Morgunblaðið - 24.12.1998, Síða 42

Morgunblaðið - 24.12.1998, Síða 42
42 FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ Svanhildur Skúladóttir heldur jól í Sarajevo STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. HENDUR KRISTS ÞAÐ ER ekki á hverjum degi sem íslenzk þjóð fylkir einhuga liði til samveru í anda og sannleika. Það gerir hún á helgum jólum. Og hefur gert í þúsund ár. A helgum jólum er húsfyllir í öllum kirkjum okkar, stór- um og smáum, víðsvegar um landið. Hvert er bakland þessa einhugar þjóðarinnar? Hvert er bakland þessar- ar hátíðar ljóssins og kærleikans, sem haldin er í dimmu íslenzks skammdegis - og hvarvetna heims um ból? Svarið er fáyrt: I Betlehem er barn oss fætt! Fagnaðarboðskapurinn er enn í dag samur og á hin- um fyrstu jólum fyrir bráðum tvö þúsund árum: „Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Hafið þetta til marks. Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu.“ [Lúkas 2, 8.] Frelsarinn kom í mannheim sem lítið barn. Hann vitnaði og oft til barnanna í boðskap sínum: „Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki. Sannlega segi ég yður: Hver sem ekki tekur við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma.“ [Lúkas 8, 15.] Jólin eru oft skilgreind sem hátíð barnanna, hátíð barnsins í brjóstum hinna fullorðnu, hátíð fjölskyldunn- ar, þegar ungir og aldnir deila semeiginlega gleðinni yfir fæðingu og boðskap Krists. Jólin eru einnig skil- greind sem hátíð ljóssins og kærleikans. Og síðast en ekki sízt sem hátíð hans sem er vegurinn, sannleikur- inn og lífið. Allar eru þessar skilgreiningar góðar og gildar - og auðskildar kristilega þenkjandi fólki. En samræmist þessi hátíð barnanna, hátíð barnsins í brjóstum okkar, rökhyggju og vísindum 20. aldar? Eiga trú og vísindi samleið inn í nýja öld sem í hönd fer? Jóhann Axelsson, prófessor, víkur að þessu efni, tengslum trúar og vísinda, í grein hér í Morgunblaðinu 3ja september sl. Hann leiðir fram þekkta Nóbelsverð- launahafa í raunvísindum [Max Planck 1918, Sir John Eccles 1963, Ragnar Granit 1967, Manfred Eigen 1967, Robert W. Holley 1968, B.D. Josephson 1973, Werner Arber 1978, Arthur L. Schawlaw 1981], sem allir telja að trú og vísindi geti átt samleið mannkyni til góðs. Manfred Eigen, sá þeirra sem hvað varlegast hagar orðum sínum, segir: „Eg tel að trú og vísindi útiloki hvorki né sanni hvort annað.“ Lífeðlisfræðingurinn Sir John Eccles segir á hinn bóginn: „Eg skynja sjálfan mig sem einstaka sjálfsmeðvitaða veru sem ég trúi að sé sköpuð af Guði.“ Og Max Planck, einn af frumkvöðl- um skammtafræðinnar, segir um samband trúar og vís- inda: „Raunverulegar mótsetningar milli trúar og vís- inda eru óhugsandi því saman mynda þau heild.“ Leitin að ljósinu og sannleikanum í mannlegri tilveru - og alheiminum - spannar bæði trú og vísindi. Sú leit ber samt sem áður ekki tilætlaðan eða viðunandi árang- ur nema kærleikurinn vísi veginn: Kærleikur til skap- ara himins og jarðar, kærleikur til okkar nánustu, kær- leikur til náungans, hver sem hann er, kærleikur til umhverfis okkar og ættjarðar - og kærleikur til alls sem lifir. Táknræn saga, nánast úr samtíð okkar, sagan um Kristslíkneskið sem laskaðist í heimsstyrjöldinni síðari, má gjarnan vera stefnumarkandi fyrir okkur öll. í stað handa, sem brotnuðu af höggmyndinni, var sett skilti er á stóð: „Þið eruð hendur Krists.