Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 11

Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 11 FRÉTTIR Samgöngu- og vél- tæknisafn rís í Skógum NÝJA húsið, sem verður 1.500 fermetra límtréshús rís austan við aðal- byggingu Byggðasafnsins í Skógum, lengst til vinstri á myndinni, og ráðgert er að framkvæmdir hefjist fljótlega á næsta ári. Morgunblaðið/RAX FRA undirritun samningsins í gær. Frá vinstri: Þórður Tómasson safnvörður, Árni Johnsen alþingismaður, Björn Bjarnason mennta- málaráðherra, Isólfur Gylfi Pálmason alþingismaður og Sverrir Magn- ússon formaður safnstjórnar Byggðasafnsins í Skógum. SAMNINGUR um stofnun Sam- göngu- og véltæknisafns á vegum Byggðasafnsins í Skógum undir Eyjafjöllum var undimtaður í Skógum á þriðjudag. Viðstaddir voni Bjöm Bjarnason mennta- málaráðherra, safnstjórn byggða- safnsins og alþingismennirnir Arni Johnsen og Isólfur Gylfi Pálmason. Samningur ráðuneytisins og Byggðasafnsins í Skógum nær til þriggja ára og mun ráðuneytið leggja fram 6 milljónir ki-óna ár- lega til að reisa safnið, en heildar- kostnaður er áætlaður 54 milljónir króna og mun safnið afla þess fjár sem upp á vantar. „Það er með vísan til þjóðminja- laga og að fenginni umsögn þjóð- minjaráðs, sem við gerum þetta,“ sagði Björn Bjamason mennta- málaráðherra. Fmmkvæði að byggingu Samgöngu- og véltækni- safnsins er komið frá safnstjórn Byggðasafnsins í Skógum, sem fékk menntamálaráðuneytið til að leggja fram þriðjung af kostnaði. „Astæðan fyrir því að við höfum áhuga á þessu er sú að Byggða- safnið á Skógum er eitt mest sótta safn landsins þar sem 30 þúsund manns koma árlega og þarna er verið að bæta nýrri vídd við safn- ið.“ Mjög ánægð með samninginn Að sögn Sverris Magnússonar, formanns safnstjórnar Byggða- safnsins í Skógum, er ráðgert að nýja húsið, sem verður 1.500 fer- metra límtréshús, verði orðið fok- helt á næsta ári, en framkvæmdir við húsið munu að öllu óbreyttu hefjast snemma á næsta ári. „Við erum mjög ánægð með þennan samning,“ sagði Sverrir. „Nú verður eftirleikurinn vonandi auðveldari með fjái-mögnunina á þessari framkvæmd, sem er mjög stór fyrir svona lítið safn. Við ætl- um okkur að leita til fyrirtækja og stofnana, sem tengjast samgöngu- málum á einn eða annan hátt með framlög og gerum okkar góðar vonir um að fá talsvert af framlög- ummeð þeim hætti." Arni Johnsen alþingismaður sagði að unnið hefði verið að því síðan í sumar að koma safninu á laggirnar og bætti við, að þeir aðil- ar, sem leitað hafí verið til með stuðning vegna framgangs máls- ins, hafi tekið þeim umleitunum vel svo nú sé orðið ljóst að á Skóg- um verður byggt bílasafn Islend- inga. Bílasafnsins bíður vegleg gjöf frá Helga Magnússyni cand.mag. frá Sólheimum, en þar er um að ræða hálft annað hundrað sam- göngutækja, þar á meðal gamall snjóbíll og áætlunarbílar úr Skaftafellssýslu frá fyrstu áratug- um bifreiðaaldar. Þórður Tómas- son safnvörður í Skógum segir að mest ríði á að koma mununum í góða upphitaða geymslu og gera suma þeirra sýningarhæfa innan árs. „Við lítum á þetta sem sam- gönguminjasafn og tækniminja- safn, en ekki alhliða búvélasafn," sagði Þórður. „Það er líka mjög brýnt að búa vel að tækniminjum eins og rafvélum eftir bænduma í Skaftafellssýslu, sem eru á víð og dreif út um byggðir." Lögfræðinga greinir á þegar lög eru óskýr Akveðin siðferðileg hugmynd um jafnræði HUGMYNDIR löglærðra manna um siðferðilegt gildi laga hafa áhrif á dómsniðurstöður við dómstóla og ólíkar hugmyndir manna um þau valda því að lögfræðilegar ályktanir manna eru ekki ætíð þær sömu. þetta kom fram í framsöguerindi Skúla Magnússonar lögfræðings í málstofu á vegum Lögfræðingafé- lags íslands fyrir nokkru. Skúli