Morgunblaðið - 24.12.1998, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
JOLAMYNDIR
Gamanleikar-
ar og löggupar
JÓLAMYNDIR Laugarásbíós eru þrjár, tvær gam-
anmyndir og ein barna- og fjölskyldumynd. Fyrsta
ber að nefna framhaldsmyndina „The Ödd Couple
n“ þar sem Walter Matthau og Jack Lemmon
sprella saman á ný og fara í taugarnar hvor á öðrum.
Önnur jólamyndin er ekki síður um undarlegt par; Chris
Tucker og Jackie Chan leika Iögreglumenn í gaman-
hasarmyndinni „Rush Hour“ en hún er sýnd víða í
Reykjavík og í Nýja bíói í Keflavík. Loks sýnir Laugarás-
bíó norsku barnamyndina Álfhól: Kappaksturinn mikla,
ásamt Stjörnubíói.
Löggufélagar
Christ Tucker er einn af efnilegri gamanleikurum
Bandaríkjanna af yngri kynslóðinni og hefur vakið æ
meiri athygli fyrir ótrúlega kjaftagleði og spaug á hvíta
tjaldinu. Síðasta mynd sem hann var í hét „Money
Talks“. Jackie Chan er frægasti hasarleikari Hong Kong-
myndanna og hefur að undanförnu verið að liasla sér völl
í Hollywood ásamt öðrum kvikmyndagerðarmönnum frá
Hong Kong, en myndir þessa sparksnillings, sem vill
leika í sínum áhættuatriðum sjálfur, njóta að því er virð-
ist sívaxandi vinsælda. Þessir tveir leiða saman hesta
sína í „Rush Hour“ og sú samsetning virðist hafa borgað
sig því myndin hlaut mikla aðsókn þegar hún var sýnd í
Bandaríkjunum í haust.
í myndinni leikur Tucker vandræðalöggu sem fær nýj-
an aðstoðarmann til þess að fást við óþokkana. Nýi að-
stoðarmaðurinn er ekkert minna en kínversk
súperlögga. Saman reyna þeir að hafa uppi á tíu ára
dóttur kínversks diplómata sem rænt hefur verið í Los
Angeles og á meðan annar kjaftar sig í gegnum hindran-
LÖGGUFÉLAGAMYND; Chris Tucker og Jackie Chan í
gamanhasarmyndinni „Rush Hour“.
imar notar hinn sjálfsvarnaríþróttina.
„Rush Hour“ tilheyrir þeim flokki bíómynda sem kall-
ast löggufélagamyndir og ganga út á að setja saman tvo
ólíka einstaklinga í óvæntar kringumstæður og sjá hvað
út úr því kemur. Formúlan hefur gefist vel og virðist enn
í fullu gildi. Má segja að Chris Tucker setji sig hér í fót-
spor Eddie Murphy, sem áður sló í gegn í löggufélaga-
myndinni 48 stundum.
Sínaggandi
Og talandi um ólíka einstaklinga. Fyrir réttum 30 ámm
léku gamanleikararnir Jack Lemmon og Walter Matthau
saman í einni af sínum bestu myndum, „The Odd Couple".
Leikstjóri var Gene Saks, en myndin byggðist á verki
gamanleikritahöfundarins Neil Simons og fjallaði um tvo
nýlega fráskilda vini, annan sóðalegan en hinn hirðusam-
an, sem leigðu saman íbúð og gerðu hvor annan hreint
vitlausan. Núna hefur verið gerð framhaldsmynd hennar
og er hún líklega sprottin af því meðal annars að þeir
Lemmon og Matthau hafa gengið í endurnýjun lífdaga í
nokkmm gamanmyndum undanfarin ár. Parið er orðið að
gamlingjum en eijurnar þeirra á milli era síungar.
Þá heldur Laugarásbíó áfram sýningum á Truman-
þættinum um jólin og einnig vampímmyndinni „Blade".
HASKOLABIO
Framhaldslíf,
Framhaldslífíð
• fyrsta teiknimy
nd Dream
Nýsjálenski leikstjórinn Vincent Ward
gerir þriðju jólamynd Háskólabíós sem
heitir Hvaða draumar okkar vitja. Robin
Williams leikur mann sem ferst í bílslysi en
dreymir um að sameinast eiginkonu sinni,
sem Annabella Sciorra leikur, og hefur
framið sjálfsmorð og er því á meðal for-
dæmdra. Hann ferðast í gegnum himna-
ríki og helvíti til þess að bjarga sálu konu sinnar.
Með önnur hlutverk fara Cuba Gooding og sænski leikarinn
Max von Sydow.
Works-fyrirt®kisins-
BÉART og Bonnaire í frönsku myndinni Tímaþjófínum,
sem gerð er eftir sögu Steinunnar Sigurðardóttur.
Sagan um Móse
DreamWorks, kvikmyndaíyrirtæki Stevens Spielbergs o.fl.,
hellir sér út í teiknimyndasamkeppnina við Disneyfyrirtækið
með myndinni Egypska prinsinum eða „The Prinee of Egypt“.
