Morgunblaðið - 24.12.1998, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 24.12.1998, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998_______________________________________________MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR _____________________________________————-------------------------------------------------\ VR vill viðurlög í ákvæði um hvfldartíma Lagabreyting til hagsbóta fyrir aðila Fyrirlestur Heyerdahl um sigling- ar og nor- rænan arf í HÁTÍÐASAL Háskóla íslands kl. 17 mánudaginn 28. desember mun hinn heimskunni landkönnuð- ur og sæfari Thor Heyerdahl flytja opinberan fyrirlestur í boði rektors Háskóla íslands. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og eru allir velkomnir. Thor Heyerdahl nefnir fyrirlest- ur sinn „Upphaf siglinga og nor- rænn arfur“. Þar mun hann fjalla um sögu úthafssiglinga á suðræn- um slóðum og hvort draga megi ályktanir af þeim varðandi sigling- ar norrænna manna vestur um haf á víkingatímum. Dr. Thor Heyerdahl er fæddur árið 1914 í Larvik í Noregi. Hann er menntaður í líffræði, landafræði og mannfræði. Hann öðlaðist heimsfrægð fyrir siglingar sínar (Kon-Tiki, Ra-leiðangra I og II og Tigris), sem vörpuðu nýju ljósi á ferðir manna á forsögulegum tím- um. Á síðari árum hefur Thor Heyerdahl látið umhverfismál til sín taka og m.a. fjallað um vemdun hafsins. Dr. Gísli Pálsson, prófessor í mannfræði, mun kynna fyrirlesar- ann og stjóma umræðum. Fastað á jólunum ÞAÐ eru ekki allir sem halda upp á jólin með ljúffengum kræsingum. Þær Elín Agla Briem og Guðrún Eva Mínervu- dóttir fasta yfir hátíðirnar til þess að vekja athygli á málefn- um hálendisins. Þær ætla að hafa það notalegt yfir jólin; lesa og hlusta á messu við kertaljós, þar sem þær hafast við í húsa- kynnum Háskóla Islands. Fast- an hófst 17. desember og lýkur hinn 27. þessa mánaðar. Aðspurðar segjast þær hafa fengið jákvæð viðbrögð ýmissa einstaklinga sem hafa Iýst yfir stuðningi við þær og hvatt þær áfram. „Margt eldra fólk hefúr hringt í okkur og þakkað okkur fyrir að standa vörð um hálend- ið með því að vekja athygli á málefninu,“ segir Elín Ágla. Takmark þeirra með föstunni er að fá hinn almenna Islending til þess að velta þessum málum fyrir sér, hvort sem þeir aðhyll- ast virkjanir eða verða á móti þeim eftir að hafa skoðað málin. Stöllurnar stunda nám í heim- speki við Háskóla íslands og hafa aðsetur á skólasvæðinu í Sumarhöllinni svokölluðu, en þangað getur fólk komið og rætt málin. Þær stóðu einnig fyrir málþingi í Odda um mál- efnið frá 17.-22. desember þar sem Ijöldi framsögumanna hélt erindi. VERSLUNARMANNAFÉLAG Reykjavíkur hefur ekki lokið að fullu rannsókn á ábendingum um meint brot á lögum um vinnutíma og hvíldarskyldu en Pétur Maack, varaformaður félagsins, segir ljóst að álag á starfsfólk sé í mörgum til- vikum mikið. Vitað sé um að ellefu tíma hvíldarákvæði hafi verið brot- ið en ekki hafi fengist sannanir fyr- ir brotum á ákvæðum um átta tíma lágmarkshvíld. „Það eru komin lög um vinnu- tímaákvæði og þróunin hefur verið til hins betra í þeim málum. I lög- unum um vinnutíma og hvíld eru hins vegar engin viðurlög vegna brota á átta tíma hvíldinni. Vinnu- eftirlitið fylgist með þessum mál- um og kannski betur en við, en við vinnum þó saman og getum kannski í sameiningu þrýst á lög- gjafann til að fá inn viðurlög til að báðir aðilar virði lögin,“ segir Pét- ur. „Við myndum æskja þess og getur verið bæði vinnuveitandan- um og starfsfólkinu í hag að fastar væri kveðið að í þessum málum.