Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 15
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
FRÁ afhendingu verðlaunaúranna í Brúarásskóla, frá vinstri Þuríður Backnian, Hafrún B. Einarsdóttir,
Árni Þ. Steinarsson og Þorvaldur H. Þorvaldsson.
Brúarás á Norður-Héraði
Fengu vegleg úr í verð-
laun fyrir reykleysi
Vaðbrekka, Jökuldal - Rrabba-
meinsfélag Islands stóð fyrir gerð
tvMiða samninga við nemendur átt-
unda bekkjar grunnskóla á Islandi í
fyiTa. Samningurinn fólst í því að
krakkamir skrifuðu undir samning
við Krabbameinsfélagið og foreld-
rana um að vera reyklaus. Alls skrif-
uðu undir slíkan samning um þrjú
þúsund grunnskólanemar áttunda
bekkjar sem eru yfir 90% allra nema
í áttunda bekk á síðasta ári.
Nú á þessu hausti voru síðan dreg-
in út nöfn tvö hundruð krakka sem
skrifuðu undir þennan samning á
síðasta ári og fengu þau úr í verð-
laun. Efnt var til samkeppni milli úr-
smiða um þetta verðlaunaúr og voru
grunnskólanemar í dómnefnd um út-
lit úranna. Það komu síðan aðeins
þessi tvö hundnið úr af gerð þessara
verðlaunaúra á markað, svo þetta
eru einu úrin af þessari gerð sem til
eru í landinu.
Að sögn Þuríðar Backman,
fræðslufulltrúa Krabbameinsfélags-
ins á Austurlandi, komu fimmtán úr
í hlut grunnskólanemenda á Austur-
landi. Verðlaunahafar eru Guðbjörg
Guðlaugsdóttir og Ágúst Elvarsson,
Heppuskóla, Hornafírði, Ragnheið-
ur D. Hrafnkelsdóttir, Grunnskólan-
um Breiðdalsvík, Ester Ö. Gunnars-
dóttir, Grunnskólanum Fáskrúðs-
firði, Svanbjörg Vilbergsdóttir,
Margrét Ó. Vilbergsdóttir og Krist-
ín E. Guðmundsdóttir, Nesskóla,
Fjarðabyggð. Guðni Þ. Jósepsson,
Grunnskóla Eskifjarðar, Fjarða-
byggð. Stefanía Magnúsdóttir og
Örvar Jóhannsson, Seyðisfjarðar-
skóla. Lára Jónasdóttir og Lára
Guðmundsdóttir, Fellaskóla. Þor-
valdur H. Þorvaldsson, Árni Þ.
Steinarsson og Hafrún B. Einars-
dóttir, Brúarásskóla.
Þuríður sagði það einstaka tilvilj-
un að dregin skyldu út svo mörg
nöfn í jafn fámennum skóla og
Brúarásskóli er eða um fimmtungur
nafna á Austurlandi. Þuríður notaði
tækifærið þegar nemendur Brúarás-
skóla héldu jólaskemmtun og litlu
jólin í nýbyggðu glæsilegu íþrótta-
húsi í Brúarási og afhenti þessi þrjú
verðlaunaúr er komu í hlut nemenda
Brúarásskóla.
Setrin þrjú í Sandgerði
Sjávarsetrið
opnað við hátíð-
lega athöfn
Keflavík - Sjávarsetrið í Sandgerði
var formlega opnað sl. fimmtudag
við hátíðlega athöfn sem er einn lið-
urinn í endurbyggingu á húsnæði
bæjarfélagsins á Garðvegi 1. Við
opnunarathöfnina sagði Sigurður
Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri að
þetta væri í þriðja sinn sem menn
væru þarna samankomnir til að
fagna. Fyrst árið 1992 þegar Rann-
sóknarsetrið hefði verið opnað og
síðan árið 1995 þegar fræðasetrið
hefði verið opnað. Hann sagði að
tekin hefði verið sú ákvörðun í bæj-
arstjórn að tala framvegis um setr-
in þrjú í Sandgerði, Rannsóknar-
setrið, Fræðasetrið og Sjávarsetr-
ið.
Sigurður Valur sagði að vel
heppnaður rekstur Rannsóknarset-
ursins hefði ýtt undir þær hugmynd-
h- að nýta kosti staðarins til að stofna
Fræðasetrið og auka reksturinn með
Sjávarsetrinu. Þeir sem ynnu við
sjávarsíðuna og þyrftu að sækja sér
björg í bú í greipar hafsins gerðu sér
fulla grein fyi-ir hvað vinnan við
Rannsóknar- og Fræðasetrið væri
mikilvæg. En þar væru nú 11 konur
við störf sem væru gjörólík öðrum
störfum í bæjarfélaginu.