Hún byggist á Gamla testamentinu og segir af því þegar Móses
leiddi þjóð sína úr Egyptalandi. Myndin er talsett á íslensku en
einnig sýnd með ensku tali. Val Kilmer, Ralph Fiennes, Sandra
Bullock, Danny Glover, Jeff Goldblum, Steve Martin og Helen
Mirren eru á meðal þeirra leikara sem ljá myndinni raddir sín-
ar á frummálinu. í íslensku útgáfunni leikur Felix Bergsson
Móses en aðrir leikarar eru Hjálmar Hjálmarsson, Selma
Bjömsdóttir, Margrét Sigurðardóttir, Bergþór Pálsson, Jó-
hann Sigurðarson og Ragnheiður Steindórsdóttir svo aðeins
nokkrir séu nefndir. Leikstjórn annaðist Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir. ■
Leikstjórar myndarinnar eru Brenda Chapman, fyrsta kon-
an sem stýrir gerð teiknimyndar í fullri lengd,
Steve Hickner og Simon Wells en yfirframleið-
andi er Jeffrey Katzenberg sem áður var yfir
teiknimyndadeild Disneyfyrirtækisins. Yflr
350 listamenn, teiknarar og tæknimenn frá
meira en 35 löndum unnu í fjögur ár við gerð
myndarinnar. Segir í fréttatilkynningu frá Dr-
eamWorks að í henni séu kynntar nýjungar á
borð við hátæknilega framköllun en með
henni er hægt að blanda saman tví- og þrívíð-
um teiknimyndum.
prins og
Tímaþj ófurinn
JÓLAMYNDIR Háskólabíós eru teiknimyndin Epypski
prinsinn, sem sýnd er bæði með ensku og íslensku tali
og er einnig í Borgarbíói á Akureyri, Hvaða draumar
okkar vitja með Robin Williams og loks Tímaþjófurinn
eða „Voleur de vie“, sem byggð er á samnefndri skáldsögu
Steinunnar Sigurðardóttur.
Tímaþjófur á frönsku
Tímaþjófurinn er í leikstjóm Yves Angelos sem þekktastur
er fyrir myndina „Le Colonel Chabert", er sýnd var hér á
Kvikmyndahátíð fyrir nokkru. í gömlu prestsetri við sjóinn
búa þrjár ungar konur, systumar Alda og Olga og Sigga, dótt-
ir Olgu, segir í frétt frá bíóinu. Olga er ábyrgðarfull, einræn og
sér um heimilið. Alda lifir lífinu frjálslega og gefur sig karl-
mönnum án þess að bindast þeim tilfinningalega og Sigga er
tengingin þeirra á milli. Með aðalhlutverkin fara tvær af fræg-
ustu leikkonum Frakka, Emmanuelle Béart og Sandrine
Bonnaire, en hina fyrrnefndu sáum við síðast í amerísku
hasarmyndinni „Mission: Impossible" og Bonnaire í myndinni
„La Cérémonie".
SAMBIOIN
Galdrafár,
heilagur
Murphy 017
óvinur ríkisins
JÓLAMYNDIR Sambíóanna em þó nokkrar, m.a. ný
gamanmynd með Eddie Murphy þar sem hann leikuri
heilagan mann og heitir hún einfaldlega „Holy Man“.
Þá sýna Sambíóin rómantísku gamanmyndina „Pract-
ical Magic“ í leikstjórn Griffin Dunnes og fjölskyldumyndina
Stjörnustrákinn eða „Starkid", sem einnig verður sýnd í
Regnboganum. Teiknimyndin Egypski piinsinn verður í
Sambíóunum og nýársmyndin í þetta sinnið verður svo Óvin-
ur ríkisins með Will Smith og Gene Hackman í leikstjórn
Tony Scotts.
Heilagur sannleikur
Vegur gamanleikarans Eddie Murphys hefur farið vaxandi
með hverri gamanmyndinni á fætur annairi, fyrst Klikkaða
prófessornum og síðan Dagfmni dýralækni. Hefur leikarinn
markvisst breytt ímynd sinni með þessum myndum. Hann
hefur fækkað hasarmyndunum að því er virðist en aukið við
gamanmyndirnar og er orðinn mjög fjölskylduvænn með.
þeim árangri að lifnað hefur vfir ferli hans aftur eftir nokkra
lægð.
I „Holy Man“, sem einnig er sýnd í Nýja bíói á Akureyri,
leikur hann sjónvarpspredikara og einskonar snilling í mark-
aðsmálum, sem sýnfi- fram á að verslun í gegnum sjónvarp
getur sannarlega verið trúarleg reynsla. Með honum í mynd-
inni eru Robert Loggia, Jeff Goldblum og Kelly Preston en
leikstjóri er Stephen Herek.
Göldróttar systur
Sandra Bullock og Nicole Kidman fara með aðalhlutverkin í
nornamyndinni „Practical Magic“. Þær leika rammgöldróttar
systur sem helst illa á karlmönnum vegna nornaeðlisins, en
myndin er byggð á skáldsögu eftii- Alice Hoffman og notar
hann galdrafár m.a. til þess að lýsa harðri og spaugilegri sam-
keppni á milli systranna. Leikstjóri myndarinnar er Griffin
Dunne. Hann er leikari sem lagt hefur fyrir sig leikstjórn og
gerði síðast aðra sérkennilega rómantíska gamanmynd sem
hét ,J^ddicted to Love“.
Leikkonan Nicole Kidman hefur verið mjög áberandi upp á
síðkastið, einkum eftir að hún tók að leika á sviði bæði í
London og í New York í leikritinu Bláa herberginu, ])ar sem
hún fækkar íotum. Þá hélt leikstjórinn Stanley Kubrick henni
og eiginmanni hennar, Tom Cruise, við efnið í óheyrilega'
langan tíma ])egar hann gerði með þeim „Eyes Wide Shut“,
en „Practical Magic“ er fyrsta myndin sem hún leikur í frá því
að þeirri myndgerð lauk.
Nýársmynd
Pólitískir samsæristryllar eru sívinsælt kvikmyndaefni óg
er nýársmynd Sambíóanna og Regnbogans ein slík, en hún Ór
WILL Smith og Gene Hackman í nýársmynd Sambíóanna,
Óvini ríkisins.