“ Lítt móttækilegir á vertíð Hann segir fulltrúa félagsins hafa heimsótt marga vinnustaði vegna þeirra ábendinga sem borist hafa. „Við erum búnii- að vera á ferðinni, höfum heimsótt þessa vinnustaði og eftir því sem mér sýnist núna, er sérstaklega um einn vinnustað hjá Bónusi að ræða, þ.e. í Holtagörðum. Við höfum þó nánast vissu fyrir því að fólk fái greitt fyrii- ef það vinnur meira en ellefu tíma hvíldarákvæðið segir til um. Það verður reyndar að játast að unglingamir eru minna móttækilegir meðan á vertíðinni stendur og þeh- meta það svo að kaupið sé ívið hærra en annars stað- ar hjá Bónusi, en vinnutíminn er náttúrlega langur. Þær fjölmörgu ábendingar og fyrirspumir sem til VR hafa komið era að flestu leyti samhljóða því sem kom fram í Morgunblaðinu í gær, og fólk er greinilega orðið sér meira meðvitandi um þessi efni en það var. Enginn hefur hins vegar lagt fram formlega kvörtun," segir Pétur. Hann segir sjálfsagt rétt hjá for- eldram að bömin kæra sig ekki um að þeir skipti sér af, og sömu sögu megi segja um afskipti stéttarfé- lagsins. „Heimilin verða náttúrlega miklu meira vör við þetta en vinnu- staðiu-inn, vinnuveitandinn eða stéttarfélagið. Mæðumar sjá þetta auðvitað og vita miklu meira en við um þessi mál. Þegar þær eða börn- in koma hingað, skoðum við þessi mál og göngum í þau, en það er eins með okkur og heimilin, að bömin vilja oft á tíðum ekki að við skiptum okkur af. Við eigum trán- aðarmenn á mörgum vinnustöðum sem þessir krakkar bera sig upp við og þeir leita úrbóta hjá vinnu- veitandanum. Það era því ýmsar leiðir sem hægt er að fara, þó að opinberlega liggi ekki fyrir brot á þessum atriðum,“ segir Pétur. „Þess ber að gæta að þarna er um að ræða unglinga sem era ekki komnir með neina fjölskylduá- byrgð og því með önnur gildi held- ur en við sem höfum slíka ábyrgð.“ Upplýsa unglinga betur Hann kveðst sammála því sem komið hafi fram hjá foreldrum, að upplýsa þurfi unglingana betur um réttindi þeirra. VR hafi lagt sitt af mörkum undanfarin misseri og haldið verði áfram á þeirri braut, bæði með því að nálgast nemendur 10. bekkjar í skólum og í gegnum tránaðarmannakerfi félagsins. Athugasemd frá Bónus Morgunblaðsins með greininni þar sem hún er til þess gerð að villa fyrir lesendum en þar er birt mynd af ung- um dreng sem er í verslunarferð með foreldrum en þeir klipptir út. Bónus vill svo biðja viðkomandi af- sökunar á því sem fram kom í grein blaðsins þar sem tvær kassadömur voru þjófkenndar, þar sem ummælin voru slitin úr samhengi af blaða- manni. Að lokum vill Bónus afþakka boð Morgunblaðsins um fría auglýsingu vegna þessarar greinar en óskar eftir því að athugasemd þessi verði birt í blaðinu við fyrsta tækifæri. Aths. ritstj.: Morgunblaðið vísar á bug ásökun- um framkvæmdastjóra Bónuss þess efnis, að ummæli hans hafi verið „slitin úr samhengi". Framkvæmda- stjóra fyrirtækisins var boðið að hlusta á segulbandsupptöku af eigin ummælum en hann afþakkaði það. Su segulbandsupptaka sýnir, að þessi staðhæfing er einfaldlega röng. Morgunblaðið vísar því á bug, að mynd, sem birtist með umræddri grein, hafi verið til þess fallin að „villa fyrir lesendum". Það er rangt að foreldrar drengsins hafi verið klipptir út úr myndinni. Hún var tek- in sérstaklega og engir aðrir vora á þeirri mynd. Morgunblaðið hefur ekki boðið Bónus „fría auglýsingu vegna þessar; ar greinar". Slíkt er aldrei gert. I þessu tilviki er heldur ekkert við vinnubrögð blaðsins að athuga. Hins vegar var fyrirtækinu boðið að birta athugasemd, þar sem sjónarmið þess kæmu fram. Þótt auglýsingadeild Morgun- blaðsins hafi boðið fyrirtækinu birt- ingu á auglýsingu án endurgjalds vegna þeirrar óheppilegu tilviljunar, að auglýsing frá Bónus birtist á sömu opnu og gagnrýnin umfjöllun um fyr- irtækið er þar um viðskiptamál að ræða, sem snertir á engan