flutti erindi um kenningar bandaríska réttarheimspekingsins Ronalds Dworkin, sem unnið hefur að viðamikilli kenningu um að ávallt sé til ein lögfræðilega rétt niður- staða í erfiðum dómsmálum. „Dworkin segir að hugmyndir um eðli laga og réttar séu hinar óskrif- uðu forsendur hvers einasta dóms sem kveðinn er upp,“ segir Skúli. „Ef við ræðum um hina einu lög- fræðilega réttu niðurstöðu, myndi Dworkin halda því fram að við myndum túlka hin lagalegu gögn, þ.e. sett lög, fordæmi dómstóla, venjur fólks o.s.frv., á grundvelli siðferðilegs gildismats og þannig náð ávallt einni réttri niðurstöðu." Lögfræðinga greinir á í erfið- uin dómsmálum Skúli segir að þegar lögfræðinga greinir á, sé jafnan talað um erfið dómsmál og siðferðilegt gildismat lögfræðinga kæmi helst fram þegar réttarheimildirnar eru óskýrar. „Sem dæmi um það getum við nefnt jafnræðisreglu 65. greinar stjórnar- skrárinnar, sem nýlega kom til skoðunar í máli Valdemars Jóhann- essonar. Þá er nokkuð augljóst að lögfræðingar eru ekki eingöngu að beita tæknilegum aðferðum við skýringu, heldur hafa þeir ákveðna siðferðilega hugmynd um jafnræði." Skúli bendir á að ekki sé einhlítt að lögfræðinga gi-eini á eingöngu þegar lögin eru óskýr heldur geta þeir einnig verið ósammála þótt lög- in séu skýr. „Þannig kemur fyrii' að Hæstiréttur hverfi frá fyrri dóm- venjum og setji ný fordæmi," segir hann. -Skapar það ekki óvissu úti í samfélaginu? „Við getum sagt að tvennskonar hagsmunir vegist á, annars vegar að niðurstöður dómstóla séu fyrir- sjáanlegar, en hins vegar er æski- legt að þessar niðurstöður séu sann- gjarnar og réttlátar hverju sinni. Þessir hagsmunir eru því miður ekki ætíð samrýmanlegir. Ef við viljum setja dómstólum nákvæmar leiðbeiningar um hvernig þeir eigi að komast að sínum niðurstöðum er hætt við að þær verði a.m.k. í sum- um tilvikum skrýtnar og óeðlilegar. Þá er spurningin sú, hvernig við metum þessa hagsmuni og hversu langt við viljum ganga í átt að sann- girni og réttlæti í hverju tilviki fyrir sig á kostnað fyrirsjáanleika og skýi-leika. Réttaróvissa í sjálfu sér er hinsvegar aldrei æskileg." Reykjavík Bisajlugeldamar/caðiirirw Hjðifxirsveitarhúsinii Malarhöjða Skálahúðin, SnorraJoraut 60 Bílabúð Benna, Vagnhöfða 23 Ferðafélag Islands, Mörkiimi 6 S/cátaheimilið, Gerðuhergi Landsbjargarhúsið, Stangarhyl 1 Við verslun Nettó íMjódd Skátakeimili Skjöldunga, Sólheimum 2ía Sö/ustaður gegnt Bílanausl, Nóatúni 2 Flugbjörgunarsveittir/msið við Flugvallarveg Sölustaður við BYKO, Hringbraut Kópavogur Toyotasalurinn, Nýbj'lavegi 8 Hjálparsveitarskemman, Bakkabraut 1 Hvellur, Smiðjuvegi 4c Kraftvélar við Dalveg l verslunarkjarnanum við Núpalind Garðabær Hjálparsveitarhúsið við Bæjarbraut Sómi, Gi/sbúð 9 ÁJftanes Við verslunina ísafjjörður Bílalangi við Suðurgötu Ljóninu, Skeiði Blönduós Hjálparsveitarhúsið, Efstubraut 3 Varmah/íð Björgunarstöðin við Sauðárkróksbraut Dalvík Björgunarhúsið, Gunnarsbraut 4 Akureyri Slórmarkaður Hjálparsveitarhúsinu Lundi við Viðjulund Stórrnarkaður Bílasölunni Stórhoiti, Öscyri Stórmarkaður Bí/asölu Akureyrar, Fjölnisgötu 6 Flugeldamarkaður á Norðupólnum Brimborg, Þórshamri Eyjafjarðarsveit Bangsabúð, Steinhólaskála Aðaldalur og nágrenni Iljálparsveilarhúsið, Aðaldal Egiisstaðir lljálparsveitarhúsið, Lyngás 5 Vestmannaeyjar Húsnœði Björgunarfélagsins, Faxastíg 38 tiella Flugbjörgunarsveitarhúsið, Dynskálum 34 Fiúðir Hjálparsveitarhúsið, Smiðjustíg 8 Árborg Austurvegur 21 liveragerði HjáUparsveitarhúsið, Austurmörk 9 Reykjanesbær Björgunarsveilarhúsið, Iloltsgölu 51 Söluskúr við Tjarnargötu Bílasalan Bílanes, Brekkustíg 39 FLUGELDAMARKAÐIR LANDSBJARGAR t

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.