Morgunblaðið - 24.12.1998, Síða 16

Morgunblaðið - 24.12.1998, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR UR VERINU Morgunblaðið/Golli Gullauga úr gróðurhúsi NYKAUP bjóða nú fyrir jólin takmarkað magn af nýupp- teknum gullauga-kartöflum. Kartöflurnar eru ræktaðar sérstaklega í gróðurhúsi í Biskupstungum fyrir verslun- ina og eru nokkur dýrari en venjulegar gullauga-kartöflur. Lesning fyrir jólin EINS og undanfarin ár hefur verið hart barist um hylli neyt- enda á jólabókamarkaðnum og stórmarkaðir veitt hefðbundnum bókaverslunum inikla sam- keppni. Sumum fínnst nóg um að jafn helgir gripir og bækur skuli lenda í körfunni með kjötlærum en aðrir fagna lækkuðu verði. Jóla-SmáDjæf frá Emmessís EMMESSÍS hefur sent á markað Jóla-SmáDjæf í tilefni af jólunum. Jóla-SmáDjæf er vanillurjómaís hjúpaður þykku lagi af hvítu súkkulaði og er bæði seldur í stykkjatali og 9 saman í pakka. Allir sem kaupa Jóla-SmáDjæf fyrir jólin eru sjálfkrafa þátttakend- ur í möndluleiknum svonefnda því að á sumum spýtunum leynast möndlu- merki - ein, tvær eða þrjár möndlur - og eru vinningar um 600 talsins. Daim jólastjörnur, geisladiskar, Pottþétt jól 2 og PlayStation leikja- tölvur frá Sony. Það er því betra að skoða íspinnaspýturnar vel áður en þeim er hent. Emmessís hefur einnig kynnt jóla- tré úr marsípanís, hjúpuð dökku súkkulaði og tvö saman í pakkningu. Eru þau hugsuð sem ábætsiréttur eða eins og hvert annað jólasælgæti. TEIKNING af hinuni nýja Hugin, sem verður eitt öflugasta fjölveiðiskip íslenska flotans. „Utgerðin er að stíga stórt skref fram á viðu Vestmannaeyjar. Morgunblaðið. GENGIÐ hefur verið frá samningi um smíði nýs Hugins VE í Chile. Guðmundur Huginn Guðmunds- son, skipstjóri á Hugin VE, segir að með nýsmíðinni sé útgerðin að stíga stórt skref fram á við. Nú- verandi Huginn standist ekki þær kröfur sem útgerðin vilji gera með vaxandi sókn í kolmunna, enda sé hann orðinn 25 ára. Ssamningur milli Hugins ehf. í Vestmannaeyj- um og Asmar-skipasmíðastöðvar- innar í Talcahuano í Chile um smíði á nýju fjölveiðiskipi fyrir Hugin var undirritaður síðastlið- inn föstudag. Nýsmíðin mun leysa af hólmi núverandi skip Hugins, hugin VE 55, en hann var smíðað- ur í Noregi árið 1974. Svo skemmtilega vildi til að á föstudag- inn voru 25 ár síðan Guðmundur Ingi Guðmundsson, útgerðarmað- ur Hugins, skrifaði undir samning um smíði núverandi Hugins. Nærri 5.000 rúmmetrar Nýr Huginn verður 68,3 metra langur og 14 metra breiður og heildarrúmtak hans verður 4.920 rúmmetrar. Skipið verður búið öll- um nýjustu tækjum og verður skipið sérstaklega útbúið til nóta- og flotvörpuveiða. f skipinu verður öflugur spilbúnaður, 64 tonna tog- spil og snurpuspil, auk þess sem TILKYNNING UM ÚTGÁFU SKULDABRÉFA OG SKRANINGU Á VERÐBRÉFAÞING ÍSLANDS TOKLAR HF. ** 1. FLOKKUR 1998 Útgáfudagur: Gjalddagi: Sölutímabil: Grunnvísitala: Einingar bréfa: Skráning: Áv. kr. á útgáfudegi: Söluaðilar: Umsjón með útgáfu: Upplýsingar og gögn: kr. 500.000.000. kr. fimmhundruðmilljónir 00/100 2. nóvember 1998 2. nóvember 2004 Frá 2. nóvember til 7. nóvember 1998 Nvt. 183,6 Kr. 5.000.000.- Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að taka skuldabréfin á skrá og verða þau skráð 29. desember 1998, enda verði öll skilyrði skráningar uppfyllt. 