Fram kom hjá Sigurði Val að
ferðaþjónusta væri vaxandi at-
vinnugrein og hefði bæjarfélaginu
verið nauðsynlegt að taka tillit til
þeirra breytinga sem væru að
verða á íslensku þjóðlífi varðandi
ferðamannaiðnaðinn. Fræðasetrið
væri nokkurt svar við þessum
breytingum. Þar væri lögð áhersla
á þann möguleika að fylgjast með
fjörunni, skoða fuglalífíð og rann-
saka botndýr með víðsjám sem
væri einstök upplifun fyrir þá sem
það hefðu gert. Einnig mætti nefna
að hvalaskoðunarferðir væru nú
Morgunblaðið/Björn Blöndal
SIGURÐUR Valur Ásbjarnar-
son, bæjarstjóri í Sandgerði, og
Jón Gunnar Ottósson, forstöðu-
maður Náttúrufræðistofnunar
íslands, opna nýja Sjávarsetrið
í Sandgerði.
stundaðar frá Sandgerðishöfn í
tengslum við setrin.
Þegar er kominn upp vísir að
safnaðstöðu í setrunum og má þar
nefna uppstoppuð sýni af helstu
fuglunum sem fyrir augu ber í Sand-
gerði. í nýja setrinu eru sjóker þar
sem ætlunin er að hafa lifandi dýr
og gróður. Það húsrými sem nú var
tekið í notkun er um 300 fermetrar
og er kostnaðurinn áætlaður um 18
milljónir. Áður hafa verið nýttir 800
fermetrar, þar af 400 fyrir Rannsók-
arsetrið og 400 fyrir Fræðasetrið.
Sigurður Valur sagði að enn væru
ónotaðir um 500 fermetrar af hús-
næðinu.
Kj ötiðnaðarmenn
gera það gott
Hvolsvelli - Á þessu ári hafa kjöt-
iðnaðarmenn hjá Sláturfélagi
Suðurlands á Hvolsvelli tekið
þátt í tveimur fagkeppnuin kjöt-
iðnaðarmanna. I fyrsta lagi í al-
þjóðlegri keppni sem Meistarafé-
lag kjötiðnaðarmanna í Dan-
mörku hélt í Herning og í öðru
lagi í innlendri keppni á vegum
Meistarafélags kjötiðnaðar-
manna sem haldin var fyrr á
þessu ári.
Ekki er hægt að segja annað
en að kjötiðnaðarmenn hjá SS
hafi staðið sig með mikilli prýði.
Þeir sópuðu til sín verðlaunum,
fengu 14 verðlaun, í innlendu
keppninni og 12 verðlaun í þeirri
alþjóðlegu. Fengu þeir alls 26
verðlaun fyrir 30 innsendar vör-
ur.
I tengslum við þessa keppni
fór einnig fram nemakeppni þar
sem tveir nemar á vegum SS
tóku þátt í innlendu keppninni og
einn nemi í þeirri alþjóðlegu og
stóðu þeir sig allir með miklum
ágætum.
—
Morgunblaðið/Steinunn Kolbeinsdóttir
VINNINGSHAFAR. Aftari röð frá vinstri: Leifur Þórsson, Finnur
Tryggvason, Oddur Árnason, Björgvin Bjarnason og Örn Hauksson.
Fremri röð frá vinstri: Ingólfur Baldvinsson, Gunnlaugur Reynisson,
Ragnhildur Jónsdóttir og Viktor Steingri'msson. Á myndina vantar: Guð-
jón Guðmundsson og Steinar Þórarinsson sem einnig hlutu verðlaun.
FUNDARGESTIR í Drangsnesskóla.
Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir
Stóri Kampalampi
inn á hvert heimili
Drangsnesi - Þótt nemendur og
kennarar Drangsnesskóla séu
komnir í langþráð jólafrí gáfu
þeir sér tíma frá jólaönnunum
og boðuðu íbúa Drangsness á
fund í skólanuin mánudags-
kvöldið sl. Á fundinum sem var
vel sóttur kynntu þeir framlag
sitt til jólabókaflóðsins. Þetta
ritverk var ekki til sölu heldur
fékk hvert heimili afhent eitt
eintak af bókinni Stóri
Kampalampi sem nemendur
hafa unnið í samráði við líf-
fræðikennara sinn Arnlínu Óla-
dóttur.
Aðalatvinnuvegur Drangsnes-
inga eru rækjuveiðar og -vinnsla
og því nærtækt á ári hafsins að
taka rækjuna, umhverfi hennar
og helstu óvini til skoðunar. Mikil
vinna hefur verið lögð í upplýs-
ingaöflun bæði úr rituðum heim-
ildum og eins á Netinu. Þetta er
hið fróðlegasta rit og hafa þau
ekki bara lært um rækjuna,
þorskinn og hafið við að vinna
þetta verk heldur einnig fengið
dýrmæta þjálfun m.a. í heimildar-
lestri, tölvuvinnslu ásamt ensku
og ritun.
Þarna í skólanum gafst gestum
auk þess kostur á að hlýða á mik-
inn fróðleik um vistkerfi hafsins
og skoða rækjur í smásjá og
fylgjast með rækjuveiðum á
myndbandi. Metnaðarfullt verk-
efni hjá nemendum Drangsnes-
skóla og kennara þeirra.