Morgunblaðið - 24.12.1998, Side 30

Morgunblaðið - 24.12.1998, Side 30
30 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Loftbelgur Bransons út úr lofthelgi Kína Verða yfir Ameríku um jdlin BREZKI auðkýfingurinn Richard Branson og félagar hans ura borð í loftbelgnum „Global Challenge", Bandaríkjamaðurinn Steve Fossett og sænski flugmaðurinn Per Lind- strand, stefna á að vera komnir yfir Bandaríkin á jóladag, eftir að til- raun þeiiTa til að verða fyrstir til að fljúga viðstöðulaust í kringum hnöttinn í loftbelg komst aftur á áætlun. Kínverjar leyfðu loks á þriðju- dagskvöld loftbelgnum að halda áfram fór í gegnum kínverska loft- helgi, eftir að aðstandendur leiðang- ursins, brezka sendiráðið í Peking og bandaríska utanríkisráðuneytið höfðu staðið í stífum samninga- viðræðum við kínversk stjómvöld, sem höfðu reiðzt við að belgurinn flaug inn yfir landamærin eftir annan-i flugleið en áður hafði verið samið um. Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, sendi sjálfur persónulegt ákall til Zhu Rongji, kínversks starfsbróður síns. Loftbelgurinn sveif út úr kín- verskri lofthelgi um þrjúleytið á Þorláksmessu að íslenzkum tíma og hélt sem leið lá áfram yfir Gulahaf og sunnanverðan Kóreuskaga. Þar með var áhyggjum af leiðang- ursmönnum létt, því viss hætta var á að loftbelginn ræki yfir Norður- Kóreu, sem hafði þvertekið fyrir að heimila flug í gegnum sína lofthelgi. í hægnm vindi Þetta var nokkrum klukkustund- um síðar en áætlað hafði verið. Það sem olli töfinni var hve hægur há- loftavindurinn var sem fleytti loftfar- inu áfram. „Þeir eru að fara upp og niður, til að elta háloftavindstreng- inn,“ sagði talsmaður leiðangursins í stjómstöðvunum í Bretlandi. „Þeir era í frekar hægum vindstreng og era að reyna að komast í hraðari," sagði talsmaðurinn. „Þetta hefur verið stórkostlegt ferðalag,“ sagði Branson í samtali við BBC úr 31.000 feta hæð (9,4 km), en á þriðjudag hafði fjarskipta- samband rofnað við belginn þar sem 270 kg af ís höfðu hlaðizt utan á hann. Framundan er flug yfir Kyrra- hafið, en leiðangursmenn vonast til að belgurinn hafi náð vesturströnd Bandaríkjanna á jóladag og að hann komist á leiðarenda í V-Evrópu í kringum áramótin. ■■nm wmammmmmmmmam ]R 9 EIGMMIÐLÖMN Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali, sölustjóri. f- Sími 58« 9090 • Fax 58« 9095 • Síðumúla 2 I Óskum viðskiptavinum okkar og landamönnum öllum gleðilegra jóla. Starfsfólk Eignamiðlunarinnar. Fasteignir á Netinu /*> mbl.is ALLTAT e/TTH\SAT> AÍÝT7 p——m Gleðileg jól og farsælt komandi ór Opið aðfangadag frá kl. 8-15 Jóladagur........lokað Annar í jólum...kl. 9-21 Snnnud. 27/12..kl. 9-2/ Öðmvísi úkómaSúð blómaverkstæði INNAs .Skólavörðustíg 12, Bergstaðastrætismegin. Sími 551 9090 Stungin af fíkli við jólainnkaupin Ósjó. Morgunblaðið. TIU ára gömul stúlka óttast eyðni- smit eftir að eiturlyfjaneytandi stakk hana með sprautunál við jólainnkaupin. Stúlkan var ásamt móður sinni við jólainnkaupin í verslunar- miðstöðinni Oslo City þegar eitur- lyfjafíkill vatt sér að henni og stakk hana með blóðugri sprautu. „Ég mun deyja, ég er bara 10 ára,“ hrópaði stúlkan dauðskelfd. Lögreglan í Ósló handtók á sunnudagskvöld marokkóskan sprautufíkil, sem að öllum líkindum stóð fyrir þessari tilefnislausu árás fyrir utan verslunarmiðstöðina. Marokkóbúinn er heróínneytandi, en þeir skipta hundraðum í höfuð- borg Noregs. Fjölmargir neytend- anna era sýktir af HlV-veirunni eft- ir notkun óhreinna sprautunála. Tilefnislaus glæpur „Dóttir mín óttast að hún sé nú smituð af eyðni,“ sagði móðir stúlkunnar í viðtali við norska dag- blaðið Aftenposten. Hún sagði einnig að enginn nærstaddra hefði verið í vafa um hver framdi verknaðinn. „Þegar ég leit á hann, brosti hann til mín en tók síðan til fótanna. Ég elti hann því það var efst í huga mér að ná af honum blóðprafu.“ Móðirin missti þó sjón- ar á hinum seka, en lét lögregluna vita umsvifalaust. Stúlkan sagði við lögregluna að hún skildi ekki af hverju fíkillinn réðst á hana, „hann þekkir mig alls ekld neitt.“ Málið er lögreglunni einnig ráðgáta. Maðurinn, sem er 33 ára gamall, er kunnur lögregl- unni fyrir ýmis smáafbrot og líkamsárásir. Lögreglan neitaði að gefa upplýsingar um heilsufar mannsins. Fjöldskylda stúlkunnar þarf nú að bíða í viku þar til niður- stöður fást úr blóðprafu sem tekin var af stúlkunni síðastliðinn sunnu- dag. / Ahlaup á munka- klaustur FIMM suður-kóreskir óeirðalög- reglumenn hröpuðu ófáa metra þegar stigi, sem þeir notuðu til að ráðast inn í munkaklaustur, gaf sig. Þúsundir lögreglumanna tóku þátt í áhlaupi á höfuðstöðv- ar Chogye-munkareglunnar í Seoul fyrir sólarupprás í gær, en klaustrið var hertekið af róstu- sömum hópi munka fyrir rúmum mánuði. Ekki hægt að sanna morð RÍKISSAKSÓKNARINN í Danmörku tilkynnti á mánu- dag að ákærur á hendur danskri hjúkrunarkonu, sem lögreglan grunaði um að hafa myrt 22 aldraða íbúa hjúkrun- arheimilis sem hún starfaði hjá, yrðu látnar niður falla. Hefur Frank Jensen dómsmálaráðherra gagnrýnt framgöngu lögreglunnar í málinu og leggur áherslu á að varkárni sé gætt í málum sem þessum, Hjúkranarkonan, sem er 34 ára gömul, var handtekin á síðasta ári og sökuð um að hafa myrt og rænt eigum fimmtán kvenna og sjö karla, sem bjuggu á hjúkrunarheim- ili í Kaupmannahöfn, á tíma- bilinu frá ágúst 1994 til janúar 1997. Konan neitaði hins veg- ar öllum ásökunum og í des- ember á síðasta ári var henni sleppt úr haldi samkvæmt úr- skurði hæstaréttar á meðan rannsókn færi fram. Sagði Karsten Hjorth ríkissaksóknari í gær að þótt rannsókn lögreglunnar og vitnisburður læknisfróðra manna bentu til að umönnum gamlingjanna 22 hefði verið veralega ábótavant lægju ekki fyrir nægileg gögn til að hægt væri að sanna morð á hjúkr- unarkonuna. Aðsendar greinar á Netinu v§> mbl.is _/KLLTAf= £!TTH\SAiD A/ÝTT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.