“ Við erum með öðr- um orðum, eða eigum að vera, hendur hans sem sagði: „Það sem þið gjörið einum af mínum minnstu bræðrum það hafið þið og mér gjört.“ A helgum jólum - og á hverri tíð - eru til þurfandi einstaklingar, bæði nær og fjær, sem „hendur Krists“ geta hjálpað. Það þarf ekki að leita langt yfir skammt að meðbræðrum og systrum sem eru hjálpar þurfi á einn eða annan hátt. Við getum og lent í þeirra hópi. Það er mikill sannleikur í þessu forna spakmæli: „Vegurinn til Guðs liggur um hlaðið hjá náunganum.“ A helgum jólum göngum við öll, hvar í sveit sem við erum sett, til kirkju Krists með kærleikann að leiðar- ljósi. Og tökum á móti fagnaðarboðskapnum með barnslegri gleði. Morgunblaðið óskar lesendum sínum og landsmönn- um öllum gleðilegra jóla, farsældar og friðar. Borða hangikjöt og les jólabækurnar SVANHILDUR Skúla- dóttir borðar hangi- kjöt og les íslenskar jólabækur þrátt fyrir að hún haldi jólin í Sarajevo í Bosníu. Hún segir að jólin í borginni taki að nokkru leyti mið af því að ramadan, helsta hátíð múslima, hófst skömmu fyrir jól, en meirihluti borgarbúa eru múslimar. Svanhildur starfar á skrifstofu Alþjóða- sambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Sarajevo í Bosm'u. Hún sér um starfsmannahald og fleira. Rauði krossinn er með úti- bú um alla Bosníu og umfangs- mikla starfsemi. Rauði krossinn aðstoðar m.a. gamalt fólk sem býr heima. Á vegum Rauða krossins starfa 29 hópar iðnaðarmanna sem fara um alla Bosníu og gera lágmarksviðgerðir á húsum þannig að fólk geti búið í þeim. Ennfremur aðstoðar Rauði kross- inn flóttamenn frá Kosovó. Svanhildur sagði að ekkert landsfélag væri starfandi í Bosníu og Alþjóðasamband Rauða kross- ins væri að reyna að koma slíku félagi á fót þannig að Rauði krossinn f Bosníu geti staðið á eigin fótum í framtíðinni. Hún sagði að miklar breytingar hefðu orðið í Sarajevo á þessu ári. Búið væri að gera við hús, götur og brýr sem skemmdust í stríðinu. Vöruúrval í verslunum hefði aukist nyög mikið og veitingahús, kaffi- hús og þjónustufyrirtæki hefðu tekið til starfa. Afkoma stórs hluta borgarbúa væri hins vegar bágbor- in og margir liðu skort. Svanhildur sagði að borgin væri orðinn sæmilega örugg. Frið- argæslusveitir Sam- einuðu þjóðanna væru enn í borginni og eng- in átök ættu sér stað í borginni. Hins vegar hefðu orðið uppþot í Bosni'u, m.a. í tengsl- um við handtökur stríðsglæpamanna. „Við verðum hins vegar að passa okkur að halda okkur á steyptum götum og gangstéttum því að hér er allt morandi í jarðsprengjum. Það kemur til með að taka áratugi að hreinsa það upp. Jarðsprengjurn- ar eru helsta daglega ógnunin sem borgarbúar búa við,“ sagði Svanhildur. „Við erum nokkur saman hjá Alþjóðasambandi Rauða krossins sem ætlum að halda saman jól hér í Sarajevo. Við ætlum að borða saman á jóladag. Það ætlar hver og einn að koma með eitthvað {jjóðlegt til að leggja á jólaborðið. Eg er búin að fá hangikjöt og há- karl að heiman. Eg er líka búin að fá sendar jólabækur að heiman. Þetta verða því kannski dálítið hefðbundin jól hjá mér. Eg kem til með að borða hangikjöt og lesa íslenskar jólabækur. Ég ætla að fara í messu í kirkju heilags Antonfusar á að- fangadagskvöld. Mér er sagt að fyrir stríð hafi flestallir farið í messu á aðfangadagskvöld hvort sem fólk var múslimar eða Ser- bar. Króatarnir eru kaþólskir og