
fest í sessi að elsti maðurinn og
elsta konan fá verðlaun.“
Á jóladag er hátíðarsamkoma
hjá Hjálpræðishernum og eftir
hana er öllum boðið upp á kaffi og
kökur í gistiheimilinu.
Margir
sjálfboðaliðar
eyða jólunum
með þessum
hætti