1. flokkur 1998, 5,60%. Landsbanki íslands hf., Laugavegi 77,101 Reykjavík. Landsbanki íslands hf., Laugavegi 77,101 Reykjavík. Skráningarlýsingin og önnur gögn sem vitnað er til í skráningar- lýsingunni liggja frammi hjá Landsbanka Islands hf, Laugavegi 77, Reykjavík og á skrifstofu Samvinnusjóðs Islands hf. Sigtúni 42, 105 Reykjavík. Landsbanki Islands Landsbanki íslands hf. - Viðski ptastofa Laugavegi 77, 155 Reykjavlk, sími 560 3100, bréfsíml 560 3199, www.landsbankl.is Nýr Huginn VE smíðaður í Chile tvær öflugar netavindur verða á afturþilfari skipsins. Ki-aftblökk, færslublökk og nótaleggjari verða af stærstu og öflugustu gerð. Einn nótakassi verður á skipinu en þeim mun meira pláss tekið undir að- stöðu fyrir spilbúnað og vinnuað- stöðu á afturþilfari. I skipinu verð- ur 5.800 hestafla vél tengd skrúfu gegnum gír og við aðalvélina verð- ur ásrafall sem framleiða mun 2.800 kVA. Tvær 625 kVA ljósavél- ar verða í skipinu auk 150 kVA hafnarljósavélar og verður rafkerfi skipsins útbúið fyrir breytilega tíðni, 380/440 V - 50/60 Hz. ' I skipinu verða íbúðir fyrir sext- án manns í eins manns klefum auk þess sem sérstakur sjúkraklefi verður í skipinu. Þá er öll aðstaða fyrir áhöfn rúmgóð og í skipinu verður afþreyingaraðstaða með líkamsrækt og gufubaði. Við hönnun skipsins er horft til þess að hægt sé að koma fyrir vinnslu- og frystibúnaði um borð án mikilla breytinga og er miðhluti lestar skipsins einangi'aður sem frystilest. Skipið er búið RSW- kælitönkum til kælingar á afla en kælitankarnir niraa um 1.800 tonn. Áherzla á kolmunnaveiðar Guðmundur Huginn Guðmunds- son skipstjóri segir að með ný- smíðinni sé útgerðin að stíga stórt skref fram á við. Núverandi Hug- inn standist ekki þær kröfur sem útgerðin vilji gera með vaxandi sókn í koimunna, enda sé hann orðinn 25 ára. Þrátt fyrir það hafi komið til greina að endurbyggja hann enn frekar en síðan hafi verið fallið frá því og ákveðið að ráðast frekar í nýsmíði. Hann segir að út- gerðin horfi til þess að leggja vax- andi áherslu á kolmunnaveiðar, enda þurfi skip sem þetta mun meiri verkefni en bara loðnu- og síldveiðar. „Forsendan fyrir því að við fór- um út í þetta eru kolmunnaveið- arnar. Við hefðum getað haldið áfram með gamla skipið ef við hefðum bara ætlað að veiða loðnu- og síldarkvóta okkar á næstu ár- um. Við höfum verið að reyna fyrir okkur á kolmunna og trúum að það liggi miklir möguleikar í þeim veiðum. Þess vegna ráðumst við í þessa smíði til að geta bætt við okkur í slíkum veiðum og stuðlað þannig að framförum í íslenskum sjávarútvegi," sagði Guðmundur Huginn. Þriðji samningurinn hjá ASMAR Samningurinn um Hugin er þriðji smíðasamningurinn sem As- mar-skipasmíðastöðin gerir við Is- lendinga. Nýja hafrannsóknaskip- ið er í smíðum hjá þeim og á að af- hendast seinnihluta næsta árs og samningur hefur verið gerður um smíði fjölveiðiskips fyrir Harald Böðvarsson á Akranesi og á það skip að afhendast í lok næsta árs. Samkvæmt samningi verður smíðatími Hugins 14 mánuðir og reiknað með að skipið verði afhent útgerðinni í mars árið 2000. Samn- ingsverð hefur ekki fengist upp- gefið en samkvæmt heimildum Versins er talið að heildarkostnað- ur við byggingu skipsins verði um einn milljarður króna. GUÐMUNDUR Ingi Guðmundsson, útgerðarmaður Hugins, og Sergio Martinez frá Asmar skrifa undir samning um smíði nýs Hugins í Chile. Með þeim á myndinni er Björgvin Ólafsson, skipamiðlari.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.