halda sig við sínar kirkjur. Ser- barnir halda hins vegar ekki jól fyrr en í janúar,“ sagði Svanhild- Helga Þórólfsdóttir er í Kampala í llganda Erfitt að finna jólatré í Kampala Svanhildur Skúladóttir JÓLIN eru ekki mjög hátíðleg í Kampala í Uganda segir Helga Þórólfsdóttir, sem starfar hjá Alþjóða- ráði Rauða krossins í Uganda. Hún segir þó að flestir hlakki til jól- anna. Hún og sam- starfsmenn hennar borða jólamat undir beru lofti kl. 18 í kvöld. Þegar Morgun- blaðið ræddi við Helgu var hún ekki búinn að finna neitt jólatré. Helga starfar í Kampala, höfuðborg Úganda, og er ábyrg fyrir stuðningi Alþjóðaráðs Rauða krossins við landsfélagið í tíg- anda. Hún ferðast um allt land og heimsækir deildir Rauða krossins. I Uganda er mikið um flóttamenn frá Súdan, Kongó og Rúanda, en auk þess hafa margir tíganda- menn hrakist að heiman vegna árása skæruliða í Norður-Ug- anda. Helga sagði að Rauði krossinn reyndi að aðstoða flóttamenn með ýmsum hætti. Þeim væri hjálpað við að skrifa ættingjum og hafa upp á þeim. Aðstoðin fælist einnig í að útvega flóttamönnuin teppi, áhöld til að geta eldað, fræ og út- sæði. Flóttamönnum væri einnig útveguð heilbrigðisþjónusta. Enn- fremur sinntu Rauðakrossfélagar heimsóknum til stríðsfanga. „Þetta er frekar blandað þjóðfé- lag. Hér eru múslimar og kristnir. Það er ekki Iátið eins mikið með jólin hér og heima, en fólk heldur hér samt jól. Það er gefið frí yfír jólin og fólk notar tækifærið og skemmtir sér. Það er kannski ekki sami hátíðleikinn hér og heima.“ Helga sagði að það væri ekki sama skipulagið í tíganda í sambandi við jólahald og heima. Fólk gæfi jólagjafir, en það væri ekki lögð nein sérstök áhersla á að pakka þeim inn. Eins væri ýmist að fólk tæki fram gjafirnar á jóladag eða aðfanga- dag. Helga sagði að fólk sendi jólakort í tíganda og skipti þá ekki máli hvort það væri kristið eða múslimar. Helga sagðist verða að vinna um jólin. Starfsfólkið ætlaði samt að fara snemma heim á aðfanga- dag og mæta seint til vinnu á jóla- dag. „Við útlendingarnir sem er- um hér um jólin erum að reyna að skipuleggja jólamáltíðina. Hér eru Frakkar, ftalir, Svisslending- ar, Líbani, Dani og íslendingur og öll viljum við eitthvað sem minnir á jólin í' okkar heimalandi. Við þurfum því að ná samkomulagi um jólahaldið. Ég fékk það nú í gegn að jólamáltíðin yrði borðuð á aðfangadag kl. 18. Sumum fannst þetta of snemmt, en ég fékk þetta í gegn. Ég þarf hins vegar að sætta mig við að á borð- um verður pasta og fleira sem mér finnst ekkert jólalegt. Eina vandamálið er að fá jólatré. Við erum að leita að einhverri plöntu sem við getum fmyndað okkur að geti gegnt hlutverki jólatrés. Við borðum hins vegar líklega úti á aðfangadag. Þess er ekki að vænta að hér snjói,“ segir Helga. Helga Þórólfsdóttir Jólaljós Ljóð: Davíð Oddsson Lag: Atli Heimir Sveinsson Gleðigjöf, þá guð oss færði, mannkyn allt hann endurnærði. Lífsins vonin, litla bamið, ljósið kveikti og okkur fól. Ljósið það við köllum jól. Lifi ljósið ljósið skæra. Lífsins vonin, ástin kæra. Lifi ljósið loginn skæri, lífsins kraftur, neistinn tæri. Birtu ber það, bömum er það sigursól. Sól, sem dimmu í dagsljós breytir, drottins sonur ljósið heitir. Með honum syngjum, heims um 1 „hallelúja“ um heilög jól. [D.O.] Ort í Hallgrímskirkju 29. nóvembe ELDGOSIÐ í i
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.