hátt nt- stjómarlega umfjöllun blaðsins. For- ráðamönnum fyrirtækisins hefur ver- ið gerð grein fyrir því, að ritstjórn blaðsins hefur ekki upplýsingar um staðsetningu einstakra auglýsinga, þegar gengið er frá efni blaðsins. Morgunblaðið/Kristinn MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi athugasemd frá Guð- mundi Marteinssyni, framkvæmda- stjóra hjá Bónus: „í Morgunblaðinu í dag er sagt frá því að einn starfsmaður Bónus hafi verið hlunnfarinn með hvíldartíma og vill Bónus koma eftirfarandi á fram- færi. í fyrsta lagi þá eru starfsmenn ekki látnir vinna næturvinnu nema með samþykki þeirra. Bónus getur að sjálfsögðu ekki leitað eftir sam- þykki foreldra enda einstaklingar, sem vinna hjá Bónus, sjálfráða. í öðra lagi þá er tímakaup í versl- unum Bónus 7% hærra en í samning- um VR (byrjendalaun.) í þriðja lagi er rétt að mikið álag er á opnunartíma Bónus, en opnunar- tíminn er sá stysti á Reykjavíkur- svæðinu, aðeins 7 tímar á dag og að- eins ein verslun opin á sunnudögum þannig að fullyrðingar um að einstak- lingar fái ekki löglegan hvíldartíma eiga ekki við rök að styðjast. Þó skal tekið fram að verslun Bónus í Holta- görðum var breytt í nóvember og hafði það í för með sér tímabundið aukaálag. Þá vill Bónus harma myndbirtingu Ungir sósíalistar krefjast ljósmynda sem lögreglan tók af þeim við mótmælastöðu Flokkast ekki sem lögreglugögn UNGIR sósíalistar krefjast þess að fá afhent framrit ljósmynda og myndbanda sem lögreglan tók þegar Ungir sósíalistar efndu til mótmæla- stöðu fyrir framan bandaríska sendi- ráðið vegna loftárása Bandaríkja- manna og Breta á írak 18. desember sl. Ungir sósíalistar krefjast einnig að hugsanlegum afritum af myndun- um verði eytt. Segja Ungir sósíalistar, að mynda- taka lögreglunnar hafi þjónað þeim tilgangi að skrá hver var á fundinum og að hún hafi verið atlaga að rétti þátttakenda til að tjá pólitískar skoð- anir. „Tengist hún einhverri rann- sókn lögreglunnar er það réttur okk- ar að vita hver sú rannsókn er og hvað knýr lögregluna til þessarar myndatöku," segir í bréfi Ungra sósí- alista til lögreglustjórans í Reykjavík. Að sögn Geirs Jóns Þórissonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykja- vík, hefur ekki verið tekin ákvörðun um það hvort lögreglan muni bregð- ast við kröfum Ungra sósíalista. Geir Jón segir lögregluna hafa verið í full- um rétti til að taka myndirnar og segir að myndatöku lögreglunnar megi réttlæta með vísan í ályktun Mannréttindanefndar Evrópuráðs- ins, þar sem segir að myndataka af einstaklingi sem tekur þátt í opin- bem uppákomu flokkist ekki að mati nefndarinnar sem afskipti af einkalífi viðkomandi. „Okkur ber að vernda sendiráð með mjög öflugum hætti því að árás á sendiráð er mjög alvarlegt og lög- reglan í Reykjavík hefur öryggis- og vörsluskyldu á sendiráðum í Reykja- vík,“ sagði Geir Jón. „Við vissum ekki í hvað myndi stefna og þess vegna urðum við að vera með allan þann viðbúnað sem til þarf til að bregðast við ef eitthvað gerist sem gæti ógnað viðkomandi sendiráði. Nú reyndust þetta hin friðsömustu mótmæli og því verður engin frekari rannsókn á myndum eða þeim gögn- um fylgjandi að neinu leyti.“ Flokkast myndirnar sem lögreglu- gögn? „Nei, ekki nema þær sæti ein- hverri rannsókn eða frekari vinnu. Það vai- engin ástæða til þess eftir að mótmælunum lauk. Það er ekkert sem kallar á að myndirnar verði not- aðar í neinum rannsóknar- eða lög- reglutilgangi.“ Mega Ungir sósíalistai' þá ekki fá myndirnar? „Það er lögreglustjórans að ákveða, ég sé enga ástæðu til þess. Við ætlum að eiga þessar myndir í myndasafni okkar,“ sagði Geir Jón.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.